Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 28
AKUREYRI
28 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KAUPFÉLAG Eyfirðinga mun
styrkja starfsemi Iðnaðarsafnsins á
Akureyri um þrjár milljónir króna
næstu þrjú árin, eða eina milljón
króna á ári.
Tíu ár eru nú liðin frá því Jón
Arnþórsson hóf að byggja safnið
upp og hefur hann af elju og þraut-
seigju aflað fjölda véla og hluta sem
tengjast atvinnusögu Akureyrar.
Iðnaðarsafnið sjálft var svo form-
lega opnað 17. júní 1998 og var til
að byrja með í Hekluhúsinu svo-
nefna á Gleráreyrum, en hefur síð-
ustu ár haft aðsetur í Sjafnarhúsinu
við Austursíðu. Nú sér fyrir endann
á húsnæðisþrengingum þess, því
safninu hefur verið fundinn fram-
tíðarstaður í húsnæði á Krókeyri,
þar sem umhverfisdeild var áður til
húsa. Við það verður hægt að
stækka safnið um helming að sögn
Jóns. Hann sagði að Akureyrarbær
myndi leggja fram 10 milljónir
króna á næsta ári. Áætlanir gera
ráð fyrir að um 8 milljónir króna
kosti að koma safninu inn í húsið,
en gera þarf á því viðeigandi end-
urbætur. Heildarkostnaður bæði
utan og innandyra nemur um 12 til
13 milljónum að sögn Jóns. Hús-
næðið þykir henta vel undir starf-
semi Iðnaðarsafnsins, en það er um
600 fermetrar að stærð, sýnilegt
frá Drottningarbraut og nálægðin
við Minjasafnið og önnur söfn og
sýningar við Aðalstræti skapar
ákveðna möguleika.
Deild helguð atvinnusögu KEA
Benedikt Sigurðarson, formaður
stjórnar KEA, sagði að vilji hefði
verið til þess að sýna stuðning í
verki, en Jón hefði sýnt sögu KEA
mikinn sóma. Í samningi KEA og
Iðnaðarsafnsins er gert ráð fyrir að
safnið setji upp og viðhaldi sér-
stakri deild sem helguð er atvinnu-
sögu KEA og kynningarefni um fé-
lagið verði aðgengilegt þar.
Félagið mun láta safninu í té áhöld
og muni sem það nýtir ekki í starf-
semi sinni. Þá er vilji til þess innan
félagsins að vinna að því að afla
safninu frekari stuðnings og nægi-
legs rekstrarfjár til frambúðar.
KEA hefur tvívegis áður lagt fé til
uppbyggingar safnsins.
KEA styrkir Iðnaðarsafnið
Morgunblaðið/Kristján
Jón Arnþórsson, forsvarsmaður Iðnaðarsafnsins, og Benedikt Sigurðar-
son, stjórnarformaður KEA, skrifuðu undir styrktarsamninginn.
Aglow, kristileg alþjóðleg samtök
kvenna, halda fund í félagsmið-
stöðinni Víðilundi 22 á mánudags-
kvöld, 17. febrúar, kl. 20. Ræðu
kvöldsins flytur Dögg Harð-
ardóttir. Þá verður fjölbreyttur
söngur og fyrirbænaþjónusta auk
kaffihlaðborðs. Þátttökugjald er
500 krónur.
Á NÆSTUNNI
Haraldur Jónsson myndlist-
armaður heldur fyrirlestur í Deigl-
unni í dag, laugardag, kl. 15 á vegum
Listasafnsins á Akureyri í samvinnu
við Gilfélagið. Fyrirlesturinn heitir
Myrkfælni og veggfóðraðar tilfinn-
ingar en í honum mun Haraldur
fjalla í máli og myndum um tilurð og
uppsprettu verka sinna og hvernig
þau tengjast þeim veruleika sem
margir lifa og hrærast í frá vöggu til
grafar.
María Eiríksdóttir verður með
kynningu á bókum eftir dr. Jörg
Zink í Glerárkirkju í dag, laugardag,
kl. 14. Hún segir einnig frá persónu-
legum kynnum sínum af höfundinum
og heimsókn hans til Íslands.
Árni Steinar Jóhannsson alþing-
ismaður er gestur á laugardagsfundi
hjá Vinstrihreyfingunni – grænu
framboði á Akureyri í dag, 15. febr-
úar. Árni Steinar fjallar meðal ann-
ars um orkumál, einkavæðingu í
þeim geira og stóriðjuframkvæmdir,
orkuverð og Landsvirkjun á fund-
inum. Hann hefst kl. 11 og er í kosn-
ingamiðstöðinni Hafnarstræti 94.
