Morgunblaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
REYKJAVÍKURBORG hyggst flýta fram-
kvæmdum á vegum borgarinnar og fyrirtækja í
hennar eigu fyrir um þrjá milljarða króna. Í gær
voru kynntar framkvæmdir fyrir 1.200–1.700
milljónir sem Orkuveitan ætlar að flýta þannig að
þær fari fram á þessu ári og því næsta, í stað ár-
anna 2005–2006. Er framkvæmdunum flýtt vegna
þeirra miklu framkvæmda sem fyrirhugaðar eru
við byggingu Kárahnjúkavirkjunar og einnig til að
efla atvinnulífið með fjölgun starfa.
Þessar framkvæmdir koma til viðbótar 6,3 millj-
arða framkvæmdum sem ríkisstjórnin ákvað í síð-
ustu viku að fara út í. Samtals er því verið að flýta
framkvæmdum fyrir meira en 9 milljarða.
Framkvæmdir á Nesjavöllum eru meðal þeirra
sem Orkuveitan hyggst flýta. Vegna stækkunar
varmaversins á Nesjavöllum og aukningar raf-
orkuvinnslunnar úr 90 MW í 120 MW, sem fáist
með því að bæta fjórðu vélasamstæðunni við, megi
flýta framkvæmdum í gufuveitu og byggingafram-
kvæmdum fyrir tæpar 300 milljónir króna. Þá sé
hægt að flýta borframkvæmdum á Nesjavöllum á
þessu ári fyrir um 220 til 250 milljónir króna.
Einnig megi flýta verkefnum í dreifikerfi fyrir
200–400 milljónir, flýta verkum við vatnsból, lág-
hitaborholur, tanka og fleira fyrir 400–600 millj-
ónir og flýta útbreiðslu ljósleiðaranets Orkuveit-
unnar til Akraness, sem kosti um 50 milljónir.
Loks er stefnt að því að ráða tvöfalt fleiri ung-
linga í sumarstarf við gróðursetningu og annan
frágang, eða alls 200 talsins, sem kosti 60–80 millj-
ónir. Einnig er ætlunin að ráða 10–20 háskólastúd-
enta í sumarstörf við rannsókna- og hönnunar-
verkefni sem kosti 10–20 milljónir króna.
Fleiri flýtiframkvæmdir kynntar
Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orku-
veitunnar, sagði á blaðamannafundi í gær að borg-
arráð hefði óskað eftir því við Orkuveituna að
kannað yrði hvaða framkvæmdum fyrirtækisins
væri hægt að flýta. Hann segist gera ráð fyrir því
að stjórn Orkuveitunnar samþykki á fundi eftir
helgi að flýta umræddum framkvæmdum.
Í næstu viku verði síðan kynnt hvaða fram-
kvæmdum á vegum borgarverkfræðings verði
hægt að flýta. „Þar má búast við að menn sjái til-
lögur um flýtiframkvæmdir við skólabyggingar,
íþróttamannvirki, gatnaframkvæmdir, þjónustu-
íbúðir fyrir aldraða, í húsnæðismálum og ýmislegt
fleira,“ sagði Alfreð.
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveit-
unnar, segir að verði samþykkt að flýta fram-
kvæmdunum verði þær boðnar út á næstu mán-
uðum. Verkefnin eigi eftir að koma sér vel því
slæmt ástand sé hjá mörgum iðnaðarmönnum.
Orkuveita Reykjavíkur og borgin bregðast við auknu atvinnuleysi
Flýta framkvæmdum
fyrir þrjá milljarða
OR flýtir/6
BÖRNIN á leikskólanum Ægisborg voru í gær í
vettvangsferð í fjörunni á Ægisíðu til að leita sér
efnis í listaverk. Börnin, sem eru á þriðja ári, taka
með sér þang, þara og steina úr fjörunni, fara með
það á leikskólann og ákveða sjálf hvernig listaverk
þau búa til úr efninu. Börnin fara einnig í fjöruna
til að hlusta á tónlistina í umhverfinu og finna hinn
ferska sjávarilm. Vettvangsferð sem þessi er fastur
liður í dagskrá leikskólans enda börnin afar áhuga-
söm.
Morgunblaðið/Kristinn
Leita efnis í listaverk
KEPPENDUR í Global Extr-
emes-leiknum, sem sýndur er í
Bandaríkjunum á Outdoor Life
Network, eru komnir til lands-
ins en næstsíðasta þraut leiks-
ins fer fram hér á landi. Leikn-
um svipar til Survivor sem
sýndur er við miklar vinsældir í
sjónvarpi. Í gær var hópurinn
staddur á Ísafirði og þrautir
dagsins fólust m.a. í skíða-
göngu í Seljalandsdal og einnig
var fyrirhugað að klífa fjöll og
róa kajak. Frumlegasta þrautin
verður þó líklega sú að kepp-
endur koma til með að stinga
tað út úr fjárhúsinu á Laugar-
bóli.
Úr hópnum verða valdir
áfram fimm keppendur til leiks
í síðustu þrautinni, sem felst í
því að klífa sjálfan Everest-
tind.
Stinga
út úr fjár-
húsinu á
Laugarbóli
Keppa í/B7
FYRIRTÆKIÐ Saga Film, og leik-
stjórar þess, hafa vakið talsverða
athygli á erlendri grundu undan-
farin misseri. Auglýsing Lárusar
Jónssonar fyrir slóvenska dekkja-
framleiðandann Sava Tires hlaut
allnokkur verðlaun á nýafstöðnum
hátíðum auglýsingaframleiðenda
og þá var Árni Þór Jónsson valinn
einn af efnilegustu leikstjórum
samtímans af Boards magazine,
einu helsta fagtímariti auglýs-
ingageirans.
