Morgunblaðið - 03.11.2002, Qupperneq 40
KIRKJUSTARF
40 SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk
mánudagskvöld kl. 20 í kórkjallara.
Laugarneskirkja. Bænasamvera 12 spora
hópanna kl. 17. 12 spora hópar koma
saman í safnaðarheimilinu mánudag kl.
18 og kl. 20. Umsjón Margrét Scheving
sálgæsluþjónn. Kvenfélag Laugarnes-
kirkju fundar kl. 10 í safnaðarheimilinu.
(Sjá síðu 650 í Textavarpi.)
Neskirkja. Kirkjustarf fyrir 6 ára börn
mánudag kl. 14. Söngur, leikir, föndur og
fleira. 10–12 ára starf (TTT) mánudag kl.
16.30. Litli kórinn, kór eldri borgara,
þriðjudag kl. 16.30. Stjórnandi Inga J.
Backman. Allir velkomnir.
Seltjarnarneskirkja. Æskulýðsfélag kl. 20
(8.–10. bekkur).
Árbæjarkirkja. Æskulýðsfélagið Lúkas
með fund í safnaðarheimilinu kl. 20.
Mánudagur: Kl. 15.15 TTT í safnaðarheim-
ilinu.
Fella- og Hólakirkja. Mánudagur: Kl. 13-
15.30 opið hús fyrir fullorðna í safnaðar-
heimili kirkjunnar. Spilað, fræðst, kaffi og
spjall. Bænastund kl. 15.15 í kirkjunni.
Fyrirbænaefnum má koma til djákna í
síma 557 3280. Þeir sem óska eftir akstri
láti vita í sama síma fyrir hádegi á mánu-
dögum. Æskulýðsstarf fyrir 8.–10. bekk á
mánudagskvöldum kl. 20.
Grafarvogskirkja. Sunnudagur: Bænahóp-
ur kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla
virka daga frá kl. 9–17 í síma 587 9070.
Mánudagur: Kirkjukrakkar fyrir börn 7–9
ára í Engjaskóla kl. 17.30–18.30. KFUK
fyrir stúlkur 9–12 ára í Grafarvogskirkju kl.
17.30–18.30. TTT fyrir börn 10–12 ára í
Engjaskóla kl. 18.30–19.30.
Safnaðarfélag Grafarvogskirkju heldur
fund mánudaginn 4. nóvember kl. 20.
Séra Birgir Ásgeirsson sjúkrahúsprestur
flytur erindi sem nefnist „Snerting“. Kaffi-
veitingar. Allir velkomnir. Stjórnin.
Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10.
bekk kl. 20. Mánudagur: Æskulýðsfélag
fyrir 8. bekk kl. 20.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudagur: Ung-
lingar 16 ára og eldri kl. 20–22.
Bessastaðasókn. TTT-starf fyrir 10–12
ára drengi og stúlkur kl. 17.30–18.30 í
stofu 104 í Álftanesskóla. Rúta ekur börn-
unum heim að loknum fundi. Skemmtileg
dagskrá. Mætum öll.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt æskulýðsstarf
fyrir 9–12 ára drengi í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli kl. 17.30–18.30 í umsjón
KFUM.
Lágafellskirkja. Mánudagur: Al-Anon-fund-
ur í kirkjunni kl. 21. Bænahópur á mánu-
dagskvöldum í Lágafellskirkju kl. 20.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnudag
kl. 19.30.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Mánudag-
ur: kl. 17.30 æskulýðsstarf fatlaðra, eldri
hópur. Undirbúningur hafinn fyrir jólafund-
inn. Leiðtogarnir.
Hveragerðiskirkja. Kl. 18–20 fermingar-
börn ganga í hús og safna fyrir hjálparstarf
kirkjunnar. Fermingarbörn fá pizzu og gos
eftir söfnunina.
Akureyrarkirkja. Mánudagur: Kirkjusprell-
arar, 6–9 ára starf, kl. 16. Allir 6–9 ára
krakkar velkomnir. Ingunn Björk Jónsdóttir
djákni. TTT-starf kl. 17.30. Allir 10–12 ára
velkomnir. Ingunn Björk Jónsdóttir djákni.
Fundur í sóknarnefnd kl. 20.
Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
KEFAS, Vatnsendabletti 601. Sunnudag-
ur: Samkoma kl. 14. Sigrún Einarsdóttir
talar. Bænastund fyrir samkomu kl.
13.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt
barnastarf fyrir 1–5 ára börn og 6–12 ára.
Þriðjud.: Brauðsbrotning og bænastund
kl. 20.30. Miðvikud.: Samverustund unga
fólksins kl. 20.30. Lofgjörð, hugleiðingar,
fróðleiksmolar og vitnisburðir. Allir vel-
komnir.
Vegurinn. Bænastund kl. 16. Samkoma
kl. 16.30, Erna Eyjólfsdóttir prédikar, lof-
gjörð, fyrirbænir, brauðsbrotning og
deildaskipt barnastarf. Allir hjartanlega
velkomnir.
Fíladelfía. Sunnudagur: Almenn samkoma
kl. 16.30. Vitnisburðir þeirra sem eru að
koma af Alfa-helgi í Kirkjulækjarkoti.
Ræðumaður Vörður Leví Traustason. Lof-
gjörðarhópur Fíladelfíu sér um lofgjörðina.
Barnakirkja fyrir 1–12 ára meðan á sam-
komu stendur. Allir hjartanlega velkomnir.
Miðvikudagur 6. nóv.: Fjölskyldusamvera
kl. 18. Einnig kennsla fyrir unglinga og þá
sem eru enskumælandi. Fimmtudagur:
Samvera eldri borgara kl. 15. Fjölmennum
og eigum yndislega stund saman.
Mömmumorgnar alla föstudagsmorgna kl.
10–12. Allar mæður hjartanlega velkomn-
ar.
Safnaðarstarf
Hallgrímskirkja
SR. SIGFINNUR Þorleifsson
sjúkrahúsprestur flytur fyr-
irlestur um sorg og sorg-
arviðbrögð í Safnaðarheim-
ilinu Vinaminni nk.
þriðjudagskvöld, 5. nóv., kl.
20.
Akurnesingar og nærsveit-
ungar: Missið ekki af athygl-
isverðum fyrirlestri. Sr. Sig-
finnur er einn helsti
sérfræðingur okkar á þessu
sviði. Áhugasamir geta fengið
keypta nýútkomna bók hans –
Í nærveru. Nokkrir sálgæslu-
þankar – að fyrirlestri lokn-
um.
Heitt á könnunni. Allir vel-
komnir.
Heilög messa í
vitnisburði
helgra manna
SR. JÜRGEN Jamin býður
fyrsta mánudag hvers mán-
aðar frá október til apríl upp á
leiðsögn til skilnings á heilagri
messu.
Í þessari fyrirlestraröð
verður hver einasti hluti heil-
agrar messu útskýrður með
sérstökum kafla úr ævisögu
eins dýrlings.
Næsti fundur er mánudag-
inn 4. nóvember kl. 20.00 í
safnaðarheimili kaþólskra á
Hávallagötu 16. Erindið snýst
um signinguna og merki
krossins: Konstantínus keisari
og Helena – „Undir þessu
merki munt þú sigra“.
Akraneskirkja:
Fyrirlestur
um sorgina
Eignin er bjart og gott einbýli á besta stað á
Seltjarnarnesi. Hún skiptist í forstofu með flís-
um á gólfi og skáp. Sjónvarpsh með flísum.
Stór og björt stofa með teppi og viðarklæddu
lofti. Borðstofa með ljósu teppi á gólfi, viðar-
klæddu lofti og viðarklæðningu á vegg. Eld-
hús með korkflísum, fallegri innréttingu,
plássi fyrir uppþvottavél og góðum borðkrók. Búr með hillum. Þvottahús með út-
gengi út á lóð. Herbergisgangur m/parketi. Hjónaherb. m/parketi og stórum skápum.
Herb. með parketi og skáp. Stórt herb. með parketi og tveimur skápum (voru áður
tvö herb., auðvelt að breyta því aftur í tvö). Stórt baðherb. með dúk á gólfi og flísar
á veggjum, sturtu og baðkari og innréttingu. Gestasnyrting með flísum auk
geymslu. Stór bílskúr með gryfju. Hús og lóð í góðu standi og þar á meðal er þak ný
yfirfarið.
