Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 74
74 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Frábær ævintýra og spennumynd fyrir alla fjölskylduna. Sýnd kl. 2, 4 og 6. Búðu þig undir D-daginn 28. febrúar Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10.20. Frábær svört kómedía með stórleikurunum Jack Nicholson og Kathy Bates sem bæði fengu tilnefningar til Óskarsverðlauanna í ár fyrir leik sinn í myndinni. Hefur þú einhvern tímann átt vin sem aðeins þú gast séð og heyrt? Sýnd kl. 2, 4 og 6. Miðaverð 400 kr Tilnefningar til Óskarsverðlauna: Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson. Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2 Miðasala opnar kl. 13.30 HUGSAÐU STÓRT Sýnd kl. 1.40, 3.45 og 5.50. Búðu þig undir D-daginn 28. febrúar Síðustu sýningar sýnd kl. 10.10. B.i.12. Frábær ævintýra og spennumynd fyrir alla fjölskylduna. SV. MBL HK DV Kvikmyndir.com 13 Tilnefningar til Óskars-verðlaunaþ. á. m. besta mynd Sýnd kl. 1.40, 3,45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12. Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal. 400 kr. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16 ára. Hefur þú einhvern tímann átt vin sem aðeins þú gast séð og heyrt? Stórskemmtileg teiknimynd eftir frábærri sögu Astrid Lindgren. Tveir stórhættulegir njósnarar eru að leita að hættulegasta vopni veraldar. Njósnari gegn njósnara í einni svölustu mynd ársins! Miðaverð 400 kr. Sýnd kl. 8. B.i.16 Eingöngu sýnd í LÚXUSSAL kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 12. kl. 2. Tilnefningar til Óskarsverðlauna þ. á. m. besta mynd Kl. 2 og 8. Bi. 12. ÞEIR, sem hafa fylgst með kynn- ingarþáttunum um Söngvakeppni Sjónvarpsins að undanförnu ættu að vera farnir að kannast við ein- hver laganna. Lögin ellefu, sem keppast um að vera fulltrúi Íslands í Evróvisjón í ár, hafa ennfremur verið spiluð á Rás 2 og þættirnir endurfluttir. Að baki hverju lagi stendur a.m.k. einn höfundur og verða þeir kynntir nánar hér. Lögin verða öll flutt á hátíð í Háskólabíói í kvöld og velur þjóðin hver höfund- anna fær lag sitt til Lettlands í maí. Allt Höfundur lagsins er Höskuldur Örn Lárusson en hann samdi text- ann ásamt bróður sínum Agli. Hann er frá Hellu á Rangárvöllum og spilaði fyrir fáum árum í hljóm- sveitinni Spoon ásamt Emilíönu Torrini. Tangó Ragnheiður Eiríksdóttir samdi þetta lag, sem hún flytur sjálf, en textinn er eftir Þorkel S. Sím- onarson. Hún er þekkt tónlist- arkona og dagskrárgerðarmaður. Hún hefur verið í mörgum hljóm- sveitum um dagana en er oftast kennd við Unun. Fyrst kom Heiða, eins og hún er jafnan kölluð, fram með hljómsveitinni Candyman í hljómsveitarkeppni í Húsafelli árið 1987. Mig dreymdi lítinn draum Hreimur Örn Heimisson, söngv- ari Lands og sona, flytur þetta lag Friðriks Karlssonar, sem einnig samdi texta. Friðrik er þekktur tónlistarmaður, ekki síst fyrir veru sína í Mezzoforte, en hann er bú- settur í Englandi. Hann hefur tvisv- ar unnið forkeppni. Lagið „Nei eða já“ náði 7. sætinu og „Nætur“ 12. sæti í Evróvisjón ytra. Skyldi Frið- rik fá þriðja tækifærið? Sá þig Yngstu höfundarnir í keppninni eru þeir Albert G. Jónsson og Krist- inn Sturluson. Þeir eru báðir 24 ára gamlir, hafa þekkst frá fornu fari. Lag þeirra „Flying Over“, sem er á rómatísku nótunum, hljómaði títt í útvarpi árið 1997, þannig að strák- arnir byrjuðu snemma. Albert og Kristinn reka jafnframt saman hjóðverið Stúdíó Ölur. Þórey Heið- dal, gömul vinkona strákanna og góður samstarfsmaður, syngur