Morgunblaðið - 03.11.2002, Blaðsíða 2
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 47
Hugsað upphátt 27 Myndasögur 48
Listir 28/35 Bréf 48/49
Af listum 28 Dagbók 50/51
Birna Anna 28 Krossgáta 53
Forystugrein 32 Leikhús 54
Reykjavíkurbréf 32 Fólk 54/61
Skoðun 36/37 Bíó 58/61
Minningar 42/44 Sjónvarp 52/62
Þjónusta 46 Veður 63
* * *
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
108 HÆLISLEITENDUR
Erlendum hælisleitendum á Ís-
landi hefur farið ört fjölgandi. Á
árinu hafa 108 manns sótt um hæli,
en allt árið í fyrra leituðu 53 hælis.
Ástæður sem nefndar eru fyrir þess-
ari miklu fjölgun eru m.a. þátttakan
í Schengen-vegabréfasamstarfinu
og hertar reglur um hælisveitingu í
Danmörku. [1]
Aðspurð segjast Marian og
Ludmila ekki vera sérlega bjartsýn
á að þau fái hæli hér á landi og
bæði lögregla og Útlendingaeftirlit
hafi tjáð þeim að engar líkur væru
á því. „Við ætlum samt að reyna.“
Sakarannsókn á Ítalíu
Yfirvöld á Ítalíu rannsaka nú hrun
skólahúss í jarðskjálfta sem saka-
mál. Rannsóknin beinist að end-
urnýjun og viðbyggingu hússins fyr-
ir nokkrum árum. Hátt í 30 manns,
aðallega börn, fórust er skólinn
hrundi. [1]
Deilt um nýju orðabókina
Fræðimenn eru ekki á eitt sáttir
um þá stefnu höfunda nýrrar Ís-
lenzkrar orðabókar að taka upp í
bókina ýmis orð sem til þessa hafa
ekki talizt gott eða rétt mál. Fyrr-
verandi forstöðumaður Íslenzkrar
málstöðvar segir að gætilega verði
að fara í að taka upp slangur, sem
fólk geti jafnvel hneykslazt á. [64]
Tollvörður undir grun
Tollvörður er grunaður um aðild
að umfangsmiklu svikamáli, sem
tengist innflutningi notaðra bíla.
Hann tollafgreiddi bílana fyrir
mann, sem Hæstiréttur hefur úr-
skurðað í gæzluvarðhald til 8. nóv-
ember. [2]
Meiri fasteignaviðskipti
Þrátt fyrir spár um samdrátt
stefnir í að fasteignaviðskipti aukist
um 20% á árinu og verði þau næst-
mestu í sögunni. Fasteignaverð hef-
ur verið stöðugt og fylgt almennum
verðhækkunum. Stórar eignir eru
tregari í sölu en áður en skortur er á
litlum íbúðum. [1]
Góð manneskja
óskast í myndbandaleigu í sjoppu. Hlutastarf.
Hentar vel með skóla.
Sendið umsóknir til auglýsingadeildar Mbl.
merktar: „Vídeó — 12947“ eða á box@mbl.is .
Frá Manitóbaháskóla
í Kanada
Dómnefnd um stöðu kennara í íslensku máli
og bókmenntum við Manitóbaháskóla óskar
eftir umsóknum og tilnefningum. Um er að
ræða fulla kennslu- og rannsóknastöðu próf-
essors eða dósents og verður ráðið til tveggja
eða þriggja ára, frá og með 1. júlí 2003, eða
stuttu síðar. Gert er ráð fyrir að umsækjendur
um stöðuna hafi doktorsgráðu eða jafngildi
hennar í rannsóknarvinnu. Umsóknum skal
fylgja listi yfir útgefin verk og staðfesting á
kennsluhæfni á háskólastigi. Laun og ráðning-
arkjör verða miðuð við hæfni og reynslu.
