Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 20
ERLENT
20 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
UM 150.000 manns tóku á föstudag
þátt í mótmælum í Melbourne í
Ástralíu vegna hugsanlegs stríðs
gegn Írak. „Ekkert stríð“, stóð á
efnum Íraks. Gert er ráð fyrir að
mikill fjöldi fólks taki þátt í sams
konar mótmælum víða um heim í
dag.
spjöldum sem borin voru í göng-
unni og ríkisstjórn Ástralíu var
harðlega gagnrýnd fyrir að styðja
stefnu Bandaríkjamanna í mál-
AP
Mótmæli í Melbourne
RITSTJÓRI Al-
Ahram, helsta mál-
gagns ríkisstjórnar
Egyptalands, sakaði
í gær stjórn Sadd-
ams Husseins, for-
seta Íraks, um að
draga arabaríkin inn
í hvert neyðar-
ástandið á fætur
öðru og kallaði hana
„óyfirstíganlega
hindrun“ í vegi frið-
ar.
„Friðsamleg lausn
á Íraksdeilunni er
enn möguleg en
vandamálið, eða öllu
heldur hin óyfirstíg-
anlega hindrun, er
sjálf íraska forystan, ógæfa, sem
dunið hefur yfir íraskan almenn-
ing og araba alla,“ sagði í grein
ritstjórans, Ibrahims Nafies.
Nafie, sem er náinn samverka-
maður Hosnis Mubaraks Egypta-
landsforseta, var í Bandaríkjun-
um fyrir hálfum mánuði þar sem
hann átti viðræður við háttsetta
embættismenn.
„Stjórn Saddams Husseins ein-
kennist af yfirgengilegum hroka
og fáfræði og það er þessi blanda,
sem leitt hefur yfir okkur hörm-
ungar og hverja
kreppuna á fætur
annarri,“ segir Naf-
ie og nefnir einnig,
að honum hafi verið
tjáð í Bandaríkja-
ferðinni, að vafi leiki
á hollustu sumra
frammámanna í
Íraksstjórn við
Saddam Hussein.
Í stofufangelsi
„Varnarmálaráð-
herra Íraks (Sultan
Hashem Ahmad) er
samkvæmt skipun
Saddams í eins kon-
ar stofufangelsi á
heimili sínu og að-
eins dreginn fram vegna funda
þar sem nærvera hans er talin
nauðsynleg eða vegna mynda-
töku,“ sagði Nafie í leiðaranum.
Nafie kvaðst vona, að önnur
ályktun öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna myndi gefa fulltrúum
arabaríkjanna nægan tíma til að
fara til Bagdad til að reyna að fá
Saddam til fulls samstarfs við
vopnaeftirlitsmennina.
„Þessi ferð yrði sú síðasta áður
en hernaðaraðgerðir gegn Írak
hefjast.“
Saddam er
„óyfirstígan-
leg hindrun“
Málgagn Egyptalandsstjórnar fer
hörðum orðum um Íraksstjórn
Kairó. AFP.
Íraskur maður gengur
framhjá veggmynd af
Saddam í Bagdad.
MEIRIHLUTI Bandaríkjamanna er
hlynntur því, að vopnaeftirlitsmenn
Sameinuðu þjóðanna fái meiri tíma til
að sinna störfum sínum í Írak. Telur
hann það nauðsynlegt til að tryggja
stuðning öryggisráðs SÞ við hernað-
araðgerðir, verði þær taldar óhjá-
kvæmilegar. Kemur það fram í könn-
um, sem CBS News og New York
Times birtu í gær.
Í könnuninni, sem náði til 747
manna vítt og breitt um Bandaríkin,
kom einnig fram, að meirihluti lands-
manna styður stríð dugi ekki annað til
að koma Saddam Hussein Íraksfor-
seta frá völdum. Þá greinir hins vegar
mjög á um það hvort ríkisstjórn
George W. Bush forseta og þar með
Colins Powells utanríkisráðherra hafi
sýnt fram á það með sannfærandi
hætti, að ekki sé rétt að bíða með
hernaðaraðgerðir gegn Írak.
Í tölum voru niðurstöðurnar þær,
að 59% telja, að Sameinuðu þjóðunum
skuli gefinn meiri tími, og 63% vilja,
að Bandaríkjamenn hafist ekki að
nema með stuðningi bandamanna
sinna. Þá telja 56%, að Bush eigi að
bíða eftir samþykki SÞ.
Könnunin sýnir, að ánægjan með
Bush hefur minnkað. 53% eru
óánægð með frammistöðu hans í efna-
hagsmálum og 44% með frammistöðu
hans í utanríkismálum almennt. 53%
eru hins vegar sammála afstöðu hans
í Íraksmálinu.
Hlynntir því að SÞ fái meiri tíma
Washington. AFP.
LIÐSMENN vopnaeftirlits Sameinuðu þjóð-
anna hafa ekki fundið nein gereyðingarvopn í
Írak en stjórn Saddams Husseins í Bagdad hef-
ur hins vegar ekki gert grein fyrir miklum
birgðum efna- og sýklavopna sem henni á sínum
tíma var skipað að uppræta. Þetta kom fram í
skýrslu Svíans Hans Blix, yfirmanns vopnaeft-
irlitsins, sem hann flutti á fundi öryggisráðs SÞ í
gær. Blix sagði að íraskar eldflaugar, sem væru
öflugri en þeim hefði verið leyft að smíða sam-
kvæmt ákvæði í vopnahléssamningum eftir
Persaflóastríðið 1991, hefðu nú verið bannaðar.
Hann sagði að ef Írakar sýndu fullan samstarfs-
vilja yrði hægt að tryggja á skömmum tíma með
eftirliti að þeir hefðu raunverulega eytt öllu ger-
eyðingarvopnum og búnaði til framleiðslu
þeirra.
Egyptinn Mohamed ElBaradei, yfirmaður
Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA),
sagði í sinni skýrslu í gær að ekki hefðu fundist
nein merki um að Írakar væru aftur farnir að
reyna að búa til kjarnorkusprengju. Hann bætti
þó við að „ýmis mál“ væri enn verið að rannsaka
en fagnaði því að Írakar hefðu nú staðfest for-
setatilskipun sem bannaði alla framleiðslu ger-
eyðingarvopna. Hún væri „skref í rétta átt“.
Blix sagði ekki hægt að slá því föstu hvort
Írakar ættu enn gereyðingarvopn af einhverju
tagi. „Annað mál og afar mikilvægt er að ekki
hefur verið gerð grein fyrir fjölmörgum bönn-
uðum vopnum og hlutum,“ sagði hann. „Menn
mega ekki umsvifalaust slá því föstu að þau séu
til. En á hinn bóginn er heldur ekki hægt að úti-
loka að svo sé. Ef þau eru til ætti að sýna þau svo
að hægt sé að eyða þeim.“
1.000 tonn af efnavopnum
Blix sagði að upplýsingar skorti um á að giska
þúsund tonn af efnavopnum sem vitað er að
Írakar framleiddu. Staðfest var af hálfu þáver-
andi vopnaeftirlitsmanna SÞ árið 1998 að Írakar
framleiddu VX-taugagas og áður hafði stjórn
Saddams Husseins viðurkennt að hafa gert til-
raun til að smíða kjarnorkusprengju. Blix sagði í
gær að ályktun SÞ númer 1441 hefði kveðið á
um annað og meira en að „dyrnar yrðu opnaðar“
en þar er þess krafist að Írakar afhendi gereyð-
ingarvopn sín eða sanni að þeir hafi eytt þeim.
Einnig er sagt í ályktuninni að hlíti Írakar henni
ekki muni það hafa „alvarlegar afleiðingar“.
Sagði Blix að Írakar yrðu að leggja fram trú-
verðugar sannanir fyrir því að umræddum
vopnabúnaði, þ. á m. miltisbrandi, VX-taugagasi
og langdrægum eldflaugum, hefði
verið eytt í samræmi við ályktanir
öryggisráðs SÞ, að sögn fréttavefjar
breska ríkisútvarpsins, BBC.
„Írakar verða að takast á við
þetta vandamál með afdráttarlaus-
um hætti og forðast að gera lítið úr
því,“ sagði hann. Blix tjáði sig ekki
beint um það hvort þörf væri á því
að fjölga eftirlitsmönnum en sagði
að SÞ væru nú með um 250 manna
lið í Írak, þar af 115 vopnaeftirlits-
menn.
Blix fjallaði um rannsókn, sem
gerð var á jarðvegssýnishornum frá
stöðum þar sem grunsemdir voru
um að efna- eða sýklavopn hefðu
verið framleidd. Niðurstöðurnar
virtust staðfesta yfirlýsingar Íraka um að svo
væri ekki. Eldflaugasérfræðingar á vegum SÞ
hefðu komist að þeirri niðurstöðu að ný gerð eld-
flauga sem Írakar hafa smíðað, Al Samoud 2,
væri langdrægari en hámarkið sem tilgreint
væri í ályktunum SÞ um leyfilegan vopnabúnað
Íraka. Þær gætu dregið allt að 194 kílómetra en
hámarkið er 150 kílómetrar. Hann hefði því
bannað smíði flauganna. Meiri tíma þyrfti til að
úrskurða hvort önnur gerð eld-
flauga, Al Fatah, bryti gegn
reglum SÞ.
