Morgunblaðið - 19.01.2003, Side 23
Theriak-kerfið notað á spítala í Hollandi. Í lyfjavagni er fartölva með skanna,
sem tengist tölvukerfum spítalans þráðlaust. Við lyfjagjöf er skannað strika-
merki af armbandi sjúklings og á lyfjunum, sem eru í merktri skúffu í vagninum.
lagi á sjúkrastofnunum hér og í ná-
grannalöndunum. „Sem betur fer
deyja ekki allir þeir, sem verða fyrir
því að fá rangt lyf, en það getur haft
mjög slæmar afleiðingar fyrir sjúk-
linginn auk þess sem af slíkum mis-
tökum hlýst mikill kostnaður.“ Gunn-
ar segir að enn sem komið er líti
fyrirtækið helst til markaða í Evrópu
fyrir nýja búnaðinn, sem gengur
undir nafninu Theriak Therapy Man-
agement, og hafi nú þegar náð um-
talsverðum árangri í markaðssetn-
ingu. „Það er hinsvegar mjög
mikilvægt fyrir okkur að hafa heima-
markaðinn sem bakland í sölustarf-
inu þegar farið er í útrás.“
Sölunetið er í Evrópu
Theriak var formlega stofnað í árs-
byrjun 2001, en starfsemi þess á ræt-
ur að rekja allt aftur til ársins 1997
þegar hafist var handa við smíði hug-
búnaðar á sviði innkaupa- og lager-
kerfis fyrir sjúkrahúsapótek Land-
spítala – háskólasjúkrahúss og
Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar að
undangengnu útboði. Theriak-kerfin
hafa verið þróuð í samstarfi við inn-
lenda og erlenda notendur og leið-
andi sérfræðinga á sviði læknis-,
lyfja- og hjúkrunarfræði.
Theriak hefur byggt upp sölunet í
Evrópu ásamt samstarfsaðilum sín-
um og nú þegar hafa verið sett upp
kerfi á sjúkrahúsum í fjórum lönd-
um: Hollandi, Þýskalandi, Dan-
mörku og á Ítalíu. Fyrsta kerfið var
sett upp á sjúkrahúsi í Tilburg í Hol-
landi í mars síðastliðnum og á næstu
dögum og vikum stendur til að setja
lyfjafyrirmæla- og lyfjagjafakerfi
upp á Landspítalanum og FSA.
Á haustdögum 1999 var ákveðið að
gera Theriak að alþjóðlegri vöru og
var skrifað undir fyrsta sölusamn-
inginn við erlent sjúkrahús í mars
2000. Sama ár hófst uppbygging
sölunets fyrirtækisins í Evrópu.
Gerður var samningur við ítalska
heilbrigðistæknifyrirtækið Exper
Automation, sem TölvuMyndir eiga
nú 15% hlut í, um endursölu kerf-
anna í Evrópu, en móðurfélag Exper
Automation, Exper, hefur verið
starfandi á þessum markaði í ríflega
hálfa öld. Með samningnum öðlaðist
Theriak aðgang að söluneti, sem nær
til allra Evrópulanda með söluskrif-
stofur í Noregi, Bretlandi, Hollandi,
Frakklandi, Þýskalandi, á Ítalíu og
Spáni. Þjónusta við viðskiptavinina
er einnig starfrækt á skrifstofum Ex-
per en það er afar mikilvægt að þjón-
ustan sé veitt af innlendum aðilum
sem síðan hafa bakland hjá sérfræð-
ingum Theriak. Íslenskur markaðs-
stjóri Theriak, Áki Harðarson, hefur
verið starfandi í Düsseldorf frá því í
haust og kemur til með að verða þar
áfram til að vera sem næst markaðn-
um, en auk hans starfa tólf starfs-
menn hjá Theriak, sjö í Reykjavík,
fjórir á Akureyri og einn í Kaliforníu.
Þó að kerfið hafi verið þróað með
þarfir hins alþjóðlega markaðar í
huga, þarf að aðlaga það hverju landi
fyrir sig, að sögn Gunnars.
