Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 32
LISTIR
32 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Á TÓNLEIKUM í Tíbrár-röðinni í
Salnum í dag kl. 16 gefst áheyr-
endum kostur á að kynnast fá-
heyrðum miðevrópskum kammer-
perlum. Um er að ræða tvo
kvintetta með nokkuð óvenjulegri
hljóðfæraskipan frá rómantíska
tímabilinu, eftir hinn tékkneska
Franz Krommer og hinn þýska
Friedrich Kuhlau. Flutningur er í
höndum Martials Nardeau flautu-
leikara, Gretu Guðnadóttur fiðlu-
leikara, Guðmundar Kristmunds-
sonar og Þórunnar Óskar
Marinósdóttur víóluleikara og
Hrafnkels Orra Egilssonar selló-
leikara.
Jöfn skipting
milli hljóðfæra
Franz Krommer var fiðluleikari,
hljómsveitarstjóri og tónskáld frá
Móravíu í Tékklandi , fæddur árið
1759. Fyrstu verk hans voru
kirkjuleg, en síðar sneri hann sér í
auknum mæli að samningu tónlist-
ar fyrir blásturshljóðfæri, sem hef-
ur lifað og notið vinsælda. Hann á
heiðurinn af fyrra verki efnisskrár-
innar, sjöunda kvintett op. 104 fyr-
ir flautu, fiðlu, tvær víólur og selló.
„Krommer er ennþá nokkuð spil-
aður, sérstaklega blásaratónlistin,
og verk eftir hann eru stundum
leikin hérlendis á jólum. Mér sjálf-
um finnst hann afar skemmtilegt
tónskáld og tónlistarfólk tekur í
auknum mæli einleikskonserta
hans til æfinga. Hann var helst
frægur fyrir kvartetta og kvin-
tetta, og við erum með einn af
þeim á efnisskránni,“ segir Martial
Nardeau, flautuleikari hópsins, í
samtali við Morgunblaðið. „Það er
mjög gaman að spila þetta verk,
vegna þess að það er ekki eitt
hljóðfæri sem ræður ferðinni við
undirleik hinna, heldur er nokkuð
jöfn skipting milli allra hljóðfær-
anna, þótt nokkuð reyni á fyrstu
fiðlu. Þetta er krefjandi verk fyrir
okkur öll.“
Hann tekur undir að hljóðfæra-
skipan kvintettsins geti þótt nokk-
uð sérstæð nú til dags. „En á þeim
tíma sem verkið var skrifað var
mikið skrifað fyrir svipaða hljóð-
færasamsetningu. Hitt verkið á
efnisskránni, eftir Kuhlau, er líka
skrifað fyrir þessi hljóðfæri, og
hann samdi þrjá slíka kvintetta.“
Hentar vel á
eftirmiðdagstónleikum
Seinna verk efnisskrárinnar er
kvintett op. 51 nr. 3 í A-dúr fyrir
flautu, fiðlu, tvær víólur og selló
eftir Friedrich Kuhlau. Kuhlau var
fæddur árið 1786 í Hannover í
Þýskalandi, en settist að í Kaup-
mannahöfn árið 1810 til að forðast
herskyldu Napóleons. Þar naut
hann mikillar virðingar eftir að
hafa samið vinsælar óperur byggð-
ar á dönskum þjóðlögum, og varð
fljótt hirðtónskáld konungs. Ku-
hlau var píanóleikari, en samdi
mikið af flaututónlist sem varð vin-
sæl hjá áhugamönnum. „Á þeim
tíma léku margir á flautu og hann
skrifaði einfaldlega fyrir peninga.
Ég hef leikið mjög mörg verk eftir
hann,“ segir Martial. „Það var
gamall draumur hjá mér að flytja
þessi verk eftir Kuhlau og Krom-
mer. Þetta er verulega falleg
kammertónlist og hentar mjög vel
eftirmiðdagstónleikum á laugar-
degi. Tónlist fyrir flautu frá róm-
antíska tímabilinu er ekki svo al-
geng, þar sem fiðlan og klarínettan
hafa svo mikið vægi. Flaututónlist
er heldur að finna í tónlist frá bar-
okktímabilinu og nútímatónlist. En
það var vissulega skrifuð kamm-
ertónlist fyrir flautu á þessu róm-
antíska tímabili og dæmi um það
má heyra á tónleikunum okkar.“
Morgunblaðið/Þorkell
Fluttir verða tveir kvintettar frá rómantíska tímabilinu í Salnum í dag.
Flytjendur eru Martial Nardeau flautuleikari, Greta Guðnadóttir fiðluleik-
ari, Guðmundur Kristmundsson víóluleikari, Þórunn Ósk Marinósdóttir
víóluleikari og Hrafnkell Orri Egilsson sellóleikari.
