Morgunblaðið - 16.08.2002, Síða 52
FÓLK Í FRÉTTUM
52 FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KEFLVÍKINGURINN Rúnar Júl-
íusson er meðal þeirra sem eiga
heiðurinn af lagi er keppa mun um
titilinn Ljósalagið 2002 í Stapa í
kvöld. Fleiri þekkt nöfn eru á meðal
höfunda og má þar nefna Valgeir
Skagfjörð, Magnús Kjartansson, Jó-
hann Helgason og Jóhann G. Jó-
hannsson. Tíu lög voru valin til úr-
slita í keppninni, sem hefst um kl. 22
að loknum kvöldverði í Stapa. Verð-
ur hún sýnd í beinni útsendingu á
Skjá einum og er ætlunin að úrslit
verði kunngerð fyrir miðnætti.
Að sögn Halldórs Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra keppninnar,
hafa æfingar staðið alla vikuna en
það eru Einar Ágúst, Margrét Eir,
Andrea Gylfa og Páll Rósinkrans
auk annarra sem flytja lögin.
Rúnar Júl
meðal
höfunda
Ljósmynd/Sævar S.
Það var líf í tuskunum á æfingum í Stapa í vikunni.
Keppnin um Ljósalagið í Stapa í kvöld
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar
BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi:
Úlrik skemmtir föstudagskvöld.
CAFÉ AMSTERDAM: Rokkbandið
Stóri björn spilar.
CAFÉ CATALÍNA: Trúbadorinn
Sváfnir Sigurðarson.
CAFÉ ROMANCE: Ray Ramon og
Mete Gudmundsen spila.
CAFFE RÓM, Hveragerði: Bjór-
bandið spilar.
CATALÍNA: Útlagarnir leika.
EGILSBÚÐ, Neskaupstað:
Trúbador Íslands 2002 föstudags-
kvöld kl. 22:00. Megas, Bjarni
Tryggva, Bjartmar Guðlaugsson,
Mike Pollock, Hlynur Ben frá Norð-
firði og Hilmar Örn Garðarsson frá
Stöðvarfirði.
FOSSHÓTEL, Húsavík: Sálin leik-
ur fyrir dansi.
GAUKUR Á STÖNG: Hljómsveitin
Á móti sól.
GULLÖLDIN: Stórsveit Ásgeirs
Páls sér um dansstemninguna.
HÓTEL SKÓGAR UNDIR EYJA-
FJÖLLUM: Blústónleikar, Blúsþrjót-
arnir spila.
KAFFI REYKJAVÍK: BSG, Björg-
vin Halldórs, Sigga Beinteins og
Grétar föstudagskvöld.
KAFFI-LÆKUR, Hafnargötu 30,
Hafn.: Njalli í Holti spilar.
KAFFI-STRÆTÓ, Mjódd: Dansdú-
óið Íris Jóns og Siggi Már.
KRINGLUKRÁIN: Hljómsveit
Rúnars Júlíussonar.
O’BRIENS, Laugavegi 73: Moga-
don föstudagskvöld.
ODD-VITINN, Akureyri: Örvar
Kristjánsson spilar föstudagskvöld.
PÍANÓBARINN: L.B.H. Crew
með uppákomu. Bretinn Jega spilar
nýtt efni af væntanlegri plötu. Ívar
Örn, Anonymous, DJ Hello Kitty og
DJ Ifo spila einnig. Þá mun DJ
Gummo taka nett plötuklór og Raggi
Botnleðja mun fremja hrynheitt at-
riði með bassanum sínum. 500 kr og
svaka fjör.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópa-
vogi: Íslands eina von.
RÁIN, Reykjanesbæ: Hersveitin
leikur fyrir dansi.
VEISLUSALURINN DÚNDRIÐ,
Djúpavogi 12: Elvis Presley Kar-
aoke kvöld á vegum aðdáendaklúbbs
Presleys á Íslandi. Salurinn opnar
kl. 20.00 og er skráning á staðnum.
Keppnin hefst svo kl. 22.00. Labbi í
Glóru sér svo um dansleik eftir
keppnina.
VIÐ POLLINN, Akureyri: Dans-
sveitin Sín leikur.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Hinn síungi Rúnni Júl. verður á Kringlu-
kránni um helgina ásamt hljómsveit.
About a Boy
Hugh Grant fer fyrir einstökum leikhópi og
myndin er undur vel gerð og skrifuð. Frábær
skemmtun. (S.V.) Háskólabíó, Sambíóin.
Fríða og Dýrið
Það er svo gaman að sjá þetta fallega ævintýri
einu sinni enn, þar sem Dýrið þarf að vinna
ástir ungrar konu til að eiga afturkvæmt úr
álögunum. Yndisleg saga, frábær tónlistarat-
riði (líka það nýja) og fallegar teikningar. Fín
íslensk talsetning gerir þetta enn skemmti-
legra. Allir í bíó! (H.L.) ½
Sambíóin, Háskólabíó
Eight Legged Freaks /
Áttfætlurnar ógurlegu
Ein frísklegasta kvikmyndin í bíóhúsunum í
dag. Skörp og vel skrifuð skrímslamynd í anda
vænisjúkra B-hrollvekja 6. áratugarins. Prýði-
leg skemmtun. (H.J.) The Mothman
Prophecies
Vönduð mynd og áhrifarík sem byggist laus-
lega á sönnum yfirnáttúrulegum atburðum.
Góðir leikarar njóta sín vel og áhorfandinn er á
taugum allan tímann. (H.L.) Sambíóin, Háskólabíó.
