Morgunblaðið - 03.11.2002, Page 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 47
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 847 5572
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 892683
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Þingeyri Þór Lini Sævarsson 456 8353
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og
Sigurliða Kristjánssonar
Námsstyrkir í verkfræði- og
raunvísindagreinum
Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir styrkumsóknum vegna náms á skólaárinu
2002-2003. Styrkirnir eru ætlaðir nemendum í verkfræði- og raunvísindagreinum
og hafa þeir einkum verið veittir nemendum í framhaldsnámi.
Með umsóknum skulu fylgja staðfesting á skólavist og námsárangri, tvenn meðmæli, feril-
skrá og önnur þau verk sem umsækjandi telur að komið geti að gagni við mat umsóknar.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Brynjólfsson, formaður sjóðstjórnar (sb@hi.is,
http://www.hi.is/~sb/minningarsjodur). Umsóknum ber að skila til Alþjóðaskrifstofu Háskóla-
stigsins, Neshaga 16, IS 107 REYKJAVÍK. Umsóknarfrestur er til 22. nóvember 2002.
Stefnt er að því að tilkynna úthlutun í byrjun desember.
SVO langt aftur sem viðþekkjum, hefur spurn-ingin um líf eftir dauð-ann verið í hugummanna. Öll trúarbrögð
umlykja hana og svara reyndar á
jafn marga vegu og þau eru
mörg. Kirkjan bendir við jarð-
arför hvers einasta manns á orð
Jesú Krists, er hann segir við
Mörtu: „Ég er upprisan og lífið;
sá, sem trúir á mig, mun lifa þótt
hann deyi.“
Í bók sinni, Ljós í heimi, segir
Einar Sigurbjörnsson trúfræði-
prófessor:
Það verður að telja eðlilegt, að beðið sé fyr-
ir framliðnum. Þá leggjum við fram þakkir
okkar fyrir Guð og biðjum hann að blessa
minningarnar. Jafnframt felum við Guði
áhyggjurnar og biðjum þess, að Kristur
mæti þeim sem við biðjum fyrir og taki
hann að sér. Bænina berum við fram í
trausti þess, að Guð heyri og leiði hlutina
fram að sínum vilja.
Allraheilagramessa á sér forn-
ar rætur, því vitað er til að mess-
ur, þar sem beðið var fyrir látn-
um, voru haldnar þegar á 4. öld
eftir Krist. En oftast er upphaf
allraheilagramessu samt rakið til
þess, er Pantheonhofinu í Róma-
borg var breytt í kirkju og vígslu-
dagurinn – 13. maí árið 609 eða
610 – jafnframt helgaður öllum
píslarvottum. Á árunum 731–741
vígði Gregoríus páfi 3. daginn öll-
um sannhelgum kristnum ein-
staklingum, svo að nú átti hann
ekki lengur við píslarvottana
eina. Um öld síðar flutti Gregor-
íus páfi 4. hátíðina til 1. nóv-
ember, þar sem hún er enn. Til
Norður-Evrópu barst hún árið
835.
Allraheilagramessa varð
snemma einn af helgustu messu-
dögum íslensku kirkjunnar og
var ekki afnumin í þeirri mynd
fyrr en árið 1770, eða rúmum 200
árum eftir að evangelísk-lúthersk
kirkja náði völdum; textar og
bænir sem messudeginum fylgdu
voru þá jafnframt lögð til næsta
sunnudags þar á eftir.
Í kringum árið 1000 varð til
önnur hátíð, fyrir áhrif trúar-
legrar siðvæðingar, kenndrar við
Clunyklaustrið í Frakklandi.
Þetta var allrasálnamessa, og
sett á 2. nóvember. Hún var eink-
um ætluð til hjálpar sálum fá-
tækra. Þetta er á sama tíma og
kirkjan á Íslandi er að festast í
sessi, og þessi áhersla hefur því
frá upphafi verið partur af hinum
kristna hugmyndaheimi lands
okkar. Á 17. öld þekkist hátíðin í
íslensku máli undir nöfnunum
„sálnadagur“ og „heilagar sálir“,
en í rímtali 1707 er núverandi
heiti komið inn og hefur verið það
síðan.
Líkt og áður fyrr horfir allra-
heilagramessa til þeirra, sem á
liðnum öldum og einnig nær í
tíma hafa styrkt kristnina, þ.e.a.s.
nafnfrægra trúarhetja og dýr-
linga; einkum er þetta við lýði
meðal kaþólskra. En á allrasálna-
messu er hugurinn meira bund-
inn þeim öllum sem við þekktum
persónulega og elskum, en dauð-
inn sleit frá okkur. Í íslensku
þjóðkirkjunni fara þessir dagar
orðið saman, eru eins og einn
væri; beðið er fyrir sálum allra
látinna. Þessi hugsun, að minnast
þeirra sem burtu eru farnir, er
orðin ríkari á síðari árum heldur
en var til skamms tíma, er raunar
á góðri leið með að verða sterk
hefð, og er það vel, enda megum
við aldrei gleyma því hvaðan við
erum. Og annað þessu nátengt er
að vitja leiða ástvina og sýna
þeim ræktarmerki.
