Morgunblaðið - 12.11.2002, Blaðsíða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002 15
Jólagjafir
www.icestart.is - sími 588 3060
Hamraborg 1-3 - 200 Kópavogurvinnufatnaður
Merkjum fatnað
og vörur
eftir þínum óskum
Hitabrúsi
Flísteppi
fyrir fyrirtæki
til starfsmanna og viðskiptavina
SÆNSK stjórnvöld hafa vísað tveim-
ur rússneskur sendiráðsstarfsmönn-
um úr landi fyrir meintar iðnaðar-
njósnir hjá símatæknifyrirtækinu
Ericsson, eftir því sem greint var frá í
tilkynningu frá sænska utanríkis-
ráðuneytinu í gær.
Tilkynningin var gefin út eftir að
rússneski sendiherrann í Stokkhólmi
var boðaður á fund í utanríkisráðu-
neytinu. „Við höfum í dag beðið
sendiherrann að koma í ráðuneytið
og tveir starfsmenn sendiráðsins
hafa verið lýstir „persona non grata“
og hafa þegar yfirgefið landið,“ sagði
Kristina Östergren, talsmaður ráðu-
neytisins. „Þetta tengist Ericsson-
málinu,“ sagði hún.
Rússnesk stjórnvöld brugðust illa
við þessum aðgerðum Svía og hótuðu
að svara í sömu mynt. Í tilkynningu
frá utanríkisráðuneytinu í Moskvu
segir að það „áskilji sér rétt til að
bregðast við þessu með viðeigandi
hætti.“ Fordæmi eru fyrir slíkum
andsvarsaðgerðum þar sem sendi-
ráðsstarfsmenn af hliðstæðri tign séu
reknir úr landi á móti.
Staðinn að verki
Sænska öryggislögreglan, Säpo,
handtók í síðustu viku þrjá menn,
sem störfuðu eða höfðu starfað fyrir
Ericsson, en til handtakanna kom eft-
ir að lögregla stóð aðalsakborninginn
að verki við að afhenda erindreka úr
rússneska sendiráðinu leynileg gögn
úr fyrirtækinu. Hinir tveir voru sak-
aðir um að hafa hjálpað við við að afla
gagnanna, eftir því sem lögreglan
skýrði frá. Allir þrír sakborningar
voru úrskurðaðir í gæzluvarðhald sl.
föstudag, sakaðir um iðnaðarnjósnir,
en einn þeirra einnig fyrir þyngri
njósnasakir.
Talsmenn Ericsson sögðu einnig
tvo aðra starfsmenn hafa verið rekna,
en þeir væru sakaðir um að aðstoða
tvo meginsakborningana við gagna-
öflun án þess þó að sæta sakarann-
sókn sjálfir.
Búnaður til hernaðarnota
Aðalstarfsemi Ericsson snýst nú
um farsímatæknina, en um 2000 af
þeim yfir 70.000 sem vinna hjá fyr-
irtækinu um víða veröld starfa að
þróun búnaðar til hernaðarnota.
Meðal verkefna Ericsson á því sviði
er að þróa radarkerfi fyrir JAS-39
Gripen-orrustuþotuna, sem smíðuð
er í samstarfi Saab og BAE Systems í
Bretlandi. Stokkhólmsblaðið Dagens
Nyheter kom með þá kenningu í gær,
að njósnir Rússa hjá Ericsson væru
eins konar hefndaraðgerðir fyrir að
Svíar skyldu á síðustu árum hafa
keypt leynilegar upplýsingar um
þróaðasta loftvarnaradarkerfi Rússa.
Frá því árið 1992 hafa níu erlendir
sendierindrekar verið lýstir óæski-
legir (persona non grata) í Svíþjóð.
Svíar reka tvo rússneska sendiráðsstarfsmenn úr landi
Sakaðir um iðnaðar-
njósnir hjá Ericsson
Stokkhólmi, Moskvu. AFP, AP.
FIMM Ísraelar, þ.á m. tvö börn,
voru myrtir á sunnudagskvöldið
þegar Palestínumaður, vopnaður
sjálfvirkum riffli, komst inn á Metz-
er-samyrkjubúið í Norður-Ísrael og
hóf skothríð. Morðinginn komst und-
an á flótta.
