Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 44. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 mbl.is
Stórt hótel
verðlaunað
Gistiþjónusta varnarliðsins
endurnýjuð Suðurnes 29
Hver sigrar í
söngvakeppni?
Kynning á höfundum laganna fimmtán
sem keppa í kvöld Fólk 74
Kvennablöð
og kvenleiki
Greinar um tísku og kynlíf áber-
andi í glanstímaritum Lesbók 4
ÆRIN Dolly,
fyrsta spendýrið
sem var einræktað
út frá fullorðnu
dýri, er dauð. Hún
var aflífuð eftir að
hún var greind
með ólæknandi
lungnasjúkdóm,
eftir því sem skap-
arar hennar við Roslyn-stofnunina
í Skotlandi greindu frá í gær.
Ákvörðunin um að binda enda á
sex ára líf Dollyar var tekin eftir að
dýralæknisrannsókn staðfesti sjúk-
dómsgreininguna. Dr. Harry Griff-
in, talsmaður Roslyn-stofnunar-
innar, sagði að ær geti orðið 11 til
12 ára gamlar, en algengt sé að
lungnasjúkdómar hrjái þær á efri
árum, einkum og sér í lagi kindur
sem eyða ævinni innandyra.
Dolly, sem var einræktuð út frá
sex vetra gamalli kind, kom í heim-
inn hinn 5. júlí 1996 og það vakti
heimsathygli þegar tilkynnt var
um tilvist hennar og hvernig hún
varð til, hinn 23. febrúar 1997. Til-
urð Dollyar ýtti undir vangaveltur
um að til þess kæmi að mögulegt
yrði að einrækta mann.
Árið 1999 uppgötvuðu vísinda-
mennirnir sem önnuðust Dolly að
frumurnar í líkama hennar væru
farnar að taka á sig ellimerki fyrir
aldur fram.
Til stendur að Dolly verði upp-
stoppuð til sýnis í þjóðminjasafni
Skotlands í Edinborg.
Lundúnum. AP.
Dolly
Einræktaða ærin Dolly dauð
BÆTUR til einstaklinga vegna innbrota í
húsnæði þeirra voru 75% hærri árið 2002 en
þau voru árið 2000. Á sama tíma hækkuðu
útgreiddar bætur til
fyrirtækja og stofnana
vegna innbrota í hús-
næði um 50%. Alls
hækkaði kostnaður
tryggingafélaganna
vegna innbrota í hús-
næði um 111 milljónir á
þessu tímabili sem er
rúmlega 60% hækkun.
Verðbólga á þessu
tímabili var um 15%.
Þessar upplýsingar
koma frá trygginga-
félögunum Sjóvá-Al-
mennum, Trygginga-
miðstöðinni og Vá-
tryggingafélagi Íslands (VÍS). Húsnæði í
eigu einstaklinga er yfirleitt íbúðarhúsnæði
og húsnæði í eigu fyrirtækja og stofnana er
í langflestum tilfellum atvinnuhúsnæði. Alls
námu tryggingabætur vegna innbrota í
húsnæði um 300 milljónum í fyrra og skipt-
ist nokkurn veginn jafnt á milli íbúðarhús-
næðis og atvinnuhúsnæðis.
Árni Guðmundsson, forstöðumaður ör-
yggisgæslusviðs hjá Securitas, segir að sala
fyrirtækisins á þjófavarnarbúnaði til heim-
ila hafi tvöfaldast á síðustu þremur árum.
Auknar
trygginga-
bætur vegna
innbrota
AÐ SÖGN Colins Powells, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
verður deilan um afvopnun Íraka
til lykta leidd „innan vikna“. Lét
hann þessi orð falla í viðtali á sjón-
varpsstöðinni CNN í gærkvöldi, að
loknum fundi öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna þar sem yfirmenn
vopnaeftirlits SÞ fluttu því nýjustu
áfangaskýrslu sína um framgang
eftirlitsstarfs í Írak. Ráðið reynd-
ist enn klofið í afstöðunni til þess
hvort heimila skuli hernaðaríhlut-
un til að tryggja að Írakar ráði
ekki yfir gereyðingarvopnum.
Í spennuþrungnu andrúmslofti
tjáði Hans Blix, oddviti vopnaeft-
irlitsmanna, öryggisráðinu að
fulltrúar Íraksstjórnar hefðu
reynzt samstarfsfúsari en áður, en
hún hefði enn ekki gert grein fyrir
gereyðingarvopnaeign sinni.
