Morgunblaðið - 12.11.2002, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ÞAÐ VAR heldur napurt um að litast á höfuðborgarsvæðinu í gær og gekk
á með snörpum vindhviðum sem feyktu öllu lauslegu til og frá. Víðast hvar
hafa trén misst lauf sín og eftir standa berar trjágreinarnar. Mannfólkið
fer heldur ekki varhluta af veðrabreytingunum og húfur og vettlingar
koma að góðum notum.
Morgunblaðið/Golli
Vetrarflíkur koma
í góðar þarfir
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að reglur um
prófkjör sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi
hafi verið brotnar við hina umdeildu utankjör-
fundaratkvæðagreiðslu sem fram fór á Akranesi.
„Reglurnar eru alveg klárar og það er ljóst að
þetta var brot á reglum og auðvitað alveg fárán-
legt brot,“ segir hann.
Skaði að missa Vilhjálm Egilsson
„Það hefði hver maður getað sagt sér það sjálf-
ur að þetta væri ekki heimilt. En menn reyndu að
leiðrétta þetta um leið og þeir komust að því að
þetta hefði gerst og talið var að um það hefði verið
nokkuð góð sátt. Þetta var leiðrétt vegna þess að
það var álit stjórnar kjördæmisráðsins og yfir-
kjörstjórnarinnar að þetta væri ekki heimilt.
Það er svo aftur annað mál að menn eru ekki
glaðir yfir þessu en það var komin niðurstaða sem
menn verða þá bara að virða og þetta stendur
svona.
Ef hins vegar niðurstaðan er þessi, að maður er
að missa Vilhjálm Egilsson út af þingi, þá er það
mikill skaði því hann er einn af okkar öflugustu
þingmönnum,“ segir Davíð.
Sturla Böðvarsson varð í fyrsta sæti
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra varð
efstur í prófkjörinu um helgina, Einar K. Guð-
finnsson varð í öðru sæti, Einar Oddur Krist-
jánsson í því þriðja, Guðjón Guðmundsson í fjórða
og Vilhjálmur Egilsson hafnaði í fimmta sæti. 41
atkvæði skildi Sturlu og Vilhjálm að í fyrsta sæti.
Vilhjálmur gagnrýnir utankjörfundarkosninguna
á Akranesi harðlega og segir að brögð hafi verið í
tafli. Jóhann Kjartansson, formaður kjörnefndar,
segir að samkomulag hafi náðst á fundi sl.
fimmtudag um að ljúka þessu máli, 80 atkvæði
hafi verið ógilt, og samkomulagið standi. Davíð
segir að mikil þátttaka í prófkjörinu sé mjög
ánægjuleg og hún endurspegli mikinn styrk í
kjördæminu.
„Hins vegar var þetta prófkjör alltaf í eðli sínu
mjög erfitt vegna þess að þarna er verið að fækka
þingsætum samkvæmt nýrri kjördæmaskipun.
Við áttum þarna sex þingmenn og megum sam-
kvæmt gamalli kjördæmaskipun búast við því að
fá þrjá þingmenn, nema við sérstaklega góðar að-
stæður þar sem þeir gætu orðið fjórir. Það var því
alltaf ljóst að fyrst allir þingmennirnir vildu gefa
kost á sér, að einum frátöldum, sem fluttist yfir í
annað kjördæmi, þá yrði þetta alltaf erfitt próf-
kjör og að niðurstaðan, hver sem hún væri, yrði
erfið og sársaukafull fyrir einhverja,“ sagði Davíð.
Davíð Oddsson um umdeilda utankjörfundarkosningu á Akranesi
Fáránlegt brot á reglum
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins/26
RÚMLEGA þrettán prósenta hlut-
ur í Skeljungi hf., að söluverðmæti
nálægt 1,5 milljarðar, skipti um
hendur í gær þegar Haukþing ehf.,
nýtt fjárfestingafélag í eigu Hf.
Eimskipafélags Íslands, Sjóvár-Al-
mennra trygginga hf. og Skeljungs
hf., keypti 10,10% hlut í félaginu
og Sjóvá-Almennar keyptu 3% hlut
í sama félagi.
Benedikt Jóhannesson stjórnar-
formaður Skeljungs og Haukþings
segir að samstarf félaganna
þriggja með þessum hætti sé yf-
irlýsing um að þau vilji vinna sam-
an að fjárfestingum í framtíðinni.
Benedikt sagði að ekkert væri
ákveðið með frekari kaup félagsins
á hlutum í Skeljungi.
Aðspurður sagði hann að vel
hefði gengið hjá Skeljungi í ár og
fjárfestingin lýsti ánægju með fé-
lagið. „En svo er þetta líka þrýst-
ingur á um að ekki megi slaka á í
rekstrinum.“
Nafnið sótt í
ljóð eftir Jónas
Nafn félagsins, Haukþing, þykir
minna sterklega á Kaupþing en
eins og komið hefur fram hefur
Kaupþing verið að auka hlut sinn í
Skeljungi jafnt og þétt síðustu
misseri og var komið með tæplega
23% hlut í félaginu. Benedikt segir
að engin tengsl séu þar á milli.
