Morgunblaðið - 19.01.2003, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 45
DAGBÓK
Námskeið á vorönn hefjast
27. og 29. janúar
BRIDSSKÓLINN
Hefur stundum verið hnippt í þig til að vera
„fjórði maður í brids“?
Hinir þrír eru þá alvöru spilarar, en þú ert
því miður bara til uppfyllingar, fjórði maður.
Við tökum vel á móti fjórða manninum í Bridsskólanum og setjum
markið hátt - eftir tíu kvölda námskeið verður þú kominn í hóp
þeirra sem leitar að fjórða manninum.
Byrjendanámskeið:
Hefst 27. janúar og stendur yfir í 10 mánudagskvöld,
þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 20-23.
Þú þarft ekkert að kunna, en ef þú þekkir ás frá kóng, þá er það
bara betra. Þú mátt koma ein eða einn, með öðrum eða í hóp,
og það er sama hvort þú ert 18 ára eða 90. Eða einhvers staðar
þar á milli.
Framhaldsnámskeið:
Hefst 29. janúar og stendur yfir í 10 miðvikudagskvöld,
þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 20-23.
Tími endurmenntunar er runninn upp. Þú þarft að læra kerfið al-
mennilega, ná sambandi við makker í vörninni og hætta að spila
niður þremur gröndum. Sem sagt - taka hlutina föstum tökum.
Kennari á báðum námskeiðum er Guðmundur Páll Arnarson.
Brids er gefandi leikur í skemmtilegum félagsskap.
Komdu í klúbbinn.
Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247
milli kl. 13 og 18 virka daga.
ATH. Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði.
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudagskvöldið 31. janúar og
laugardaginn 1. febrúar í kórkjallara
Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Meðvirkni
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
TRÉSKURÐUR
Námskeið í myndskurði og öskjugerð hefst 11. febrúar.
Kennt verður á gamalgrónu verkstæði á Laugavegi 100.
Örn Sigurðsson myndskeri og húsgagnasmíðameistari.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 848 8659.
Námskeið um meðvirkni
janúar-apríl
Lítið sjálfsmat, sífellt að reyna að þóknast öðrum,
depurð/þunglyndi, þú tjáir þig ekki opinskátt um hvað þér
býr í brjósti og veist ekki hver þú ert eða hverju þú vilt
ná fram. - Þetta eru nokkrar ásjónur meðvirkni.
Þetta námskeið er fyrir þig ef þú vilt:
- læra að þekkja meðvirkni og hvernig hún vinnur spellvirki á lífi þínu.
- lækna þig af meðvirkni.
Gitte Lassen, ráðgjafi, heilari og miðill, s. 861 3174.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ferð þér stundum of hægt
í málum þannig að þú situr
eftir með sárt ennið, þegar
tækifærið er liðið hjá.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Nú er rétti tíminn til að
koma málstað sínum á
framfæri en gættu þess að
lofa engu sem þú veist að þú
getur ekki staðið við.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að láta vinnuna
ganga fyrir öllu öðru svo
þér takist að ljúka við þau
verkefni sem fyrir liggja.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hafðu allt þitt á þurru í
fjármálunum. Annað kallar
bara á tóm vandræði.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Lausn mála er nær en þú
heldur. Leitaðu ráða hjá
þeim sem eru reyndari en
þú og þá áttu auðveldara
með að taka af skarið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nýjar hliðar á vandasömu
verkefni krefjast allrar
þinnar athygli og atorku.
Alls ekki geyma það til
morguns.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nú er að bretta upp erm-
arnar og hefjast handa.
Farðu þér samt í engu óðs-
lega.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú verður að taka af skarið
og hrinda málum í fram-
kvæmd, þótt vinnufélagar
þínir séu tregir í taumi.
Sýndu ákveðni en vertu
varkár um leið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Forvitni þín vaknar og
ímyndunaraflið fer á flug.
Segðu hug þinn og farðu
eftir eigin sannfæringu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hlustaðu vandlega á þá sem
leita til þín með vandræði
sín. Mundu að uppörvun
reynist yfirleitt betur en
gagnrýni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er margt sem liggur
fyrir í dag og þú mátt hafa
þig allan við ef þú ætlar að
komast yfir öll verkefni
dagsins.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Óhófleg ástundum fé-
lagslífs að undanförnu hef-
ur tekið sinn toll hjá þér.
Líttu í eigin barm og
reyndu að koma jafnvægi á
líf þitt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Framkoma samstarfsfélaga
þíns veldur þér hugarangri
og þú skalt koma sjónar-
miðum þínum á framfæri.
Kannaðu hins vegar málið
vandlega áður en þú lætur
til skarar skríða.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SUÐUR spilar fimm lauf
og fær út hjartakóng og
meira hjarta.