Sá umsækjandi sem ráðinn verður þarf að sér-
hæfa sig annaðhvort í íslenskum miðaldabók-
menntum eða í vestur-íslenskum bókmennt-
um. Hluti af skyldum kennarans er að vera
tengiliður milli háskólans og vestur-íslenska
samfélagsins. Kennaranum er ekki ætlað að
kenna áfanga í nútíma íslensku en sérhæfing
í forníslensku, goðafræði eða Íslendingasögun-
um er æskileg. Umsækjandi verður að vera
fullmæltur á íslenska tungu.
Íslenskudeildin býður upp á áfanga í íslensku
nútímamáli, íslenskum og vestur-íslenskum
nútímabókmenntum, forníslensku og íslensk-
um miðaldabókmenntum, auk áfanga í goða-
fræði og Íslendingasögunum í enskri þýðingu.
Deildin hefur á að skipa fjölmörgum sjóðum
til styrkjaveitinga, rannsókna, útgáfu og ferða-
laga og hefur aðstöðu til að bjóða gestafyrirles-
urum og fræðimönnum í heimsókn.
Bókasafn Manitóbaháskóla hefur á að skipa
næststærsta safni íslenskra bóka í Norður-
Ameríku, þar á meðal besta safni vestur-ís-
lenskra bóka og tímarita, svo og besta safni
íslenskra nútímabókmennta og tímarita utan
Íslands. Íslenska bókasafnið er til húsa í nýju,
gullfallegu rými með góðri lestraraðstöðu og
aðstöðu til ráðstefnuhalds og sýninga.
Manitóbaháskóli hvetur alla hæfa einstaklinga,
konur og karla, til þess að sækja um stöðuna,
þar á meðal fólk úr minnihlutahópum, svo sem
frumbyggja Norður-Ameríku og fatlaða. Hins
vegar mun kanadískum ríkisborgurum og föst-
um íbúum veittur forgangur. Umsóknum og
tilnefningum skal fylgja greinagóðar upplýs-
ingar um námsferil og störf, svo og bréf sem
lýsir í grófum dráttum hæfileikum umsækjanda
eða þess sem tilnefndur er, og skulu þær send-
ar til Dr. Robert O'Kell, Dean, Faculty of Arts,
310 Fletcher Argue Building, University of
Manitoba, Winnipeg, Canada, R3T 5V5.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2003. Óskað
er eftir þremur meðmælendum og skulu þeir
senda bréf sín beint á sama heimilisfang.
Frekari upplýsingar um stöðuna, íslenskudeild-
ina, háskólann eða Winnipegborg má fá frá
Dr. David Arnason, Acting Head, 204: 474 9551,
eða frá heimasíðu deildarinnar:
www.umanitoba.ca/arts/icelandic .
!
"# !
"$%# &&
' ( )
$%
" % ) **+
#
, #
-# . # (
" (
#
" **+
/$)))#
# $
# (
(
" **+
% $)
,
#
+ **+
)
0-
" % 1
) 2
) 3 # 3 $%# 4
5
) 2
) 3 # 3 $%# 6
- %#
$ -
2
) 3 # 3 $%# 7
#"" $ ( + #
) 8
)
9
$%#
,( :$) )
9
$%# &
; # /) $
3
" $ 8
$
.# " $ $ 86
#$-
#
5# (
#
$ $
5 76
5# (
#
$ $
5 7
<%# + #
) 3 # 3 $%# 7
.
9
<
"
5# $ 7=
> #
#
(
$ 77
?
9
**#
<
"
5# $ 7&
<%
+ #
) 84
# (#( $ !
$ 78
@:( :$)
"" $ )
9 $ 7
> $ (
##5-
># ( 3
" $ 6
$- - # ( %#
6
/$%5
?#( $ 74
/$))9 ( $ + #
) ( ( 6
.#
<
"5-
#)#
$ 7
# .# " $ $ 64
>
$ <
" * 9 ) $- - $ 4
>
$:
*
#
(
6
!#5 !#5 66
>
$ %# *
#
(
67
; "+
@"+
#
" " 6&
>
$ #
*
#
(
68
; "+
@"+
!5
$ " 6=
/- + #
> $ >
$ 4
/( %## )
# ( 4
$
"
9
% # <
" * 9 ) $- - $ 4&
$-
#
" <
" * 9 ) $- - $ 4=
/( %## )
# ( 4
.#
/#) 3
"
A"( .