Ljósmyndasýning Siggu Dóru
verður opnuð á Kaffi Karólínu í dag,
laugardaginn 15. febrúar, kl. 18.
Hún hefur stundað nám í ljós-
myndun í Reykjavík og Barcelona
og tekið þátt í samsýningum en
þetta er fyrsta einkasýning hennar.
Viðfangsefni hennar eru fífur, festar
á filmu víðs vegar um sveitir Eyja-
fjarðar með leikfangamyndavél úr
plasti sem kallast Holga.
Í DAG
PAWEL Panasuik sellóleikari og
Agnieszka Panasuik píanóleikari
halda tónleika í Dalvíkurkirkju á
morgun, sunnudaginn 16. febrúar,
kl. 16 og í Laugarborg fimmtudaginn
20. febrúar kl. 20.
Pawel og Agnieszka eru frá Pól-
landi en hafa starfað við Tónlistar-
kennslu á Akureyri og í Eyjafirði í
nokkur ár. Á efnisskrá eru verk eftir
D. Shostakovich, Jón Nordal, Man-
uel de Falla og Astor Piazzolle.
Aðgangur að tónleikunum er kr.
1.200, en frítt er fyrir nemendur 20
ára og yngri og einnig er frítt fyrir
ellilífeyrisþega.
Tvennir
tónleikar
„ÞÁ saggði ég si svona,“ er heiti tón-
leika sem Karlakór Akureyrar –
Geysir efnir til í Glerárkirkju á
morgun, laugardaginn 16. febrúar,
en þeir hefjast kl. 16.
Um er að ræða minningartónleika
um Áskel Egilsson, félaga í kórnum
sem lést í haust, en heiti tónleikanna
er sótt í frasa sem Áskell var þekkt-
ur fyrir.
Auk karlakórsins kemur fjöldi
annarra listamanna fram, en þar má
nefna Kvennakór Akureyrar, Álfta-
gerðisbræður, Óskar Pétursson,
Kolbrúnu Jónsdóttur, Örn Birgis-
son, Ingu Eydal, Þór Sigurðsson,
Þórhildi Örvarsdóttur og fleiri.
Efnisskráin er fjölbreytt, m.a.
vera flutt bítlalög, írsk þjóðlög sem
kórinn flutti á söngskemmtuninni
„Hoppsasí“ síðasta haust, en textar
eru eftir Jónas Árnason. Þá verða
fluttir dúettar, einsöngslög og kórlög
af ýmsu tagi.
Undirleik annast Daníel Þor-
steinsson, Stefán Gíslason og hljóm-
sveitin Einn og sjötíu. Stjórnandi er
Erla Þórólfsdóttir.
Söng-
skemmtun
í Glerár-
kirkju
ÚTIFUNDUR gegn stríði verður
haldinn á Ráðhústorgi á Akureyri í
dag, laugardaginn 15. febrúar, kl. 14.
Stutt ávarp flytja Guðmundur Ár-
mann Sigurjónsson, myndlistarmað-
ur og kennari, og Lára Stefánsdóttir
framkvæmdastjóri. Skúli Gautason
leikari verður með uppistand, Þráinn
Karlsson les ljóð og Þórarinn Hjart-
arson leikur og syngur nokkur lög og
efnt verður til almenns fjöldasöngs.
Friðarsinnar á Akureyri og í Eyja-
firði standa fyrir fundinum.
Útifundur
gegn stríði
ÁFENGIS- og vímuvarnanefnd Ak-
ureyrarbæjar hefur samþykkt að
styrkja framhaldsskólana VMA og
MA um 100.000 krónur hvorn skóla til
forvarnastarfa.
Karen Malmquist, forvarnafulltrúi
VMA, sendi nefndinni erindi nýlega
þar sem óskað var eftir styrk vegna
ýmissa forvarnaverkefna sem fyrir-
huguð væru á næstunni í Verk-
menntaskólanum. Í kjölfarið var
ákveðið að veita báðum framhalds-
skólunum styrk. Nefndin óskaði jafn-
framt eftir því að forvarnafulltrúar
skólanna skiluðu yfirliti um hvernig
fjármunum yrði varið. Ennfremur
óskaði áfengis- og vímuvarnanefnd
eftir að forvarnafulltrúarnir yrðu
boðaðir á fund með nefndinni.
Forvarnastarf
í framhaldsskólum
Styrkir til
MA og VMA
HREPPSNEFND Hríseyjar-
hrepps samþykkti á síðasta fundi
sínum að fela sveitarstjóra að
kanna möguleika á samvinnu við
nágrannasveitarfélög um þátttöku í
verkefni Byggðastofnunar, „Raf-
rænt samfélag“. Í samkeppninni
verða tvö til fjögur sveitarfélög val-
in og skulu þau hvert um sig leggja
fram allt að 60 milljónir króna, sem
væri um 50% af framlagi Byggða-
stofnunar.
