Morgunblaðið - 07.07.2002, Qupperneq 43
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 2002 43
Fyrirtæki til sölu
● Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
● Heildverslun með sælgæti. 60 m. kr. ársvelta. Föst viðskipti. Góður
hagnaður. Meðeign eða sameining möguleg.
● Dagsöluturn í atvinnuhverfi með áherslu á léttar veitingar. Lítil en vax-
andi velta og miklir möguleikar.
● Lítil heildverslun með góða markaðsstöðu í matvöru óskar eftir meðeig-
anda eða sameiningu til að nýta góð tækifæri.
● Rótgróið veitingahús við Bláa Lónið. Góður og vaxandi rekstur í eigin
húsnæði á þessum fjölsóttasta ferðamannastað landsins.
● Þekkt lítið matvælafyrirtæki með góða framleiðslu óskar eftir samein-
ingu við öflugt fyrirtæki. Selur bæði í matvöruverslanir og á stofnana-
markaði. Ársvelta nú um 35 m. kr. en getur vaxið hratt.
● Verslun, bensínssala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið húsnæði. Mjög
góður hagnaður. Ársvelta 180 m. kr. og vaxandi með hverju ári. Sérstak-
lega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón.
● Vinsæl verslun með notaðan fatnað. Auðveld kaup.
● Lítil en mjög efnileg heildverslun með umhverfisvæn hreinsefni.
● Pizzastaður til sölu í Hafnarfirði. Partur af stórri keðju. Miklir möguleikar.
● Góð bónstöð með mikil föst viðskipti.
● Lítil tískuverslun í Kinglunni. Mánaðarvelta 2—3 m. kr. Auðveld kaup.
● Þekkt myndbandssjoppa í Breiðholti með 5 m. kr. veltu á mánuði. Auð-
veld kaup.
● Heildverslun með tæki og vörur fyrir byggingariðnaðinn. Ársvelta 130
m. kr. Góður hagnaður um margra ára skeið. Hagstætt verð.
● Sportkrá í Árbæjarhverfi. Besti tíminn framundan. Auðveld kaup.
● Sólbaðsstofa í Skeifunni. 12 bekkir. Velta 1200 þús. kr. á mánuði. Skipti
möguleg.
● Grensásvideó. Ágætur hagnaður, auðveld kaup.
● Lítið fyrirtæki sem rekur 9 leikjakassa í sjoppum. Auðveldur rekstur í
aukavinnu.
● Hreingerningafyrirtæki sem sérhæfir sig í hreinsun á rimlagardínum.
Góður tækjakostur. Hentar vel í bílskúr. Góðar tekjur fyrir duglegan
mann.
● Rótgróið og vel arðbært gistihús miðsvæðis í Reykjavík. 15 herbergi,
ársvelta 20 m. kr. Möguleiki á 15 herbergjum til viðbótar og lítilli íbúð
fyrir eiganda.
● Lítil en vel þekkt heildverslun með iðnaðarvélar. Hentar vel fyrir 1-2
starfsmenn, sérstaklega smiði.
● Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. Gott tækifæri fyrir fyrirtæki
í svipaðri starfsemi.
● Vel þekkt og vaxandi sérverslun með flísar. 50 m. kr. ársvelta. Góð
umboð.
● Veitingastaður í atvinnuhverfi. Eingöngu opið virka daga kl. 7—17. Lágt
verð — auðveld kaup.
● Snyrtivörudeild úr heildverslun. Litalína sem er í nokkrum góðum versl-
unum og hægt er að efla. Hentugt fyrir konu sem hefur vit á snyrtivör-
um og langar í eigin rekstur. Lágt verð.
● Langar þig í eigin rekstur? Höfum til sölu nokkur lítil en góð fyrirtæki
sem auðvelt er að byrja á. Jafnvel auðveldara en þú heldur.
● Heildverslun með þekkt fæðubótarefni sem aðallega eru seld í apótek.
Ársvelta 20 m. kr.
● Eitt af vinsælustu veitingahúsum bæjarins. Mjög mikið að gera.
● Lítil kvenfataverslun við Laugaveg. Góð afkoma fyrir 1—2 konur. Auð-
veld kaup.
● Sólbaðsstofa í Garðabæ. Sú eina í bænum. 5 bekkir + naglastofa. Verð
6 m. kr., góð greiðslukjör.
● Skyndibitastaður í Kringlunni. Einstakt tækifæri.
● Verksmiðja sem framleiðir gróðurmold o.fl. Góð viðskiptasambönd.
● Þekkt kvenfataverslun í Skeifunni. Góð þýsk innkaupasambönd. Auð-
veld kaup.
● Hlíðakjör. Söluturn í góðu húsnæði í Eskihlíð. Hentugt fyrir hjón. Auð-
veld kaup.
● Lítil smurbrauðsstofa með góð tæki og mikla möguleika.