" )
)
„Au pair“ Osló/Trysil
Norsk-íslensk fjölskylda óskar eftir stúlku 20
ára eða eldri til að gæta 4ra ára stelpu og sinna
léttum heimilisstörfum. Æskilegt er að um-
sækjandi hafi reynslu af barnapössun eða
menntun í kringum börn. Boðið er upp á norsk-
unámskeið, ferðalög og skíðamöguleika.
Umsókn sendist til o-cirotz@online.no eða í
síma 0047 932 04143, Sigrún.
Sjúkraþjálfari
Sjúkraþjálfun Grafarvogs óskar eftir
sjúkraþjálfara til starfa.
Upplýsingar í síma 577 6777 eða 849 8609.
Sunnudagur
3. nóvember 2002
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 8.049 Innlit 15.228 Flettingar 66.438 Heimild: Samræmd vefmæling
Á murtumiðum
Murtan er smávaxið bleikjuafbrigði, en þótt smá sé
hefur hún reynst bændum við Þingvallavatn góð bú-
bót í áranna rás. Guðni Einarsson blaðamaður og
Kjartan Þorbjörnsson (Golli) ljósmyndari fóru með
Sveinbirni Jóhannessyni, bónda á Heiðarbæ, að vitja
um murtunet. /14
,
.
, ,
.
ferðalögWiesbadenbílarNissan TerranobörnKristallar og snjókúlurbíóRichard Harris
Baráttan við fíkniefnin
Saga örvæntingarfullra foreldra
Hörður
Torfa á tón-
leikaferð um
landið
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
3. nóvember 2002
Yf ir l i t
Kynningar – Blaðinu í dag fylgir auglýs-
ingablaðið „Verjum heilsuna“ frá Lýsi.
Blaðinu verður dreift um allt land.
HALLDÓR Laxness var aðeins 13 ára að aldri,
þegar fyrsta greinin birtist eftir hann í Morg-
unblaðinu og þá undir fangamarki hans, H.G.
Þetta var alllöng grein sem ber yfirskriftina,
Hverasilungar og hverafuglar og var prentuð
hér í blaðinu 19. mars 1916. Þetta er þannig
fyrsta grein eftir Halldór sem vitað er til að
birst hafi á opinberum vettvangi.
Þetta kemur fram í bók Ólafs Ragnarssonar,
Halldór Laxness, Líf í skáldskap, sem vænt-
anleg er síðar í þessum mánuði.
Þegar öld var liðin frá fæðingu Halldórs Lax-
ness í apríl síðastliðnum, birti Morgunblaðið
kafla úr bók Ólafs, þar sem meðal annars var
sagt frá greinum sem Halldór hafði skrifað í
blaðið og nokkur tímarit undir dulnefninu Snær
svinni. Þar kom fram, að hann hefði birt ljóð-
mæli undir þessu dulnefni í Morgunblaðinu 13.
júní 1916, grein undir eigin nafni í Sólskini,
barnablaði Lögbergs, blaðs Vestur-Íslendinga í
Winnipeg, 15. júní og pistil í júníhefti barna-
blaðsins Æskunnar 1916.
Þá hafði ekki tekist að staðfesta birtingu
eldra efnis Halldórs í blöðum en við frekari und-
irbúning bókarinnar fannst síðan umrædd
grein, sem Halldór hafði nefnt í bók sinni, Í
túninu heima, og talið sig hafa skrifað þegar
hann var 12 ára.
