Morgunblaðið - 03.11.2002, Qupperneq 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AUK þess að gefa Íslendingum og er-
lendum ferðamönnum tækifæri til að
skemmta sér er tilgangur Iceland
Airwaves að kynna íslenskar hljóm-
sveitir fyrir fulltrúum erlendra út-
gáfufyrirtækja. Leigh Lust er yfir-
maður hjá nýliðunardeild Elektra,
eða A&R deildinni eins og hún jafnan
kallast, og hefur mætt á allar fjórar
Airwaves-hátíðirnar. Reyndar kom
hann fyrst til landsins í mars árið
1999. „Við komum sjö eða átta hingað.
Lentum í Keflavík og fórum beint á
Akureyri þar sem við eyddum tveim-
ur kvöldum. Síðara kvöldið voru tón-
leikar með Dead Sea Apple og Toy
Machine en við komum hingað vegna
tónleikanna,“ útskýrir Leigh og bætir
við að í kjölfarið hafi fulltrúar Flug-
leiða og fleiri komið saman. Niður-
staðan varð sú að grundvöllur væri
fyrir tónlistarhátíð þar sem plötufyr-
irtækjum og íslenskri tónlist væri
boðið í eina sæng og var fyrsta Air-
waves-hátíðin haldin í október sama
ár.
Leigh hefur starfað í A&R-deild
Elektra í fimm ár. „Trúðu mér, það er
langur tími í þessum bransa,“ segir
hann. Starfið krefst mikils af Leigh
og öðrum í sama geira og segir hann
að þetta sé hreinlega lífsstíll fremur
en hefðbundið starf. Hann vinnur all-
an daginn á skrifstofu Elektra í
Rockefeller Plaza í New York við
margvísleg störf. Deginum lýkur þó
ekki þegar hann kemur heim því í
stað þess að setjast fyrir framan sjón-
varpið eins og svo margir, heldur
hann út á kvöldin til að fylgjast með
nýjustu hljómsveitunum.
„Enginn dagur er eins. Það fer eftir
því hvar þú ert staddur í verkefni,
hvort þú ert að vinna í plötu, sem er
að koma út, eða í kappsfullri leit að
nýrri hljómsveit. Til dæmis er ég
núna að reyna að fá samning við Yeah
Yeah Yeahs en mörg önnur útgáfu-
fyrirtæki eru einnig á eftir þeim,“
segir Leigh.
„Stundum langar mig bara heim að
sofa en verð kannski að fara að sjá
eina hljómsveit klukkan tíu og aðra á
miðnætti. Þá verður maður að mæta á
staðinn því allir hinir eru þar. Kost-
urinn er hinsvegar sá að starfið er sí-
breytilegt og mér leiðist aldrei,“ bæt-
ir hann við.
Grafið eftir gulli
„Tilgangurinn er að uppgötva
hljómsveitir á undan öðrum því ef
beðið er þar til þær verða þekktar eru
meiri peningar í spilinu.“
Leigh leitast eftir að ná samningi
við hljómsveitir sem hann telur að
geti selt á milli 500 þúsund, sem er
gullplötusala, og milljón plötur í
Bandaríkjunum. „Mjög fáar hljóm-
sveitir ná síðan þessu takmarki,“ seg-
ir hann og útskýrir að mikil vonbrigði
fylgi einnig starfinu.
Leigh fylgist einna helst með rokk-
hljómsveitum þótt hann sé ábyrgur
fyrir því að hafa kynnt dansvænu
Ástralana í Avalanches fyrir Banda-
ríkjamönnum. Bandaríska rokksveit-
in Remy Zero, sem kom á Airwaves,
og Stereolab, sem spilaði nýlega hér-
lendis, eru báðar á vegum Leigh og
Elektra í Bandaríkjunum. Hann
nefnir Faultline og Socialburn, sem
nýrri hljómsveitir á samningi, er
hann hefur verið að fylgjast með og
vert sé að athuga.
Leigh er ánægður með Iceland
Airwaves. „Mér finnst hátíðin frábær.
Hún kemur íslenskri tónlist vissulega
í sviðsljósið.“ Leitin að nýja smellin-
um frá Íslandi heldur áfram en Leigh
segir að fólk þekki almennt Björk,
Sigur Rós, Quarashi, múm og Leaves.
Leigh hreifst af nokkrum íslensk-
um hljómsveitum á nýliðinni Air-
waves-hátíð. Hann nefnir Singapore
Sling, Orgelkvartettinn Apparat,
Vínyl og Jagúar. Hann segir að með
því að lofa eina hljómsveit sé hann
ekki að útiloka aðra og minnist á þá
augljósu staðreynd að hann hafi ekki
náð að sjá allt. „Ég missti af Silt
(Botnleðju). Allir, sem ég þekki sögðu
þá hafa verið frábæra. Ég sá líka bara
síðasta lagið með Mínus, sem var
framúrskarandi. Ég vildi að það væru
til þrjú eintök af mér!“ Miðað við
hversu þétt dagskráin var er ekki
ólíklegt að það þyrfti að lágmarki þrjá
Leigh til að komast yfir allt.
