Morgunblaðið - 03.10.2002, Page 45
NÚ í september var lögð fram út-
tekt á fjárhagsstöðu Mosfellsbæjar
gerð af KPMG endurskoðun. Í þess-
ari úttekt kemur fram að fjárhags-
staða bæjarins er alvarleg, rekstrar-
kostnaður sem hlutfall af skatttekjum
er á fyrri helmingi ársins 97,4% og
þegar greiðslubyrði lána og gjaldfærð
fjárfesting er tekin með er þessi tala
120% af skatttekjum. Þetta þýðir að
fyrir hverjar 120 krónur sem bæjar-
félagið eyðir þarf að taka 20 krónur að
láni, auk þess að sjálfsögðu að allar
stærri framkvæmdir (eignfærð fjár-
festing) þarf að fjármagna með lán-
tökum. Afleiðing af þessu er sú að
bæjarfélagið skuldar nú rúma þrjá
milljarða króna eða um 500 þús. á
hvern íbúa.
Nýr meirihluti sjálfstæðismanna í
Mosfellsbær ákvað að bregðast við af
ábyrgð og festu og kynnti þríþættar
aðgerðir til að taka á vandanum. Þær
felast í fyrsta lagi í hagræðingu og að-
haldi í rekstri. Ákveðið er að breyta
stjórnskipulagi bæjarins, færa
rekstrarlega ábyrgð til forstöðu-
manna stofnana bæjarins og láta þær
þar með heyra beint undir bæjar-
stjóra og bæjarstjórn. Jafnframt var
ákveðið, samfara því að hlúa vel að
kjarnastarfsemi bæjarins, að fresta
eða afleggja verkefni sem ekki geta
talist bráðnauðsynleg. Einnig var
ákveðið að lækka stjórnunar- og
nefndarlaun um 10%. Í öðru lagi er
nauðsynlegt að laga þjónustugjöld
bæjarins að því sem er í nágranna-
sveitarfélögunum. Sveitarfélag með
fjárhagsstöðu eins og Mosfellsbær
hefur ekki efni á því að hafa þjónustu-
gjöld lægri en það sem gengur og ger-
ist annarsstaðar. Hingað til hafa lág
þjónustugjöld verið fjármögnuð með
lántökum, lánum sem við ætlum börn-
um okkar að greiða í framtíðinni. Í
þriðja lagi var ákveðið að kanna
möguleika á sölu eigna til að grynnka
á skuldum bæjarins.
Það má segja að fátítt sé að sveit-
arfélög bregðist við fjárhagsvanda af
eins mikilli ábyrgð og djörfung og hér
hefur verið kynnt.
Í kynningu á þessum aðgerðum
höfum við sjálfstæðismenn í Mos-
fellsbæ forðast að falla í þá gryfju að
reyna að finna sökudólg fyrir þessari
stöðu bæjarsjóðs. Við lítum á þetta
sem alvarleg tíðindi en verkefni sem
takast þarf á við. Við horfum til nútíð-
ar og framtíðar en ekki fortíðar og
ætlum að koma þessum hlutum í lag
eins fljótt og mögulegt er.
Það er hinsvegar dapurlegt að sjá
viðbrögð fráfarandi meirihluta við
þessum tíðindum. Oddviti framsókn-
armanna segir í Morgunblaðinu 27.
sept. sl. að rekstrarkostnaðarhlutfall
bæjarins geti ekki hafa hækkað að
undanförnu þar sem ekki hafi verið
ráðist í frekari fjárfestingar! Það
verður að gera þá lágmarkskröfu til
aðila sem hafa stjórnað 6.000 manna
bæjarfélagi í 8 ár að þeir kunni helstu
skil á rekstri sveitarfélaga og kunni
að greina á milli hvað færist á rekstr-
arreikning og hvað á efnahagsreikn-
ing. Í sama viðtali fullyrðir oddvitinn
að þetta umrædda rekstrarkostnað-
arhlutfall hafi verið 78 – 84% af skatt-
tekjum á undanförnum árum. Honum
til upplýsingar þá var þetta hlutfall á
síðasta kjörtímabili frá 83 – 90%.
Meðaltalið var um 87%, þannig að
vandamálið er ekki nýtt. Oddvitinn
heldur áfram og heldur því fram að
þjónustugjöld í Mosfellsbæ séu svip-
uð og í öðrum sveitarfélögum á höf-
uðborgarsvæðinu. Annaðhvort er
oddvitinn að segja ósatt nú eða í kosn-
ingabaráttunni þegar hann og hans
meðreiðarflokkur stærðu sig af því að
hafa lægstu þjónustugjöldin á höfuð-
borgarsvæðinu. Ég get upplýst les-
endur um það að hann er að segja
ósatt nú, þjónustugjöld eru mun lægri
í Mosfellsbæ og niðurgreiðslan fjár-
mögnuð með lántökum. Það er dap-
urlegt til þess að vita að stjórnendur
bæjarins síðustu 8 árin opinberi með
þessum hætti vanþekkingu sína á
rekstri sveitarfélagsins.
