Morgunblaðið - 22.09.2002, Qupperneq 41
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 2002 41
SUNNUDAGINN 22. sept-
ember kl. 17 mun Reynir Jón-
asson organisti halda org-
eltónleika í Neskirkju. Á
efnisskrá verða verk eftir Jón
Ásgeirsson, Marcel Dupré,
Johann Sebastian Bach og
Cecar Franck. Verkið eftir
Jón Ásgeirsson var sér-
staklega samið fyrir orgel
Neskirkju og flutt áður að
hluta til við vígslu þess 1999.
Reynir hefur verið org-
anisti Neskirkju frá 1973, en
lætur nú af störfum vegna
aldurs. Reynir mun þó leika á
orgelið við helgihald að hluta
til fram undir jól þar sem arf-
taki hans getur ekki hafið
störf að fullu fyrr en um ára-
mót.
Söfnuðurinn mun kveðja
hann sérstaklega síðar og
þakka honum góð störf á liðn-
um árum. Verður það auglýst
betur þegar þar að kemur.
Vídalínskirkja:
Tólf sporin – and-
legt ferðalag
BOÐIÐ verður upp á Tólf
spora hópastarf í Vídalíns-
kirkju í vetur. Fyrsti kynn-
ingarfundur verður mánu-
daginn 23. september nk. kl.
19 og síðan á hverjum mánu-
degi á sama tíma.
Þessi fundur og næstu tveir
eru öllum opnir til þess að
fólk geti kynnt sér hvernig
þetta starf fer fram og til
þess að fólk geti gert upp við
sig hvort það vilji taka þátt í
því í vetur. Eftir það verður
hópunum lokað og ekki fleiri
teknir inn, í þetta sinn.
Svonefnt Tólf - spora and-
legt ferðalag, sem hér er far-
ið, hentar öllum sem í ein-
lægni vilja vinna með
tilfinningar sínar og öðlast
þannig betri líðan og meiri
lífsfyllingu, þar sem leitað er
styrks í kristinni trú.
Ekki er þörf á að skrá sig
fyrirfram á kynningarfund-
inn.
Tólf spora starf í
Óháða söfnuðinum
KYNNING verður þriðjudag-
inn 24. september kl. 18 í
kirkju Óháða safnaðarins,
Háteigsvegi 56, á Tólf spora
vinnu – hinu andlega ferða-
lagi.
Tólf sporin eru leið til að
bæta tilfinningalega og and-
lega líðan og er ætluð öllum
þeim sem áhuga hafa á að
nota trúna á uppbyggilegan
hátt til sjálfstyrkingar og til
að dýpka trúarvitund sína.
Umsjón og upplýsingar eru í
höndum Ragnars Kristjáns-
sonar í síma 690 6694. Allir
hjartanlega velkomnir.
Kveðjutónleikar
Reynis Jónassonar
Hallgrímskirkja: Tólf sporin - andlegt ferðalag.
Kynningarfundur á Tólf spora námskeiði vetrarins
á morgun, mánudag, kl. 20. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Laugarneskirkja: Tólf spora hópar koma saman í
safnaðarheimilinu mánudag kl. 20. Umsjón Mar-
grét Scheving sálgæsluþjónn. (Sjá síðu 650 í
Textavarpi).
Neskirkja: Kirkjustarf fyrir 6 ára börn mánudag kl.
14. Söngur, leikir, föndur og fleira. 10-12 ára
starf (TTT) mánudag kl. 16.30. 12 sporin andlegt
ferðalag. Kynningarfundur kl. 20. Litli kórinn, kór
eldri borgara, þriðjudag kl. 16.30. Stjórnandi Inga
J. Backman. Allir velkomnir.
Fella- og Hólakirkja: Mánudag kl. 13-15.30 opið
hús fyrir fullorðna í safnaðarheimili kirkjunnar.
Spilað, fræðst, kaffi og spjall. Bænastund kl.