Blix sagði að samtöl sem
fulltrúar eftirlitsins hefðu fengið
að eiga við þrjá íraska vísinda-
menn 8. og 9. febrúar hefðu
reynst „upplýsandi“ en ekki
hefði verið gefið leyfi fyrir fleiri
viðtölum með skilmálum eftir-
litsmanna. Stjórnin í Bagdad
hefur m.a. krafist þess að fulltrúi
hennar sé viðstaddur slík viðtöl
en gerði loks undantekningu
með mennina þrjá eftir mikinn,
alþjóðlegan þrýsting. „Ég vona
að þarna verði breyting á,“ sagði
Blix. „Við teljum að viðtöl sem
fara fram án þess að nokkur þriðji aðili sé við-
staddur og án þess að þau séu tekin upp myndu
vera líklegust til að bera árangur sem mark yrði
tekið á.“
Efast um túlkanir Powells
á gervihnattamyndum
Blix sagði að efast mætti um sumar af þeim
vísbendingum um brot Íraka sem Colin Powell,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lagði fram á
fundi öryggisráðsins 5. febrúar. Powell sagði
meðal annars að grunsemdir væru um að Írakar
hefðu fengið fyrirfram vitneskju um skyndi-
heimsóknir eftirlitsmanna á staði sem þeir hafa
kannað. „Við þekkjum engin dæmi um að Írakar
hafi vitað fyrirfram að eftirlitsmenn væru á leið-
inni,“ sagði Blix.
Powell sýndi öryggisráðinu á sínum tíma
gervihnattamyndir af stað, þar sem talið er að
gereyðingarvopn séu framleidd og var lest vöru-
bíla á leið frá staðnum. Taldi ráðherrann mynd-
ina sanna að Írakar hefðu fjarlægt búnaðinn áð-
ur en eftirlitsmenn komu þangað. Blix sagði að
myndirnar gætu sýnt eðlilega starfsemi og
flutninga á efni. Myndirnar hefðu ekki verið
teknar á sama tíma heldur með tveggja vikna
millibili.
Fram kom að Írakar hafa fallist á að ræða við
suður-afríska sérfræðinga en eftir að aðskiln-
aðarstjórn hvítra féll þar í landi var ákveðið að
gefa upp á bátinn tilraunir til að smíða kjarn-
orkuvopn. Hafa alþjóðlegar stofnanir staðfest
að það hafi verið gert.
Mohamed ElBaradei sagði að reynsla IAEA
hefði sýnt að hægt væri, með því að fylgja eftir
ströngu eftirliti, að sannreyna hvort verið væri
að framleiða kjarnorkuvopn, jafnvel þótt um-
rætt ríki neitaði að eiga fullt samstarf um eft-
irlitið. Hann sagði að enn væri verið að rannsaka
hvort umdeild, sérhönnuð álrör, sem Írakar létu
framleiða fyrir sig erlendis, gætu tengst tilraun-
um til að auðga úran til notkunar í sprengjur.
Áður hefur ElBaradei sagt að IAEA teldi að
skýringar Íraka stæðust en þeir segjast ætla að
nota rörin í hefðbundnar flugskeytasprengjur.
Yfirmenn vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna í Írak flytja öryggisráðinu skýrslu
Blix segir að enn
skorti upplýsing-
ar frá Írökum
Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP.
’ „Menn mega ekki um-svifalaust slá því föstu að
þau séu til. En á hinn bóg-
inn er heldur ekki hægt að
útiloka að svo sé.“ ‘
Hans Blix
SADDAM Hussein Íraksforseti gaf í gær út
forsetatilskipun þar sem bannað er að fram-
leiða efna-, sýkla- eða kjarnorkuvopn og
einnig að flytja þau inn. Íraska þingið stað-
festi þegar tilskipunina.
Saddam leggur einnig bann við því að flutt-
ur sé inn búnaður sem hægt sé að nota til
framleiðslu gereyðingarvopna. „Öll ráðu-
neyti ættu að framfylgja þessari tilskipun og
gera það sem nauðsynlegt er til að refsa þeim
sem ekki hlíta henni,“ segir í tilskipuninni.
Sameinuðu þjóðirnar hafa lengi reynt að fá
Íraka til að setja lög af þessu tagi.
Ari Fleischer, talsmaður George W. Bush
Bandaríkjaforseta, lét í ljós efasemdir um að
lögin skiptu miklu máli. „Ef ætlunin er að fá
fólk til að trúa því að Írak sé lýðræðisríki þar
sem samþykkt séu marktæk lög er það 12 ár-
um og 26.000 lítrum af miltisbrandi of seint,“
sagði Fleischer.
Banna ger-
eyðingarvopn
Bagdad. AP.