Sannleikanum verður
hver sárreiðastur
Eftir Harald
Sverrisson
Höfundur er formaður
bæjarráðs Mosfellsbæjar.
„Það er fá-
títt að sveit-
arfélög
bregðist við
fjárhags-
vanda af eins mikilli
ábyrgð og djörfung og
hér.“
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 45
SIGURÐUR G. Guðjónsson,
lögfræðingur og forstjóri Norður-
ljósa, heldur að hann geti með stór-
yrðum og sífellt nýjum ásökunum
leitt athyglina frá því hversu veik-
ur málstaður hans er.
Sigurður fullyrti á sínum tíma
opinberlega að þáverandi formað-
ur bankaráðs Landsbankans hefði
haft óeðlileg áhrif á það að Norður-
ljós fengju ekki þau lán í bankan-
um sem Sigurður taldi fyrirtækið
þarfnast. Þegar hann var kvaddur
fyrir dóm til að færa sönnur á full-
yrðingar sínar gat hann það ekki.
Sigurður veifaði nýlega stolnum
skjölum úr fórum Búnaðarbank-
ans til að sýna að bankinn inn-
heimti ekki af hörku 100 milljón
króna skuld Skjás eins. Í ljós kom
að Sigurður hafði mislesið á skjalið.
Þetta var 100 þúsund króna skuld.
Þá svaraði Sigurður aðeins hortug-
ur að þetta sýndi hversu miklu
minna fyrirtæki Skjár einn væri en
hann hefði haldið.
Sigurður fullyrti um síðustu
helgi að ég hefði hringt í Þórarin V.
Þórarinsson til að skamma hann
fyrir að breyta 100 milljón króna
vanskilaskuld Norðurljósa við
Landssímann í lán. Ég upplýsti, að
ég hafði ekki hringt í Þórarin, held-
ur Þórarin í mig til að tala um allt
annað mál. Eftir að við höfðum
rætt um það mál, spurði ég um lán-
ið. Þórarinn sagðist hafa breytt
vanskilaskuldinni í lán. Ég sagði þá
að ég vonaði að við alþýðufólk nyt-
um sömu kjara en símum okkar
yrði ekki lokað tafarlaust þegar
tafir yrðu á greiðslum.
Nú spyr Sigurður mig hortugur
um heimildarmann í því skyni að
leiða athyglina frá því að kenning-
ar hans um dularfull símtöl til að
þrengja að Norðurljósum hafa
reynst rangar. Það vissi raunar öll
Reykjavík af vanskilum Norður-
ljósa við Landssímann svo að ég
þurfti engan sérstakan heimildar-
mann. En eitt get ég sagt Sigurði:
Ég afla mér ekki upplýsinga með
því að gera þjófa með hanska á
höndum út á næturnar til að stela
skjölum.
Fyrst Sigurður er kominn í
spurningaleik langar mig til að
spyrja hann: Hvað varð um ind-
verska leikflokkinn sem hann og
Jón Ólafsson fengu til að koma
hingað um síðustu áramót í því
skyni að hækka með blekkingum
verð á hlutabréfum í Íslands-
banka?
Hannes H. Gissurarson
Í spurningaleik
Höfundur er prófessor
í stjórnmálafræði.
*
gi
ld
ir
m
eð
an
bi
rg
ði
r
en
da
st
Le Gift
Ef keyptar eru LANCÔME vörur fyrir 5.500 kr. fylgir* snyrtibudda og
m.a. eftirfarandi vörur að verðmæti 5.500 krónur
- Primordiale Intense krem 15 ml - 50 ml andlitsvatn
- augnblýantur - Miracle ilmur 7 ml
- 2 augnskuggar og 1 kinnalitur
he
im
sæ
ki
ð
w
w
w
.la
nc
om
e.
co
m
VERSLANIR UM LAND ALLT
Ýmsar gerðir af töskum í boði og mismunandi kaupaukar sem henta öllum aldri.
Óskastund!
Tónleikaröðin hefur hlotið styrki frá
Norræna menningarsjóðnum og Teater og dans i Norden.
NORRÆNA HÚSIÐ
Töfratónar
Norræn
tónleikaröð fyrir börn
Norræna húsinu laugardaginn 5/10 kl. 14
Afrisah!
Ríkistónleikarnir - Noregi
Aðgangseyrir kr. 300.
Allt frá á kr 300
Risa LAGERSALA
Skeifunni 8 • frá 3.-20. október
Merkjavara á ótrúlegu verði • Opnum í dag kl. 12.00
Bad boys
Check in
Bad girls
FRANSA
Buxur í stærð 36-56 frá kr. 500
Bolir frá kr. 300,
Blússur frá kr.400,
Jakkar frá 700
Buxur frá 500
Bolir frá 300
Peysur frá 500
Skyrtur frá 700
Jakkar frá 900
Afgreiðslutími mán-fös kl. 12-19 lau.-sun 13-17
Vila
Kvenfatnaður Herrafatnaður Barnafatnaður
•
ATVINNA mbl.is