Miðevrópskt
fágæti á
boðstólum
Í SAL félagsins Íslensk grafík,
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu 17,
opnar Anna G. Torfadóttir sýningu
á nýjum grafíkverkum kl. 15 í dag,
laugardag. Verkin eru unnin með
blandaðri tækni, ImagOn-ljós-
myndaætingar á stálplötur og
Carborundum þrykk og svo þrí-
víddar myndir á vatnslitapappír.
Myndirnar eru allar unnar 2002–
2003 og verða stálplöturnar og ál-
plöturnar sem þrykkt er af einnig
til sýnis.
Sýningin er opin frá fimmtudegi
til sunnudags frá kl. 14–18 og
stendur til 2. mars.
Sýning á
nýjum grafík-
verkum
Morgunblaðið/Kristinn
Anna G. Torfadóttir í sýningarsal
Íslenskrar grafíkur, Hafnarhúsinu.
NOKKRAR mannabreytingar verða
nú um helgina í fjórum af þeim níu
leiksýningum sem verið er að leika í
Borgarleikhúsinu.
Í gamansöngleiknum um ljóta and-
arungann tekur Hanna María Karls-
dóttir við hlutverki andarinnar Svan-
hildar og Froskagellu að auki af Eddu
Björgu Eyjólfsdóttur.
Felix Bergsson kemur inn í söng-
leikinn Sól og Mána og tekur þar við
hlutverki eins af erkienglunum af
Birni Inga Hilmarssyni.
Í Sölumaður deyr tekur Katla
María Þorgeirsdóttir við hlutverki
Eddu Bjargar Eyjólfsdóttur og Sig-
rún Edda Björnsdóttir fer nú með eitt
af hlutverkum kvennanna þriggja
sem segja Píkusögur. Hún kemur í
stað Jóhönnu Vigdísar Arnardóttur.
Leikaraskipti
í Borgarleik-
húsinu
MYRKIR músíkdagar fögnuðu
hlutfallslega betri aðsókn á mánudag
fyrir nær fullsetinni Seltjarnarnes-
kirkju en á sinfóníutónleikunum fjór-
um dögum fyrr. Sjálfsagt mikið til að
þakka tryggð aðstandenda við unga
áhugamenn, líkt og með kórtónleika.
Þó var hér sá reginmunur á, að
„áhugamennirnir“ voru langt komnir
nemendur, flestir á leið í atvinnu-
mennsku og undir handleiðslu ham-
hleypu til verka.
Skálholtsforleikur Páls Ísólfssonar
í tilefni 900 ára afmælis biskupsstóls-
ins heyrðist nú í fyrsta sinn eftir
frumflutninginn 1956. Frísklegt verk
en stutt, aðeins rúmar 3 mín., enda
undirstaðan ekki nema tveggja takta
(6 tóna) passacaglíubassastef. Blás-
arasveitin hljómaði ofurlítið gróf í fort-
inu og var e.t.v. ónógri upphitun um að
kenna; alltjent hófust leikar ekki fyrr
en 13 mín. yfir tilsettan tíma.
Næsta verk var eftir ungan bás-
únuleikara frá Keflavík, Inga Garðar
Erlendsson (23), og bar hinn torskilda
titil „Þá sefur venjulegt fólk“ (12
mín.). En sá var líka hið eina vand-
ræðilega við stykkið, sem bar ótvíræð
merki bráðþroska öryggis. Þrátt fyrir
módernískan svip og ómælda massa-
effekta á kostnað hefðbundins lagferl-
is reyndist það líka skemmtilegt
áheyrnar, m.a. vegna slyngra and-
stæðna í styrk og áferð. Heildarform-
ið myndaði skýrt mótaðan stórboga
þar sem stuttar en hvassar
„tremma“-rokur í upphafi og niður-
lagi skiptust á við þyngdarlausa án-
ingastaði á orgelpunktum. Megin-
parturinn byggðist að mestu á
sköruðu klasahljómaferli ofan á
hæggengum cantus firmus.
Ungir höfundar eru oft naskari við
að efla eftirvæntingar en að uppfylla
þær. Þannig var hljómsveitinni í verki
Áka Ásgeirssonar, Konsert fyrir slag-
verk [og] 58 hljóðfæri (9:30’), raðað
upp í mjóum 180° hálfhring með slag-
verkssamstæðuna fyrir miðju, og
bjóst maður auðvitað strax við að
uppstillingin myndi nýtast undir
hvers konar víðómaáhrif; jafnvel að
yrði „panað“ á milli enda. Lítið bar þó
á því, og varð í fljótu bragði ekki séð
hvaða tilgangi sú skipan ætti að þjóna
umfram hina venjulegu. Lengi vel var
áferðin afar gisin meðan raulað var
ofurlágt í hljóðfærin eða blásið tón-
laust. Eftir skyndilegt stutt styrkris
hófst slagverkskadenza á heljarinnar
mikið safn af málmgjöllum. Við tók
hægt rísandi crescendo á tómum
fimmundarhljómi, og síðan hljóma-
skörunarkafli er smám saman hneig
niður í dim. al niente. Þrátt fyrir frek-
ar leitandi, jafnvel sundurlaus, tjá-
brigði og vitapúlslaust hrynferli hélt
verkið samt furðugóðri athygli, og
kom það kannski mest á óvart.
