Morgunblaðið - 03.11.2002, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 03.11.2002, Qupperneq 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 43 ✝ Þorsteinn Þor-steinsson fæddist á Ekru í Hjaltastaða- þinghá 11. október 1918. Hann lést í Landspítalanum við Hringbraut 24. októ- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Þorsteinn Ís- aksson, f. 29.11. 1879, d. 9.6. 1939, og Guð- finna Jónsdóttir, f. 18.9. 1879, d. 29.9. 1962. Systir Þor- steins var Guðrún Margrét, f. 13.8. 1912, d. 25.10. 1987. Fósturbróðir þeirra og uppeldissonur Guðfinnu og Þorsteins var Ingi Jónsson, f. 24.6. 1926, d. 4.11. 1995. Eiginkona Þorsteins var Lilja María Sigurðardóttir, f. 1.3. 1924, d. 22.11. 1992. Sonur þeirra er Þorsteinn Sigurður, f. 27.6. 1945. Fyrri kona hans var Jonna, f. H. Vinter, f. 23.4. 1943, d. 24.11. 1991. Börn þeirra: 1) Lilja, f. 14.9. 1966, maki Sigurður Árni Ólafs- son, börn þeirra, Fanney María, f. 1988, Ásgeir, f. 1992, og Ellen Hilda, f. 1997. 2) Sigurður Þorsteinn, f. 10.3. 1976, unnusta Rann- veig S. Ragnarsdótt- ir, sonur þeirra Ragnar Snær, f. 18.10. 2001. Seinni kona Þorsteins Sigurðar er Ellen Hilda Bates, f. 13.10. 1947. Útför Þorsteins verður gerð frá Keflavíkurkirkju á morgun, mánudaginn 4. nóvember og hefst athöfnin klukkan 14. „Sú rödd var svo fögur, hugljúf og hrein, sem hljómaði til mín úr dá- litlum runni.“ Hljómfögur tenórrödd Þorsteins Þorsteinssonar, fóstur- bróður föður míns heitins, syngjandi ljóðið sem þannig hefst við hrífandi lag, barst líkt og til mín úr fjarska fortíðar og bernskuára er ég frétti andlát hans hingað til Wales. Lengi verður það mér minnisstætt þegar við sungum saman í Strandbergi á Seyðisfirði. Ég var nýorðinn ellefu ára og hafði dvalist þar um sumarið í góðu yfirlæti svo sem fyrr og síðar. Mér þótti sem drengjasópranrödd mín fengi alveg nýjan hljóm þegar Steini gaf tóninn og leiddi sönginn. Hann hafði komið austur til þess að fagna Guðfinnu móður sinni átt- ræðri, sunnan úr Keflavík, en þang- að hafði hann flust að austan með eiginkonu sinni Lilju Maríu Sigurð- ardóttur nokkrum árum fyrr og einkasyni þeirra Þorsteini Sigurði. Lilja var þá þegar farin að líða fyrir máttleysi sitt og lömun sem ágerðist með árunum þótt hún bæri sig ávallt vel, skapföst og einarðleg og kæmi furðu miklu í verk. Steini var fæddur á Ekru í Eiða- þinghá en fluttist ungur með foreldr- um sínum Guðfinnu Jónsdóttur og Þorsteini Ísakssyni, til Seyðisfjarðar ásamt eldri systur sinni Guðrúnu Margréti og ólst þar upp í skjóli hárra fjalla, Bjólfs og Strandatinds við hlýju foreldra sinna. Ingi faðir minn varð fósturbróðir þeirra í frumbernsku eftir móðurmissi. Guðstrú og skyldurækni voru vega- nestið þeirra í uppvextinum. Mannlíf á Seyðisfirði hafði eflst mjög í upp- hafi aldar með útgerð og verkfram- kvæmdum og furðu fjölbreyttu mennta- og menningarlífi, en kreppuárin voru þar mörgum erfið en búskapur og skepnuhald drýgði litlar tekjur. Steini átti skepnur og fjárhús inn í Firði og Lilja gekk þar með honum til heyverka og hafði oft saltað síld áður en veikindi hennar sögðu til sín. Seyðisfjörður varð vett- vangur fjölmenns setuliðs og mikil- væg skipahöfn bandamanna styrj- aldarárin, sem eyddu kreppunni með því að bjóða upp á næga vinnu en færðu með sér umrót og los. Þau Steini og Lilja áttu heima á jarðhæð- inni á Austurgötu þrjú og þar man ég barnungur eftir þeim. Jói móð- urbróðir Lilju stundaði þar skósmíð- ar og hélt heimili með þeim og vinir og viðskiptamenn litu oft til þeirra. En á efri hæðum var gistihús bæj- arins og oft fjölmenni þar. Steini leit oft við hjá foreldrum mínum Inga og Ninnu einkum þegar Ísólfur nýsköp- unartogari Seyðfirðinga var í höfn og pabbi sem var bátsmaður hans var í