Morgunblaðið - 19.01.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.01.2003, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 29 um er byggja mikið á útflutningi hafa tekið af- stöðu með evrunni en önnur eru hikandi og jafn- vel á móti. Launþega- hreyfingin vill risasjóði Heildarsamtök sænsku launþega- hreyfingarinnar, LO, ákváðu á þingi sínu ár- ið 2000 að taka ekki endanlega afstöðu til málsins en lýstu jafnframt þeim forsendum, sem væru nauðsynlegar að þeirra mati til að hægt væri að styðja EMU. Ber þar hæst að samtökin vilja að settir verði á laggirnar sérstakir jöfn- unarsjóðir til að draga úr áhrifum hagsveiflna og að myndað verði áhrifamikið efnahagsráð, sem aðilar vinnumarkaðarins eigi aðild að. LO telur vissulega að jöfnunarsjóðirnir geti ekki tekið við því hlutverki, sem seðlabankinn gegnir í dag, en séu þó skárri en ekkert. Er meðal annars horft til Finnlands í þessu samhengi þar sem jöfnunar- sjóðakerfi var tekið upp samhliða EMU-aðild. Rök LO eru þau að reynslan sýni að almennt launafólk sé þrisvar sinnum líklegra til að missa vinnuna í kreppu en aðrir og því verði einhver trygging að vera til staðar þótt aldrei verði alveg hægt að koma í veg fyrir aukið atvinnuleysi í nið- ursveiflu. Hugmyndir LO eru ekki fullmótaðar, t.d. varðandi það hvernig eigi að beita sjóðunum, en þó liggur fyrir að samtökin telja að þá beri að fjármagna með opinberu fé. Þá telja hagfræð- ingar samtakanna að sjóðirnir þurfi að vera af stærðargráðunni 20–75 milljarðar sænskra króna, allt eftir því hvaða forsendur menn gefa sér um verðteygni launa. Sjóðir af slíkri stærð ættu að mati þeirra að geta tryggt allt að 20 þús- und störf í 1–2 ár. Monica Arvidsson, hagfræð- ingur hjá LO, segir að sjóðir séu æskilegri lausn en að reyna að bregðast við með fjárveitingum af fjárlögum, sökum þess hve tímafrekar slíkar að- gerðir séu. Líta eigi á þessa sjóði sem trygging- arsjóði ekki ósvipuða sjúkratrygginga- og at- vinnuleysissjóðum. Ríkisstjórn jafnaðarmanna hefur verið treg til að taka undir þessa hugmynd en starfshópur á vegum stjórnarinnar vinnur nú að því að finna lausn, sem launþegahreyfingin geti sætt sig við. Ráðherrann Per Nuder segist ekki hrifinn af hugmyndinni um stóra ríkissjóði. Að hans mati er besta vörnin traust ríkisfjármál og afgangur af fjárlögum er gefi svigrúm til aðgerða. Í vor mun skýrast hver endanleg afstaða LO verður en þó liggur þegar fyrir að samtökin hyggjast ekki beita sér með beinum hætti þó svo að þau kunni að lokum að mæla með upptöku evr- unnar. Þess í stað ætla þau að standa fyrir upp- lýsingaherferð þar sem farið verður yfir jafnt kosti sem galla hins sameiginlega gjaldmiðils. Andstaða frá vinstri og hægri Sænskir Evrópuand- stæðingar hafa til þessa fyrst og fremst komið af vinstri væng stjórnmálanna. Umhverfisflokkurinn og Vinstri- flokkurinn hafa verið andsnúnir þátttöku Svía í Evrópusamstarfinu og sömuleiðis hefur mikla andstöðu verið að finna í vinstri armi Jafnaðar- mannaflokksins. Andstöðu vinstriflokkanna má rekja til þeirrar grundvallarafstöðu að þeir eru á móti aðild Svía að ESB. Lars Ohly, þingmaður og einn helsti leiðtogi Vinstriflokksins, segir það enn vera stefnu flokksins að Svíar eigi að segja sig úr sam- bandinu þó svo að hann virði niðurstöðu þjóð- aratkvæðagreiðslunnar frá 1994. Það er margt innan ESB sem er vinstrimönnum ekki að skapi og þá ekki síst þróunin í átt að evrópsku sam- bandsríki og hugmyndir um sameiginlegan for- seta og herafla. Þá telja þeir áformin um sameig- inlega stefnu í efnahags- og peningamálum í eðli sínu vera hægrisinnaða markaðsstefnu og það breyti engu um afstöðu þeirra hvort EMU skili efnahagslegum árangri eða ekki. Helsti