Á meðan Theriak sérhæfir sig í
hugbúnaðargerðinni, er Exper sér-
hæft fyrirtæki á sviði vélbúnaðar til
pökkunar, geymslu og dreifingar
lyfja í formi stakskömmtunar innan
sjúkrastofnana. Í sameiningu hafa
svo fyrirtækin tvö, Exper og Ther-
iak, þróað lausn, sem tengir saman
hugbúnað og vélbúnað og skapar al-
gjöra sjálfvirkni í lyfjameðhöndlun.
Theriak-kerfin verða tengd sjálf-
virkri pökkunarvél, sem pakka mun
lyfjum í strikamerkta skammta eftir
þörfum hvers sjúklings. „Hjúkrunar-
fræðingar geta nú með þessari nýju
tilhögun einbeitt sér í auknum mæli
að sjúklingunum sjálfum í stað þess
að þurfa að eyða ómældum tíma í að
tína til lyf. Skortur á hjúkrunarfræð-
ingum hefur þegar gert vart við sig
og er fyrirséð vandamál í nánustu
framtíð. Það er því mikilvægt að þeir
séu að sinna þeim störfum sem skipta
mestu máli. Kerfið dregur úr hættu á
lyfjamistökum og minnkar líkur á því
að sjúklingum séu gefin röng lyf – lyf,
sem sjúklingar gætu haft ofnæmi
fyrir eða lyf, sem hafa hættulegar
aukaverkanir,“ segir Gunnar.
Framtíðin er stakskömmtun
Ekki hafa verið gerðar neinar
mælingar á virkni kerfisins á þeim
sjúkrahúsum, þar sem það hefur ver-
ið í notkun, en að sögn Gunnars er al-
menn ánægja með þróun mála, sér í
lagi í Hollandi þar sem kerfið hefur
verið hvað lengst í notkun, í fram-
haldi af um tveggja ára þróunarsam-
starfi. Sölunetið hefur skilað mikil-
vægum viðskiptavinum í fjórum
löndum sem hafa veitt mikilvæga að-
stoð við aðlaganir að hverju mark-
aðssvæði. Sjúkrahúsið í Álaborg í
Danmörku valdi heildarlausn Theri-
ak og Exper að undangengnu útboði
á Evrópska efnahagssvæðinu. Danir
hafa gert sér grein fyrir því að hér sé
við stórvandamál að etja og hafa
dönsk stjórnvöld lagt áherslu á að
spyrna þurfi við fótum til að draga úr
mistökum við lyfjagjafir.
Kostnaður lyfjafyrirmæla- og
lyfjagjafakerfis ásamt vélbúnaði til
stakskömmtunar fer nokkuð eftir
stærð sjúkrahúsa, en að sögn Gunn-
ars lætur nærri að heildarpakkinn
kosti um 100 milljónir króna á með-
alstórt sjúkrahús, þar af nemur
kostnaður við hugbúnaðinn um 30
milljónum. Reiknað hefur verið út að
sú fjárfesting skili sér á þremur og
hálfu til fimm ára tímabili og er þá
einnig reiknað með þeim kostnaði
sem til fellur á sjúkrastofnuninni, s.s.
þjálfun starfsfólks. Gunnar segir að
miklar vonir séu bundnar við útrás
búnaðarins inn á Evrópumarkað.
„Við höfum hinsvegar ekki sérstakan
áhuga á fleiri löndum í bili. Öllu held-
ur viljum við koma okkur betur fyrir
og treysta okkur í sessi í þeim lönd-
um, sem við höfum nú þegar fjárfest
í. Holland, Þýskaland, Ítalía og Dan-
mörk eru gríðarstórir markaðir og
þar sjáum við fram á að hafa nóg að
gera á næstunni. Það er auðvitað
mikil bylting fólgin í því að ætla að
umturna öllu núverandi skipulagi
sjúkrahúsanna við lyfjagjöfina. Það
má þó gera í þrepum, uns okkur tekst
að leiða sjúkrahúsin inn í þá framtíð-
arsýn, sem við sjáum í stak-
skömmtun,“ segir Gunnar Hall.
join@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 23