Skýrslur Blix og Mohamed El-
Baradeis, framkvæmdastjóra Al-
þjóða kjarnorkumálastofnunarinn-
ar, skildu forysturíki heimsins,
sem hafa neitunarvald í öryggis-
ráðinu, eftir í skotgröfum með og á
móti beitingu hervalds.
Af þjóðunum fimm, sem hafa
neitunarvald í öryggisráðinu, telja
Bandaríkjamenn og Bretar full-
reynt að engum tilgangi þjóni að
framlengja frekar veru vopnaeft-
irlitsmanna í Írak. Til að fá þeim
markmiðum framgengt sem kveðið
sé á um í fyrri ályktunum SÞ um
Íraksmál dugi ekkert annað en
hernaðaríhlutun. Frakkar, Rússar
og Kínverjar telja aftur á móti að
starf vopnaeftirlitsmanna sé að
skila árangri; það starf beri að
styrkja og vopnaeftirlitsliðið fái
rýmri tíma til að sinna hlutverki
sínu.
Í Washington lýsti George W.
Bush Bandaríkjaforseti yfir
óánægju með umræðuna í örygg-
isráðinu. „Það stafar ógn af Sadd-
am Hussein, og þess vegna verður
hann afvopnaður, með einum eða
öðrum hætti,“ sagði hann. Powell
utanríkisráðherra hvatti öryggis-
ráðið til að hverfa ekki aðgerða-
laust frá „áframhaldandi mótþróa
[Íraka] gegn því að uppfylla kröfur
SÞ og andstöðu til samstarfs“. „Í
allra næstu framtíð“ muni ráðið að
hans sögn þurfa að spyrja sig þess,
hvort „tími sé kominn til að láta á
þær alvarlegu afleiðingar reyna
sem getið er um í ályktun nr.
1441“.
Í ályktun 1441, sem öryggisráð-
ið samþykkti 8. nóvember sl., er
íröskum stjórnvöldum gefið „loka-
tækifæri“ til að afvopnast með
friðsamlegum hætti.
Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði Íraka hafa verið
staðna að lygum og feluleik með
gereyðingarvopn sín og með þessu
háttalagi sínu hafi þeir grafið und-
an trúverðugleika Sameinuðu
þjóðanna.
Írakar segjast samstarfsfúsir
Tareq Aziz, varaforsætisráð-
herra Íraks, gekk á fund Jóhann-
esar Páls II páfa í Páfagarði í gær.
Aziz tjáði fréttamönnum að Íraks-
stjórn væri öll af vilja gerð til að
sýna vopnaeftirlitsmönnum SÞ all-
an þann samstarfsvilja sem krafizt
væri. Eftir fundinn með páfa sagði
Aziz, sem er kristinn, að hann
hefði fært trúarleiðtoganum orð-
sendingu frá Saddam Hussein
Íraksforseta, þar sem segði „að
forsetinn og íraska þjóðin kunni að
meta þá grundvallarsiðferðilegu
afstöðu Páfagarðs að hafna stríði
og að þetta stríð [sem hugsanlega
er í uppsiglingu í Írak] sé ósið-
legt“.
Enn óeining í öryggis-
ráði SÞ um aðgerðir
Powell ítrek-
ar að brýnt
sé að leiða
Íraksmálið
fljótt til lykta
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra
sér engin vandkvæði á því að hægt verði að
nota milljarðinn sem höfuðborgarsvæðinu
var úthlutað til að flýta flutningi Hring-
brautar.
„Ég tel að þessi leið, frá gatnamótum
Kringlumýrarbrautar og vestur í bæ, sé
brýnasta verkið innan marka höfuðborgar-
innar fyrir utan þær framkvæmdir sem eru
núna að fara af stað,“ sagði Halldór, sem
síðustu daga hefur átt viðræður um þetta
efni við Vegagerðina og Reykjavíkurborg.
Áætlað er að Hringbrautin færist suður-
fyrir Umferðarmiðstöðina, þannig að hún
liggi fjær Landspítala.
Engin vand-
kvæði á að flýta
færslu Hring-
brautar
Framkvæmdir/6
VEGFARANDI í Bremen í Þýzkalandi gengur hjá
glugga raftækjabúðar á meðan á beinni útsend-
ingu frá fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
stóð í New York í gær. Á skjánum sést Hans Blix,
oddviti vopnaeftirlitsliðs SÞ í Írak, flytja ráðinu
skýrslu sína um framgang eftirlitsstarfsins.
AP
Blix í beinni útsendingu
Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP.
Blix segir/20
Frakkar/22
♦ ♦ ♦