Greinina um hverasilunga og hverafugla
byggir Halldór meðal annars á frásögn gamallar
konu úr Ölfusi, sem Ólafur telur líklegt að sé
amma hans, Guðný Klængsdóttir. Einnig hefur
hann hluta efnisins eftir „sannorðum manni að
austan“ og loks vitnar hann til Tímarits Hins ís-
lenska bókmenntafélags, bókar þýsks manns
um Ísland og í skrif Eggerts Ólafssonar. Til
þessara heimilda er vísað með númeruðum neð-
anmálsgreinum, og getur Ólafur sér þess til, að
það hafi Halldór gert til að ljá greininni fræði-
legt yfirbragð.
Skrifaði 13 ára um hverafugla
Nýjar staðfestingar á
elstu skrifum Halldórs
Laxness í blöðum
Halldór Laxness á unglingsaldri.
ÞAÐ VAR hress hópur 30 ungmenna á aldrinum
13 til 16 ára sem kom saman í Ölveri í Borgar-
firði um helgina í „adrenalínferð“. Ungmennin
eru af ólíku bergi brotin og vinna saman að því
að auka skilning sín á milli og vinna þannig gegn
fordómum. Starfið er á vegum miðborgarsam-
starfs kirkjunnar og KFUM og KFUK í samstarfi
við Laugarneskirkju, Laugalækjarskóla, fé-
lagsmiðstöðvarnar Þróttheima og Frostaskjól,
Austurbæjarskóla og fleiri aðila.
Séra Bjarni Karlsson í Laugarneskirkju, sem
stýrði hópvinnunni, segir það áhugaverðasta við
þetta starf vera aðferðafræðin sem búi að baki:
„Hún virðist einfaldlega virka. Ekki er mikið tal-
að um vandamálin, börnin heyra varla minnst á
fordóma.Við erum að koma á tengslum milli
barna sem eru af erlendum uppruna og íslensku
barnanna. Þannig fá íslensku börnin nokkurs
konar forskot á að taka þátt í þeirri fjölþjóðlegu
menningu sem er farin að blómstra hér.“
Morgunblaðið/Theodór
Tengsl milli barna
Krakkarnir bjuggu meðal annars til grímur úr gipsi sem verða sýndar í byrjun desember.
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um
að maður, sem talinn er hafa stundað
umfangsmikil fjársvik í tengslum við
innflutning á gömlum bílum, sæti
gæsluvarðhaldi til 8. nóvember.
Grunsemdir beinast einnig að þeim
tollverði sem tollafgreiddi bifreiðarn-
ar um þátttöku í brotinu.
Tollyfirvöld hafa kært manninn
vegna ætlaðra tollsvika hans við inn-
flutning á 24 bílum frá Bandaríkjun-
um og Sparisjóður Hafnarfjarðar
hefur kært hann vegna meintra stór-
felldra og skipulagðra svika og við-
skiptafélaga hans með því að fá með
blekkingum lán samtals að fjárhæð
11,5 milljónir króna út á fimm bíla
sem ekki voru í þeirra eigu eða
skemmdir eða ónýtir.
Í úrskurði héraðsdóms kemur
fram að gæsuvarðhald sé m.a. nauð-
synlegt þar sem hætta sé á að mað-
urinn kunni að hafa samband við aðra
sem tengjast meintum brotum, þ.e.
eigendur félags sem tvær bifreiðanna
voru skráðar á, tollvörð og starfs-
mann bílaskoðunarstöðvar. Ekki sé
þó ljóst á þessu stigi málsins hvort
starfsmaður Bifreiðaskoðunarinnar
hafi verið blekktur eða verið þátttak-
andi í þessum ætluðu brotum.
