Morgunblaðið - 16.08.2002, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
! "#
$%
# BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
FYRST kom fjármálaráðherra, svo
kom verkalýðshreyfingin og svo
komu þingmenn í Kastljósi.
Þetta eru risaeðlur stjórnmál-
anna, eða fulltrúar þeirra. Þessi teg-
und af stjórnmálamönnum verður að
hverfa af sjónarsviðinu. Eru þeir að
stefna að vinstristjórn. Engin
vinstristjórn hefur lokið kjörtíma
sínum en stokkið fyrir borð með rott-
unum þegar allt var tæmt. Eru þeir
að stefna að framhaldslífi í Fram-
sókn hangandi í þeirri trú að raunvís-
indin hafi ekki sannað að himnaríki
sé ekki til og hægt að bæta einu lífi
við með Sjálfstæðisflokknum? Verða
þrír Sjálfstæðisflokkar í framboði?
Hvar verða þeir átta einstaklingar í
framboði sem formaður Heimdallar
sagði í Kastljósi að væru eini klofn-
ingurinn í Heimdalli sem hann vissi
um í félaginu sem hann taldi stund-
um með 4 þúsund meðlimi en stund-
um 8? Og svo Vinstri grænir.
Það góða fólk. „allir menn drepa
yndi sitt“ sagði skáld harmsins.
Þetta er hinn pólitíski akur! En
sjórnmál snúast ekki um stæði ein-
staklinga í ræðustól Alþingis. Stjórn-
mál snúast um hugsun. Þau snúnast
um siðfræði og tengingu hennar við
rökrétta hugsun. Það er ekki að sjá
að hugsun stjórnmálamanna á Ís-
landi snúist um rökrétta husun. Ef
það væri svo þá flæktust mál eins og
skattamál aldraðra ekki fyrir þeim.
Eitt pennastrik og kaupið hækkar
hjá þeim sem hafa lægstu launin.
„Við semjum bara um lágmarks-
laun,“ sögðu foringjar verkalýðs-
hreyfingarinnar. Þá hvarf kjarabar-
áttan undir jörðina og hefur ekki
sést síðan!
Ég leyfði mér að leggja fram til
umræðu tvo þætti í þjófélaginu sem
er nú þegar að sporðreisa stóran
hluta þjóðfélagsins. Þetta er aðbún-
aður aldraðra síðustu æviárin og
staða heibrigðiskerfisins. Þessir
málaflokkar hafa nú þegar orðið við-
skila við velferðarþjóðfélagið að
nokkru leyti af ástæðum sem oft hafa
verið tíundaðar. Eina leiðin sem
mögulegt er til að hala þarna inn er
að gera átak og draga inn slakann og
fá svo forskot til að þessir málaflokk-
ar verði samsíða öðrum málaflokkum
í velferðarkerfinu. Það verður ekki
gert nema með átaki.
Gæti fjámálaráðherra, fulltrúi
verkalýðshreyfingarinnar og þing-
mennirnir í Kastljósi svarað þessari
spurningu hreinskilnislega: Væruð
þið tilbúin að gera samning sem kos-
ið væri um jafnframt alþingiskosn-
ingunum? Samning um að reikna út
hvað það kostar að koma þessum
málaflokkum upp að hliðinni á öðrum
hliðstæðum málaflokkum. Að allir
tækju þátt. Skattgreiðendur annars
vegar með 1% tekjuskatt í viðbót og
ríkið afganginn á fimm árum – fimm
ára samningur.
Þetta væri hægt núna þegar 5–10
ára (fulltrúi Lansvirkjunar) „góð-
æri“ er framundan. Þetta góðæri fer
út í neysluna með illu eða góðu á
jörðinni, undir jörðinni og yfir jörð-
inni. Og vel að merkja þá er það ekki
bara helvítis íhaldið sem étur yfir
sig.
HRAFN SÆMUNDSSON,
fyrrv. atvinnumálafulltrúi.
Tími kreppuáranna
er endanlega liðinn
Frá Hrafni Sæmundssyni:
ÉG BÝ á Garðaholti í Garðabæ í
mikilli fuglaparadís og hafa um 25
fuglategundir verpt hér á holtinu, en
nú er að verða mikil breyting á. Inn-
rásarlið hefur tekið völdin og er að
hrekja mófuglana á brott, en það eru
sílamávar.
Í vor þegar maður ók veginn í
austur utan af Álftanesi og leit upp á
Garðaholtið var það eins og fugla-
bjarg yfir að líta. Mávarnir sátu þar í
hundraðavís á hreiðrum sínum. Nú
eru ungarnir orðnir fleygir. Foreldr-
arnir hafa verið duglegir að mata þá
og einkum sótt æti í Hafnarfjörðinn
þar sem skólpið rennur út í fjöru-
borðið í krikanum við sundhöllina.
Það er víðar illa búið að skólpi en í
Skagafirði og á Akureyri. Fluglína
fuglanna á Garðaholti liggur að
nægtaborðinu í Hafnarfirði yfir
heimili mitt þar sem sjá má ummerki
fuglanna á þaki hússins og trépalli
sem umlykur það svo og á bílnum, en
það sem verra er – á salati, káli og
ýmsu öðru sem við ræktum. Maður
þorir varla að hugsa um hvað leynist
í þessu driti .
Árum saman hefur fjölskyldan
farið í Gálgahraun að tína ber, en þar
er gott berjaland.
Þar hefur sílamávurinn líka tekið
völdin og sett mark sitt á berjaþúf-
urnar. Heyrst hefur að sílamávurinn
angri golfara í Garðabæ og Hafnar-
firði en hvergi virðist friður fyrir
þessum ófögnuði.
KRISTÍN GESTSDÓTTIR,
Grænagarði, Garðabæ.
Sílamávaplága í Garðabæ
Frá Kristínu Gestsdóttur:
Mávager í fjörunni í Hafnarfirði.