Morgunblaðið - 12.11.2002, Síða 22

Morgunblaðið - 12.11.2002, Síða 22
NEYTENDUR 22 ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SORPA hefur sent hátt í 35.000 tonn af dagblaða- og tímarita- pappír til dreifingarfyrirtækisins IL Recycling í Svíþjóð frá árinu 1995, segir Gyða Björnsdóttir kynningar- og fræðslufulltrúi Sorpu. „IL Recycling hefur síðan séð um að koma pappírnum áfram til fyrirtækisins Edet, sem einnig er í Svíþjóð. Helsta framleiðsluvara þess er klósettpappír en þeir framleiða líka eldhúsrúllur og samkvæmt upplýsingum frá fyr- irtækinu nýtast 35.000 tonn af blaðapappír í framleiðslu á um 150 milljón klósettrúllum. Blaða- pappírinn sem höfuðborgarbúar hafa skilað í grenndargáma og á endurvinnslustöðvar á þessu 7 ára tímabili hefur því komið að góðum notum við framleiðslu á þessari vöru,“ segir Gyða. Blöðum og tímaritum hefur ver- ið safnað hjá Sorpu frá 1991 og þeim komið til endurvinnslu er- lendis. „Árið 1995 má segja að hafi orð- ið tímamót í söfnun á þessum flokki með tilkomu grenndargám- anna sem staðsettir eru víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir hún. Þess má loks geta að árin 1991– 1995 voru pappi og dagblöð/ tímarit skilgreind sem einn flokk- ur og því erþað magn ekki með í þessum útreikningum. Sjá jafnframt: www.sorpa.is Morgunblaðið/Golli Blöð og tímarit verða til dæmis að klósettpappír í endurvinnslu. Listamaðurinn heitir Aðalbjörg Halldórsdóttir og var í 8. bekk Grunnskóla Þorlákshafnar þegar þessi mynd var sköpuð. 35.000 tonn af blaða- pappír til endurvinnslu BÚTASAUMSBLAÐIÐ kemur nú út aftur eftir fjögurra ára hlé. Umsjón með útgáfunni hef- ur Vigdís Stefánsdóttir ásamt fleiri bútasaumskonum, en hún sá jafnframt um útgáfu samskon- ar blaðs á sínum tíma. Blaðinu er ætlað að svara þörf fyrir íslenskt efni um þetta áhugamál, það er bútasaum, að hennar sögn. „Hér ríkir mikill áhugi á búta- saumi eins og víða annars staðar og allar götur frá því ég hætti út- gáfu á Íslenska bútasaumsblaðinu á sínum tíma hef ég verið spurð hvort ég ætli ekki að halda útgáf- unni áfram. Nú er sem sagt komið að því,“ segir hún. Á annað þúsund heimsóknir á butasaumur.is frá 30. október Í Bútasaumsblaðinu er að finna viðtöl við bútasaumsfólk, bæði karla og konur, frásagnir af sýn- ingum, kennslu í bútasaumi, upp- skriftir og góð ráð, að ekki sé minnst á skrif um hina illræmdu „bútapest“, sem kvað leggjast þungt á fólk. Bútasaumsblaðið er stutt af vefnum www.butasaumur.is sem hefur fengið á annað þúsund heim- sóknir frá 30. október, segir Vigdís ennfremur. Loks segir hún að Bútasaums- blaðinu sé ætlað að koma út að minnsta kosti tvisvar sinnum á ári, eða þrisvar ef þörf sé talin á því að gefa út jólablað um bútasaum. Í Bútasaumsblaðinu eru viðtöl við karla og konur sem stunda bútasaum, leiðbeiningar, upp- skriftir og góð ráð. Hér má sjá forsíðu blaðsins og nokkrar út- gáfur af barnateppum. Bútasaumur og hin illræmda „bútapest“ FYRIRTÆKIÐ J. S. Helgason fagnar 60 ára afmæli á Íslandi um þessar mundir og kynnir tvær nýj- ungar. Annars vegar er um að ræða Colorsport Lip Plump sem gerir varirnar „þrýstnari og stinnari“ á auga- bragði, að því er fram kemur í til- kynningu frá inn- flytjanda. „Sér- staklega blönduð chili-olía örvar blóðstreymið að yfirborði