Atvinnumálanefnd tók þetta mál
fyrir á fundi sínum í síðasta mánuði
og taldi að sveitarfélög á stærð við
Hrísey væru nánast útilokuð um
þátttöku með þessum skilyrðum.
Sveitarstjóri hafði samband við full-
trúa í verkefnisstjórn verkefnisins
og kom fram hjá honum að ekkert
væri því til fyrirstöðu að nokkur
sveitarfélög tækju sig saman og
tæku þátt í forvali verkefnisins.
Verkefnið er liður í framkvæmd
þingsályktunar um stefnu í byggða-
málum 2002–2005. Í samkeppninni
verða tvö til fjögur byggðarlög á
landsbyggðinni valin til að taka þátt
í þróunarverkefnum á árunum
2003–2006. Byggðarlögin fá fram-
lag frá íslenska ríkinu til að hrinda í
framkvæmd eigin hugmyndum og
áætlunum um framgang upplýs-
ingasamfélagsins á sínu svæði.
Verkefninu er ætlað að hafa sem
víðtækust áhrif á þróun viðkomandi
byggðarlaga og að þau verði til fyr-
irmyndar fyrir önnur byggðarlög
sem munu geta hagnýtt sér reynslu
þeirra og þekkingu.
Hríseyingar hafa áhuga á verkefninu „Rafrænt samfélag“
Leitað eftir samvinnu við
nágrannasveitarfélögin
ÞRÍR skákmenn eru efstir og jafnir
á Skákþingi Akureyrar þegar mótið
er rúmlega hálfnað. Þetta eru þeir
Jón Björgvinsson, sem gerði jafntefli
við Halldór Brynjar, Guðmundur
Gíslason, sem lagði Stefán Bergsson,
og Þór Valtýsson, sem vann Gylfa
Þórhallsson. Þeir hafa allir þrjá
vinninga að loknum fjórum skákum.
Í B-flokki hefur Sveinbjörn Sigurðs-
son tekið forystuna, en skammt á
hæla hans koma þeir Jón Birkir
Jónsson og Eymundur Eymunds-
son. Næsta umferð fer fram nk.
sunnudag og hefst kl. 14. Áhorfend-
ur eru velkomnir, segir í frétt frá
Skákfélaginu.
Skákþing Akureyrar
Þrír efstir
og jafnir
GREIFINN eignarhaldsfélag var
valið Fyrirtæki ársins 2002 á Ak-
ureyri, en það er atvinnu-
málanefnd Akureyrarbæjar sem
stendur fyrir valinu. Viðurkenn-
ingin var veitt fyrir þróttmikið
starf fyrirtækisins á liðnu ári.
Saga fyrirtækisins nær aftur til
ársins 1989, en í fyrstu rak fyr-
irtækið samnefndan veitingastað.
Nú stendur félagið fyrir um-
svifamiklum rekstri hótela og
veitingasölu um allt land. Um 150
manns starfa hjá Greifanum.
Fyrirtæki sem hlaut viðurkenn-
ingu fyrir sérstakt framtak í at-
vinnulífinu var JMJ, en saga þess
fyrirtækis nær allt aftur til ársins
1942. Ragnar Sverrisson hefur
rekið verslunina frá árinu 1984,
keypti reksturinn af tengdaföður
sínum, Jóni M. Jónssyni.
Þá hlaut Baldur Guðnason,
framkvæmdastjóri Sjafnar og
Mjallar, viðurkenningu fyrir
frumkvæði og áræði í starfi.
Morgunblaðið/Kristján
Fulltrúar fyrirtækjanna sem fengu viðurkenningu atvinnumálanefndar.
F.v. Páll Jónsson, Ívar Sigmundsson, Hlynur Jónsson, Páll Sigurjónsson og
Sigurbjörn Sveinsson frá Greifanum, Bjarni Jónasson, formaður atvinnu-
málanefndar, Ragnar Sverrisson frá JMJ og Baldur Guðnason frá Sjöfn.
Greifinn fyrirtæki ársins
alltaf á föstudögum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Keramiknámskeið á Punktinum
17. febrúar kl. 19-23.
Spennandi aðferðir við skreytingu nytjahluta,
notkun glerunga o.fl.
Hentar vel fyrir þá sem vilja stofna keramikklúbb.
Námskeiðsgjald kr. 4.500.
Skráning í síma 552 2882 • Sjá nánar Keramik.is
Til leigu eða sölu
nýtt 105 fm verslunarpláss í miðbæ Akureyrar.
Miklir og góðir gluggar
Upplýsingar í síma 899 3400