lag- ið. Ást á skítugum skóm/ Hvar sem ég enda Karl O. Olgeirsson er höfundur tveggja laga í keppninni. Rúnar Júlíusson syngur „Ást á skítugum skónum“ og Þóra Gísladóttir „Hvar sem ég enda,“ við texta Braga Valdimars Skúlasonar. Karl hefur starfað við tónlistina síðan hann hætti í menntaskóla. Hann er í hinni vinsælu hljómsveit Millj- ónamæringunum og hefur víða komið við innan tónlistargeirans m.a. unnið tónlist fyrir leikhús, út- varp og sjónvarp. Segðu mér allt Ein vinsælasta söngkona lands- ins, Birgitta Haukdal, syngur þetta lag Hallgríms Óskarssonar, en text- ann sömdu þau í sameiningu. Hall- grímur er verkfræðingur og starf- ar sem ráðgjafi í sínu fagi bæði innan lands sem utan. Eurovísa Rokksveitina Botnleðju þarf vart að kynna. Sveitina skipa Haraldur Freyr Gíslason, Heiðar Örn Krist- jánsson og Ragnar Páll Steinsson. Þeir hafa mikinn áhuga á að kom- ast til Lettlands í vor og er Euro- vísa þeirra framlag til að rokka upp Evróvisjón. Þú og ég (er ég anda) Ingólfur Guðjónsson og Stefán Hilmarsson sömdu þetta lag saman, sem Jóhanna Vigdís Arnardóttir flytur, en Stefán á textann. Stefán er þekktur sem söngvari Sálarinnar hans Jóns míns. Ing- ólfur hefur einnig starfað í tónlist- arbransanum til margra ára en hann og Stefán voru lengi vel í sveitinni Pláhnetunni og hafa samið mörg lög saman. Engu þurfum að tapa Höfundurinn Einar Örn Jónsson býr í Reykjavík en er uppalinn á Blönduósi þar sem hann stundaði tónlistarnám sem barn og ungling- ur. Þekktastur er hann fyrir að vera í hljómsveitinni Í svörtum föt- um. Regína Ósk Óskarsdóttir og Hjalti Jónsson flytja lagið. Með þér Hjördís Elín Lárusdóttir og Guð- rún Árný Karlsdóttir flytja þetta lag Sveins Rúnars Sigurðssonar. Sveinn Rúnar er Garðbæingur með klassískan tónlistarferil að baki. Hann stundar nú nám við Háskóla Íslands. Í nótt Færeyska söngkonan Eivör Páls- dóttir syngur lag Ingva Þórs Kormákssonar við texta Friðriks Erlingssonar. Höfundurinn er starfandi bókasafnsfræðingur, reyndar tónlistarmaður frá unga aldri og þekktur lagahöfundur. Ingvi Þór Kormáksson er enn- fremur í hljómsveitinni JJ Soul Band. Sögur Ingunn Gylfadóttir syngur þetta lag, sem hún samdi ásamt eigin- manninum Tómasi Hermannssyni, en textinn er eignaður Sjón. Þau hafa í tvígang átt lag eða lög í for- keppninni. Ingunn hefur m.a. gefið út plötuna Krakkar á krossgötum. Nú Lagið varð til í samvinnu hjóna líkt og hér að ofan. Lagið samdi Grétar Örvarsson, þekktur fyrir veru sína í hljómsveitinni Stjórn- inni, en eiginkona hans Ingibjörg Gunnarsdóttir er höfundur texta. Margir muna eftir því þegar Grétar söng „Eitt lag enn“ ásamt Sigríði Beinteinsdóttur í Evróvisjón árið 1990 og höfnuðu þau í 4. sæti sem er næstbesti árangur Íslands. Ferrari Lag og texta samdi Páll Torfi Ön- undarson en Ragnheiður Gröndal flytur. Páll Torfi er yfirlæknir blóð- meinafræðideildar Landspítala – háskólasjúkrahúss og dósent við læknadeild Háskóla Íslands. Hann er menntaður á klassískan gítar og spilaði ungur í hljómsveitinni Diabolus in musica þegar hann stundaði nám við MH. U N D A N K E P P N I E V R Ó V I S J Ó N – S Ö N G V A K E P P N I S J Ó N V A R P S I N S 2 0 0 3 Páll Torfi Önundarson Einar Örn Jónsson Ingvi Þór Kormáksson Grétar Örvarsson Sveinn Rúnar Sigurðsson Ingunn Gylfadóttir Stefán Hilmarsson Hver er höfundurinn? Höskuldur Örn Lárusson Ragnheiður Eiríksdóttir Friðrik Karlsson Hallgrímur Óskarsson Botnleðja Albert G. Jónsson og Kristinn Sturluson. Karl Olgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.