Morgunblaðið - 19.02.2003, Síða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FÁRVIÐRI Á SEYÐISFIRÐI
Rúmlega 30 einbýlishús á Seyð-
isfirði skemmdust í fárviðri í fyrri-
nótt. Björgunarsveitarmaður höf-
uðkúpubrotnaði þegar kerra fauk á
hann. Alls varð milljónatjón í fár-
viðrinu. Þakplötur rifnuðu upp, rúð-
ur brotnuðu, bílar dælduðust og tré
rifnuðu upp með rótum.
EES-starfshópar settir á fót
Þrír starfshópar verða stofnaðir
til að fara betur yfir einstaka þætti
viðræðna Evrópusambandsins og
EFTA-ríkjanna vegna aðlögunar
EES-samningsins að stækkun ESB.
Samningafundur verður haldinn í
Brussel í dag en enn er stál í stál í
viðræðunum.
Fordæma ummæli Chiracs
Talsmenn væntanlegra aðild-
arríkja Evrópusambandsins for-
dæmdu í gær ummæli Jacques
Chiracs, forseta Frakklands, sem
segir að ríkin stefni aðild sinni að
ESB í voða með því að styðja Banda-
ríkin í Íraksdeilunni.
OR flýtir framkvæmdum
Orkuveita Reykjavíkur hyggst
flýta framkvæmdum fyrir 1.200–
1.700 milljónir króna þannig að meg-
inþungi þeirra verði á þessu ári og
því næsta, en ekki 2005–6. Alls ætlar
Reykjavíkurborg að flýta fram-
kvæmdum á vegum borgarinnar og
fyrirtækja hennar fyrir þrjá millj-
arða vegna fyrirhugaðra fram-
kvæmda við Kárahnjúkavirkjun og
til að efla atvinnuástandið í landinu.
Staðfestir skuldaaukningu
Þórólfur Árnason borgarstjóri tel-
ur ekki ástæðu til að gera úttekt á
skuldaþróun borgarinnar og segir
vinnubrögð borgarinnar, m.a. í fjár-
málastjórn og áætlanagerð, um
margt til fyrirmyndar. Sjálfstæð-
ismenn segja svör Þórólfs staðfesta
að skuldir borgarinnar hafi aukist
mikið.
Skákkennslu í alla skóla
Stórmót Hróksins var sett á Kjar-
valsstöðum í gær að viðstöddu fjöl-
menni. Vill Hrafn Jökulsson, forseti
Hróksins, að skák verði sett á nám-
skrá grunnskólanna. Segir að skákin
sé góð til þjálfunar, skerpi rök-
hugsun og efli sköpunargáfuna.
FULLBÚINN JEPPI Á VIÐRÁÐANLEGU VERÐI
Þjónustuaðili fyrir öryggis- og
þjófavarnarbúnað frá DIRECTED
VIPER á Íslandi
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI
SÍMI 555 6025 • www.kia.is
K IA ÍSLAND
Bílar sem borga sig!
Alhliða
lausn í
bílafjármögnun
Suðurlandsbraut 22 540 1500
www.lysing. is
JEPPAHORNIÐ
MAÐUR OG BÍLL
FORMÚLAN
GLOBAL EXTREME
MEÐ GRIND/ÁN GRINDAR
HAUKUR INGI OG BIMMINN
GRAND
VITARA XL-7
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Viðskipti 13/15 Minningar 32/38
Erlent 16/18 Bréf 40
Höfuðborgin 19 Kirkjustarf 41
Akureyri 20 Dagbók 42/43
Suðurnes 21 Sport 44/47
Landið 22 Fólk 48/53
Listir 23/25 Bíó 50/53
Umræðan 26/27 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
HJÓNIN Þórunn Egilsdóttir og
Friðbjörn Haukur Guðmundsson
lentu í miklum háska þegar hvass-
viðri lyfti bíl þeirra upp að aftan og
sneri honum þegar þau óku yfir
Vopnafjarðarheiði og út á Bustar-
fellsbrúnir á mánudagskvöld. Hjón-
in þorðu ekki að halda til í bílnum
sem var aðeins um 40–50 metra frá
fjallsbrúninni og hímdu úti, blaut og
köld, í rúma klukkustund á meðan
veðrið gekk yfir.
