Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 12
SKÚLI Eggert Þórðarson, skattrannsóknarstjóri ríkisins, vísar á bug ásökunum sem fram koma í andmælum við skýrslu embættisins um rannsókn á skattskilum Jóns Ólafssonar, um óeðlilega málsmeðferð og brot á lögum við rannsókn málsins. Skattrannsóknarstjóri ríkisins Vísar ásökunum í andmælabréfum á bug „Þær staðhæfingar sem koma fram hjá talsmanni Jóns Ólafs- sonar um að embættið hafi ekki starfað eftir lagafyrirmælum eru ekki réttar,“ segir Skúli Eggert. Hann vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. FRÉTTIR 12 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI hefur ekki sett svokall- aða CFC-löggjöf (Controled For- eign Company), en slíka löggjöf er víða að finna erlendis. Þessi löggjöf fjallar um skattalega meðferð er- lendra félaga sem eru í eigu inn- lendra aðila. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur fjármála- ráðuneytið skoðað kosti þess að setja slíka löggjöf, en engar tillögur hafa verið settar fram í þeim efnum. CFC-löggjöf er vel þekkt löggjöf í skattarétti. Samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins er ekki um flókna löggjöf að ræða. CFC-löggjöf þýðir t.d. að ef Jón Jónsson á eignarhaldsfélag í útlönd- um þar sem skattar eru lágir (í svo- kallaðri skattaparadís) og yfir 70% af tekjum félagsins eru fjármagns- tekjur er litið svo á að allar tekjur félagsins séu jafnframt tekjur Jóns Jónssonar og skattlagðar sem slík- ar. Jón Ólafsson, stjórnarformaður Norðurljósa, seldi Skífuna 1997 og fjárfesti fyrir söluhagnaðinn í eign- arhaldsfélagi í Lúxemborg. Þetta félag hefur ekki greitt skatt af fjár- magnstekjum. „Ef menn vilja reyna að stoppa svona þá verður skatt- greiðandinn að vita að þetta sé bannað og til að vita að þetta sé bannað finnst mér ótækt að það standi ekki í lögum, líkt og er víða erlendis,“ sagði sérfróður heimild- armaður Morgunblaðsins. Erfitt að frysta eignir á þessu stigi Íslendingar hafa gert tvísköttun- arsamninga við margar þjóðir, en þessir samningar gera ráð fyrir gagnkvæmri upplýsingarskyldu skattyfirvalda. Það fer síðan eftir öðrum samningum sem löndin hafa gert hvernig farið er með mál þar sem um hugsanlega lögsókn er að ræða vegna skattamála. Þannig er hugsanlegt að bresk yfirvöld aðstoði íslensk yfirvöld við að innheimta skattaskuld manns sem býr í Bret- landi en skuldar skatta á Íslandi. Grundvallaratriði er þó í máli Jóns Ólafssonar, að hann hefur ekki verið dæmdur fyrir brot á skattalöggjöf- inni og því liggur ekki fyrir hvort einhver brot hafi verið framin. Á þessu stigi er því mjög hæpið að hægt sé t.d. að frysta eignir Jóns Ólafssonar erlendis vegna ásakana sem fram hafa komið í skýrslu skattrannsóknarstjóra um skatta- mál Jóns. Heimilt að endurfjárfesta söluhagnað Stærsta einstaka upphæðin sem skattrannsóknarstjóri gerir athuga- semd við í skýrslu um skattamál Jóns Ólafssonar er sala Jóns á Skíf- unni og meðferð söluhagnaðarins. Ágreiningur er milli Jóns og skatt- rannsóknarstjóra um hvert hafi ver- ið eðlilegt söluverðmæti Skífunnar. Lögfræðingur sem Morgunblaðið ræddi við í gær bendir á að á þess- um tíma hafi verið heimilt að endur- fjárfesta fyrir söluhagnaðinn í er- lendu eða íslensku félagi án þess að greiða skatt af hagnaðinum. Rík- isskattstjóri hafi m.a. sent frá sér bréf þar sem hann segi að heimilt hafi verið að endurfjárfesta í ís- lensku eða erlendu eignarhalds- félagi. Reglurnar hafi því verið al- veg skýrar hvað þetta varðar. Fjölmargir fjárfestar hafi notfært sér þetta á þessum tíma. Skattalega skipti því í sjálfu sér engu máli hvert söluverðmæti Skíf- unnar var, Jóni var heimilt að end- urfjárfesta fyrir alla upphæðina, hvort sem hún var 3 milljarðar eða 300 milljónir, án þess að greiða skatta af upphæðinni. Lögfræðingurinn segir að ef nið- urstaða þessa máls verði sú að Jóni verði gert að greiða skatt af tæp- lega 1.200 milljónum króna vegna þess að hann hafi ekki