varanna og gerir þær stærri,“ segir enn- fremur, auk þess sem áburðurinn gerir varirnar rakar og með létt- um gljáa. Colorsport Lip Plump er glær og er ýmist borinn á undir varalit eða hafður einn og sér. Fæst í apótekum. NÝTT Áburður sem „stækkar“ varir ÖNNUR nýjung frá J. S. Helgasyni er Colorsport „30 daga ekta augn- háralitur“ sem borinn er á augnhár og augnbrúnir og látinn standa í 10 mínútur. Litirnir eru svart og dökk- brúnt. „Augnhára- liturinn endist í mánuð og pakkning- in í eitt ár,“ segir í tilkynningu frá innflytjanda. Auk litarins og festis fylgir með skál til þess að blanda litinn og áhald til þess að bera hann á. Fæst í Apó- tekum. 30 daga augnaháralitur METFÁTT var á „15:15“ tónleik- unum á Nýja sviði Borgarleikhússins sl. laugardag, sem þurftu að keppa um aðsókn við bæði Gullæði Chapl- ins (kvikmyndatónleika SÍ) og mál- þing um Mathhías Johannessen í Gerðubergi á sama tíma. Skipti að vanda litlu þó að viðfangsefni tón- leikanna væru hin frambærilegasta músík, né þaðan af síður að flutning- urinn reyndist langt fyrir ofan með- allag. Tónleikarnir voru undir yfirskrift- inni „Ferðalög“, að þessu sinni helg- aðar Eyjatónlist, þ.e. frá Íslandi, Færeyjum og Bretlandseyjum. Sig- urður Halldórsson lék fyrst svana- söng William Waltons, Passacaglíu fyrir selló án undirleiks sem samið var fyrir meistara Rostropovitsj 1982. Hin tíu tilbrigði um 8 takta stef var þróttmikið verk og áheyrilegt og afburðavel leikið. Reyndar er langt síðan maður hefur heyrt Sigurð í betra formi en þennan dag og hefði „met-frammistaða“ hans vissulega átt húsfylli skilinn. Pauli í Sandagerði heitir eitt af af- kastameiri tónskáldum Færeyinga, sem hefur, ólíkt hinum litlu yngra landa sínum Sunleif Rasmussen, þó ekki tekið stökkið alla leið yfir í framúrstefnuna enda aðallega virkur í sönglaga- og kórverkagerð. Lög hans fjögur, Træet (Heinesen), Flýgur tú lógv og Svøvnvísa (Regin Dahl) og Morgun (Chr. Matras), fyrstu þrjú samin 1977-8 en nr. 4 1995, voru einkar hugljúf og sönghæf dæmi um norrænan nútímaimpress- jónisma og ágætlega flutt af þeim Ólafi Kjartani Sigurðarsyni og Daní- el Þorsteinssyni. Og mikið óskaplega fór það hljómmikilli barýtónrödd Ólafs vel að voga sér annað veifið nið- ur fyrir forte, enda allt of fallegt hljóðfæri til að fleyta sér alfarið á boldangskraftinum eins og einkennt hefur þennan annars frábæra söngv- ara hin seinni misseri. 3 Aríettur (1991) nefndust þrjú stutt verk fyrir selló eftir hinn józk- færeyska Kristian Blak, mikla fé- lagssprautu í færeysku tónlistarlífi og aðalstofnanda hinnar grósku- miklu „flögu“[geisladiska]útgáfu Tutl. Fór þar hægferðug og fremur gisin móderník, að eigin sögn byggð á inntónun og hrynjandi franskrar tungu, en samt furðuáheyrileg, sér- staklega nr. II og III, og hreint meistaralega túlkuð af Sigurði. Hann átti né heldur minnsta lóðið á vog- arskálinni í Sex íslenzkum þjóðlög- um Hafliða Hallgrímssonar fyrir selló og píanó (1973), sem telst nú höfuðverk innan íslenzkra sellóbók- mennta, enda sem von er skrifað af mikilli þekkingu á möguleikum hljóðfærisins. Það er hreint með ólíkindum hvað höfundi hefur tekizt að laða mikla og frjóa fjölbreytni fram úr þessum ein- földu lögum, sem á engan hátt verða orðuð við liðnar stefnur jafnvel þótt grunnur