Morgunblaðið - 22.09.2002, Síða 40
FRÉTTIR
40 SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vorum að fá í sölu rekstur kaffihúss og veitingastaðar með vínveitingaleyfi í
stórglæsilega innréttuðu nýju húsnæði í Kópavogi. Staðurinn tekur 64 í sæti og hefur
mikið verið lagt í allar innréttingar og eldhúsið þar sem hægt væri að fá betri nýtingu.
Þetta er rekstur sem hentar samhentum aðilum en einnig er möguleiki að núverandi
eigandi starfi áfram við reksturinn við hlið nýs eiganda.
Allar upplýsingar gefa Bjarni eða Kristinn á Holti.
www.holtfasteign.is
GLÆSILEGA INNRÉTTAÐ KAFFIHÚS
Í KÓPAVOGI
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Kambasel 67, Rvík
Hörku gott 158 fm raðhús á
tveimur hæðum ásamt 26 fm
innbyggðum bílskúr. Eignin er
samt. 184 fm að stærð. Gott
eldhús, 5 svefnherbergi, 2
bjartar saml. stofur. Garður og
svalir í suður. Sérlega barn-
vænt hverfi. Ath. möguleg makaskipti á 4ra herb. íbúð í Selja-
hverfi. Verð 18,5 millj. Vertu velkomin(n) að skoða þessa eign.
Margrét tekur vel á móti þér
og leiðir þig og þína um húsið (932)
Opið hús í dag frá kl. 16-19
Dvergholt 6, Mos.
Hörku gott 165 fm parhús
ásamt 37 fm bílskúr. Eignin er
samt. 202 fm að stærð. Gott
eldhús, 4 svefnherbergi, 2
bjartar saml. stofur, parket á
gólfum, fallegt baðherbergi
með sauna. Garður og svalir í
norður og vestur. Sérlega barnvænt hverfi, golfvöllurinn
og útivistarsvæði í næsta nágrenni. Verð 21,5 millj.
Magnús og Katrín taka vel á móti þér
og leiða þig og þína um húsið.
Suðurhólar 2, 3.hv. 4ra herb.
með glæsilegu útsýni
Mjög góð 4ra herb. endaíbúð 106,8
fm með mjög glæsilegu útsýni.
Íbúðin er nánast öll ný endurnýjuð
með vönduðum innréttingum og
gólfefnum. Mjög góð staðsetning og
hús í góðu standi. Verð 12,9 m.
Guðmundur og Sigríður sýna.
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 15 - 17
Upplýsingar um helgina í síma 893 3985
OPIÐ mánud.-fimmtud. frá kl. 9-18,
föstud. frá kl. 9-16.
Sími 588 9490
Í dag frá kl 14.00 til 17.00 er opið
hús í Grenigrund 18, Kópavogi.
Um er að ræða efri sérhæð með
sérinngangi. Fjögur svefnherbergi,
björt og góð suðurstofa með
stórum suðursvölum. Þá fylgir
góður bílskúr með hita, vatni,
rafmagni og sjálfvirkum hurð-
aropnara. Þetta er eign sem vert
er að skoða. Pétur og Dollý taka vel á móti gestum.
Opið hús - Opið hús
Grenigrund 18 - Kópavogi
Félag FasteignasalaSími 588 9490
NÁMSKEIÐIÐ Kynningartextar
og fjölmiðlatengsl hefst hjá Endur-
menntun HÍ mánudaginn 30. sept-
ember kl. 19.30. Guðrún J. Bach-
mann kennir hvernig hægt er að
skrifa markvissan og sannfærandi
texta og hvernig má setja hann
upp s.s. í auglýsingum, í mark-
pósti, á vefnum og í fréttabréfum.
Einnig er farið í grunnþætti í al-
mannatengslum og kynningar-
starfi.
Námskeiðið er einkum ætlað
þeim sem sjá um kynningarmál
eða auglýsingar í stofnunum og
fyrirtækjum, en er öllum opið.
Frekari upplýsingar eru á vefsíð-
unum www.endurmenntun.is.
Námskeið
um almanna-
tengsl
HINN fyrsti af mánaðarlegum kvöld-
verðarfundum íbúa Seljasóknar, 67
ára og eldri, verður haldinn þriðju-
dagskvöldið 24. september klukkan
18–20. Þórður Marteinsson hefur
dagskrána með harmónikuleik en síð-
an verður gengið til kirkju og haldin
stutt helgistund þar. Að henni lokinni
hefst dagskrá í safnaðarsalnum. Þar
munu Edda Svavarsdóttir, markaðs-
stjóri Búnaðarbankans, og Ásgeir Jó-
hannesson ráðgjafi fjalla um fjármál
eldri borgara og svara spurningum
fundargesta um málefnið. Að því
loknu mun kvartett Þorvaldar Hall-
dórssonar flytja nokkur lög. Dag-
skránni lýkur svo með léttum kvöld-
verði í boði Búnaðarbankans.
Prestar Seljakirkju, sr. Valgeir
Ástráðsson og sr. Bolli Pétur Bolla-
son, boða til fundarins. Að undirbún-
ingi hans hafa auk þeirra unnið Dóra
Ingvarsdóttir, fyrrverandi útibús-
stjóri, og Olga Jónsdóttir, fulltrúi í
Ellimálaráði. Er þetta liður í þeirri
viðleitni kirkjunar að efna til sér-
stakra samverustunda fyrir aldurs-
hópinn 67 ára og eldri.
