Morgunblaðið - 03.11.2002, Page 60
BRESKIR poppblaðamenngeta verið erfiðir viðskiptisog ekki bætir úr skák efpoppararnir sem þeir eru
að fjalla um eru sjálfur við-
skotaillir. Þannig er til að mynda
komið fyrir Richard Ashcroft að
breskir blaðamenn treysta sér
varla til að fjalla um hann nema
hreyta einhverjum ónotum í leið-
inni. Hefur sitt að segja að hann er
mjög sannfærður um eigin ágæti.
Tónlistarsaga Richards Ashcroft
er kannski dæmigerð um margt,
byrjar ungur að syngja, verður
mjög frægur með hljómsveit, deyr
næstum því af dópneyslu og snýr
aftur í frægðina. Hann var næstum
dauður úr ofþornun þegar sveit
hans Verve var á ferðinni að kynna
fyrstu breiðskífu sína og þegar
næsta plata á eftir var tekin upp
voru hann og félagar hans í sveit-
inni á kafi í e-pilluáti sem leiddi
meðal annars til þess að hann
hætti í sveitinni. Hann sneri aftur
og Verve sló aftur í gegn með plöt-
unni Urban Hymns, en leystist þá
upp fyrir fullt og allt.
Fyrsta sólóskífa Ashcrofts,
Alone with Everybody, sem kom
út fyrir tveimur árum, þótti þokka-
leg, og af yfirlýsingum hans vegna
nýrrar skífu mátti ráða að næsta
sólóskífa, Human Conditions, sem
kom út um daginn væri mikið
meistaraverk.
Sjálfur segir Ashcroft að frægð-
in hafi eitrað líf sitt og hann sé nú
fyrst að ná því að vera hann sjálfir,
en ekki bara fjölmiðlafígúra. „Mér
finnst eins og ég sé loks að koma
upp á yfirborðið eftir Urban
Hymns, náði því ekki á Alone With
hljóma í takt við titil skífunnar.
Á plötunni nýju er Supergrass
orðinn kvartett, því hljómborðs-
leikarinn Rob Coombes, eldri bróð-
ir Gaz Coombes gítarleikara og
söngvara sveitarinnar, en nú full-
gildur meðlimur, en hann hefur
reyndar leikið á hljómborð með
Supergrass meira og minna síðustu
sjö ár eða svo.
Fyrir hálfu öðru ári héldu þeir
félagar til Frakklands að semja lög
á nýja plötu, en í stað lagasmíða
fór tíminn að mestu í að slaka á og
skemmta sér, enda segja þeir að
þeir hafi nauðsynlega þurft að
treysta vinaböndin innan sveit-
arinnar, aukinheldur sem miklu
hafi skipt að losna úr sviðsljósinu
heima fyrir. Þriggja mánaða þvæl-
ingur um Suður-Frakkland virtist
líka gera þeim gott, því ekki voru
þeir fyrr komnir til Bretlands aftur
en þeir tóku til við lagasmíðar af
kappi og sömdu lögin á nýju plöt-
una á mettíma. „Það er nú bara
svo,“ segir bassaleikarinn Mick
Quinn, „að bestu lögin eru þau sem
maður semur um leið og komið er
heim af kránni; grípur gítarinn og
syngur það fyrsta sem manni dett-
ur í hug. Síðan tekur marga
klukkutíma að semja lélegu lögin.“
Tvær breskar
skífur
Richard Ashcroft og Supergrass eiga fátt sameig-
inlegt annað en breskt þjóðerni og að hafa sent frá
sér breiðskífur á dögunum.
Richard AshcroftSupergrass
Everybody. Næst á dagskrá er svo
að verða bara Richard Ashcroft en
ekki bara gaurinn úr Verve.“
Æringjarnir í Supergrass
Segja má að það hafi verið hálf-
gert ólán fyrir Supergrass að slá
eins rækilega í gegn með fyrstu
breiðskífu sinni og raunin varð.
Það var nefnilega meira í sveitina
spunnið en margur hélt sem aðeins
þekkti lögin sem urðu visæl af I
Should Coco.
Síðan eru liðin sjö ár og fjórar
breiðskífur, því sú fjórða kom
einmitt út fyrir skemmstu og
kallast Life On Other Planets. Á
henni er höggvið í sama knérunn;
rokkið fjörugt sem forðum, en líka
hlaðið laglínum og víða farnar
óvæntar leiðir. Síðasta plata
þeirra félaga þótti ójöfn að gæð-
um, sumt kæruleysislegt og ekki
nógu vandað. Það var því mikið í
húfi þegar kom að því að taka upp
nýja skífu og ekki verður annað
sagt en þeim hafi tekist vel upp,
því platan nýja er bráðskemmtileg
– minnir um margt á fyrri verk
þeirra félaga. Stuðið er meira en
nokkru sinni og gamansemin í há-
vegum aukinheldur sem þeir
bregða á leik með geimhljóð og
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
60 SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN
Í SÖGU HANNIBAL LECTER.
Kvikmyndir.com
HK DV
SV Mbl
SK RadíóX
1/2
Kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
Sýnd sunnudag kl. 3.50 og 8.
Sýnd kl. 4.10 og 6. Mán kl. 6. B.i. 12.
Sýnd kl. 8 og
10.20. B.i. 14.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.mán kl. 6, 8 og 10.
LOKSINS - LOKSINS - LOKSINS
Mbl
Sýnd kl. 3, 5.45 með enskum texta, 8 og 10.15. Mán
kl. 5.45 með enskum texta, 8 og 10.15. B.i. 12.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. B.i. 16.
Sýnd kl. 10.15. B.i. 16.
Loksins
færðu að kíkja bak við tjöldin og
sjá það sem enginn má sjá. Sjáðu eina
umtöluðustu og einu bönnuðu kvikmynd
Íslandssögunnar.
Kvikmyndir.com
Sýnd sd kl.1.50 og
3.40. Sýnd sd kl. 2.
Tilboð kr. 300
1/2
HJ. MBL
"Frábær heimildarmynd,
tvímælalaust í hópi þess
áhugaverðasta sem gert
hefur verið á þessu
sviðI á Íslandi"
Sýnd kl. 6.15. Mán kl.
8.30. Enskur texti
SG DV
„Vel gerð og
bráðskemmtileg“
TILNEFND
TIL EDDU
VERÐLAUNANNA
SEM BESTA
HEIMILDARMYND
ÁRSINS
anthony
HOPKINS
edward
NORTON
ralph
FIENNES
Sýnd kl. 2 og 6.
Mán kl. 6.
Yfir 45.000 áhorfendur
12 Tilnefningar til Eddu verðlaunanna.
Tilnefnd í öllum flokkum12
WITH
ENGLISHSUBTITLESAT 5.45 Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
SV. MBLDV
Það verður
skorað af krafti.
Besta breska gamanmyndin
síðan „Bridget Jones’s Diary.“ Gamanmynd
sem sólar þig upp úr skónum. Sat tvær vikur í
fyrsta sæti í Bretlandi.
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P
Sýnd kl. 10.10. Bi. 16. Vit 453Kl. 3, 5 og 7. Mán kl. 5 og 7. Vit 460
SK RadíóX
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Vit 448
Sýnd kl. 1.50, 3.40, 5.50, 8, 9 og 10.10. Mán kl. 3.40, 5.50, 8, 9 og 10.10. Vit 461
REESE WITHERSPOON
FRUMSÝNING
Yfir 43.000
Stundum er
það sem að
þú leitar
að.. þar
sem þú
skildir það
eftir.
Bráðskemmtileg rómantísk gamanmynd sem hefur fengið frábærar viðtökur og er
nú þegar orðin vinsælasta mynd ReeseWitherspoonfrá upphafi vestanhafs.
AUKASÝNINGkl. 9
Outside the Law
(Útlaginn)
Spennumynd
Bandaríkin, 2001. Skífan VHS/DVD. 92
mín. Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn:
Jorge Montesi. Aðalhlutverk: Cynthia
Rothrock, Seamus Dever og Dan Lauria.
ÞAÐ verður að segjast að leik-
konan Cynthia Rothrock kemur
með skemmtilega nýbreytni inn í
hina dæmigerðu bardagamynd. Sú
er á fimmtugsaldri og hefur leikið í
fjölda bardagamynda í Kína og
Bandaríkjunum og þykir með þeim
flinkari í bardaga-
listunum. Roth-
rock leikur hetj-
una í þessari ekki
alslæmu bardaga-
mynd. Þar segir af
leyniþjónustukon-
unni Julie sem
leggur á flótta eft-
ir að henni skilst
að spilltir aðilar á
æðstu stöðum hafa bruggað henni
og félögum hennar launráð. Hún er
í sárum eftir að hafa misst unnusta
sinn í skyndiárás svikaranna og
kynnist fyrir tilviljun góðu fólki
sem einnig á um sárt að binda. Það
sem gefur þessari mynd sín auka-
prik er líklegast það að dálítið er
unnið með persónusköpunina um-
fram það sem gengur og gerist í
bardagamyndum. Hún nær því fyr-
ir vikið að halda athygli áhorfand-
ans, þó svo að viðkomandi hafi
kannski takmarkaðan áhuga á bar-
dagalistum. Þá vekur það óneitan-
lega forvitni að sjá konu á besta
aldri í hlutverki bardagahetjunnar,
og kemur hún þar fyrir sem sterkur
persónuleiki og hið mesta hörkutól.
Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Hið mesta
hörkutól