tónmálsins sé enn í traust- um dúr og moll. Sannaðist hér hversu vitaónauðsynlegt er að „at- ómísera“ viðfangsefnin niður í hið óþekkjanlega – líkt og undirr. heyrði eitt sinn Sunnleif Rasmussen gera við færeyskt sálmalag – til að ná fram „frumleika“, hvað þá sterkum persónublæ. Spillti þar sízt fyrir framúrskarandi túlkun þeirra félaga, sem hefði að ósekju mátt taka beint upp á hljómdisk. Innleiðandi „intró“- hendingar Ólafs Kjartans á langspil voru og meðverkandi til að ljá þess- um lið rammíslenzkt yfirbragð. Að lokum voru tvö skozk þjóðlög við ljóð Roberts Burns, The De’il’s awa’ wi’ the Exciseman og O my luv is like a red red rose, ólík að stemn- ingu en skemmtilega flutt af þeim Ólafi. Ljósið kemur langt og mjótt TÓNLIST Borgarleikhúsið Verk eftir Walton, Paula í Sandagerði, Kristian Blak og Hafliða Hallgrímsson. Ólafur Kjartan Sigurðarson barýtónn, Sig- urður Halldórsson selló og Daníel Þor- steinsson píanó. Laugardaginn 9. nóv- ember kl. 15:15. KAMMERTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson ÚR lausu lofti er yf- irskrift hádegistón- leika í Íslensku óp- erunni í dag. Tónleikarnir hefjast kl. 12.15 og þau sem syngja eru Sesselja Kristjánsdóttir mezzósópran og Jó- hann Friðgeir Valdi- marsson tenór, en þau eru bæði í hópi fastráðinna söngvara við óperuna. Meðleik- ari þeirra á píanó verður Clive Pollard. Á efnisskránni er tónlist eftir ameríska sönglaga- og söngleikjahöfunda og aðra sem sömdu í þeim anda. Með- al annars má þar heyra lög sem Frank Sinatra gerði ódauðleg á sínum tíma. Sesselja Kristjáns- dóttir segir það ekkert mál fyrir óperusöngvarana að vippa sér yfir í amerísku söngleikjamúsíkina. „Við syngjum þetta auðvitað með okkar nefi, og það heyrist – og á að heyrast að við erum fyrst og fremst óperusöngvarar, þótt við reynum að nálgast stílinn á okkar hátt. Það verður að hafa í huga, að við erum ekki að syngja í hljóðnema, eins og oftast er gert með þessa tónlist og þá krefst hún annarrar raddbeitingar svo það heyrist í manni.“ Aðspurð um uppáhaldslag í prógramminu seg- ist Sesselja verða að nefna tvö lög. „Cole Porter lagið My Heart Be- longs to Daddy og of- boðslega fallegt lag eftir Stephen Sond- heim, Send in the Clowns. Það sker sig úr prógramminu, því ég ætla að hálf-raula það. Það geri ég vegna þess að lagið er mjög innilegt og mér finnst hreinlega ekki passa að syngja það á annan hátt. Áheyr- endur verða bara að hlusta vel. Það gerist ekki mikið í því, en það er engu að síður alveg sérstaklega fal- leg perla. Fyrra lagið sem ég nefndi, My Heart Belongs to Daddy, er þannig að það er bara svo skemmtilegt að syngja það.“ Sesselja segir að lögin á pró- gramminu bjóði mismikið uppá það að söngvararnir upplifi sig sem „karaktera“ og að þó að þetta séu fyrst og fremst Sesselja og Jó- hann að syngja, þá ætli þau að stíl- færa sönginn svolítið. „Við ætlum að notfæra okkur það sem húsið hefur uppá að bjóða, verðum með ljósamann og ýmislegt fleira, þannig að við getum gert aðeins meira en að standa bara á auðu sviði.“ Hádegistónleikarnir hefjast kl. 12.15 og standa í um 40 mínútur. Hægt verður að kaupa hádegissn- arl í Óperunni fyrir eða eftir tón- leika. „Nálgumst stíl- inn á okkar hátt“ Sesselja Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.