Ólík hátíðinni í fyrra
„Hátíðin í ár var ólík hátíðinni í
fyrra að því leytinu til að þá setti 11.
september strik í reikninginn. Þá
voru engir stórir tónleikar heldur
fleiri smærri bönd, sem ná ekki að
fylla íþróttahús. Fyrstu tvö árin var
síðan ein hljómsveit aðalnúmerið á
stórum tónleikum. Ég verð að segja
að meiri spenna lá í loftinu í fyrra þeg-
ar stöðugt var hægt að flakka á milli
tónleikastaða,“ segir hann og minnist
á að á tónleikunum í Laugardalshöll-
inni í ár hafi fleiri stór nöfn komið við
sögu en áður. „Ef þér líkaði ekki ein
hljómsveitin varstu í raun svolítið
fastur þarna. Ég skil samt að það sé
erfitt að höfða til íslensks almennings
og erlendra gesta í senn.“
Hann leggur áherslu á að hann sé
þrátt fyrir það sérlega ánægður með
hátíðina í heild. Hann segir hátíðina
enn í mótun og því sé alltaf svigrúm til
að gera betur.
Stundvísir Íslendingar
Leigh er ánægður með tímasetn-
ingarnar á Airwaves og segir þær
hafa staðist vel. Slæmt er fyrir mann í
hans starfi þegar tímasetningar riðl-
ast og segist hann margoft hafa lent í
því á tónlistarhátíðum í Bandaríkjun-
um. „Tímasetningarnar stóðust,
hljóðið var alls staðar gott, þetta var
vel gert,“ segir Leigh, sem ætlar að
sjálfsögðu að koma aftur. Þangað til
ætlar hann að halda sambandi við ein-
hverjar þær hljómsveitir er vöktu
áhuga hans en margar leiðir eru fyrir
hendi til að koma þeim á framfæri í
Bandaríkjunum. „Sumar hljómsveitir
gætu hagnast á því að koma út hjá
minni, sjálfstæðum útgáfum fyrst og
selja svona 20 til 50 þúsund eintök og
fá einhvern pening í vasann,“ segir
hann. Til útskýringar segir hann að
Elektra hafi minni útgáfur á sínum
vegum auk þess, sem hægt sé að gera
sérstaka samninga við hverja hjóm-
sveit. „Þegar hljómsveitirnar hafa
selt til dæmis 100 þúsund eintök gríp-
ur Elektra aftur inní,“ segir hann og
gefur þannig innsýn í innviði hljóm-
plötuútgáfu í Bandaríkjunum, sem
líkist hreinasta frumskógi fyrir ís-
lenskan blaðamann.
Björk, Sigur Rós, Quarashi, múm,
Leaves og ? Ekki er enn ljóst hvort
nýir synir eða dætur íslensku tónlist-
argyðjunnar hafi komið í stóra heim-
inn á hátíðinni í ár. Hins vegar er
nokkuð ljóst að möguleikar íslenskrar
tónlistar til útflutnings eru nokkrir.
Bjóðum Leigh og félaga hans vel-
komna í hóp Íslandsvina.
Leigh Lust, útsendari frá útgáfurisanum Elektra, var á Airwaves
Morgunblaðið/Þorkell
Leigh Lust starfar hjá útgáfufyrirtækinu Elektra í Bandaríkjunum við leit
að nýjum og efnilegum hljómsveitum.
Velkominn
Íslandsvinur
Yfirmaður hjá nýliðunardeild bandaríska
útgáfufyrirtækisins Elektra, Leigh Lust,
er einn þeirra sem hefur sótt Iceland Air-
waves-tónlistarhátíðina frá upphafi. Inga
Rún Sigurðardóttir ræddi við hann um ný-
afstaðna hátíð, íslensku hljómsveitirnar
og plötubransann.
ingarun@mbl.is
Starstruck
(Með stjörnur í augum)
Gamanmynd
Bandaríkin, 1998. Skífan VHS. 94 mín.
Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn: John
Enbom. Aðalhlutverk: Jamie Kennedy,
Loren Dean, Bridgette Wilson og Carmen
Electra.
GEORGE er einn af mörgum
blönkum íbúum Hollywood sem
dreymir um að verða ríkur og frægur.
Hann skrifar handrit á nóttunni en
gegnir gráleitu skrifstofustarfi á dag-
inn. Dag einn hittir George þekktan
ungleikara í boði og fara þeir á rúnt-
inn saman. Bindur
George miklar von-
ir við það að vera nú
kominn inn í klík-
una, og gleðst mjög
yfir því að vera orð-
inn kunningi leikar-
ans þekkta. Í kjöl-
farið fylgir
skemmtileg at-
burðarás þar sem
horft er upp á þá blekkingarmynd
sem Georg býr sér til af vinskap sín-
um við leikarann. Sá er nefnilega á
hraðri niðurleið í metorðastiganum í
Hollywood sökum almennrar
heimsku og er fyrst og fremst að nota
hinn vongóða George. Jamie Kenn-
edy er fínn í hlutverki sakleysingjans
Georges, sem er einnig á mörkum
þess að vera sjúklega upptekinn af því
að koma sér á framfæri.
Þá er búin til skemmtileg persóna í
kringum „fræga“ leikarann, sem á
nokkur vinsæl hlutverk að baki og lif-
ir á unglingafrægð sinni. Botninn
dettur hins vegar smám saman úr
myndinni þegar á líður, og stendur
framvindan ekki undir þeim áhuga-
verðu aðstæðum sem byggðar eru
upp í byrjun. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Vinur í raun
♦ ♦ ♦