● Bílaverkstæði á góðum stað í Kóp. Hentugt fyrir 2 menn. Verð 2,5 m. kr.
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, gsm 820 8658
jöreign ehf
Sími 533 4040
www.kjoreign.is
Ármúla 21, Reykjavík
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali,
OPIÐ HÚS í dag, sunnudag, frá kl. 15-17
Bakkstaðir 165, Reykjavík.
Glæsileg rúmgóð íbúð á efri hæð í 2ja hæða
húsi. Forstofa flísalögð með góðum skáp. Eld-
hús með vandaðri innréttingu. Gengið út á
stórar norðursvalir. Rúmgóð stofa. Lítið vinnu-
herbergi í suðurenda. Tvö rúmgóð barnaher-
bergi, bæði með skáp. Hjónaherbergi með
skáp og hurð út á stórar suðursvalir. Rúmgott baðherbergi hornbaðkar með
nuddi. Rúmgott þvottahús og geymsla með gólfflísum. Frábært útsýni. Góð
aðkoma og góð bílastæði. Sérlega vel skipulögð og björt íbúð með gluggum á
þrjá vegu.
Hrefna og Friðbjörn bjóða ykkur velkomin að Bakkastöðum 165 í dag.
GIMLI GIMLI
FASTEIGNASALAN GIMLI, GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - 570 4810
Sumarbústaðurinn Rjóður
(66 fm) er í Gnúpverjahreppi, um
100 km frá Reykjavík. Í Gnúp-
verjahreppi er m.a. þjóðgarður-
inn Þjórsárdalur, en bústaðurinn
er staðsettur nálægt byggðar-
kjarnanum Árnesi.
Allar nánari uppl. um staðsetn-
ingu gefur Hákon í síma 825 0050. Verð 7,5 millj.
Opið hús í dag á milli kl. 14.00 og 17.00
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14.00 OG 17.00
LÖNGUDÆLAHOLT -„RJÓÐUR“
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Til sölu mjög fallegt 53 fm sum-
arhús í landi Vatnsenda í
Skorradal. 0,5 hektara skógi-
vaxið land, frábært útsýni yfir
vatnið. Verð 6,5 millj. Möguleiki
að fá bátaskýli.
Um er að ræða eitt glæsilegasta
hesthúsið á markaðnum í dag.
Húsið er 170 fm, byggt 2000, og
stendur á sérlóð. Fimmtán hesta
stíur o.fl. Stórt gerði, taðþró,
(gámur). Allt sér. Einstök stað-
setning við eina helstu náttúru-
perlu hestamanna. Frábært útsýni. Upplýsingar veitir Helgi Jón á
skrifstofu. Verðtilboð.
Sumarbústaður - Skorradal
Sörlaskeið- Hf. - Hesthús
Hallgrímskirkja. Sumarkvöld við orgelið.
Tónleikar kl. 20. Jurate Bundzaite frá
Litháen leikur.
Fríkirkjan í Reykjavík. Messa kl. 11.
Fermdur verður Davíð Sigurðsson, búsett-
ur í Danmörku. Tónlist verður í umsjón
Önnu Sigríðar Helgadóttur og Karls Möll-
ers ásamt kór Fríkirkjunnar. Þetta verður
síðasta sunnudagsmessa fyrir sumarleyfi
starfsfólks. Reglulegt guðsþjónustuhald
hefst aftur um miðjan ágústmánuð. Nánar
auglýst síðar. Kirkjan verður samt sem áð-
ur opin fyrir kirkjulegar athafnir í allt sum-
ar, einnig verður hægt að ná í safnaðar-
prest sem áður. Safnaðarstarf
Fríkirkjunnar, Hjörtur Magni Jóhannsson.
Laugarneskirkja. Framhaldshópur um 12
sporavinnu mánudag kl. 18. Umsjón Mar-
grét Scheving.
Grafarvogskirkja. Sunnudagur: Bænahóp-
ur kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla
virka daga frá kl. 9-17 í síma 587-9070.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt kristilegt starf
fyrir 9-12 ára drengi í Kirkjuhvoli á mánu-
dögum kl. 17.30 í umsjón KFUM.
Lágafellskirkja. Mánudagur: Al-Anon fund-
ur í kirkjunni kl. 21. Bænahópur á mánu-
dagskvöldum í Lágafellskirkju kl. 20.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnudag
kl. 19.30.
Hvammstangakirkja. KFUM&K starf kirkj-
unnar í Hrakhólum mánudag kl. 17.30.
Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Íslenska kristskirkjan. Samkoma kl. 20.
Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Friðrik Schram
talar um efnið: Hvernig á að sigrast á dep-
urð og svartsýni.
Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu-
maður Þorsteinn Óskarsson. Almenn sam-
koma kl. 20. Ræðumaður G. Theodór Birg-
isson. Lofgjörðarhópur Fíladelfíu syngur.
Allir hjartanlega velkomnir.
KEFAS, Vatnsendabletti 601. Sunnudag-
ur: Samkoma kl. 14. Helga R. Ármanns-
dóttir talar. Bænastund fyrir samkomu kl.
13.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Barnagæsla
fyrir 1-7 ára börn. Þriðjud: Bænastund kl.
20.30. Miðvikud.: Samverustund unga
fólksins kl. 20.30. Mikil lofgjörð og orð
guðs rætt. Allir velkomnir.
Safnaðarstarf
Í FRÉTTAFLUTNINGI af yfir-
tökutilboði fimm stofnfjáraðila
SPRON fyrir hönd Búnaðarbanka
Íslands hf., talar forsvarsmaður
fimmmenninganna, Pétur Blöndal,
um að ekki sé bara verið að kaupa „fé
án hirðis“ heldur sé líka verið að
kaupa þá góðu ímynd sem fari af
SPRON.
Við undirritaðir starfsmenn og
stofnfjáreigendur SPRON spyrjum
okkur að því hvernig er hægt að
kaupa „góða ímynd“. Er það ekki
eitthvað sem skapast við góðan
starfsanda og gott viðmót og traust á
milli stjórnenda, starfsmanna og við-
skiptavina?
Góð ímynd hefur skapast um
SPRON vegna þess að við erum
samhentur hópur starfsmanna og
stjórnenda, sem stefnir að sömu
markmiðum, sem eru fyrst og fremst
að uppfylla þarfir viðskiptavina okk-
ar.
Starfsfólkið er helsta auðlind
SPRON. Það býr yfir mikilli reynslu,
þekkingu og þjónustulund sem end-
urspeglast í persónulegri þjónustu
við viðskiptavinina.
Lykilþættir í góðum árangri fyr-
irtækisins eru valddreifing, þekking
starfsfólks, gott upplýsingastreymi,
persónuleg þjónusta og viðmót. Mik-
il áhersla er lögð á að starfsfólk hafi
góða þekkingu og frumkvæði til þess
að sinna viðskiptavinum af alúð og
fagmennsku og hafi sjálfstæði til
ákvarðanatöku.
Þetta þekkjum við sem störfum
hjá SPRON í hvetjandi umhverfi þar
sem mikil áhersla er lögð á menntun
og frumkvæði starfsfólks auk þess
sem mikil innri hvatning gefur
starfsfólki tækifæri til þess að þrosk-
ast og eflast í starfi.
Í tilboðinu segir að Búnaðarbank-
inn muni tryggja óbreyttan rekstur
SPRON þannig að viðskiptavinir og
starfsmenn eigi ekki að verða varir
við þessi eigendaskipti.
Við höfum miklar efasemdir um að
bankinn standi við þessi orð. Frekar
sjáum við fyrir okkur ýmsar aðgerð-
ir svo sem lokun afgreiðslustaða og
fækkun starfsfólks og allt yrði þetta
útskýrt sem hagræðing og eðlileg
þróun.
Starfsfólk SPRON og stofnfjárað-
ilar hafa fylgst með undirbúningi
sparisjóðsstjóra og stjórnar að
hlutafjárvæðingu SPRON. Um þetta
hefur verið rætt á síðustu aðalfund-
um auk þess sem haldnir voru sér-
stakir kynningafundir fyrir stofn-
fjáraðila. Hvar voru fimm-
menningarnir á síðasta aðalfundi
hinn 15. mars 2002 þar sem stofn-
fjáraðilar samþykktu samhljóða að
fela stjórn og sparisjóðsstjóra að
halda áfram að undirbúa hlutafjár-
væðingu SPRON?
SPRON fagnar á þessu ári sjötíu
ára afmæli, og er staða fyrirtækisins
sterkari en nokkru sinni fyrr. Það er
skoðun viðskiptavina, stofnfjáraðila
og starfsfólks að ímyndin sé góð en
það eru niðurstöður úr þjónustu- og
viðhorfskönnunum. Að sjálfsögðu
erum við stolt af því að Búnaðar-
banki Íslands hf. skuli vilja bæta
ímynd sína með því að kaupa
SPRON.
Að lokum lýsum við yfir stuðningi
okkar við stjórn og framkvæmda-
stjórn SPRON. Við vitum og finnum
fyrir því að starfsfólkið stendur sam-
an sem einn maður í þessu máli. Í
sjötíu ár hefur SPRON vaxið og
dafnað og aldrei hefur SPRON-and-
inn verið sterkari en einmitt nú
þegar þörfin er mest.
ANNA BJÖRK
HARALDSDÓTTIR,
KATRÍN PÁLSDÓTTIR,
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR,
SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR.
Er hægt að
kaupa góða
ímynd SPRON?
Frá fjórum starfsmönnum
SPRON:
KIRKJUSTARF