landi. Hann gaf sig mjög að okkur tvíburasystkinunum mér og Margréti og enn man ég það glöggt þegar hann vakti athygli okkar á kaf- báti sem var að sigla inn fjörðinn sem voru meiri tíðindi en að sjá þar Katalínuflugbáta og Grummanvélar lenda og fara á loft er var þá dag- legur viðburður. Og Steini var alltaf að syngja og tók meira að segja und- ir þegar ég reyndi að spila Ástleitnu augun þín brúnu og aðra nýjustu slagarana á munnhörpu. Steini söng í Karlakórnum Bjarma og kom oft fram sem einsöngvari á fjölsóttum tónleikum. Hann söng jafnframt í kirkjukór hvítrar og tignarlegrar Seyðisfjarðarkirkju. Steini var starfsmaður í Lyfja- versluninni á Seyðisfirði og mjög handgenginn Ellerup lyfsala sem bauð honum að koma suður og starfa með sér í Keflavík, þegar hann hafði tekið við lyfjaversluninni þar. Það hefur þó verið með eftirsjá sem þau Lilja og Steini hafa flust að austan en von um betri aðhlynningu og lækn- ishjálp hefur ráðið úrslitum. Húsið þeirra á Suðurgötu eitt var beint á móti lyfjaversluninni í Keflavík svo Steini átti auðvelt með bregða sér heim í vinnuhléum. Lilja sinnti öllum heimilisverkum með stakri prýði áratugum saman þó fætur væru máttvana. Þau höfðu bæði yndi af því að taka á móti vandamönnum og öðr- um gestum, og eignuðust marga góða vini á nýjum stað. Leikfélagar Steina Sigga drógust að Suðurgöt- unni og nokkrir þeirra sem töldust eitthvað utangarðs í samfélaginu fengu þar líka griðastað. Þau höfðu bæði góðan skilning á því að það gat svo margt kippt fótunum undan fólki, valdið ógæfu og óláni, en verst hlaut það að vera að verða fyrir fyr- irlitningu og útskúfun og úr því vildu þau bæta. Steini söng í kór Keflavík- urkirkju og setti lengi mark sitt á hann með bjartri og hárri tenórrödd sinni. Hann færði heim með sér andblæ guðshússins, söng sálma og sagði Lilju frá prédikun prestsins líkt og hann sagði frá verkum sínum og því sem fyrir augu hans bar rúm- helga daga. Þau höfðu yndi af því að ferðast um landið og líta fagra staði. Moskvitsinn hans Steina komst víða og brást ekki, enda var honum afar vel við haldið og jafnan gljáfægður og bónaður. Síðari fararskjótar Steina voru einnig jafnan gljáandi. Ánægjulegast hefur þeim þótt að komast austur á land og hitta þar fyrir skyldulið og fá litið Seyðisfjörð lygnan og tignarlegan og bernsku- slóðir Lilju í Borgarfirði eystri. Eftir andlát Guðfinnu ömmu á Strand- bergi, sem oft hafði komið suður og dvalist vetrarmánuði fyrir sunnan hjá skylduliði sínu sem mikill aufúsu- gestur, hafði annað Strandbergsfólk, Magga dóttir hennar og Halla mað- urinn hennar og Sigga móðir hans, fært sig suður og fylgt Steina til Keflavíkur. Þau systkinin höfðu mik- inn styrk og gleði hvort af öðru og oft kom Steini til Möggu á Framnesveg- inn og hún til þeirra Lilju á Suður- götuna líkt og með færandi í fanginu ferskan blæ að austan, kvik og rösk. Steini var líkrar gerðar, afar vinnu- samur og viðbragðsfljótur. Eftir vinnudaginn í lyfjaversluninni bætti hann við sig aðgerð fram á nótt á vertíðum þegar mikill afli barst að landi og lagði sig fram um að afkasta sem mestu, kappsamur jafnan, um- hyggjusamur og skyldurækinn. Honum var það ljúft að heimsækja Lilju oft tvisvar á dag eftir að hún varð að dveljast á Sjúkrahúsinu í Keflavík. Alltaf hafði hann frá ein- hverju að segja og virðingin sem þau sýndu hvort öðru og ástríkið þeirra á millum duldist engum sem til þeirra sáu. Það var sem Steini yrði allur ann- ar en fyrr lengi eftir að Lilja var lát- in. Hann hafði jafnan verið léttur í bragði og fjörlegur að sjá en nú var hann fámáll og dró sig í hlé. En það bráði af honum er fram liðu stundir. Steini Siggi hefur mjög stuðlað að því enda þeir feðgar afar samrýndir og nánir og barnabörnin kæru hafa lagt