Sinfónísk tjáningarbreidd, fag-
mennska fram í fingurgóma, snerpa,
gáski og kraftur einkenndu lokaverk-
ið, Konsert Tryggva M. Baldvinsson-
ar fyrir klarínett og blásarasveit
(24:30’), sem hann samdi sem útskrift-
arverkefni fyrir sólistann. Heil blaða-
opna dygði ekki til að tíunda
skemmtilegheit þessa verks, sem
þrátt fyrir svolítinn stíllínudans á
milli áhrifa keimlíkum John Williams
og Bartók stóð eftir í huga undirritaðs
sem einhver flottasti íslenzki einleiks-
konsert í áratugi. Og raunar um leið
sá frumlegasti, þrátt fyrir (eða öllu
heldur vegna þess) að höfundur gaf
öllum frumleikarembingi lönd og leið.
Að vísu verður að segjast að BR
„fílaði“ verkið gjörsamlega í tætlur,
eins og sagt er. Sömuleiðis sýndi
Sveinhildur Torfadóttir mörg skín-
andi tilþrif í grjóterfiðu hlutverki
sínu. Tónskáldið varð því að deila
drjúgum hluta sómans með einleik-
aranum, blásarasveitinni og kraft-
virkum stjórnanda hennar.
„Fílað“ í tætlurTÓNLISTSeltjarnarneskirkja
Myrkir músíkdagar. Páll Ísólfsson: For-
leikur að Skálholtsljóði (1956). Ingi
Garðar Erlendsson: Þá sefur venjulegt
fólk (2003; frumfl.). Áki Ásgeirsson:
Konsert fyrir slagverk og 58 hljóðfæri
(2003; frumfl.). Tryggvi M. Baldvinsson:
Konsert fyrir klarínett og blásarasveit
(2002; frumfl. á Ísl.). Sveinhildur Torfa-
dóttir klarínett; Blásarasveit Reykjavíkur
u. stj. Kjartans Óskarssonar. Mánudag-
inn 10. febrúar kl. 20.
BLÁSARATÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
STOFNFUNDUR um Tónminjaset-
ur Íslands á Stokkseyri verður hald-
inn í húsnæði Hólmarastar ehf. á
Stokkseyri í dag kl. 14.
„Lengi hefur vantað heildstæða
skráningu íslenskra tónminja og að
ekki skuli markvisst unnið í þessum
málum verður alvarlegra með hverju
misseri sem líður,“ segir Bjarki
Sveinbjörnsson, einn úr undirbún-
ingshópnum. „Þeim einstaklingum
fækkar sem þekkja af eigin reynslu
þá byltingu sem varð á öllum sviðum
íslensks tónlistarlífs á 20. öld og má
fullyrða að ómetanleg verðmæti hafi
þegar glatast vegna þess að meðvit-
und skorti um gildi þeirra eða ekki
var kannað hvort eða hvar mætti
varðveita þau. Enn í dag eru að glat-
ast mikilvægar upplýsingar um þessa
sögu og eru til alvarleg dæmi um slíkt
frá allra síðustu árum.“
Fyrir Alþingi liggur nú þingsálykt-
unartillaga um stofnun Tónminjaset-
urs, en í rúmt ár hefur hópur manna
frá Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands,
fyrirtækjunum Músík og sögu ehf. og
Hólmaröst ehf. haldið fjölda funda
um stofnun Tónminjaseturs Íslands
og kynnt hugmyndina. Fjárveitinga-
nefnd alþingis hefur veitt stofnun set-
ursins fjárframlag að upphæð 7 millj-
ónir kr. á fjárlögum yfirstandandi árs
og auk þess hafa ýmis fyrirtæki og
einstaklingar gefið loforð um fjár-
framlag í formi styrkja og stofnfjár,
að sögn Bjarka.
Stofnfund-
ur um Tón-
minjasetur
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík • Sími 533 3331
24x30 cm kr. 700
24x30 svart kr. 400
30x40 cm kr. 900
59x66 cm kr. 1.800
50x70 cm kr. 1.800
gildir til 22. febr.
40x50 cm kr. 300
18x24 cm kr. 100
15x21 cm kr. 100
30x40 cm kr. 300
Margar gerðir
og stærðir
kr. 200-400
Íslensk grafík
20-50% afsláttur
Speglar 20% afsláttur
Opið kl. 9-18 - laugardag kl. 10-16