endurfjárfest fyrir allan söluhagnaðinn verði að líta svo á að honum og ráðgjöfum hans hafi yfirsést sú leið vegna þess að það hafi verið fullkomlega löglegt að endurfjárfesta fyrir söluhagnað án þess að greiða af honum skatt. Þegar fjárfest er í eignarhalds- félögum í Lúxemborg þarf viðkom- andi fjárfestir að greiða 1% stimp- ilgjald af upphæðinni. Ef fjárfest er fyrir 3 milljarða þarf að greiða 30 milljónir í stimpilgjald, en ef fjárfest er fyrir 300 milljónir eru 3 milljónir greiddar í stimpilgjald. Morgunblaðið/Golli Fátækleg löggjöf á Íslandi um erlend eignarhaldsfélög Íslensk löggjöf er fátækleg hvað varðar starfsemi erlendra eignarhaldsfélaga sem eru í eigu íslenskra aðila. Hér hefur ekki verið sett svokölluð CFC-löggjöf, en hana er víða að finna erlendis. Í SKÝRSLU skattrannsóknarstjóra um skatt- skil Jóns Ólafssonar & Co.sf. segir að háttsemi Jóns Ólafssonar og Símonar Á. Gunnarssonar, löggilts endurskoðanda, í tengslum við sölu á eignarhlut félagsins í Fjölmiðlun hf. til Inuit Enterprises kunni að brjóta gegn ákvæðum laga, m.a. um bókhald, ársreikninga, laga um tekju- og eignarskatt og almennra hegningar- laga. Segir að háttsemin kunni að varða þá refs- ingu skv. 5. mgr., sbr. 1. mgr. 107. greinar laga nr. 75/1981 um tekju- og eignarskatt og 262. grein almennra hegningarlaga. Umrædd grein hegningarlaganna er svo- hljóðandi: „Hver sem af ásetningi eða stór- felldu gáleysi gerist sekur um meiri háttar brot gegn 1., 2. eða 5. mgr. 107. gr. laga um tekju- skatt og eignarskatt, sbr. og 2. mgr. 22. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, 1., 2. eða 7. mgr. 30. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. og 11. gr. laga um tryggingagjald, og gegn 1. eða 6. mgr. 40. gr. laga um virðisaukaskatt skal sæta fangelsi allt að 6 árum. Heimilt er að dæma fésekt að auki samkvæmt þeim ákvæð- um skattalaga er fyrr greinir. Sömu refsingu skal sá sæta sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi gerist sekur um meiri háttar brot gegn 3. mgr. 30. gr. laga um stað- greiðslu opinberra gjalda, 2. mgr. 40. gr. laga um virðisaukaskatt, 37. og 38. gr., sbr. 36. gr., laga um bókhald eða 83.–85. gr., sbr. 82. gr., laga um ársreikninga, þar á meðal til þess að leyna auðgunarbroti sínu eða annarra. Verknaður telst meiri háttar brot skv. 1. og 2. mgr. þessarar greinar ef brotið lýtur að veru- legum fjárhæðum, ef verknaður er framinn með sérstaklega vítaverðum hætti eða við að- stæður sem auka mjög saknæmi brotsins, svo og ef maður, sem til refsingar skal dæma fyrir eitthvert þeirra brota sem getur í 1. eða 2. mgr., hefur áður verið dæmdur sekur fyrir sams kon- ar brot eða eitthvert annað brot sem undir þau ákvæði fellur.“ Fésekt allt að tífaldri skattfjárhæð Tilvitnaðar málsgreinar í 107. gr. laga um tekju- og eignarskatt er svohljóðandi: 1. málsgrein: „Skýri skattskyldur maður af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi rangt eða villandi frá einhverju því sem máli skiptir um tekjuskatt sinn eða eignarskatt skal hann greiða fésekt allt að tífaldri skattfjárhæð af þeim skattstofni sem undan var dreginn og aldrei lægri fésekt en nemur tvöfaldri skatt- fjárhæðinni. Skattur af álagi skv. 106. gr. dregst frá sektarfjárhæð. Stórfellt brot gegn ákvæði þessu varðar við 1. mgr. 262. gr. al- mennra hegningarlaga.“ 5. málsgrein: „ Hver sá sem af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi lætur skattyfirvöldum í té rangar eða villandi upplýsingar eða gögn varðandi skattframtöl annarra aðila eða aðstoð- ar við ranga eða villandi skýrslugjöf til skatt- yfirvalda skal sæta þeirri refsingu er segir í 1. mgr. þessarar greinar.