15.15 í kirkjunni. Fyrirbænaefnum má koma til
djákna í síma 557-3280. Þeir sem óska eftir
akstri láti vita í sama síma fyrir hádegi á mánu-
dögum. Æskulýðsstarf fyrir 8.-10. bekk á mánu-
dagskvöldum kl. 20.
Grafarvogskirkja: Sunnudag bænahópur kl. 20.
Tekið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9-
17 í síma 587-9070. Mánudag kirkjukrakkar fyrir
börn 7-9 ára í Engjaskóla kl. 17.30-18.30. KFUK
fyrir stúlkur 9-12 ára í Grafarvogskirkju kl. 17.30-
18.30. TTT fyrir börn 10-12 ára í Engjaskóla kl.
18.30-19.30.
Hjallakirkja: Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10. bekk
kl. 20. Mánudag æskulýðsfélag fyrir 8. bekk kl.
20.
Fríkirkjan Hafnarfirði: Mánudag unglingar 16 ára
og eldri kl. 20-22.
Lágafellskirkja: Mánudag Al-Anon fundur í kirkj-
unni kl. 21. Bænahópur á mánudagskvöldum í
Lágafellskirkju kl. 20.
Þorlákskirkja: TTT-starf í kvöld, sunnudagskvöld,
kl. 19.30.
Landakirkja Vestmannaeyjum: Mánudag kl.
17.30 æskulýðsstarf fatlaðra, eldri hópur. Hulda
Líney, Ingveldur og sr. Kristján.
Krossinn: Almenn samkoma í Hlíðasmára 5 kl.
16.30. Allir velkomnir.
Íslenska kristskirkjan: Samkoma kl. 20. Mikil lof-
gjörð og fyrirbænir. Friðrik Schram talar um efnið:
Hvernig á að sigrast á depurð og svartsýni.
Vegurinn: Bænastund kl. 16. Almenn samkoma
kl. 16.30. Högni Valsson prédikar. Lofgjörð, fyr-
irbænir og mjög skemmtilegt aldursskipt barna-
starf á sama tíma. Allir hjartanlega velkomnir.
Ath. breyttan samkomutíma. Allir velkomnir.
Fíladelfía: Laugardag 21. september bænastund
kl. 20. Tólf spora kerfið kl. 21. Sunnudag 22.
september almenn samkoma kl. 16:30. Ræðu-
maður Vörður L. Traustason. Lofgjörðarhópur Fíla-
delfíu syngur. Miðvikudag 25. september fjöl-
skyldusamvera kl. 18. Föstudag 27. september
unglingasamkoma kl. 20:30. Allir hjartanlega vel-
komnir.
KEFAS, Vatnsendabletti 601: Sunnudag sam-
koma kl. 14. Björg R. Pálsdóttir talar. Bænastund
fyrir samkomu kl. 13.30. Lofgjörð og fyrirbænir.
Tvískipt barnastarf fyrir 1-5 ára börn og 6-12 ára.
Þriðjudag bænastund kl. 20.30. Miðvikudag sam-
verustund unga fólksins kl. 20.30. Lofgjörð, hug-
leiðingar, fróðleiksmolar og vitnisburðir. Allir vel-
komnir.
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/Jim Smart
Fasteignasalan Bakki, Skeifunni 4, Reykjavík
Kristnibraut 18-22
MJÖG FALLEGAR ÍBÚÐIR Á KRISTNIBRAUT Í
GRAFARHOLTI. MIKIL FJALLASÝN, STUTT Í
ÚTIVERU, GOLF, HESTAMENNSKU. ÍBÚÐIRN-
AR ERU SÉRLEGA AÐLAÐANDI FYRIR ALLAR
FJÖLSKYLDUSTÆRÐIR. Verð frá 13,7 millj.
fullb. án gólfefna. Sölumaður Bakka verður í
íbúð 301 í nr. 22 með bæklinga og teikningar.