Rætt um fjármál eldri
borgara í Seljakirkju
RAFIÐNAÐARSKÓLINN hefur í
nokkur ár haldið innanhússnámskeið
fyrir fjölmarga leiðbeinendur skóla-
kerfis rafiðnaðarmanna. Þessi þjálf-
un leiðbeinenda hefur skilað sér í
skilvirkari kennslu og ánægðari
nemendum. Nú hefur skólinn ákveð-
ið að bjóða slíkt námskeið utan skól-
ans.
Námskeiðið hefst þriðjudaginn 24.
september og er haldið í Rafiðnaðar-
skólanum, Skeifunni 11B, Reykjavík.
Leiðbeinandi er Hróbjartur Árnason
kennslufræðingur, sem hefur sér-
hæft sig í kennslufræði fullorðinna
og þjálfun leiðbeinenda í símenntun.
Á námskeiðinu er m.a. farið í að-
ferðir sem henta fullorðnum við nám,
undirbúning kennslu, hvernig má
efla góðan hópanda, hvernig á að
kynna efni á skiljanlegan hátt og
hvernig hægt er að virkja þátttak-
endur, þannig að þeir upplifi lifandi
og gagnlegt námskeið.
Nánari upplýsingar um leiðbein-
endanám Rafiðnaðarskólans eru
veittar í síma 568 5010 eða gegnum
netfangið hrobjartur@raf.is.
Rafiðnaðarskólinn býður
námskeið fyrir leiðbeinendur
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Frjáls-
lynda flokknum:
„Fundur miðstjórnar Frjálslynda
flokksins, haldinn í Reykjavík 19.
september, ítrekar fyrri yfirlýsing-
ar forystumanna flokksins um að
flokkurinn mun bjóða fram í öllum
kjördæmum landsins við alþingis-
kosningar að vori.
Miðstjórnin lýsir jafnframt yfir
andúð og fullri andstöðu við þá
stefnu í þjóðmálum sem skotið hef-
ur rótum í hinum nýja Sjálfstæð-
isflokki og birtist öllum landslýð í
ályktunum þings Sambands ungra
sjálfstæðismanna á dögunum.
Framkvæmd þeirrar stefnu gengur
þvert á meginstefnu Frjálslynda
flokksins í öllum aðalatriðum og
raunar einnig á stefnu gamla Sjálf-
stæðisflokksins.“
Ítrekar áform
um framboð í öll-
um kjördæmum
Á DÖGUNUM afhentu Vilborg
Traustadóttir, formaður MS-félags
Íslands, og Gerður Gunnarsdóttir,
myndhöggvari og stjórnarmaður í
MS-félaginu, listaverk til Sjóvár-
Almennra trygginga hf. fyrir veitt-
an stuðning. Listaverkið er minni
bronssteypa af verkinu Stoð sem af-
hjúpað var við hátíðlega athöfn
hinn 12. september sl. við dags-
vistar- og göngudeild félagsins á
Sléttuvegi 5. Þess má geta að
vinnsla listaverksins tók um tvö ár
en Gerður Gunnarsdóttir er lista-
maðurinn. Endanleg útgáfa verks-
ins vegur 240 kg en það var steypt
hjá því heimsþekkta og við-
urkennda bronssteypufyrirtæki
Pangolin Editions í Bretlandi.
Menningarsjóður Sjóvár-Almennra
trygginga hf. styrkti gerð lista-
verksins.
MS-félag Íslands þakkar
Sjóvá-Almennum
Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár-Almennra, Gerður Gunnarsdóttir
myndhöggvari og Vilborg Traustadóttir, formaður MS-félagsins (l.t.h).
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Íslands-
tryggingu: „Í tilefni af viðtali við
Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra
FÍB, í helgarblaði DV 21.09.02 vill
Íslandstrygging hf. koma eftirfar-
andi á framfæri.
Íslandstrygging hefur gert samn-
ing við Alþjóðlega miðlun ehf. um
sölu vátrygginga fyrir hönd félags-
ins og kannast ekki við að félagar í
FÍB fái 20% lægri iðgjöld hjá fé-
lagainu en annars staðar. FÍB fé-
lagar fá sömu iðgjöld hjá félaginu og
allir aðrir viðskiptavinir þess. Ið-
gjöld bifreiðatrygginga hjá félaginu
eru alveg á sömu nótum og hjá hin-
um vátryggingafélögunum, enda
ekki tilefni til annars vegna afkomu
bifreiðatrygginga hér á landi.
Íslandstrygging er nýr og ferskur
valkostur á vátryggingamarkaði
með breyttum áherslum í vátrygg-
ingum.“
Yfirlýsing
frá Íslands-
tryggingu
Stykkishólmi – Á fundi Sjálfstæðis-
félagsins Skjaldar í Stykkishólmi í
gærkvöldi tilkynnti Sturla Böðvars-
son, samgönguráðherra, að hann
gæfi kost á sér til áframhaldandi
þingstarfa og óskaði eftir að skipa 1.
sæti á lista sjálfstæðismanna í Norð-
vesturkjördæmi. Sturla Böðvarsson
hefur verið þingmaður Vesturlands-
kjördæmis frá árinu 1991. Það kom
fram hjá Sturlu að Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur á þeim tíma aukið fylgið
og staða flokksins á Vesturlandi er
mjög sterk eftir síðustu sveitar-
stjórnarkosningar. Í ljósi breyttra
aðstæðna með nýju og stærra kjör-
dæmi er það mikil áskorun sem felst
í því að leiða Sjálfstæðismenn til
sóknar í Norðvesturkjördæmi og
það hlutverk er hann tilbúinn að taka
að sér.
Sturla stefnir
á 1. sæti