„Haukþing kemur úr minningar-
ljóði Jónasar Hallgrímssonar um
Bjarna Thorarensen þegar hann
talar um haukþing á bergi,“ sagði
Benedikt.
1,5 milljarða
viðskipti með
bréf í Skeljungi
Nýtt fjárfestingafélag, Haukþing,
kaupir 10% hlut í félaginu
Haukþing/14
AÐ kröfu Hesteyrar mun
stjórnarkjör fara fram í Keri,
móðurfélagi Olíufélagsins, á
hluthafafundi hinn 27. þessa
mánaðar. Hesteyri, sem er í
eigu Fiskiðjunnar Skagfirðings
og Skinneyrar-Þinganess, á
22,5% hlut í Keri frá því í ágúst
síðastliðnum en á ekki fulltrúa í
stjórn.
Vegna formgalla hafði stjórn
Kers áður hafnað kröfu Hest-
eyrar um hluthafafund til að
kjósa nýja stjórn.
Krafist stjórnarkjörs
Hluthafafundur/14
LÖGREGLAN fylgdist vel með
akstri nátthrafna á höfuðborg-
arsvæðinu um helgina en bæði að-
faranótt sunnudags og mánudags
stöðvaði lögregla bíla af handahófi
og gekk úr skugga um að þeir sem
voru akandi væru líka allsgáðir.
Af þeim um 180 ökumönnum sem
voru stöðvaðir reyndist aðeins einn
ölvaður. Á hinn bóginn voru 12
ökumenn teknir fyrir ölvunar-
akstur í höfuðborginni um helgina.
Morgunblaðið/Júlíus
Nátthrafnar
stöðvaðir
BLAÐAPAPPÍR sem höfuðborg-
arbúar hafa skilað í grenndargáma
og á endurvinnslustöðvar SORPU á
síðastliðnum sjö árum hefur komið
að góðum notum við framleiðslu á
150 milljón salernisrúllum í Svíþjóð.
Segir Gyða Björnsdóttir, kynn-
ingar- og fræðslufulltrúi Sorpu, að
höfuðborgarbúar hafi skilað 35.000
tonnum af blaðapappír frá 1995.
Fer sá pappír til dreifingarfyr-
irtækisins IL Recycling í Svíþjóð
sem sendir hann áfram til Edet.
Eldhúspappírinn herra Edet sem
„hvergi hlífir sér“ var mikið aug-
lýstur hér um tíma en fyrirtækið
framleiðir aðallega salernisrúllur.
Segir Gyða að 35.000 tonn af dag-
blöðum dugi til þess að framleiða
150 milljón klósettrúllur.
Blaðapappír
verður 150
milljón kló-
settrúllur
35.000 tonn/22
„EKKI verður hægt að segja með
vissu fyrr en í síðasta lagi fjórum
vikum fyrir kjördag hvar skipt-
ingin á milli Reykjavíkurkjördæmis
norður og suður verður,“ segir á
nýrri heimasíðu um alþingiskosn-
ingarnar 2003. Samkvæmt því þarf
ekki að tilkynna skiptinguna fyrr
en í síðasta lagi 12. apríl, fjórum
vikum eftir að utankjörfund-
aratkvæðagreiðsla hefst.
Stjórnvöld hafa þegar tilkynnt að
miðað sé við að Reykjavík verði
skipt í suður- og norðurkjördæmi
við Vesturlandsveg, Miklubraut og
Hringbraut. Í lögum um kosningar
til alþingis er ekkert minnst á þetta
en sagt að landskjörstjórn muni
ákveða mörk kjördæma í Reykjavík
miðað við íbúaskrá fimm vikum fyr-
ir kjördag og skulu kjördæmin vera
nokkurn veginn jafnfjölmenn.
Framboðsfrestur til alþing-
iskosninga rennur út klukkan 12 á
hádegi 25. apríl 2003. Utankjör-
fundaratkvæðagreiðsla hefst 15.
mars, en ekki liggur fyrir hvort
kjördæmamörk í Reykjavík hafa þá
endanlega verið ákveðin.
Kosning
hafin fyrir
skiptingu
kjördæma
VEGNA hættu á skriðuföllum
lokaði almannavarnanefnd
Seyðisfjarðar veginum suður
með firðinum, frá SR-mjöli að
Hánefsstöðum. Úrhellisrigning
var víða á Austurlandi í gær, þó
hvergi meiri en á Seyðisfirði.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofunni mældist rigning
160 mm á einum sólarhring og
frá kl. 11 í gærmorgun til kl. 23
í gærkvöldi mældist rigningin
95 mm.
Á Seyðisfirði flæddi vatn víða
yfir götur í bænum þar sem
ræsi höfðu ekki undan en í gær-
kvöldi höfðu ekki borist fregnir
af tjóni.
Úrhellis-
rigning á
Seyðisfirði
♦ ♦ ♦