Tveggja ára gamalt palestínskt
barn lést í gær eftir að hafa særst í
skotárás ísraelskra hermanna á hús í
Rafah á Gaza-svæðinu. Þrjú önnur
börn særðust í árásinni.
Í árás Palestínumannsins voru
kona og tveir synir hennar, fjögurra
og sex ára, skotin þar sem þau lágu
sofandi heima hjá sér, að sögn ísr-
aelsku lögreglunnar. Hinir tveir,
sem voru myrtir, voru kona og karl-
maður á sextugsaldri. Allir voru
óbreyttir borgarar. Sjö manns særð-
ust í skotárás Palestínumannsins.
Maður, sem ekki sagði til nafns,
hringdi í AFP-fréttastofuna og lýsti
ábyrgð á morðunum á hendur al-
Aqsa-herdeildunum, sem eru vopn-
aður armur Fatah-hreyfingar Yass-
ers Arafats Palestínuleiðtoga. Met-
zer-samyrkjubúið er um 10 km
norður af palestínska bænum Tulk-
arem sem ísraelski herinn hefur haft
á valdi sínu, líkt og flestalla palest-
ínska bæi á Vesturbakkanum, síðan í
júní.
Í gær sögðu Ísraelar að Arafat
væri ábyrgur fyrir morðunum á
sunnudaginn. „Palestínska heima-
stjórnin er orðin að fjöldahryðju-
verkaverksmiðju,“ sagði Avi Pazner,
talsmaður ísraelsku stjórnarinnar,
við AFP. Benjamín Netanyahu, ut-
anríkisráðherra Ísraels, sagði að
ekki væri um annað að ræða fyrir
Ísraela en að ryðja Arafat úr vegi.
Embættismaður í ísraelska varnar-
málaráðuneytinu sagði að brugðist
yrði af fullri hörku við morðunum á
sunnudagskvöldið.
Arafat fordæmdi morðin, eins og
hann gerir jafnan eftir svona tilræði,
en nú bætti hann því við að hann
hefði skipað nefnd til þess að athuga
hvort klofningshópur frá Fatah-
hreyfingu hans hefði staðið að morð-
unum í þeim tilgangi að spilla við-
ræðum sem Fatah ætti í við íslamska
öfgamenn í Hamas-hreyfingunni í
því augnamiði að draga úr ofbeldis-
aðgerðum.
Reuters
Avi Ochayun grætur í herbergi sona sinna, sem palestínskur vígamaður
myrti á sunnudagskvöldið. Kona Ochayuns var einnig myrt.
Ísraelar myrtir
Jerúsalem. AFP.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins kvaðst í gær vera að
íhuga þann möguleika að takmarka
þorskveiðar í lögsögu aðildarríkj-
anna, meðal annars í Norðursjó og
Írlandshafi, en banna þær ekki alger-
lega eins og hún hafði boðað.
Franz Fischler, sem fer með sjáv-
arútvegsmál í framkvæmdastjórn-
inni, skýrði frá þessu í ræðu í Dublin.
„Öruggast væri að banna þorskveið-
ar,“ sagði hann. „Ég er hins vegar að
athuga þann möguleika að veiðum á
þorski, ýsu og öðrum stofnum verði
haldið áfram en sóknin verði mjög
takmörkuð.“
Hann bætti þó við að þetta væri
aðeins mögulegt ef ráðherrar ESB-
landanna samþykktu mikla kvóta-
skerðingu og fleiri ráðstafanir til að
bjarga þorskstofnunum á fundi sem
ráðgerður er í desember. Hann lagði
áherslu á að sjávarútvegurinn í ESB-
ríkjunum stæði frammi fyrir miklum
erfiðleikum þótt veiðarnar yrðu ekki
bannaðar.
Framkvæmdastjórnin varaði við
því í lok október að ef til vill þyrfti að
banna þorskveiðar eftir að sérfræð-
ingar hennar vöruðu við því að stofn-
arnir væru í mikilli hættu.
Evrópusambandið
Íhugar að
leyfa tak-
markaðar
þorskveiðar
Brussel. AFP.