Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 22
ERLENT 22 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ VUR V I ÐS K IP TAÞJÓNUSTA U TA N R Í K I S R Á Ð U N E Y T I S I N S í verki með íslenskri útrás www.vur.is Litla lirfan ljóta verður Katie the Caterpillar „CAOZ hf. vinnur nú að markaðs- setningu á Litlu lirfunni ljótu erlendis. Í samstarfi við viðskiptafulltrúa VUR ytra er m.a. unnið að því að fara markvisst inn á tvo af lykilmörkuðum í Evrópu. Okkar hugmyndum hefur verið tekið opnum örmum og eftir gott undirbúningsstarf og þarfagreiningu hefur tekið við öflugt starf á báðum mörkuðum. Það er okkar reynsla af samvinnu við VUR að þar fer mjög hæft starfsfólk saman við metnað og vilja til að ná árangri. Ekki síðra virði fyrir okkur er sú staðreynd að viðskiptafulltrúarnir opna okkur dyr sem virtust lokaðar áður. Við erum þess fullviss að sam- starfið við VUR muni bera góðan ávöxt.“ Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri CAOZ hf. E F L IR / H N O T S K Ó G U R V U R 6 0 2 -0 3 KLAPPAÐ var fyrir Dominique de Villepin, utanríkisráðherra Frakk- lands, í fundarsal öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna er hann lýsti því yfir á fundi ráðsins í gær að vopnaeftirlitið í Írak skilaði árangri og að ekkert réttlætti ennþá að ráðist yrði á landið. Viðbrögðin eru sögð til marks um að flestir fundargesta hafi verið ósam- mála Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Jack Straw, utan- ríkisráðherra Bretlands, sem vilja að öryggisráðið heimili hernaðaraðgerð- ir gegn Írökum á grundvelli þess að þeir hafi ekki afvopnast. De Villepin lagði til að vopnaeftir- litinu yrði haldið áfram og að Hans Blix, yfirmaður vopnaeftirlitsnefndar SÞ, og Mohammed ElBaradei, yfir- maður Alþjóðakjarnorkumálastofn- unarinnar, kæmu aftur fyrir örygg- isráðið 14. mars næstkomandi til að greina frá framgangi þess. Í ljósi andstöðu Frakka við afstöðu Breta og Bandaríkjamanna kom ekki á óvart að de Villepin skyldi draga fram þá þætti vitnisburðar Blix fyrir öryggisráðinu í gær sem bentu til að Írakar hefðu starfað af meiri heilind- um með eftirlitsmönnum en áður. De Villepin hélt því m.a. fram að vopnaeftirlit næði tilætluðum mark- miðum skjótar en árás á ríkisstjórn Saddams Husseins, enda myndu átök í Írak valda miklu uppnámi í Mið- Austurlöndum; raunar sagði de Villepin að stríð í Írak myndi skekja alla heimsbyggðina. Langan tíma myndi taka að reisa Írak úr rústum stríðs. „Í húfi er trúverðugleiki okkar og ábyrgð okkar er mikil. Við skulum hafa hugrekki til að horfa á hlutina eins og þeir eru,“ sagði hann. „Enginn getur haldið því fram að stríð sé fljót- virkara en vopnaeftirlit [...] Stríð er nefnilega alltaf til marks um að mönn- um hefur orðið á í messunni.“ Og de Villepin vísaði óbeint til ögr- andi ummæla sem Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, lét nýverið falla um „gömlu Evrópu“: „Þessi skilaboð til ykkar koma frá gömlu ríki, Frakklandi, frá heimsálf- unni Evrópu sem þekkir stríð, her- nám, grimmd. Frakkland er gamalt ríki sem ekki gleymir og sem er full- komlega ljóst hversu mikið það á frelsishetjum frá Bandaríkjunum og öðrum stöðum að þakka. Frakkland hefur hins vegar alltaf staðið óhikað vörð um sitt grundvallargildismat, staðráðið í að standa þétt við hlið ann- arra þjóða alþjóðasamfélagsins. Frakkland trúir á getu okkar til að búa saman til betri veröld.“ Klækjabrögð af hálfu Íraka Colin Powell sagði aftur á móti að Írakar hefðu ekki hlítt skilmálum ályktana öryggisráðsins og að þeir hefðu einfaldlega ekki í hyggju að hlíta þeim. Því væri sú stund að renna upp að öryggisráðið þyrfti að hugleiða hernaðaraðgerðir til að tryggja að ályktanir þess næðu fram að ganga. „Svo margir ykkar myndu helst vilja geta sloppið við að taka á þessu máli, en þetta er mál sem þarf að taka á,“ sagði Powell við fulltrúa ríkjanna sem sæti eiga í öryggisráðinu. Írakar hafa sýnt vopnaeftirlits- mönnum aukinn samstarfsvilja und- anfarna daga en Powell sagði hegðun þeirra miða að því einu að blekkja samfélag þjóðanna. Írakar tækju e.t.v. þátt í því ferli, sem vopnaeft- irlitsmenn hefðu skipulagt vegna vinnu sinnar í Írak, en þeir neituðu enn að gera það eina sem máli skipti; að afvopnast. „Hér er aðeins um að ræða klækjabrögð sem þeir beita gegn okkur,“ sagði Powell. „Kæru vinir, við getum ekki látið þá komast upp með það enn einu sinni.