Morgunblaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚT er komið nýtt tímarit, sem ber
nafnið Orðlaus. Um er að ræða
metnaðarfullt og frísklegt blað; og
er hönnun öll og umbrot til hreinn-
ar fyrirmyndar. Ekki síst í ljósi þess
að ritsjórarnir eru þrjár ungar
stúlkur um tvítugt sem aldrei hafa
komið nálægt blaðaútgáfu áður.
Auk þess kom hugmyndin á borðið
fyrir aðeins þremur mánuðum.
Það fyrsta sem maður rekur aug-
un í er letrið, sem er stórt og gott...
„Já, þetta kemur vel út,“ segir
Steinunn Helga Jakobsdóttir sem
ritstýrir blaðinu ásamt Hrefnu
Björk Sverrisdóttur og Ernu Maríu
Þrastardóttur. „Okkur langaði til
að hafa þetta stórt og læsilegt.“
Þær stöllur segja að þær hafi
langað til að gera eitthvað
skemmtilegt að loknum skóla, en
Hrefna kláraði Menntaskólann við
Hamrahlíð í vor. Það gildir og um
Ernu en Steinunn er á öðru ári í há-
skólanum.
„Okkur fannst vanta stelpublað
þannig að við ákváðum bara að
kýla á það. Nú er þetta fullt starf
hjá mér og Ernu,“ segir Hrefna.
Þær segjast hafa ákveðið að gera
tilraun með það hvort þær gætu
gefið út blað. „Ef einhver hefði sest
niður með okkur þegar við vorum
að byrja og sagt okkur hvað við
værum að fara út í hefðum við
ábyggilega aldrei gert þetta,“ segir
Hrefna og hlær við.
En hvernig kvennablað er þetta?
„Þetta er ekki kvennablað heldur
meira svona afþreyingarblað fyrir
stelpur,“ útskýra þær. „Okkur
langaði til að búa til einhvers konar
íslenskt „Cosmo“, þar sem alvar-
legt efni og skemmtiefni er í bland.
Þetta er alls ekki strangtrúað fem-
inískt blað og ef strákar hafa eitt-
hvað skemmtilegt að segja mega
þeir endilega hafa samband.“
Blaðinu er dreift frítt þar sem
líklegt er að fólk komi saman. Um
dreifingu sjá stelpurnar sjálfar
ásamt vinum og vandamönnum.
Blaðið er til dæmis að finna í sjopp-
um, skólum, verslunum, tann-
læknastofum og mun koma mán-
aðarlega út.
Að lokum hvetja stúlkurnar alla
sem áhuga hafa á hvers kyns skrif-
um að senda inn efni og hugmyndir.
Kvenkyns tímaritið Orðlaus komið út
Áfram
stelpur!
Morgunblaðið/Þorkell
Steinunn, Hrefna og Orðlaus á góðri
stundu. Á myndina vantar þriðja rit-
stjórann, Ernu Maríu Þrastardóttur.
TENGLAR
.....................................................
www.ordlaus.is
arnart@mbl.is
JAM Master Jay, sem var liðsmaður
brautryðjenda rapptríósins Run
DMC, var skotinn til bana í upptöku-
veri í New York í
gærkvöldi. Tals-
maður Run DMC
staðfestir dauðs-
fall rapparans,
sem var 37 ára og
hét réttu nafni
Jason Mizell.
Hann var skotinn
einu skoti í höfuð-
ið og lést sam-
stundis.
Tríóinu Run
DMC er almennt
þakkað það að hafa fært hipp-hopp-
tónlist nær fjöldanum. Eitt af vin-
sælustu lögum sveitarinnar var lagið
„Walk This Way“, sem gert var í
samvinnu við hljómsveitina Aero-
smith en það kom síðan út á nafntog-
uðustu plötu sveitarinnar Raising
Hell, sem einnig innhélt m.a. lagið
„My Adidas“.
Run DMC var stofnuð árið 1983.
Sveitin er í dag talin brautryðjandi í
flutningi hipp-hopptónlistarinnar og
lét Chuck D, forsprakki Public
Enemy, hafa eftir sér er hann var
spurður út í mikilvægi sveitarinnar:
„Run DMC eru Bítlarnir okkar.“
Morðið á Mizell hefur vakið óhug í
hipp-hoppheiminum, sérstaklega í
ljósi þess að þetta er síður en svo það
fyrsta sem framið er en áður hafa
Tupac Shakur og Biggie Smalls ver-
ið myrtir með köldu blóði.
Mizell varð næstum því Íslands-
vinur fyrir skömmu en þá stóð til að
Run DMC myndi halda tónleika í
Laugardalshöllinni. Þær þreifingar
munu þó hafa siglt í strand þegar
sveitarmenn fréttu að ekki væri
hægt að komast landleiðina til Ís-
lands.
Liðsmaður
Run DMC
skotinn
til bana
Jam Master Jay
var fjölskyldu-
maður og frið-
arsinni mikill.
Sýnd kl. 6.
FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN
Í SÖGU HANNIBAL LECTER.
Kvikmyndir.com
HK DV
SV Mbl
SK RadíóX
1/2
Kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 6. B.i. 12.
Sýnd kl. 8 og
10.20. B.i. 14.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
LOKSINS - LOKSINS - LOKSINS
Mbl
HJ Mbl
1/2 HK DV
SFS Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 12.
Yfir 43.000 áhorfendur
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Sýnd kl. 10.15. B.i. 16.
SÝND
MEÐ
ENSKUMTEXTA KL 5.45
Loksins
færðu að kíkja bak við tjöldin og sjá það
sem enginn má sjá. Sjáðu eina umtöluðustu og einu
bönnuðu kvikmynd Íslandssögunnar".
12 Tilnefningar til Eddu verðlaunanna.
Tilnefnd í öllum flokkum12
TILNEFND TIL EDDU
VERÐLAUNANNA SEM BESTA
MYND ÁRSINS Kvikmyndir.com
Black Angel
Flottar töskur í kaupauka þegar keypt
er fyrir 2.000 kr. eða meira
KYNNING Á HAUST-/VETRARLÍNUNNI 2002
Lyf & heilsa Austurveri
í dag, föstudag, kl. 12-17.
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
SV. MBLDV
Það verður
skorað af krafti.
Besta breska gamanmyndin
síðan „Bridget Jones’s Diary.“ Gamanmynd
sem sólar þig upp úr skónum. Sat tvær vikur í
fyrsta sæti í Bretlandi.
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P
Sýnd kl. 10.10. Bi. 16. Vit 453Kl. 5 og 7. Vit 460
SK RadíóX
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Vit 448
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8, 9, 10.10 og 11.15. Vit 461
REESE WITHERSPOON
FRUMSÝNING
Stundum er
það sem að
þú leitar
að.. þar
sem þú
skildir það
eftir.
Bráðskemmtileg rómantísk gamanmynd sem hefur fengið frábærar viðtökur og er
nú þegar orðin vinsælasta mynd ReeseWitherspoonfrá upphafi vestanhafs.
AUKASÝNINGAR9 - 11.15