Morgunblaðið - 03.11.2002, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 51
DAGBÓK
ÞAÐ væri til hagsbóta
fyrir bridsspilara að hafa
þrettán fingur, en þrátt
fyrir náttúrulega van-
kanta að þessu leyti ætti
engum að vera ofraun að
telja upp á þrettán.
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ G4
♥ 763
♦ ÁK1064
♣Á73
Suður
♠ 653
♥ ÁDG84
♦ 752
♣K10
Vestur Norður Austur Suður
– – 1 spaði Pass
Pass Dobl 2 spaðar 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Vestur spilar út smáum
spaða og austur tekur tvo
slagi á litinn og spilar
þeim þriðja. Það kemur
þægilega á óvart að vest-
ur fylgir lit í þriðja spað-
ann, svo sagnhafi trompar
í blindum. Og svínar svo
hjartadrottningu. Hún á
slaginn. Þá er tígli spilað
á ásinn og austur fylgir
með drottningunni.
Hjartagosa er svínað, en
nú hendir vestur laufi.
Taktu við.
Austur á sem sagt slag
á tromp. Hann hefur
greinilega byrjað með 5–4
í hálitunum. Ef tígul-
drottningin er blönk þarf
að svína tíunni, en hitt er
líka til í dæminu að aust-
ur hafi byrjað með DG
tvíspil.
Norður
♠ G4
♥ 763
♦ ÁK1064
♣Á73
Vestur Austur
♠ 872 ♠ ÁKD109
♥ 2 ♥ K1095
♦ 983 ♦ DG
♣G98654 ♣D2
Suður
♠ 653
♥ ÁDG84
♦ 752
♣K10
Svo vill til að það er
hægt að rannsaka málið.
Áður en afstaða er tekin í
tíglinum spilar sagnhafi
laufi þrisvar og trompar.
Austur reynist eiga tvíspil
í laufi og hlýtur þar með
að vera með tvo tígla.
Brids er einfalt spil ef
menn hirða um það að
telja upp á þrettán.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú kannt vel að bregðast við
misjöfnum aðstæðum og því
er mikið til þín litið um for-
ystu í málum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert í toppformi bæði and-
lega og líkamlega og vekur
almenna athygli. Ekkert er
dýrmætara en heilsan svo
þú skalt varast að ofbjóða
þér til sálar eða líkama.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Njóttu samræðna við vin,
hópa og samtök. Þar sem
Plútó og tunglið eru í
stjörnumerkinu þínu í dag
verður þú mjög tilfinninga-
rík(ur) í öllum þínum sam-
skiptum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Reyndu að deila áhyggjum
þínum og gleði með ein-
hverjum. Viljir þú kynnast
nýju fólki er ágæt leið að
finna sér nýtt áhugamál.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að gefa þér tíma til
að koma einkalífinu í réttar
skorður. Leitaðu samstarfs-
manna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Haltu ró þinni þótt mikill
hamagangur sé í kringum
þig og aðrir veltist hver um
annan þveran í persónuleg-
um átökum. Láttu verkin
tala.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gættu þess að hafa ekki of
mörg járn í eldinum. Leit-
aðu ráða hjá þér reyndari
mönnum, ef einhver efi
leynist í brjósti þér.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er margt sem fyrir ligg-
ur hjá þér þessa dagana. Það
er tilvalið að stofna til nýrra
sambanda í nýju tungli.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þótt sigurinn sé sætur
skaltu varast að velta þér
upp úr honum því í annan
tíma getur þú verið sá sem
tapar. Mundu að aðgát skal
höfð í nærveru sálar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú verður hugsanlega beð-
inn um að taka á þig aukna
ábyrgð og munt koma öllum
á óvart með lausn á gömlu
vandamáli.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Notaðu daginn til að hitta
fólk sem hefur sömu áhuga-
mál og þú því það lyftir þér
upp andlega.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur skilað góðu verki
og átt alveg skilið að njóta
góðra stunda af því tilefni.
Gleymdu ekki heldur að þú
þarft líka tíma fyrir sjálfan
þig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ýmsir erfiðleikar eru fram-
undan ef þú ekki tekst á við
vandamálin hér og nú.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
HUGGUN
Ertu nú horfin, þú unaðs tíð,
er álfur í hverri lilju bjó?
Og hvernig er rósin blessuð og blíð
og blómin á fjarrum heiðar mó!
Ertu nú horfin, þú yndis tíð,
er Alvitur fýstist á myrkvan við,
og Svanhvít á dúni svanafríð
söngfugla gladdist við ástarklið?
- - -
Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4.
Rf3 Bg7 5. h3 0–0 6. Be3 c6 7.
Bd3 Dc7 8. 0–0 b5 9. Dd2
Rbd7 10. Bh6 e5 11. Bxg7
Kxg7 12. Re2 Hb8 13. c3 c5
14. Hac1 He8 15. Rg3 a5 16.
Rh4 Rg8 17. f4 Rf8 18. fxe5
dxe5 19. d5 c4 20. Bb1 f6 21.
Hf3 Hd8 22. Df2 Db6 23. Kh2
Dxf2 24. Hxf2 Rd7 25. Re2
Rc5 26. g4 Bd7 27. Kg3 Rh6
28. Hcf1 Hb6 29. Rg2 Rf7 30.
Kh2 b4 31. Re3 Bb5 32. Rg3
Ba6 33. cxb4 axb4 34. Hc1
Rd6 35. h4 Hbb8 36. g5 fxg5
37. hxg5 Hf8 38.
Hcf1 Hxf2+ 39.