Sr. Hjálmar Jónsson, Dóm-
kirkjuprestur, komst svo að orði í
prédikun á allraheilagramessu í
fyrra, sem þá bar upp á 4. nóv-
ember:
Við þekkjum fólk sem eins og breiðir bless-
un út til allra í kringum sig. Fólk sem hefur
þá nærveru að okkur líður vel í návist þess,
við hugsum fagrar hugsanir, lifum glaðar
stundir. Þetta fólk gerir okkur einhvern
veginn betri. Sumt það fólk er eins og salt
og ljós.
Sannleikurinn er í þessu fólki, – fólki með
gott hjartalag.
Sumt þetta góða fólk höfum við kvatt, og
fylgt spölinn í kirkjugarðinn. Sumt alveg
nýverið – hann eða hún sem gerði líf þitt
meira virði að lifa því – og erfitt var að sjá
á bak.
En í dag þökkum við Guði fyrir vini okkar,
ástvini okkar, sem við trúum og vitum að
eru í ljósinu hjá Guði.
Sjálf höfum við upplifað skuggana, tómleik-
ann, einsemdina, þegar þau kvöddu þetta
líf. Við höfum gengið í gegnum það öll að
hugsa nýverið eða fyrr: Ég hefði getað ver-
ið betri sjálfur, innilegri, hefði getað sagt
svo margt fallegt frá hjartanu – sem ég
gerði þó ekki. Eða eins og sumir hafa hugs-
að sárt til: Ég var ekki viðstaddur þegar
hann, þegar hún, skildi við þetta líf.
En hugsanir í þessa veru ættum við nú
samt að forðast.
Guð horfir til beggja átta. Hann sér þá sem
lifa í þessum heimi og einnig og ekki síður
hina sem eru annars heims. Þá sem við
segjum að séu látnir – en Guð segir að séu
á lífi. Og hann lýsir friði yfir minningar
okkar á hinum farna vegi. Landamæri
dauðans eru vissulega býsna stór. Enginn
fer yfir þau mæri án þess að eftir því sé
tekið og viðkomandi tekinn af skrá í þess-
um heimi. En fyrir Guði eru þetta ekki sér-
lega mikil landamæri. Því að hluti af ríkinu
hans er hérna megin og hinn hlutinn hinum
megin – handan þessa lífs – á himnum.
Guðsríkið er báðum megin.
Við erum á leiðinni frá myrkri til ljóss. Til
sífellt meira ljóss.
Og allt er þetta til komið vegna
þess, að áhrif og rödd meistarans
frá Betlehem og Nasaret dóu
ekki út í tómið. Hvort tveggja lif-
ir. Því getum við óhrædd mætt
dauðanum hvenær sem er, í
krafti sigursins á Golgata forðum,
líka – og raunar ekki hvað síst – í
þjáningunni, sorginni og ein-
manaleikanum, af því að einnig
þar er hann, Drottinn okkar og
frelsari, Jesús Kristur.
Hjá Guði
Morgunblaðið/Kristinn
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Í dag minnumst við á sér-
stakan hátt látinna ást-
vina, eins og gert hefur
verið um aldir í byrjun
nóvember ár hvert. Sig-
urður Ægisson lítur
hér á sögu allraheilagra-
messu og allrasálna-
messu, sem nú hafa að
mestu runnið saman í ís-
lensku þjóðkirkjunni.
Moggabúðin
Derhúfa, aðeins 800 kr.
Moggabúðin
Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr.
HUGVEKJA
ÆÐARDÚNSHÓPUR Samtaka
verslunarinnar – FÍS tekur undir þá
ályktun sem gerð var á aðalfundi
Æðarræktarfélags Íslands nýverið,
þar sem hvatt er til þess að embætti
veiðistjóra verði endurskipulagt með
því markmiði að embættið verði bet-
ur í stakk búið að sinna því hlutverki
sínu að halda í skefjum ref, mink og
vargfugli.
Í tilkynningu frá æðardúnshópn-
um segir að frumskilyrðið fyrir því
að embættið geti sinnt þessari
skyldu sinni með sómasamlegum
hætti sé að því verði tryggt nægj-
anlegt fjármagn frá stjórnvöldum.
„Tjón af völdum vargs er ekki einka-
mál æðarbænda eða annarra sem
hafa beinna hagsmuna að gæta,
heldur varða þau allt samfélagið.
Æðardúnshópur Samtaka versl-
unarinnar – FÍS beinir því hér með
formlega til umhverfisráðherra og
landbúnaðarráðherra, að nú þegar
verði ráðist í nauðsynlega endur-
skipulagningu þessara mála,“ segir í
ályktuninni.
Embætti
veiðistjóra
verði endur-
skipulagt
BLAÐINU hefur borist eftirfarandi
orðsending til fyrrverandi nemenda
Húsmæðraskólans á Löngumýri:
„Fyrirhugað er að koma upp skóla-
safni á Löngumýri, með sýnishornum
af vinnu nemenda í gegnum árin. Því
sendum við þessa orðsendingu.
Ef þið, nemendur góðir, eigið ein-
hver stykki prjónuð, saumuð, hekluð
eða ofin, t.d. einhver gömlu skyldu-
stykkin, sem þið vilduð láta af hendi á
fyrirhugað safn, þá vinsamlegast haf-
ið samband við undirritaðar, sem gefa
allar nánari upplýsingar.
Rósa Björnsdóttir, Hvíteyrum,
Varmahlíð, Helga Bjarnadóttir,
Furulundi 4, Varmahlíð.“
Leita gamalla
muna frá
Löngumýri