Maríubaugur 95-103
EINSTAKLEGA SPENNANDI OG GLÆSILEGAR
120 FM ÍBÚÐIR MEÐ SÉRINNGANGI Í ÞESSU
GLÆSILEGA HVERFI Í GRAFARHOLTINU. AF-
HENDING FLJÓTLEGA. Verð frá 13,5 millj. tilb.
til innréttinga og 15,5 millj. fullbúnar án gólfefna.
Sölumaður Bakka verður í íbúð 301 nr. 121
með bæklinga og teikningar.
Hlíðarvegur 5 - Kóp
Á BESTA STAÐ ER ÞETTA FALLEGA EINBÝLIS-
HÚS STAÐSETT. Eign teiknuð af Kjartani
Sveinssyni. Húsið er hraunað að hluta og lítur
ljómandi vel út, garður er frekar lítill og léttur í
umhirðu. 4 SVEFNHERBERGI OG 2 STOFUR.
STÆRÐ 144,7 fm AUK BÍLSKÚRS 39,7 fm.
Hilmar tekur vel á móti ykkur frá kl. 14-16 í
dag. Verð 22,8 millj.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
Sími 533 4004
Austurvegi 38 • 800 Selfoss • Sími 482 4800 • Fax 482 4848
Höfum til sölu ríflega 1.400 fm iðnaðarhúsnæði í iðnaðarhverfi á Selfossi. Húsið hýsti áður
kjötvinnslu Hafnar hf. og hefur að stórum hluta verið innréttað til slíkrar vinnslu. Hluti húss-
ins er óinnréttaður og býður upp á ýmsa möguleika. Húsið þarfnast nokkurs viðhalds að ut-
an sem innan. Lóð við húsið er góð og plan malbikað að stærstum hluta.
Kjörið tækifæri fyrir fjárfesta að eignast góða fasteign
á mjög hagstæðum kjörum.
Nánari upplýsingar í síma 482 4800
TÆKIFÆRI FYRIR FJÁRFESTA
www.arborg i r . i s
Guðjón Ægir
Sigurjónsson
hdl.
Jónína Þrastardóttir
ritari/sölumaður.
Óskar Sigurðsson hdl. Sigurður Fannar
Guðmundsson
sölumaður.
Valtýr Pálsson
sölumaður.
Gnitanes
Einstök staðsetning
Húseignin Gnitanes 10 í Skerjafirði í Reykjavík er til sölu.
Húsið er steinsteypt á einni hæð ásamt sérbyggðum bílskúr, alls
um 220 fm. Húsið skiptist í forstofu, þvottahús og geymslu, fata-
hengi, forstofuherbergi, snyrtingu með sturtu, stórar stofur með
arni, borðstofu, eldhús, hjónaherbergi með baðherbergi þar
innaf, bílskúr og sorptunnutgeymslu.
Húsið stendur innst í lokaðri götu, á sjávarlóð, sem er eignarlóð,
með mikið og óhindrað útsýni. Einstakur staður.
Nánari upplýsingar veitir
LÖGMANNSSTOFA
Ólafs Gústafssonar, hrl.
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, símar 588 8666 og 568 7218.
Til leigu í Stóra-turni - Kringlunni
Til leigu er mjög glæsilegt skrifstofuhúsnæði í verslunarmiðstöð-
inni Kringlunni. Stærðir frá 90-150 fm. Með húsnæðinu getur fylgt
símkerfi, húgögn, aðgengi að tölvukerfi og fyrsta flokks fundar-
herbergi. Möguleiki er að samnýta símsvörun o.fl. Húsnæðið er
sérstaklega vandað, gegnheilt parket á gólfum og innréttingar
fyrsta flokks.
Nánari uppl. gefur Karl í síma 896 2822.
karl@fasteignathing.is
KRINGLUNNI 4-12 - Sími 585 0600