Hxf2 Hf8 40. Hxf8
Kxf8 41. Kh3 Ra4
42. Rd1 c3 43. bxc3
Rxc3 44. Rxc3 bxc3
45. a4 Ke7 46. Kg4
Rc4 47. Re2
Staðan kom upp í
fyrri hluta Íslands-
móts skákfélaga
sem fór fram í húsa-
kynnum B&L.
Predrag Nikolic
(2661) hafði svart
gegn Jón Árna
Jónssyni (2010).
47... c2! og hvítur
gafst upp enda maður að falla
í hafið. 9. og næstsíðasta
mótið í bikarsyrpu Halló!
hefst kl. 20.00 á ICC-skák-
þjóninum. Öllum íslenskum
skákmönnum er velkomið að
taka þátt en Taflfélagið Hell-
ir heldur mótið. Atkvöld
Hellis hefst kl. 20.00 mánu-
daginn 4. nóvember í félags-
heimilinu Álfabakka 14a.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 4. nóvember, er sextug-
ur Guðmundur Magni
Gunnarsson, Giljaseli 7,
Reykjavík. Hann tekur á
móti gestum á heimili sínu í
dag, sunnudaginn 3. nóvem-
ber.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Bústaðakirkju 23.
mars sl. af sr. Valgeiri Ást-
ráðssyni þau Guðrún Ingv-
arsdóttir og Guðjón Hlynur
Guðmundsson. Heimili
þeirra er að Birkimel 6a.
Í SÍÐASTA pistli var vikið
að orðasambandinu að
fara erlendis, sem gömlum
nemanda mínum finnst
ranglega notað í máli okk-
ar. Ég vona, að svar mitt
hafi bæði nægt honum og
öðrum þeim, sem lásu það
svar. Nú spyr sami nem-
andi um orðið hundrað,
sem notað er annaðhvort
sem töluorð eða nafnorð.
Tekur sem dæmi sam-
bandið: hundruðir manna
og spyr, hvort þetta sé
ekki röng notkun og hvort
ekki sé réttara að segja:
hundruð manna. Jú, þetta
er rétt athugað. Þetta var
hér til umræðu fyrir 12 ár-
um, að gefnu því tilefni, að
blaðamaður hafði þá ný-
lega rætt um orðið í Rík-
isútvarpinu og þá nær
óskiljanlegu áráttu
margra að tala um hundr-
uðir í stað hundruð, eins og
hann orðaði það. Hundruð-
ir manna voru ekki á fundi,
heldur hundruð manna.
Svo bætti ég þessu við:
Sem betur fer kunna fjöl-
margir hér enn glögg skil
á, enda er þetta tekið fram
í kennslubókum og orða-
bókum og nemendum
vafalaust einnig bent á hið
rétta. Ég vona einungis, að
téður blaðamaður reynist
ekki sannspár, þegar hann
gizkar á, að þetta verði
trúlega viðurkennt síðar
sem eins rétt mál og hin
forna beyging, a.m.k. þeg-
ar menn verði nógu oft
búnir að tönnlast á vitleys-
unni. Því miður hefur mér
ekki orðið að von minni,
því að vitleysan sú arna
heldur áfram í fréttum á
öldum ljósvakans og eins í
dagblöðum. Nú er enginn
Árni Böðvarsson hjá Rík-
isútvarpinu til þess að leið-
rétta málfar á þeim bæ, en
um þetta komst hann m.a.
svo að orði á 69. bls. í
ágætri bók, sem prentuð
var 1989 sem handrit fyrir
Morgunblaðið og Ríkisút-
varpið og heitir: Málfar í
fjölmiðlum. „Svo er til að
mynda um hundrað. Það
er hvorugkynsorð, í fleir-
tölu hundruð. Orðmyndin
„?hundruðir (nokkrar
hundruðir, hundruðir
manna)“ er bull.“ Ég vona,
að bók Árna sé ekki svo
rykfallin á þeim bæjum, að
ekki megi glugga í hana í
viðlögum. – J.A.J.
ORÐABÓKIN
Hundrað – Hundruð
DILBERT mbl.is
Staður: Umsjón: Sími:
Reykjavík Valhöll (virka daga kl. 9-17) 515 1700
Akranes Sigurður Sigurðsson 696 9492
Benedikt Jónmundsson 897 3043
Borgarfjörður Snorri Sigurðsson 896 1995
Borgarnes Ingi Tryggvason 860 2181
Ingibjörg Hargrave 862 1399
Hjörtur Árnason 892 1884
Snæfellsbær Helgi Kristjánsson 894 2961
Björn Arnaldsson 863-1153
Grundarfjörður Sóley Soffaníasdóttir 892 4695
Ásgeir Valdimarsson 892 9360
Stykkishólmur Gunnlaugur Árnason 894 4664
Dalasýsla Jóhann Sæmundsson 434 1272
Kristján Sæmundsson 434 1540
Tálknafjörður Jörgína Jónsdóttir 456 2538
Reykhólar Guðjón D. Gunnarsson 866 9386
Patreksfjörður Ari Hafliðason 456 1500
N-Ísafjarðarsýsla Björn Jóhannesson 456 4577
Sigríður Hrönn Elíasdóttir 456 4964
Ísafjörður Björn Jóhannesson 456 4577
Bolungarvík Björn Jóhannesson 456 4577
Strandasýsla Engilbert Ingvarsson 893 3213
V-Húnavatnssýsla Karl Sigurgeirsson 895 0039
Blönduós Sigurður Kr. Jónsson 452 4173
Ágúst Þór Bragason 899 0895
Skagaströnd Lárus Ægir Guðmundsson 892 5499
Adolf Hjörvar Berndsen 892 5089
Skagafjarðarsýsla Brynjar Pálsson (Bókabúð Brynjars) 453 5950
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna
prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi þann 9. nóvember
2002 fer fram hjá eftirtöldum aðilum: