Morgunblaðið - 12.11.2002, Page 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FR
JÁ
LS
IF
JÁ
R
FE
ST
IN
GA
RBANKINN
1982–2002
ára
Frjálsi fjárfestingarbankinn, Sóltúni 26, sími 540 5000, www.frjalsi.is
Frjálsi fjárfestingarbankinn hefur á annað ár boðið hagstæðustu bílalánin. Í tilefni af 20 ára afmæli
bankans gerum við nú enn betur og bjóðum bílalán án lántökugjalds, fram að næstu áramótum.
Algengasta lántökugjaldið er 3% af lánsupphæð. Miðað við milljón króna lán eru það því 30.000 kr.
sem þú losnar við að greiða í aukakostnað.
A
B
X
/
S
ÍA
Hagstæðasta bílalánið
og ekkert lántökugjald til áramóta
HAUKÞING EHF., nýtt fjárfest-
ingafélag í eigu Hf. Eimskipafélags
Íslands, Sjóvár-Almennra trygg-
inga hf. og Skeljungs hf., keypti í
gær 10,10% hlut í Skeljungi hf.
Nafnverð hlutarins er 76.295.485
krónur á genginu 14,69 og nemur
söluverð því tæpri 1.121 milljón
króna. Félagið átti ekki hlut í
Skeljungi fyrir.
Benedikt Jóhannesson stjórn-
arformaður Skeljungs og hins nýja
félags segir að samstarf félaganna
þriggja með þessum hætti sé yf-
irlýsing um að þau vilji vinna sam-
an að fjárfestingum í framtíðinni.
Hann segir að kaupin á Skeljungs-
bréfunum hafi verið fyrsta fjárfest-
ing félagsins og telur líklegt að fé-
lagið komi til með að kaupa hluti í
öðrum félögum einnig. Benedikt
sagði að ekkert væri ákveðið með
frekari kaup á hlutum í Skeljungi.
Haukþing keypti hlutinn af fleiri
en einum aðila að sögn Benedikts
en í gær seldi Verðbréfastofan hf.
hlutabréf í Skeljungi að nafnverði
38.364.658 kr.
Aðspurður sagði Benedikt að vel
hefði gengið hjá Skeljungi í ár og
fjárfestingin lýsti ánægju með fé-
lagið. „En svo er þetta líka þrýst-
ingur á um að ekki megi slaka á í
rekstrinum.“
Frá Jónasi Hallgrímssyni
Nafn félagsins, Haukþing, þykir
minna sterklega á Kaupþing. Bene-
dikt segir að engin tengsl séu þar á
milli. „Haukþing kemur úr minn-
ingarljóði Jónasar Hallgrímssonar
um Bjarna Thorarensen, þegar
hann talar um Haukþing á bergi.
Jónas taldi haukþing á bergi bera
af öðrum þingum, þannig að nafnið
á sér rómantískan uppruna,“ sagði
Benedikt og tók undir það að túlka
mætti nafnið þannig að eigendur
félagsins væru þrír haukar er
þinga á bergi. „Haukþing er alla-
vegna betra en hrafnaþing kolsvart
í holti,“ sagði Benedikt og vitnaði
þar aftur í Jónas Hallgrímsson.
Sjóvá kaupir líka
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
keyptu í gær einnig bréf í Skelj-
ungi að nafnverði kr. 22.662.000.
Eignarhlutur Sjóvár-Almennra
trygginga hf. er nú 10,59% eða kr.
80.008.488 að nafnverði en var áð-
ur 7,59% eða kr. 57.346.488 að
nafnverði. Benedikt Jóhannesson
stjórnarformaður Skeljungs hf. er
fruminnherji í Sjóvá-Almennum
tryggingum hf. Kristinn Björnsson
forstjóri Skeljungs hf. er stjórn-
armaður í Sjóvá-Almennum trygg-
ingum hf.
Kristinn Björnsson er einnig
stjórnarmaður í Haukþingi ehf.
ásamt Einari Sveinssyni fram-
kvæmdastjóra Sjóvár-Almennra,
Ingimundi Sigurpálssyni, forstjóra
Eimskips, og Benedikt Jóhann-
essyni.
Haukþing
eignast rúm 10%
í Skeljungi hf.
Morgunblaðið/Jim Smart
Benedikt Jóhannesson, formaður stjórnar Skeljungs hf. og Haukþings, en
Haukþing keypti rúm 10% í Skeljungi í gær.
Nýtt fjárfestingafyrirtæki í eigu Sjó-
vár-Almennra, Eimskips og Skeljungs
EUROPAY Ísland mun bregðast við
aukinni samkeppni í kreditkortavið-
skiptum með tilkomu Kortaþjónust-
unnar hf. Á næstu dögum verður far-
ið yfir það sem Kortaþjónustan
býður söluaðilum í samstarfi við
danska greiðslumiðlunarfyrirtækið
PBS, og ef einhver munur er á því og
þjónustu Europay, verður sam-
keppninni svarað, að sögn Ragnars
Önundarsonar, framkvæmdastjóra
Europay Ísland.
Af hálfu VISA Ísland eru ekki
taldar forsendur að sinni til að tjá sig
um boðaða samkeppni af hálfu
Kortaþjónustunnar hf. né um þær
staðhæfingar sem fram komu á fundi
fyrirtækisins í síðustu viku, um að
þjónusta þess yrði 20–40% ódýrari en
sambærileg þjónusta samkeppnisað-
ilanna, sem fyrir eru á þessum mark-
aði. Kortaþjónustan greindi frá því á
kynningarfundi í síðustu viku að fyr-
irtækið boðaði samkeppni í kredit-
kortaviðskiptum fyrir söluaiðla.
Gunnar R. Bæringsson, stjórnarfor-
maður Kortaþjónustunnar, sagði þá
að þjónusta fyrirtækisins yrði allt að
20–40% ódýrari en sambærileg þjón-
usta þeirra tveggja fyrirtækja sem
fyrir eru á þessum markaði, þ.e.
VISA Ísland og Europay Ísland.
Minni kostnaður vegna
skjótari afgreiðslu
Gunnar segir að lægri kostnaður
Kortaþjónustunnar hf. en VISA Ís-
land og Europay Ísland komi fram í
því að söluaðilar muni fá greiðslu-
kortaviðskipti sín uppgerð fyrr en
þeim standi til boða nú. Söluaðilar
sem verði í viðskiptum við Korta-
þjónustuna muni fá greiðslukortavið-
skipti sín uppgerð og endurgreidd
tveimur virkum dögum eftir að við-
skiptin eiga sér stað. Í dag sé þetta
hins vegar 15 til 45 dögum eftir við-
skipti. Söluaðilar geti hins vegar selt
færslurnar til fjármálastofnana gegn
aukalegri þóknun. Þegar tekið sé til-
lit til þess sé þjónusta Kortaþjónust-
unnar ódýrari en hjá fyrirtækjunum
tveimur.
Að sögn Gunnars greiða söluaðilar
2,9% þóknun af veltu til Kortaþjón-
ustunnar. Biðtíminn tveir virkir dag-
ar geri að verkum að 0,1% leggist of-
an á, svo kostnaður söluaðila í
viðskiptum við Kortaþjónustuna sé
því samtals 3,0%.
Hann segir að ofan á þóknun hinna
kortafyrirtækjanna leggist hins veg-
ar meiri kostnaður, mismunandi eftir
því hvernig söluaðilarnir fjármagni
kreditkortaviðskipti sín. Þessi kostn-
aður sé á bilinu frá 1,4% og allt upp í
3,0%. Ef miðað sé við að meðalþókn-
un samkeppnisaðilanna sé um 2,5%
geti heildarkostnaður söluaðilanna
því verið frá 3,9% og upp í 5,5% af
veltu þeirra.
Europay býður nú
þegar örari greiðslur
Ragnar Önundarson segir að
Europay Ísland sé þegar byrjað að
bjóða vikulegar greiðslur. Sú þjón-
usta að greiða örar sé því fyrir hendi í
dag og í þeim efnum bjóði Kortaþjón-
ustan ekkert nýtt.
„Við höfum farið þá leið að aðskilja
fjármögnunarþáttinn frá grunn-
þóknuninni,“ segir Ragnar. „Við
semjum um fasta prósentu vegna
grunnþjónustunnar. Ef aðili vill
skjótari afgreiðslu er reiknað álag á
þóknunina, sem er breytilegt eftir
vaxtastiginu. Það þýðir að kaupmað-
ur getur á einum tíma til annars valið
hvort hann þiggur þessa tilteknu
þjónustu eða ekki. Ef vextir eru til að
mynda lágir getur hann kosið að nýta
sér þjónustuna. Ef hann getur hins
vegar fjármagnað starfsemina með
öðrum hætti þá þiggur hann hana
ekki. Við teljum að þessi þjónusta
okkar sé því fullkomnari en sú þjón-
usta sem Kortaþjónustan ætlar að
bjóða, að vera með fjármagnskostn-
aðinn inni í grunnþóknuninni. Þá er
ekkert því til fyrirstöðu að þróa þetta
fyrirkomulag og borga oftar en viku-
lega. Kortaþjónustan hefur því enga
yfirburði í þessum efnum.“
Að sögn Ragnars er algengasta
þóknun sem lítil og meðalstór fyrir-
tæki greiða hjá Europay Ísland á
bilinu 2–3% af veltu. Hann segir að ef
út frá því sé gengið að fjármagns-
kostnaður þessara söluaðila sé um
1% á mánuði, þá sé heildarkostnaður
þeirra af kreditkortaviðskiptum hjá
Europay Ísland nú á bilinu 3–4%.
VISA hefur ekki tekið
ákvörðun um breytingar
Í svari frá VISA Ísland við spurn-
ingu um viðbrögð fyrirtækisins við
boðaðri samkeppnu af hálfu Korta-
þjónustunnar segir að VISA hafi ekki
boðið söluaðilum örari útborgun sölu-
veltu en samningur kveði á um. Fyr-
irtækið hafi hins vegar gert markaðs-
aðilum, einkum bönkum og
sparisjóðum, kleift að eiga viðskipti
með uppsafnaða inneign söluveltu.
VISA hafi ekki haft afskipti af því á
hvaða kjörum slík viðskipti hafi átt
sér stað enda slík fyrirgreiðsla í flest-
um tilvikum hluti af daglegum sam-
skiptum söluaðila við viðskiptabanka
sinn eða sparisjóð. Engin ákvörðun
hafi verið tekin um breytingar á því
fyrirkomulagi.
Boðuð aukin samkeppni í kreditkortaþjónustu fyrir söluaðila
Europay mun bregðast við
Hluthafa-
fundur hjá
Keri að ósk
Hesteyrar
Ný stjórn verði
kosin á fundinum
með hlutfalls-
kosningu
STJÓRN Kers hf. hefur borist bréf
frá Hesteyri ehf., þar sem óskað er
boðunar hluthafafundar í Keri hf.,
þar sem á dagskrá verði afturköll-
un umboðs allra stjórnarmanna
Kers hf., bæði aðalmanna og vara-
manna, sem kosnir voru á aðal-
fundi félagsins hinn 12. apríl 2002.
Þá er þess krafist að félaginu verði
kosin ný stjórn. Þess var jafnframt
krafist að hlutfallskosning verði
viðhöfð í stjórnarkjörinu.
Hesteyri ehf., er skráð fyrir
22,53% hlutafjár Kers hf., og ber
stjórn því að verða við kröfum fé-
lagsins samkvæmt samþykktum
Kers hf.
Stjórn Kers hf. hefur ákveðið að
boða til hluthafafundar samkvæmt
ofannefndri kröfu Hesteyrar ehf.
27. nóvember 2002 að því er fram
kemur í tilkynningu til Kauphallar
Íslands.
Að sögn Jóns Friðrikssonar,
stjórnarformanns Hesteyrar, telur
félagið eðlilegt að fá fulltrúa í
stjórn Kers enda stærsti hluthaf-
inn í Keri. Aðspurður vildi hann
ekki tjá sig um hve marga menn
Hesteyri myndi vilja fá í stjórn og
vildi að öðru leyti ekki tjá sig frek-
ar um bréfið til stjórnar Kers.
Eignarhaldsfélagið Hesteyri ehf.
er í eigu Fiskiðjunnar Skagfirðings
hf. og Skinneyrar-Þinganess hf.
Félagið keypti 22,53% hlut í Keri
hf. í ágúst síðastliðnum af Íslands-
banka. Bankinn hafði áður keypt
21,46% hlut í Keri af Fjárfesting-
arfélaginu Straumi hf. en auk þess
seldi Íslandsbanki Hesteyri þá
1,07% hlut bankans í Keri.
Í stjórn Kers sitja: Kristján
Loftsson, formaður, Gísli Jónat-
ansson, Margeir Daníelsson, Ólaf-
ur Ólafsson, Þórður Már Jóhann-
esson og varamenn í stjórn eru;
Þórólfur Gíslason, Guðrún Lárus-
dóttir og Magnús Kristinsson.
BRESKA fyrirtækið Big Food
Group, sem á og rekur verslunarkeðj-
urnar Iceland, Booker og Woodward
íhugar að hætta starfsemi Iceland.
Frá því var greint á vefsíðu
Guardian í gær, að þrátt fyrir að Ice-
land hafi dregið hagnað Big Food
Group niður það sem af er ári, þá telji
talsmaður fyrirtækisins að það versta
sé yfirstaðið. Ef allt fari hins vegar á
versta veg segir talsmaðurinn að allt-
af sé hægt að hætta starfsemi Ice-
land.
Guardian segir að Bill Grimsey,
framkvæmdastjóri Big Food Group,
hafi í síðustu viku tekist að telja
markaðnum trú um að Iceland sé á
réttri leið og að sala verslunarkeðj-
unnar sé á uppleið. Það stemmi hins
vegar ekki við greiningu sérfræðinga
sem segi að dregið hafi úr sölu hjá
keðjunni. Þá segir í Guardian að hinar
700 verslanir Iceland myndu vera eft-
irsóknaverðar fyrir keppinautana,
svo sem Tesco, Asda og Sainsbury.
Líkur á að Baugur, sem nýlega hef-
ur eignast 15,16% hlut í Big Food
Group, myndi vilja yfirtaka Iceland,
segir Guardian að séu taldar litlar.
Segir í greininni að Baugur hafi meiri
áhuga á að stuðla að því að styrkja
Big Food Group á markaði. Verðið
sem Baugur hafi greitt fyrir hlut sinn
í Big Food Group sé almennt talið
hafa verið í algjöru lágmarki. Áhugi
Baugs sé meiri á því að yfirtaka Big
Food í heild sinni en ekki einstakar
verslunarkeðjur þess.
Rekstri Iceland
hugsanlega hætt