Atriði úr Sava-auglýsingunni.
Saga Film
gerir það gott
Slóvensk/53
EKIÐ var á hreindýr á Upphéraðs-
vegi rétt við Ormarsstaði í Fella-
hreppi í gær, um 10 km frá Egils-
stöðum. Talsverðar skemmdir urðu
á bifreiðinni en ökumaður slapp
ómeiddur. Hreindýrið drapst.
Að sögn lögreglunnar á Egilsstöð-
um hefur talsvert sést til hreindýra
við byggð að undanförnu. Lögreglan
telur vissara að ökumenn fari var-
lega þar um því hreindýrin eigi það
til að hlaupa fyrirvaralaust yfir vegi.
Dýrin eru mjög lík umhverfinu að
lit og sjást oft illa í ljósaskiptum.
Ekið var
á hreindýr
ELDUR kviknaði í íbúðarhúsi á
bænum Svínhaga á Rangárvöllum í
gær. Tilkynning um brunann barst
lögreglunni á Hvolsvelli laust eftir
hádegi. Þegar hana bar að hafði eld-
urinn slokknað. Húsið var mann-
laust. Að sögn lögreglu var mikill hiti
í húsinu og skemmdir talsverðar.
Eldsupptök eru ókunn.
Eldur í
tómu húsi
SLÆM lausafjárstaða Landspítala –
háskólasjúkrahúss á síðari hluta síð-
asta árs varð til þess að spítalinn
þurfti að greiða 145 milljónir króna í
vexti í fyrra. Landspítalinn fór 496
milljónir króna fram úr fjárheimild-
um á nýliðnu ári, samkvæmt bráða-
birgðauppgjöri ársins. Þetta er 1,9%
frávik frá fjárheimildum.
Í greinargerð framkvæmdastjóra
fjárreiðna og upplýsinga kemur
fram að heildargjöld námu 26.158
milljónum og þar af hafi rekstrar-
gjöld verið 24.659 milljónir en við-
halds- og stofnkostnaður 1.499 millj-
ónir. Launaútgjöld námu rúmum
67% af rekstrargjöldum að meðtöld-
um S-merktum lyfjum. Lyfjakostn-
aður var um 2.250 milljónir króna.
Í fjáraukalögum var tekið á fjár-
hagserfiðleikum spítalans en lausa-
fjárstaða hans var erfið síðari hluta
ársins og leiddi til 145 milljóna
vaxtagreiðslna. Starfsemin jókst
umtalsvert frá fyrra ári og fjölgaði
skurðaðgerðum um tæp 9% frá 2001.
Brjóstholsskurðlækningar stóðu
nánast í stað en aðgerðum í öðrum
sérgreinum fjölgaði um 1.150.
„Auk þess að koma sjúklingum vel
hefur þessi fjölgun skurðaðgerða
verið mjög hagkvæm þar sem fastur
kostnaður á skurðstofunum er um-
talsverður og viðbótarkostnaður við
fjölgun aðgerða er talsvert lægri en
meðalkostnaður,“ segir í greinar-
gerðinni. Hins vegar kemur einnig
fram að útskriftarvandinn hefur
aukist stöðugt en í janúar 2003 hafi
160 sjúklingar, sem hafi lokið með-
ferð á spítalanum, beðið eftir var-
anlegri vistun annars staðar. Slíkur
vandi valdi auknum kostnaði á spít-
alanum þar sem þörf sé á að hafa
fleiri rúm í rekstri en þurfi vegna
bráðasjúkdóma, auk þess sem spít-
alinn geti ekki sinnt hlutverki sínu
sem skyldi. Fresta hafi þurft inn-
köllun sjúklinga af biðlistum vegna
þess að ekki hafi verið laus rúm á
legudeildum.
Landspítalinn fór 496 milljónir fram úr fjárheimildum
Greiddi 145 milljón-
ir í vexti í fyrra
BOEING þota Flugleiða, sem
skemmdist á væng er hún fauk á
landgang á Keflavíkurvelli í
miklu óveðri 11. febrúar komst í
gagnið tveim dögum eftir óhapp-
ið. Tjónið er metið á 200 þúsund
dollara, eða sem nemur tæpum 16
milljónum kr. Varahlutir voru
keyptir frá Amsterdam og var
gert við vélina daginn eftir
óhappið. Var hún tekin í notkun
13. febrúar. Vélin, sem heitir
Snorri Þorfinnsson, er af gerð-
inni Boeing 757-300 og er nýjasta
og stærsta vél Flugleiða. Er hún í
ferðum til Kaupmannahafnar og
Lundúna.
Tjónið á
Flugleiða-
vélinni um
16 milljónir
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Í TÓLF ár hefur Tónskáldafélag Ís-
lands undirbúið stofnun sjóðs sem
stuðlaði að nýsköpun á sviði tónlistar
á sem flestum sviðum. Nú hefur
menningarmálanefnd Reykjavíkur-
borgar samþykkt að stuðla að stofnun
sjóðsins með tveggja milljóna króna
stofnframlagi. Með stofnun sjóðsins
verður mögulegt að styrkja fleiri svið
tónsköpunar en áður og koma þannig
til móts við framþróun og aukna
menntun sem orðið hefur á sviði tón-
listar á undanförnum áratugum.
Nýsköpun-
arsjóður
tónlistar
stofnaður
Þetta er/12