munurinn á þjóðaratkvæðagreiðslunni um EMU og þeirri sem haldin var árið 1994 um ESB-aðild er sá að nú gætir einnig mikillar og vaxandi andstöðu meðal hægriflokkanna. Þótt flokkarnir sjálfir og leiðtogar þeirra hafi tekið af- stöðu með evrunni hafa áhrifamiklir menn, jafnt innan Hægriflokksins sem Þjóðarflokksins, hafið baráttu gegn upptöku evrunnar. Fyrir skömmu voru stofnuð samtökin Borgarar gegn EMU en þar fara fremstir í flokki tveir fyrrum seðlabanka- stjórar, þeir Lars Wohlin og Bengt Dennis, auk þekktra áhrifamanna úr viðskiptalífi. Stofnun samtakanna hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð og talið er að þau geti haft mikil áhrif á stuðnings- menn hægriflokkanna. Gagnrýni þessa hóps á evruna er fyrst og fremst efnahagslegs eðlis. Lars Wohlin segir það vera lykilatriði að menn telji óráðlegt að leggja niður sænska seðlabank- ann og taka þess í stað upp fasta gengisskrán- ingu. Það sé ekki heppilegt að Evrópski seðla- bankinn verði seðlabanki Svía þar sem Svíþjóð sé einungis lítið brot af evrusvæðinu. Hann telur Svía hafa náð gífurlegum árangri í efnahagsmál- um frá því í byrjun síðasta áratugar er tekin var upp fljótandi gengisskráning og verðbólgumark- mið. Með fastri gengisskráningu missi menn mikilvæg hagstjórnartæki á borð við vexti og þess í stað verði að reyna að tryggja stöðugleika með öðrum aðferðum, s.s. miðstýrðum kjara- samningum er geti haft hrikalegar afleiðingar. Þá sé mjög erfitt að nota ríkisfjármálin til að jafna út hagsveiflur. Það taki langan tíma að knýja aðgerðir í gegn og hætta á að þegar að- gerðirnar fari að hafa áhrif hafi efnahagssveiflan snúist við. Þannig geti menn lent í að beita þensluhvetjandi aðgerðum á þensluskeiði eða að- gerðum til að slá á þenslu þegar efnahagskerfið sé á leið í lægð. Slíkar aðgerðir yrðu því til að magna vandann í stað þess að leysa hann. Að auki bendir hann á að 40% af útflutningi Svía séu tengd Bandaríkjadollar og það geti því haft mjög slæm áhrif á sænskan útflutningsiðn- að, t.d. skógariðnað og bifreiðaframleiðslu, að tengjast evrunni. Stóru gjaldmiðlarnir í heimin- um, dollar og evra, lúti ákveðnum lögmálum er hafi ekkert með samkeppnishæfni einstakra ríkja að gera. Gengi þeirra ráðist af straumum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Fjármagn fær- ist á milli þeirra og þegar gengi annars gjaldmið- ilsins hækkar lækkar gengi hins. „Við eigum því að vera í miðjunni, þar er stöðugleikinn,“ segir Wohlin. Gagnrýni þessa hóps beinist ekki síst gegn evr- unni sjálfri, sem Wohlin segir vera gjaldmiðil án fjármálamiðstöðvar. Öll meginviðskipti með evru og skuldabréf í evrum fari fram í London, sem sé alþjóðleg fjármálamiðstöð. Bretland sé ekki hluti af evrusvæðinu og litlar líkur á að það breytist. „Ég held að það sé engin ástæða til að endur- skoða afstöðuna til evrunnar fyrr en og ef Bretar taka ákvörðun um aðild að EMU,“ segir Wohlin. Hann telur að evran muni hins vegar breyta um eðli ef Bretar taki þátt. Án þeirra en með vænt- anlegri aðild ríkja í austurhluta Evrópu sé hins vegar vart við því að búast að menn beri mikið traust til hennar. Þeir sem gagnrýna evruna út frá efnahags- legum forsendum benda gjarnan á Þýskaland sem dæmi um hversu slæm áhrif EMU geti haft. Þýskaland eigi nú við alvarlega efnahagslega erf- iðleika að stríða en enginn seðlabanki sé til staðar til að ýta undir þenslu með vaxtalækkunum. Þá breytist gengisskráningin ekki heldur. Í slíkri stöðu séu ekki margir kostir. Helst sé hægt að lækka laun, flytja út vinnuafl eða auka sveigj- anleika á vinnumarkaði og í efnahagslífi. Þýska dæmið sýni hins vegar að hinn pólitíski raunveru- leiki einstakra landa breytist ekki þrátt fyrir