Novocaine / Verkjastillir
Gott spennudrama þar sem unnið er á meðvit-
aðan hátt með noir-kvikmyndahefðina. Steve
Martin er frábær í aðalhlutverkinu.(H.J.)
Háskólabíó
Murder by Numbers
Í anda Rope eftir Hitchcock og vinnubrögð
Barbets Schroeder eru öll hin fagmannleg-
ustu. Morðsagan sjálf er hins vegar fullfyr-
irsjáanleg. Ungu leikararnir standa sig best.
(S.V.) ½
Sambíóin
Reign of Fire / Eldríkið
Gamli góði B-vísindahrollurinn kominn aftur í
fullu fjöri. Hrá, grá og notalega vitlaus. (S.V.)
½
Laugarásbíó, Regnboginn
Spirit / Villti folinn
Rómantísk og ljóðræn teiknimynd um frjálsan
hest í villta vestrinu og hættulegum fyrstu
kynnum hans af mannskepnunni. Fallegar
teikningar, ágæt saga en leiðileg tónlist. (H.L.)
Sambíóin, Háskólabíó
Bad Company
Hopkins og Rock eru furðulegt par sem venst
vel í annars stundum fyndinni en alltof langri
og ófrumlegri spennumynd. (H.L.) Sambíóin, Háskólabíó.
Big Trouble
Ein af misheppnuðu myndum hins stórgóða
Sonnenfeld. Handritið er skrykkjótt, brandar-
arnir fúlir og leikararnir standa sig ekki nógu
vel þrátt fyrir stjörnustimpil. Ljósir punktar inn
á milli. (H.L. ) Sambíóin
Clockstoppers / Klukkubanar
Gamaldags fjölskyldumynd um unglingspilt
sem lendir í tæknivæddum ævintýrum. Sóma-
samleg skemmtun sem skilur þó lítið eftir sig.
(H.J.) Háskólabíó
Pétur Pan 2:
Aftur til Hvergilands
Pétur Pan berst enn við Kaftein Krók og nú
með hjálp Jónu dóttur hennar Vöndu. Ósköp
sæt mynd en heldur tíðindalítil og ófrumleg.
(H.J.) Sambíóin, Háskólabíó.
The Sweetest Thing /
Hið ljúfa líf
Gamanmynd með Cameron Diaz sem er góðra
gjalda verð, birtir glaumgosalíferni ungra
kvenna í opinskáu og ögrandi ljósi. Því miður
er framsetningin frá fyrstu stund of tilgerðarleg
og ýkt, og myndin því misheppnuð. (H.J.) Smárabíó, Regnboginn
Big Fat Liar
Atburðarásin leiðist úr sæmilegri sögu um
dreng sem þarf að læra að ljúga minna í
dæmigerða sadíska hefndarmynd í anda
Home Alone. Þessi tilraun er allmisheppnuð.
(H.J.) ½
Sambíóin
Scooby Doo
Fjallar um krakkana og hundinn í Ráðgátum
hf. sem lenda nú á draugaeyju. Ósköp svipuð
sjónvarpsþáttunum, með álíka lélegum húm-
or, en þó ekki jafn fyrirsjáanleg. Og krakkarnir
skemmta sér vel. (H.L.) ½
Háskólabíó
Mr. Bones / Herra Bones
Ófyndið þunnildi frá S-Afríku sem minnir mest
á slagorð Idioterne: Vitlaus mynd, gerð af vit-
leysingum fyrir vitleysinga. (S.V.) ½
Sambíóin
Van Wilder Party Liaison
Einhver alversta mynd sem rekið hefur á fjörur
íslenskra kvikmyndahúsagesta í langan tíma.
(H.J.) 0
Regnboginn.
The New Guy / Nýi gaurinn
Lengi getur vont versnað en hér er botninum
náð í heimsku og hugmyndaleysi. Aular í öll-
um hlutverkum framan sem aftan við tökuvél-
arnar. (S.V.) 0
Regnboginn, Laugarásbíó
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
ÍTALSKA leikkonan Sophia Loren
fær sérstök heiðursverðlaun fyrir
æviframlag sitt til kvikmynda á al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Feneyjum síðar í mánuðinum, að
því er skipuleggjendur hátíðarinn-
ar tilkynntu. Loren, sem er 67 ára,
var valin verðlaunahafi Premio
Pietro Bianchi 2002 af landssam-
bandi kvikmyndagagnrýnanda á
Ítalíu en ferill leikkonunnar í kvik-
myndum spannar meira en hálfa
öld.
Leikkonan sífagra snýr aftur á
hátíðina í hlutverki í myndinni
Between Strangers í leikstjórn
Edoardo Ponti, sonar Loren og
kvikmyndaframleiðandans Carlo
Ponti. Kvikmyndin tekur þó ekki
þátt í samkeppni hátíðarinnar.
Loren verður fyrsta leikkonan til
að fá þessi virtu verðlaun. Aðeins
ein kona hefur fengið þau áður,
handritshöfundurinn Suso Cecchi
D’Amico. Leikstjórar og handrits-
höfundar hafa oftast fengið verð-
launin og nýlegir handhafar Prem-
io-verðlaunanna eru leikstjórinn
Michelangelo Antonioni og Bern-
ardo Bertolucci.
Reuters
Sophia
Loren
heiðruð
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Feneyjum
% 29$:
;
9:
%
!<#!
=%(:2
>
.( %
*?
!
"
#$$$