“ Ígor Ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, tók undir með hinum franska starfsbróður sínum en hann sagði vopnaeftirlitið í Írak ganga vel og að það ætti að styrkja. „Hlutunum miðar í rétta átt og við getum ekki leitt það hjá okkur,“ sagði hann. Hlaut hann lófaklapp að launum, rétt eins og de Villepin. Ívanov tók þó fram að vissulega væri hugsanlegt að grípa þyrfti til hernaðaraðgerða í þessu máli. Það ætti hins vegar ekki að gera fyrr en allir aðrir kostir hefðu verið reyndir. „Sú stund er enn ekki runnin upp,“ sagði hann. Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýska- lands, sagði að vopnaeftirlitið í Írak hefði „verulega dregið úr þeirri hættu sem af Írak stafaði“. „Vopnaeftirlits- mennirnir verða að fá þann tíma sem þeir þurfa til ljúka starfi sínu,“ sagði Fischer. Frakkar segja að vopna- eftirlitið skili árangri Colin Powell telur ekki lengur hægt að una blekkingum Íraka Sameinuðu þjóðunum. AFP, AP. Reuters Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræðir við einn aðstoðar- manna sinna en í baksýn sést hvar Mohamed Aldouri, sendiherra Íraks hjá SÞ, gjóir augunum í átt til Powells. SAMEINUÐU þjóðirnar ætla að óska eftir fjárframlögum að and- virði að minnsta kosti 6,4 milljarða króna í viðbót til að undirbúa hjálp- arstarf í Írak komi þar til stríðs. Kenzo Oshima, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, sagði á blaðamannafundi í New York að áætlað væri að tíu milljónir af 22 milljónum íbúa Íraks myndu þurfa á tafarlausri mat- vælaaðstoð að halda kæmi til stríðs. Um helmingur þjóðarinnar yrði án drykkjarvatns og hreinlætis- aðstöðu. Sameinuðu þjóðirnar gera ráð fyrir því að tvær milljónir Íraka flosni upp og fari á vergang í Írak og að 600.000 til 1,45 milljónir flýi til grannríkjanna. Að sögn Oshima byggjast þessar tölur á meðaltali svartsýnasta og bjartsýnasta mats hjálparstofnana Sameinuðu þjóðanna á afleiðingum stríðs í Írak. Hann benti einnig á að ef Bandaríkin og samstarfsríki þeirra hernæmu Írak bæri þeim skylda til að halda uppi lögum og reglu í landinu og dreifa þar mat- vælum og lyfjum, samkvæmt Genf- ar-sáttmálanum frá 1949. Oshima sagði að Flótta- mannahjálp Sameinuðu þjóðanna væri með tjöld til reiðu fyrir 118.000 manns og skýli fyrir 350.000 manns til viðbótar ættu að vera tilbúin fyrir lok mars. Und- irbúningurinn gengi miklu hægar en gert var ráð fyrir því stefnt var að því að koma upp skýlum fyrir 600.000 manns. Ríki heims hafa lofað fjár- framlögum að andvirði 2,8 millj- arða króna vegna hjálparstarfsins. Oshima áætlaði að stofnanir Sam- einuðu þjóðanna þyrftu að fá alls 9,2 milljarða króna en lagði áherslu á að sú fjárhæð miðaðist aðeins við viðbúnaðinn. Samtökin myndu þurfa að óska eftir miklu meiri fjár- framlögum ef stríð skylli á. „Getur valdið skelfilegum þjáningum“ Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, gerði örygg- isráði Sameinuðu þjóðanna grein fyrir viðbúnaði hjálparstofnana samtakanna á fundi í fyrradag. Oshima lagði þó áherslu á að fram- kvæmdastjórinn teldi ekki að stríð væri óhjákvæmilegt. „Við verðum samt að gera okkur grein fyrir því að stríð getur skollið á og valdið írösku þjóðinni skelfilegum þján- ingum.“ Oshima sagði að búist væri við miklum skemmdum á samgöngu- mannvirkjum og erfitt yrði fyrir yf- irvöld í Írak að dreifa matvælum kæmi til stríðs. Talið er að matvælabirgðirnar í landinu endist í sex vikur. Oshima sagði að hjálparstofnanir Sameinuðu þjóðanna hefðu neyð- armatvælabirgðir handa 250.000 manns sem myndu endast í tíu vik- ur. Þær hefðu drykkjarvatn og hreinlætisvörur fyrir 300.000 manns og prótínríkt kex handa 240.000 börnum. Þetta eru miklu minni birgðir en stefnt var að. Til að mynda hafa hjálparstofnanirnar sjúkrakassa fyrir 240.000 manns til reiðu en stefndu að milljón. Oshima vildi ekki nefna neinar tölur um hugsanlegt mannfall en sagði að hjálparstofnanir Samein- uðu þjóðanna hefðu ekki bolmagn til að bregðast við hugsanlegum árásum með efna- eða sýklavopn- um. Viðbúnaður hjálparstofnana SÞ vegna hugsanlegs stríðs í Írak Tíu milljónir Íraka gætu þarfnast neyðaraðstoðar Sameinuðu þjóðunum. AFP. Moggabúðin Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.