Morgunblaðið - 28.12.2002, Qupperneq 23
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002 23
BRAUTSKRÁÐIR voru 40 stúd-
entar og 20 nemar af starfs- og
verknámsbrautum frá Verkmennta-
skólanum á Akureyri á laugardag.
Edda Rós Þorsteinsdóttir, af
hönnunar- og textílkjörsviði, hlaut
viðurkenningu fyrir framúrskarandi
árangur í list- og verkgreinum,
Húni Heiðar Hallsson hlaut viður-
kenningu fyrir framlag til félagslífs
nemenda og þrír nýstúdentar,
landsliðsfólk á skíðum, þau Helgi
Heiðar Jóhannesson, Karen Reyn-
isdóttir og Skapti Brynjólfsson
hlutu viðurkenningu frá skólanum.
Alls hófu 1.070 nemendur nám í
dagskóla í haust, 70 í kvöldskóla og
650 í fjarnámi. Fram kom í máli
Hjalta Jóns Sveinssonar skóla-
meistara að nemendur hefðu verið
fleiri nú í vetur en undanfarnar
annir, en um 1.100 manns hófu nám
við skólann. „Við teljum að við þurf-
um a.m.k. 1.100 nemendur og mætt-
um við gjarnan setja markið hærra,
1.150–1.200 nemendur til þess að
hinar ýmsu deildir skólans yrðu
reknar með sem mestri hag-
kvæmni,“ sagði skólameistari.
Hann sagði stöðuna þá að enn á
ný horfðu menn fram á hallarekst-
ur, sem jafnvel myndi nú knýja
menn til að endurskoða námsfram-
boð skólans með það fyrir augum að
hætta rekstri dýrustu verknáms-
deildanna. Til þess kæmi þó von-
andi ekki, að sögn Hjalta Jóns, en
hann gerði bága fjárhagsstöðu
framhaldsskólanna að umtalsefni í
ræðu sinni.
Hann ræddi einnig þá breytingu
sem yrði í starfsemi skólans næsta
haust þegar nemendur VMA fengju
inni á Nemendagörðum við heima-
vist Menntaskólans, alls 130 rými.
Tilkoma heimavistar gerði skólan-
um í ríkara mæli en áður mögulegt
að taka við nemendum utan hefð-
bundins upptökusvæðis skólans.
Sagði Hjalti Jón að áhersla yrði
lögð á að kynna deildir eins og tré-
smíði, matvæla- og listnámsbrautir,
enda nýbúið að taka í notkun glæsi-
legt húsnæði undir starfsemi þeirra
og unnt að taka á móti fleiri nem-
endum en nú stunda þar nám. Eins
væri hægt að taka við fleiri nemum
á vélstjórnarbraut. Húsnæðið væri
dýrt í rekstri og því væri forsvars-
mönnum skólans mjög umhugað um
að fjölga nemendum á þessum svið-
um. „Næsta vor munum við fara í
aukna markaðssetningu með það í
huga að höfða til heimila og nem-
enda af öllu landinu. Nú er okkur
ekkert að vanbúnaði lengur þar eð
öll starfsemi skólans er að komast í
endanlegt húsnæði hér í Eyralands-
holtinu,“ sagði skólameistari.
Brautskráning frá Verkmenntaskólanum á Akureyri
Stefnt að því að
fjölga nemendum
ALLHARÐUR árekstur varð laust
eftir hádegi í gær á Drottning-
arbraut við Leirunesti, þegar tveir
bílar skullu saman. Farþegi í öðrum
bílanna var fluttur á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
til aðhlynningar en meiðsl hans
voru ekki talin alvarleg. Tildrög
slyssins eru þau að annarri bif-
reiðanna var ekið út af bifreiða-
stæði við nestið og beint í veg fyrir
bíl sem ekið var eftir Drottning-
arbrautinni. Að því búnu kastaðist
hún á staur. Báðir bílarnir
skemmdust mikið.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Einn á
slysadeild
MJÖLL hf. hefur keypt fyrirtækja-
þjónustu Höfða ehf. að Hafnarstræti
34 á Akureyri í þvotti og hreinsun og
tekur við rekstrinum frá og með
næstu áramótum. Starfsemin verður
þá flutt í húsnæði Mjallar við Aust-
ursíðu á Akureyri.
Eigendur Höfða, Björgvin Yngva-
son og Birna Guðrún Hermannsdótt-
ir, munu áfram annast sölu á hrein-
gerningarefnum, bjóða upp á
fatalitun, leigu og sölu á dúkum og
aðra tengda þjónustu.
Mjöll hefur að undanförnu verið í
örum vexti og hefur breyst úr því að
vera eingöngu framleiðandi hrein-
lætisvara yfir í alhliða þjónustufyr-
irtæki í hreinlætisvöru iðnaði. Þann-
ig tók Mjöll við rekstri þvottahúss
FSA fyrir nokkrum mánuðum og
keypti einnig rekstur og tækjabúnað
Fatahreinsunarinnar í Hofsbót og
var starfsemin flutt að Austursíðu.
Mjöll hefur einnig byggt upp þjón-
ustu í ræstingum og þrifum. Með
kaupum á þvottahúsi og fatahreins-
un Höfða er Mjöll nú eitt stærsta
fyrirtæki landsins á þessu sviði.
Mjöll kaupir fyrir-
tækjaþjónustu Höfða
SLÖKKVILIÐ Akureyrar var
kallað út laust fyrir kl. hálf sex
á annan dag jóla vegna reyks í
íbúð í fjölbýlishúsi við Hjalla-
lund.
Brunnið hafði við á eldavél
og var eldhús íbúðarinnar fullt
af reyk. Slökkviliðið reykræsti
íbúðina og stigagang. Talið er
að nokkrar reykskemmdir hafi
orðið á eldhúsi samkvæmt upp-
lýsingum frá slökkviliði. Að
öðru leyti var fremur rólegt hjá
slökkviliði yfir hátíðina, nokkuð
var um sjúkraflutninga að
venju og þá var farið í eitt
sjúkraflug á aðfangadag, frá
Höfn í Hornafirði til Reykja-
víkur.
Íbúðin full
af reyk
Rökkuróperan „Vaxandi áhyggjur
séra Sigríðar af hnignandi siðferði
alþýðunnar,“ verður flutt í bragga
við Litla-Garð, skammt norðan
Akureyrarflugvallar, í kvöld, 28.
desember og á mánudagskvöld, 30.
desember, kl. 21. Það eru Helgi og
hljóðfæraleikararnir sem standa
fyrir uppákomunni. Allir textar
verksins eru eftir Helga Þórsson,
en tónlistina samdi hljómsveitin í
sameiningu. Rökkuróperan gerist
á súlustað og birtast þar fulltrúar
hinna ýmsu stétta og hópa sem
álit hafa á gleðihúsum af því tagi,
segir í frétt frá hljómsveitinni.
Gestasöngvarar taka þátt í óp-
erunni, m.a. Kristján Pétur Sig-
urðsson og Erna Hrönn Ólafs-
dóttir.
Í DAG
Kvenfélagið Baldursbrá heldur sitt
árlega jólaball í safnaðarsal Gler-
árkirkju í dag, laugardaginn 28. des.,
kl. 15. Dansað verður í kringum jóla-
tréð og jólasveinninn hefur lofað að
líta í heimsókn. Kvenfélagskonur
vilja þakka stuðninginn og bjóða öll-
um er vilja koma frítt inn nú sem
endranær segir í frétt frá félaginu.
www.starri.is
Sérhæfing í
Intel-vörum
Móðurborð - Örgjörvar
- Flatir skjáir
3ja ára ábyrgð