Þrjár þessara bifreiða voru fluttar
inn notaðar frá Bandaríkjunum og
fram kemur í skráningarferli þeirra
allra að um tjónabíla hafi verið að
ræða. Samkvæmt gögnum málsins
hafði maðurinn milligöngu um inn-
flutning og tollafgreiðslu bifreiðanna
sem fór fram hjá embætti sýslu-
mannsins á Selfossi. Að lokinni toll-
afgreiðslu hafi tvær þessara bifreiða
verið skráðar á nafn fyrirtækis í
Reykjavík sem síðar var úrskurðað
gjaldþrota.
Í framhaldi af þessu hafi fyrirtæki í
eigu sakborningsins gert tilboð í við-
gerð á bifreiðunum en það félag hafi
einnig verið úrskurðað gjaldþrota.
Skömmu síðar hafi þær verið ný-
skráðar, kaskótryggðar hjá Sjóvá-Al-
mennum hf. og veðsettar fyrir lánum
að fjárhæð 5.825.000 krónur hjá
Sparisjóði Hafnarfjarðar. Ekkert
hafi verið greitt af framangreindum
lánum og þegar ganga hafi átt að bif-
reiðunum og bjóða þær upp hafi þær
ekki fundist.
Allir bílarnir hjá sakborningi
Í úrskurði héraðsdóms segir að
frásögn sakborningsins við yfir-
heyrslu hjá lögreglu hafi ekki verið
trúverðug um það að hann tengist
ekki ætluðum brotum annarra sak-
borninga. Hann hafi haft milligöngu
um innflutning og tollafgreiðslu inn-
fluttu bílanna og keypt tjónabílana
ýmist í eigin nafni eða í nafni fyrir-
tækisins. Allir bílarnir hafi verið í
vörslu sakborningsins.
Rannsókn vegna kæru tollyfir-
valda beinist að ætluðu skjalafalsi og
broti á tollalögum vegna innflutnings
24 notaðra bíla þar sem sakborningn-
um er gefið að sök að hafa framvísað
röngum og/eða fölsuðum vörureikn-
ingum og komist með þeim hætti hjá
því að greiða rúmar 10,2 milljónir
króna í aðflutningsgjöld. Grunsemdir
eru einnig um að reikningar, sem toll-
afgreiðsla grundvallaðist á, hafi verið
falsaðir varðandi kaupverð þar sem
það hafi verið miklu lægra en rétt var.
Tollvörður grunaður
um aðild að svikunum
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald vegna svika í tengslum við bílainnflutning
ALPHARMA Inc., móðurfélag Purepac
Pharmaceutical Co., sem Delta, dótturfélag
Pharmaco, hefur gert samstarfssamning við,
hefur um árabil verið einn helsti viðskiptavinur
Delta á Evrópumarkaði að sögn Guðbjargar
Eddu Eggertsdóttur, framkvæmdastjóra út-
flutningssviðs Delta og Pharmaco. Fyrirtækin
hafi langa og góða reynslu af samstarfinu.
Hún segir að sú ákvörðun stjórnenda
Alpharma að gera samstarfssamning við Delta
um lyf fyrir hinn kröfuharða Bandaríkjamarkað
sýni vel það traust sem fyrirtækið Delta njóti
meðal stærstu samheitalyfjaframleiðenda
heims.
Unnið hafi verið að því hjá Delta að komast
inn á Bandaríkjamarkað í um þrjú ár. Örn Guð-
mundsson, deildarstjóri þróunarstarfs, hefur
unnið að þeim undirbúningi, og hefur hann ein-
göngu sinnt því verkefni síðastliðið ár.
Segir Guðbjörg Edda að Delta hafi einnig í
svipaðan tíma unnið að því að komast á markað
í Sádí-Arabíu. Delta hefur nýlega verið sam-
þykkt af heilbrigðisyfirvöldum þar í landi, sem
gefur möguleika á sölu lyfja fyrirtækisins í
Sádí-Arabíu og á nálægum mörkuðum í Mið-
Austurlöndum.
Sýnir það
traust sem
Delta nýtur
Unnið að því að kom-
ast inn á Bandaríkja-
markað í um þrjú ár