Þórunn og Friðbjörn Haukur
voru á leið heim að Hauksstöðum
frá Akureyri. „Við vissum að veð-
urspáin var ekki góð en það var
ekkert slæmt veður, hvorki á Mý-
vatns- eða Möðrudalsöræfum né
Vopnafjarðarheiði. Þegar við kom-
um í Mývatnssveit stóð og á skiltinu
þar að það væru 12 metrar á sek-
úndu á Möðrudalsöræfum,“ sagði
Þórunn við Morgunblaðið í gær.
Óttuðumst að fjúka
af bjargbrúninni
„Svo komum við út að fellsbrún-
inni hjá útsýnisskífunni og þá kom
alveg rosaleg vindhviða og bíllinn
lyftist upp að aftan. Maðurinn minn
náði að keyra út af veginum og upp
fyrir hann og snúa bílnum upp í
vindinn og keyra svo upp í skafl.
Svo sátum við dágóða stund í bíln-
um. Þegar á leið fór bíllinn að hreyf-
ast það mikið að við þorðum ekki að
vera lengur í honum af því að bjarg-
brúnin var bara rétt hjá. Við sáum
að ef bíllinn fyki af stað þá næðum
við ekki bæði að stökkva út úr hon-
um.“
Þórunn og Friðbjörn Haukur
bundu sig snöggvast saman með
reipi og fóru út úr bílnum. „Við ætl-
uðum að skríða norður, þar sem við
vissum að við kæmumst í skjól, og
lögðum aðeins af stað, en komumst
ekki áfram – vindurinn bara tók
okkur. Við fórum því aftur að bíln-
um og vorum í hálfgerðu skjóli af
honum, en pössuðum okkur á því að
vera ekki í þannig stöðu að hann
færi á okkur ef hann færi af stað.“
Hjónin dvöldu úti í um klukku-
stund og þorðu ekki inn í bílinn af
ótta við að hann fyki fram af fjalls-
brúninni. „Eftir um klukkutíma fór
að koma hlé á milli hviða og við
fórum inn í bílinn blaut og köld.
Friðbjörn Haukur fór ekki í
kuldagallann því hann hélt að hann
tæki of mikinn vind. Hann hímdi því
úti í klukkustund á gallabuxum og
úlpu.“
Þórunn og Friðbjörn Haukur eru
vant fjallafólk en segjast aldrei hafa
lent í neinu þessu líku áður. Þau
töldu sig í hættu um tíma og bjugg-
ust við því versta. „Þar sem við vor-
um var ekkert til þess að halda sér
í, ekki grjót eða neitt. Við spyrntum
okkur ofan í snjóinn eftir fremsta
megni.“
Þegar lengra fór að líða milli
vindhviða keyrðu þau aftur upp á
veginn. „Þetta voru bara 200–300
metrar sem við áttum eftir niður af
fjallinu,“ sagði Þórunn sem var af-
skaplega fegin þegar hún komst
loks niður af fjallinu.
Hjón hætt komin á Vopnafjarðarheiði í miklu hvassviðri
Vindurinn tók okkur
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Hjónin Friðbjörn Haukur Guðmundsson og Þórunn Egilsdóttir voru hætt
komin á Vopnafjarðarheiði þegar þau voru á heimleið frá Akureyri.
Í HVASSVIÐRINU sem geisaði á
Vestfjörðum sl. sunnudag brann
hluti úr rafmagnsstaur í Hrafnseyr-
ardal við Arnarfjörð. Strókur stóð
af sjónum upp dalinn þannig að
mikil selta settist á staurinn. Neisti
af línunni hljóp svo í staurinn og þá
kviknaði í honum ofan frá. Fljót-
lega hefur þó slokknað því ekki
brann staurinn alla leið niður. End-
ar ná því alls ekki saman hjá þess-
um rafmagnsstaur.