sitt að mörkum til að gleðja hann. Þegar Steini var aftur farinn að syngja á mannamótum var hann orðinn sjálfum sér líkur. Steini naut sín vel þegar hann hélt upp áttræð- isafmæli sitt fyrir fjórum árum í fjöl- menni. Hann gaf sig á tal við alla, þakkaði vinasöng og gjafir og tók auðvitað lagið sjálfur. Steini var frændrækinn og tryggur og lét sér ávallt annt um mig og mína sem nú er einlæglega þakkað er dýrmætar minningar liðinnar tíðar rifjast upp við fráfall hans. Það var bjart yfir honum þegar ég leit til hans fyrir nokkru á fögrum degi. Við litum saman á ljósmyndir frá fyrri tíð og hann kom með mér í ökuferð um Keflavík og að áeggjan hans snæddum við saman dýrlega fiskmáltið á veitingastaðnum Duus sem er rétt við höfn og flæðarmál. Það var sem Strandberg væri þar komið nær og minningarnar þaðan og ég rifjaði upp söng hans þar forð- um og samsöng okkar. Minning Steina, rödd og svipur verða í huga mér Strandbergi tengd öðrum stöð- um fremur og þeim sem þar áttu heima. Því undir klettahlíð í fjöru- borði var það mér vermireitur bernskunnar sumarlanga daga sem hefur mjög mótað lífgæfu og heill. En jafnframt leyfi ég mér að sjá hann fyrir mér syngja Guði lof og dýrð í himneskum kirkjukór. Gunnþór Þ. Ingason,Wales. ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 www.utfararstofa.is ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga er andlát verður, í samráði við aðstandendur Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Kistur Krossar Duftker Gestabók Legsteinar Sálmaskrá Blóm Fáni Erfidrykkja Tilk. í fjölmiðla Prestur Kirkja Kistulagning Tónlistarfólk Val á sálmum Legstaður Flutn. á kistu milli landa Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐNÝJAR G. SIGURRÓSAR GUÐMUNDSDÓTTUR (Rósu), Neðstaleiti 13A, Reykjavík. Svanfríður S. Óskarsdóttir, Ólafur R. Dýrmundsson, Brynja Óskarsdóttir, Guðmundur Ingólfsson, Viðar Óskarsson, Þorsteinn Húnbogason, Siv Friðleifsdóttir, Védís Húnbogadóttir, Snorri Bergmann, ömmubörn og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar dóttur minnar, móður, tengdamóður, ömmu og systur, SIGRÚNAR BJARKAR JÓHANNESDÓTTUR, Hjallalundi 13g, Akureyri. Svanhildur Þorsteinsdóttir, Óli Valur Jónsson, Sigríður Sveinsdóttir, Vala Björk Óladóttir, Þórir Már Ólason, Sveinn Ingi Hrafnkelsson, Sólveig Una Jóhannesdóttir, Fjóla Jórunn Jóhannesdóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS S. HALLDÓRSSONAR, Skarðshlíð 27, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri og Heimahlynn- ingar á Akureyri fyrir frábæra umönnun og einstaka hlýju. Thorfhildur Steingrímsdóttir, Halldór Jónsson, Þorgerður J. Guðlaugsdóttir, Jón Torfi Halldórsson, Lára Halldóra Eiríksdóttir, Guðlaugur Már Halldórsson, Elva Sigurðardóttir, Arna Rún, Halldór Yngvi og Elvar Örn. Við þökkum vinarþel og samúð er við nutum svo ríkulega við fráfall og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, ÖNNU HJÁLMARSDÓTTUR, Rofabæ 47, Reykjavík. Öllum þeim, sem gerðu útför hennar svo áhrifa- ríka og fallega með fögrum söng og orgelleik og ekki síst yndislegum kveðjuorðum, þökkum við af hjarta. Ennfremur færum við öllu starfsfólki líknardeildar Landspítalans, Landakoti, innilegar þakkir fyrir kærleiksríka umönnun. Kristín Árnadóttir, Einar H. Esrason, Einar Árnason, Ásta Bjarnadóttir, Sigurgeir Árnason, Marnhild H. Kambsenni, Jón Örn Árnason, Jóna L. Arnardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vinarhug og stuðning við andlát og útför ÖDDU SIGRÍÐAR ARNÞÓRSDÓTTUR, Dísarási 16, Reykjavík. Stefán Rúnar Garðarsson, Hilmar Þór Rúnarsson, Guðfinna Rúnarsdóttir, Kjartan Már Rúnarsson, Sigríður Eiríksdóttir, Garðar Sigjónsson og systkini hinnar látnu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.