EMU-aðild. Þjóðverjar haldi þannig áfram að hækka laun og herða reglur á vinnumarkaði. Í viðræðum við forystumenn á hægri væng sænskra stjórnmála er greinilegt að þar telja margir að með því að gangast undir þau ströngu skilyrði er fylgja aðild að EMU verði auðveldara að knýja fram breytingar á sænska kerfinu. Raunar er það sjónarmið algengt meðal margra í viðskiptalífinu að allt sé betra en að lúta stjórn sænskra stjórnmálamanna. Wohlin telur slík sjónarmið, sem einnig eru áberandi í atvinnulíf- inu, bera vott um óskhyggju og uppgjöf. Hann telur ljóst að ríkjum verði refsað fyrir fjárlaga- halla en ekki annað. „Halda menn virkilega að Brussel muni knýja fram stefnu sem er í and- stöðu við vilja sænskra kjósenda?“ Hann telur málið fyrst og fremst snúast um efnahagsmál og að rök um aukin pólitísk áhrif séu léttvæg. Vilji menn að Svíar fái raunveruleg pólitísk áhrif eigi þeir að ganga í Atlantshafs- bandalagið. Um það sé nú jafnvel rætt í Finn- landi. Það sé ekki marktækt að segja hættu á að Svíar verði afskiptir þegar þeir treysti sér ekki einu sinni til að starfa með vestrænum ríkjum og Rússum innan NATO. Það er augljóst að sú mikla athygli sem sjón- armið Wohlins og annarra andstæðinga evrunnar hafa fengið í Svíþjóð veldur stuðningsmönnum evrunnar áhyggjum. Samtök er styðja aðild hafa til að mynda reynt að svara rökum þeirra lið fyrir lið. Meðal annars eru færð rök fyrir því að betri staða sænsks efnahagslífs og aukinn stöðugleiki á undanförnum árum sé ekki því að þakka að Svíar hafi staðið utan evrusvæðisins heldur því að Svíar hafi fylgt þeim skilyrðum er fylgja aðlögun að EMU frá árinu 1995. Þá sé það rangt að Svíar séu mjög háðir dollar. Þegar ríkin sem innan skamms fá aðild að ESB taki upp evru verði 63% utanrík- isviðskipta Svía við evrusvæðið. Samkvæmt upp- lýsingum frá samtökum sænska atvinnulífsins eru 78% viðskipta sænskra fyrirtækja við evru- svæðið nú þegar öll í evrum, þ.e. verð og reikn- ingar eru í evrum. Þar sem kostnaður sænskra fyrirtækja er hins vegar í krónum myndast með þessu veruleg gengisáhætta. Margir efnahagssérfræðingar eru hins vegar tvístígandi í afstöðu sinni. Hans Söderström, fyrrum hagfræðiprófessor sem til skamms tíma var forstjóri SNS, rannsóknarstofnunar tengdr- ar atvinnulífinu, segist vera neikvæður út frá hagfræðilegum sjónarmiðum. Líkt og flestir hef- ur hann mestar áhyggjur af því að ekki verði lengur hægt að jafna út hagsveiflur. Hins vegar segir hann að ekki megi einblína á efnahagslegu hliðina. Það verði líka að líta á fjármálahliðina. Evran muni leiða til samruna fjármálafyrirtækja í Evrópu á næstu árum og ef Svíar ætli að taka þátt í þeirri þróun væri kostur að vera hluti af evrusvæðinu. Á næstu mánuðum munu jafnt stuðningsmenn sem andstæðingar evrunnar reyna að sannfæra kjósendur um að afstaða þeirra sé skynsamlegri út frá efnahagslegum rökum. Margir óttast að þetta muni rugla kjósendur í ríminu og að at- kvæðagreiðslan geti að lokum farið að snúast um allt annað en evruna, t.d. stuðning við ríkisstjórn- ina eða afstöðuna almennt til Evrópusambands- ins. Þar gæti margt haft áhrif, t.d. niðurstaða framtíðarnefndar ESB sem nú vinnur að því að leggja drög að sameiginlegri stjórnarskrá. Verði niðurstaðan ekki Svíum að skapi gæti það dregið úr stuðningi við evruna. Morgunblaðið/RAXKalsaveður „Þeir sem gagnrýna evruna út frá efna- hagslegum for- sendum benda gjarnan á Þýska- land sem dæmi um hversu slæm áhrif EMU geti haft. Þýskaland eigi nú við alvarlega efna- hagslega erfiðleika að stríða en enginn seðlabanki sé til staðar til að ýta und- ir þenslu með vaxta- lækkunum.“ Laugardagur 18. janúar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.