Við brunann hrökk einn af raf-
strengjunum af staurnum með þeim
afleiðingum að rafmagnið fór af
Dýrafirði, Hrafnseyri og Auðkúlu
við Arnarfjörð. Nýr staur verður
reistur í dag.
Ljósmynd/Steinar R. Jónasson
Að ná
ekki end-
um saman
Forseti Hróksins viðraði nýja hugmynd við setningu Stórmótsins
Morgunblaðið/Ómar
Indíana Ósk Helgudóttir, nemandi í Skákskóla Hróksins, lék fyrsta leiknum hjá Luke McShane, sem atti kappi við
Viktor Kortsnoj. Hún lék hvítu kóngspeði frá e2 á e4 og forseti Hróksins, Hrafn Jökulsson, fylgdist spenntur með.
er góð til þjálfunar, hún skerpir
rökhugsun og eflir sköpunargáf-
una, fyrir utan alla skemmtunina,
sem á að sjálfsögðu ekki að van-
rækja í menntakerfinu. Með þessu
yrði einnig auðveldara að finna af-
burðafólk, við gætum eignast
undrabörn á hverjum degi. Eftir
8–10 ár værum við búin að eignast
breiðan hóp mjög sterkra skák-
manna, ef rétt yrði á málum hald-
ið,“ segir Hrafn.
Einn sigur og fjögur jafntefli
Úrslitin í 1. umferð mótsins í
gærkvöldi urðu þau að jafntefli
varð í öllum skákum nema Íslend-
ingaslagnum. Helgi Áss Grét-
arsson, sem átti afmæli í gær, sigr-
aði Stefán Kristjánsson en jafntefli
gerðu Hannes Hlífar Stefánsson og
Alexei Shirov, Luke McShane og
Viktor Kortsnoj, Ivan Sokolov og
Bartek Macieja og loks Michael
Adams og Etienn Bacrot.
Skák
verði sett í
námskrá
skólanna
Sokolov og…/11
FJÖLMENNI var við setningu
Stórmóts Skákfélagsins Hróksins á
Kjarvalsstöðum í gær. Forseti
Hróksins, Hrafn Jökulsson, sagðist
í samtali við Morgunblaðið vera
hæstánægður með hvernig til hefði
tekist í gær og ánægjulegt hefði
verið að sjá þann mannfjölda sem
kom á setninguna. Mótið hefði far-
ið skemmtilega af stað. Mörg jafn-
tefli urðu í 1. umferðinni, sem lauk
á ellefta tímanum í gærkvöldi.
Að loknu setningarávarpi Þór-
ólfs Árnasonar borgarstjóra og
söng Andreu Gylfadóttur flutti
Hrafn stutt ávarp þar sem hann
setti m.a. fram þá hugmynd að
skák yrði sett á námskrá grunn-
skólanna og nemendur í 2.–10.
bekk fengju eina kennslustund á
viku í skák. Stórmót Hróksins er
einmitt tileinkað íslenskum börn-
um og samhliða mótinu er starf-
ræktur Skákskóli Hróksins og
Eddu – miðlunar. Hrafn sagði
fjölda barna þegar hafa skráð sig
en kennslan hefst á Kjarvals-
stöðum síðdegis í dag. Að lokinni
fyrstu kennslustund verður efnt til
fjölteflis með Margeiri Péturssyni
stórmeistara.
„Með tillögu um skákkennslu í
skólum vildi ég minna á að við
gætum eignast á hverju ári 4–5
þúsund nýja skákmenn. Við höfum
heimsótt tugi skóla í vetur og hitt
á þúsundir krakka, og vitum hvað
þeim finnst um skák um leið og
þau fá tækifæri til að kynnast
íþróttinni. Rök okkar fyrir því að
skákin verði kennd eru þau að hún