Bjarni og Jóna Sigríður verða með heitt á könnunni og taka á móti
gestum milli kl. 14 og 17 í dag, Sunnudag.
Kringlunni 4-12, 9. hæð (Stóri Turn)
Magnús Axelsson/Einar Harðarson
103 Reykjavík
Sími 533 1111 - Fax 533 1115
Tjarnarstígur 28 - Opið hús
Strandgata - til leigu
Höfum verið beðnir um að útvega leigjanda að mjög
góðu húsnæði í hjarta Hafnarfjarðar. Alls um 230 fm á
jarðhæð. Hentar mjög vel fyrir verslun og/eða þjónustu.
Góðir gluggar og næg bílastæði. EINGÖNGU TIL
LEIGU. Nánari upp. á Fasteignastofunni.
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
ENGIHJALLI 3
Góð 3ja herbergja íbúð, um 79 fm, á
annarri hæð í lyftuhúsi. Hús og sam-
eign er nýmáluð. Íbúðin er vel staðsett,
mjög stórar svalir og tengi fyrir þvotta-
vél í baðherbergi. Góð lóð með leik-
tækjum. Verð kr. 10,2 m.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16.
Bjalla merkt 2-E hjá Jóhönnu og Jó-
hanni.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
GIMLI HVERAGERÐI
Upplýsingar um eignir í Hveragerði gefur umboðsaðili okkar í Hveragerði,
Kristinn G. Kristjánsson, Reykjamörk 1, Hveragerði,
sími 483 4151 og gsm 892 9330.
Fastanúmer 221-1011. Stærð íbúðar er 214,9 fm. Bílskúr er 48,4 fm. Brunabótamat er
20.052.000. Fasteignamat er 11.743.000. Húsið er steinsteypt, byggt 1967 og er steypt
loft í öllu húsinu nema yfir stofu og skála. Kjallari er undir hálfu húsinu og er bílskúr í
um það bil helming af kjallara. Komið er inn í skála, úr skála inn í forstofu, einnig er bak-
inngangur í eldhús. Úr forstofu er komið inn í hol, gengið upp tvö þrep til stofu, sem er
með viðarklæddu lofti og teppi á gólfi. Úr stofu er gengið út á verönd og garð. Úr holi er
gengið inn í herbergi og einnig er gengið inn á svefnherbergisgang og eldhús. Á svefn-
herbergisgangi eru fjögur herbergi og nýlega flísalagt baðherbergi með nýjum hreinlæt-
istækjum. Inn af eldhúsi er búr, geymsla og þvottahús. Eldhús er með rennihurðum fyrir
skápum, innrétting upprunaleg. Skipt hefur verið um gler í stofugluggum. Garður er
með trjágróðri og er á móti suðri. Verð 13,4 millj. Ekkert áhvílandi.
Hraunbær Hveragerði
Pálmi B. Almarsson
löggiltur fasteignsali
Katrín Þ. Magnúsdóttir
ritari
Jón Guðmundsson
sölustjóri
Sverrir B. Pálmason
sölumaður
Sigurður Á. Reynisson
Á
Markarvegur 8 er hús sem er 133 m² og er á einni hæð ásamt 32 m² bílskúr.
Í húsinu eru forstofa, þvottahús, eldhús, stofur, þrjú rúmgóð svefnherbergi,
baðherbergi og sérbaðherbergi inn af hjónaherbergi. Fallega innréttað hús,
vönduð gólfefni. Stendur á frábærum stað neðst í Fossvoginum og er það
umvafið gróðri.
Sölufulltrúi Bifrastar sýnir húsið í dag frá kl. 13-15. Verið velkomin.
MARKARVEGUR 8 - OPIÐ HÚS
Rauðás 5 er fallegt og rúmgott raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum
bílskúr, alls 195,6 m². Húsið stendur á góðum útsýnisstað í Selásnum. Á
neðri hæð eru m.a. forstofa, hol, eldhús og stofur. Uppi eru 3 svefnherbergi,
sjónvarpshol, bað og þvottahús. Glæsilegt útsýni.
Húsið er til sýnis í dag frá kl. 13-15. Verið velkomin.
RAUÐÁS 5 - OPIÐ HÚS