“ Rangfærsla bókhalds Í skýrslunni segir að telja verði fullvíst að Jóni Ólafssyni og Símoni Á. Gunnarssyni hafi mátt vera ljóst að rangt var að tilgreina um- rædda sölu í bókhaldi og skattframtali skatt- aðilans gjaldárið 1999, vegna rekstrarársins 1998 og að söluverð það sem þeir tilgreindu sem söluverð eignarhlutans í Fjölmiðlun hf. væri fjarri raunverulegu söluverðmæti eignar- hlutans í félaginu. Þeir hafi því af ásetningi rangfært bókhald og skattframtal að því er best verði séð, í því skyni að blekkja skattyfir- völd og koma skattaðilanum hjá skatt- greiðslum. Telja verði að háttsemi þeirra kunni að svara til verknaðarlýsinga 3. og 5. töluliðar 1. máls- greinar, sbr. og 2. mgr. 37. greinar og eftir at- vikum 39. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald. Tilvitnaðar málsgreinar í 37. grein eru svo- hljóðandi: „Svofelld háttsemi bókhaldsskylds manns eða fyrirsvarsmanns lögaðila telst ætíð meiri háttar brot gegn lögum:[...] 3. Ef hann rangfærir bókhald eða bókhalds- gögn, býr til gögn sem ekki eiga sér stoð í við- skiptum við aðra aðila, vantelur tekjur kerf- isbundið eða hagar bókhaldi með öðrum hætti þannig að gefi ranga mynd af viðskiptum og notkun fjármuna, enda varði brotið ekki við 158. gr. almennra hegningarlaga.[...] 5. Ef hann lætur undir höfuð leggjast að semja ársreikning í samræmi við niðurstöður bókhalds, eða ársreikningur hefur ekki að geyma nauðsynlega reikninga og skýringar eða er rangfærður að öllu leyti eða hluta, enda varði brotið ekki við 158. gr. almennra hegningar- laga.[...] Sama á við ef maður aðstoðar bókhaldsskyld- an mann eða fyrirsvarsmann lögaðila við þau brot sem lýst er í 1.–5. tölul. eða stuðlar að þeim á annan hátt.“ Getur varðað við ákvæði laga um ársreikninga Því er einnig haldið fram í skýrslunni að hátt- semin kunni að svara til verknaðarlýsinga í 2. tl. 1. mgr., sbr. og 2. mgr. 83. gr. og 2. og 3. tl. 85. gr. og eftir atvikum 86. gr. laga nr. 144/1994 um ársreikninga. Umrædd ákvæði eru svo- hljóðandi: (83.gr.) „Svofelld háttsemi stjórnarmanna eða framkvæmdastjóra félaga skv. 1. gr. telst ætíð meiri háttar brot gegn þeim: [...] 2. Ef þeir rangfæra ársreikning, samstæðu- reikning eða einstaka hluta þeirra, byggja ekki samningu þeirra á niðurstöðu bókhalds eða láta rangar eða villandi skýringar fylgja, enda varði brotið ekki við 158. gr. almennra hegningar- laga. Sama á við ef maður aðstoðar stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra félaga við þau brot sem lýst er í þessari grein eða stuðlar að þeim á ann- an hátt.“ (85. gr.) „Endurskoðendur eða skoðunar- menn gerast sekir um refsiverð brot gegn lög- um þessum með athöfnum eða athafnaleysi því sem hér greinir: [...] 2. Ef þeir haga störfum sínum andstætt ákvæðum laga þessara eða í ósamræmi við góða endurskoðunarvenju. 3. Ef þeir með áritun sinni gefa rangar eða villandi upplýsingar eða láta hjá líða að geta um mikilsverð atriði er snerta rekstrarafkomu eða efnahag félagsins.“ (86. gr.) „Tilraun til brota og hlutdeild í brot- um á lögum þessum, önnur en sú sem lýst er í 83. og 84. gr. laga þessara, er refsiverð eftir því sem segir í III. kafla almennra hegningarlaga.“ Háttsemi kann að varða við 158. grein alm. hegningarlaga Loks segir að telja verði að háttsemi Jóns og Símonar kunni að varða áðurnefnda 262 gr. al- mennra hegningarlaga og 158. grein sömu laga, sem er svohljóðandi: „Ef maður tilgreinir eitthvað ranglega í op- inberu skjali eða í bók eða í annars konar skjöl- um eða bókum, sem honum er skylt að gefa út eða rita, eða maður tilgreinir eitthvað ranglega í skjali eða bók, sem hann gefur út eða heldur í starfi, sem opinbera löggildingu þarf til að rækja, og það er gert til þess að blekkja með því í lögskiptum, þá varðar það fangelsi allt að 3 ár- um, eða sektum, ef málsbætur eru. Sömu refs- ingu varðar það að nota þess háttar röng gögn í lögskiptum, sem væru þau rétt að efni til. Ákvæði 1. og 2. mgr. eiga einnig við um rang- færslu og notkun upplýsinga og gagna sem geymd eru á tölvutæku formi.“ Rannsóknarskýrsla skattrannsóknarstjóra um bókhald og skattskil Jóns Ólafssonar & Co. sf. Meint brot geta varðað fésekt- um og fangelsi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.