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 52
♥ G65
♦ ÁG1043
♣ÁK5
Suður
♠ ÁK84
♥ 7
♦ K6
♣G98762
Vestur hafði sagt pass í
upphafi, en stakk svo inn
hjartasögn síðar. Að öðru
leyti skiptu AV sér ekkert af
sögnum. Settu þig í spor
suðurs og reyndu að finna
bestu leiðina. Þú færð þær
upplýsingar í veganesti að
laufið liggur ekki 4-0.
Spilið er auðvitað á borð-
inu ef laufið kemur 2-2 eða
ef drottningin fellur stök.
En ef drottningin er þriðja
úti getur verið nauðsynlegt
að fría slag á tígul. Til að
byrja með er best að spila
laufi á ásinn og kanna málið.
Ef tían kemur í slaginn má
trompa tvo spaða í borði og
gefa slag á tromp. En það
gerist ekkert merkilegt,
báðir fylgja með bláhund-
um.
Nú er best að láta laufið
eiga sig og fara í tígulinn:
spila tveimur efstu og
trompa tígul (með gosa):
Norður
♠ 52
♥ G65
♦ ÁG1043
♣ÁK5
Vestur Austur
♠ DG97 ♠ 1063
♥ KD9842 ♥ Á103
♦ 72 ♦ D985
♣4 ♣D103
Suður
♠ ÁK84
♥ 7
♦ K6
♣G98762
Síðan er laufi spilað á
kóng og tígull aftur stung-
inn. Nú er fimmti tígullinn
frír og lokaverkið er að taka
ÁK í spaða, trompa spaða,
spila frítíglinum og henda
spaða. Austur fær aðeins
einn slag á lauf.
Spilið er frá 13. umferð
Reykjavíkurmótsins og
fimm lauf voru sögð og unn-
in á aðeins tveimur borðum
af sextán. Þeir sagnhafar
sem töpuðu fimm laufum
tóku strax ÁK í laufi, en eftir
þá byrjun vantar eina inn-
komu í blindan til að nýta
tígulinn (nema þá með
trompsvíningu). Einhver
pör reyndu líka sex lauf.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
SVEITIN MÍN
Fjalladrottning, móðir mín!
mér svo kær og hjartabundin,
sæll ég bý við brjóstin þín,
blessuð aldna fóstra mín.
Hér á andinn óðul sín
öll, sem verða á jörðu fundin.
Fjalladrottning, móðir mín,
mér svo kær og hjartabundin.
Blessuð sértu, sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga.
Engið, fjöllin, áin þín,
yndislega sveitin mín,
heilla mig og heim til sín
huga minn úr fjarlægð draga.
Blessuð sértu, sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga.
Sigurður Jónsson frá Arnarvatni
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 19. jan-
úar, er sextugur Jón Gunn-
ar Gunnlaugsson, við-
skiptafræðingur, Brekku-
skógum 6, Bessastaða-
hreppi. Eiginkona hans er
Inga Ólafía Haraldsdóttir.
Mynd, Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 23. ágúst 2002 í
Lágafellskirkju af sr. Pálma
Matthíassyni þau Vala Jóna
Garðarsdóttir og Viðar
Þórðarson. Heimili þeirra
er í Kópavogi.
Mynd, Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 28. desember 2002 í
Dómkirkjunni af Hafliða
Kristinssyni þau Sara
Hjaltadóttir og John Matus-
zak. Heimili þeirra er á
Keflavíkurflugvelli.
Mynd, Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 12. október 2002 í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði af
sr. Sigríði Kristínu Helga-
dóttur þau Dagbjört Lára
Ragnarsdóttir og Kristinn
Kristinsson. Heimili þeirra
er í Hafnarfirði.
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. e3 c5 4.
Bd3 b6 5. 0-0 Bb7 6. c4 Be7
7. Rc3 d5 8. cxd5 exd5 9.
Bb5+ Kf8 10. Be2 Rbd7 11.
b3 a6 12. Bb2 Hc8 13. Hc1 h5
14. h3 Kg8 15. Re5 cxd4 16.
Dxd4 Bc5 17. Df4 Rf8 18.
Bf3 Re6 19. Df5 g6 20. Dd3
Rg5 21. Hfd1
Rxf3+ 22. Rxf3
De7
Staðan kom upp
á Rilton Cup sem
lauk fyrir skömmu
í Stokkhólmi.
Arthur Jussupov
(2.622) hafði hvítt
gegn Tom Wed-
berg (2.530). 23.
b4! Bxb4 23... Bd6
gekk ekki heldur
upp vegna 24.
Rxd5. 24. Rxd5!
Rxd5 25. Hxc8+
Bxc8 26. Dxd5
Hh7 27. Dd8+ Df8 28.
Dxf8+ Bxf8 29. Hd8 og
svartur gafst upp enda verð-
ur hann manni undir eftir
t.d. 29... Be6 30. Ba3.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Hér stendur að það eigi
að þynna málninguna!
Smælki