Morgunblaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 41 Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í dag kl. 13–16.30. Handavinna, spilað, föndr- að. Gestur Þorvaldur Halldórsson. Bíla- þjónusta í símum 553 8500, 553 0448 og 864 1448. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 520 9700. www.domkirkjan.is Grensáskirkja. Starf aldraðra kl. 14–16. Alfa-námskeið kl. 19.30–22. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Opið hús eldri borgara í Hallgrímskirkju sem vera átti í dag frestast vegna veikinda til 26. febrúar. Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11. Kvöldbænir kl. 18. Langholtskirkja. Kl. 12.10 bænagjörð með orelleik og sálmasöng. Allir velkomnir. Kl. 12.30 súpa og brauð í safnaðarheim- ilinu (kr. 300). Kl. 13–16 opið hús fyrir eldri borgara. Söngur, spjall, föndur og tekið í spil. Kaffiveitingar. Kl. 17–18.10 Krútta- kórinn, 4–7 ára. Laugarneskirkja. Kirkjuprakkarar (1.–4. bekkur) kl. 14.10. Jóhanna G. Ólafsdóttir guðfræðinemi og Hannes Guðrúnarson, tónlistarmaður og kennari, leiða starfið ásamt sóknarpresti. TTT-fundur kl. 16.15 (5.–7. bekkur). Andri Bjarnason og Þorkell Sigurbjörnsson leiða starfið ásamt Sigur- birni Þorkelssyni framkvæmdastjóra safn- aðarins og hópi ungra sjálfboðaliða. Ferm- ingartími kl. 19.15. Unglingakvöld Laugarneskirkju og Þróttheima kl. 20 (8. bekkur). Umsjón hafa Sigurvin Jónsson guðfræðinemi og Ingibjörg Dögg Kjartans- dóttir, tómstundaráðgjafi hjá Þróttheimum. Adrenalínhópurinn kemur saman kl. 20 á Ömmukaffi, Austurstræti 20. Krakkar úr 9. og 10. bekk Laugalækjarskóla velkomnir. Rútufar heim að fundi loknum. (Sjá síðu 650 í textavarpinu.) Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. „Með einn í útvíkkun“. Höfundar bókarinn- ar koma í létt spjall. Umsjón Elínborg Lár- usdóttir. 7 ára starf kl. 14.30. Opið hús kl. 16. Kaffi og spjall. Upplestur og fræðandi umræður kl. 17. Umsjón sr. Örn Bárður Jónsson. Fyrirbænamessa kl. 18. Sr. Örn Bárður Jónsson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Léttur hádegisverður eftir stundina. Fríkirkjan í Reykjavík. Alfa-námskeið í safnaðarheimilinu kl. 20. Kyrrðar- og bænastund í kapellu safnaðarins í safn- aðarheimilinu, Laufásvegi 13, 2. hæð, kl. 12. Allir velkomnir. Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há- degi. Orgeltónlist, altarisganga, fyrirbænir og íhugun. Kl. 13–16 opið hús. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Digraneskirkja. Unglingastarf KFUM&K kl. 20–21.45. (Sjá nánar: www.digranes- kirkja.is.) Grafarvogskirkja. Helgistund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari, orgelleikari Hörður Braga- son. Allir velkomnir. Námskeiðið Að búa einn kl. 20–22. KFUM fyrir drengi 9–12 ára í Grafarvogskirkju kl. 16.30–17.30. Kirkju- krakkar fyrir börn 7–9 ára í Rimaskóla kl. 17.30–18.30. TTT (10–12 ára) í Rima- skóla kl. 18.30–19.30. Æskulýðsfélag fyr- ir unglinga í 8.–9. bekk í Engjaskóla kl. 20– 22. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. 12-spora námskeið kl. 20. Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára börn- um í dag kl. 16.45–17.45 í safnaðar- heimilinu Borgum. Starf með 10–12 ára börnum TTT á sama stað kl. 17.45–18.45. Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 19 Alfa-nám- skeið í safnaðarheimili Lindasóknar, Upp- sölum 3. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni í síma 567 0110. Æskulýðsfund- ur fyrir unglinga 14–15 ára kl. 20. Biblíu- lestraröð Seljakirkju kl. 19.30 annan hvern miðvikudag. Næsti lestur er 26. febrúar. Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar. Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Heitt á könnunni. Fjöl- mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13–16 í samstarfi við Félag eldri borgara á Álftanesi. Notalegar samverustundir með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður eða Er- lendur sjá um akstur á undan og eftir. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safnað- arheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10–12. Hittumst og spjöllum. Heitt á könnunni og djús fyrir börnin. Allir foreldrar velkomnir með eða án barna. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrirbæn- ir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljósbroti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í dag kl. 12. Boðið er upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu á eftir. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Opið hús fyrir eldri borg- ara í dag kl. 13. Gott tækifæri til að hittast, spjalla saman, spila og njóta góðra veit- inga. Verið velkomin. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í dag kl. 10–12. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 16.30 TTT yngri, 9–10 ára krakkar í kirkjunni. Ljósmyndamaraþon. Kl. 17.30 TTT eldri, 11–12 ára krakkar í kirkjunni. Ljósmynda- maraþon. Sr. Þorvaldur Víðisson og leið- togarnir. Kl. 20 opið hús í KFUM&K fyrir æskulýðsfélagið. Lágafellskirkja. Foreldramorgnar í safnað- arheimili kirkjunnar í Þverholti 3, 3. hæð, frá kl. 10–12. Umsjón Arndís L. Bernharðs- dóttir og Þuríður D. Hjaltadóttir. AA-fundur kl. 20.30 í Lágafellskirkju. Unnið í 12-spor- unum. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl. 12.25, súpa, salat og brauð á vægu verði, allir aldurshópar. Umsjón: Ólafur Oddur Jónsson. Æfing Kórs Keflavíkurkirkju frá kl. 19.30–22.30. Stjórnandi Hákon Leifs- son. Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30 Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í síma 565 3987. Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Lofgjörð, lestur orðsins, fróðleikur og samvera. Allt ungt fólk velkomið. Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58. Samkoma kl. 20. Nýr himinn og ný jörð. Guðlaugur Gunnarsson talar. Allir velkomn- ir. Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21. Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10. Opið hús, kaffi og spjall, safi fyrir börnin. ÆFAK, yngri deild, kl. 20. Safnaðarstarf KIRKJUSTARF HAFNARFJARÐARBÆR hefur sent Morgunblaðinu eftirfarandi fréttatilkynningu vegna umfjöllunar blaðsins um fasteignagjöld á höfuð- borgarsvæðinu: „Í frétt Morgunblaðsins hinn 13. febrúar sl. kemur fram að fasteigna- gjöld í Hafnarfirði hafi hækkað um 40% á hvern íbúa frá árinu 2000 á meðan þau hafi hækkað um 33% í Kópavogi, 27% í Garðabæ og 19% í Reykjavík. Samanburður af þessu tagi er mjög vandmeðfarinn ekki síst þegar tillit er tekið til þeirra endurmats- hækkana sem urðu á fasteignum á árinu 2001 og þá sérstaklega lóðar- mati, en fasteignaskattur, holræsa- gjald og vatnsgjald reiknast af heild- armati fasteignar og lóðar. Sem dæmi þá hækkaði mat lóða í Hafn- arfirði um 91% samanborið við 27% hækkun þess í Reykjavík sem gefur til kynna að endurmatshækkun lóða í Reykjavík hafi áður verið komin fram með tilheyrandi hækkunum á fasteignagjöldum í Reykjavík. Sú hækkun kemur því ekki inn í sam- anburðartímabilið sem Morgunblað- ið hefur til umfjöllunar. Þá verður einnig að hafa það í huga að samsetning fasteigna getur verið ólík í nýjum íbúðarhverfum frá því sem gerist að meðaltali í viðkom- andi sveitarfélagi, sem raunin hefur orðið á í nýbyggðu íbúðarhverfi í Ás- landi í Hafnarfirði, þar sem sérbýl- um hefur fjölgað. Til að bregðast við þeirri miklu hækkun sem varð á lóðarmati í Hafnarfirði við endurmatið haustið 2001, var það fyrsta verk nýs meiri- hluta bæjarstjórnar á sl. sumri að lækka álagningarprósentu lóðar- gjalda úr 0,5% í 0,35% auk þess sem sorphirðugjöld voru lækkuð úr 8.500 kr. í 6.000 kr. á hverja íbúð. Heild- arlækkun fasteignagjalda var uppá rúmar 40 milljónir kr. Það sem skiptir fasteignaeigendur sveitarfélaganna mestu máli er hvaða heildargjöld þeir greiða fyrir sínar fasteignir og hvort þeir eru að greiða hærri gjöld en þeir hefðu greitt í nágrannasveitarfélögunum. Ef tekið er mið af 100 fermetra 10 m.kr. fasteign í fjölbýlishúsi og horft framhjá lóðarleigu, þá eru fasteigna- gjöld af slíkri eign á árinu 2003 69 þ.kr. í Hafnarfirði, 63 þ.kr. í Reykja- vík, 76 þ.kr. í Kópavogi, 60 þ.kr. í Garðabæ og 56 þ.kr. á Seltjarnar- nesi.“ Segir samanburð fasteigna- gjalda vandmeðfarinn Í TILEFNI af alþjóðadegi krabba- meinssjúkra barna, laugardaginn 15. febrúar sl., og opnun nýs barna- spítala, gaf Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna Barnaspítala Hringsins fullkominn fjar- kennslubúnað til kennslu og sam- skipta fyrir börn á spítalanum. Geta börn sem dveljast á spít- alanum tengst skólum sínum og bekkjarfélögum meðan á dvöl þeirra stendur. Börnin geta þannig bæði notið kennslu á Barnaspítala Hringsins auk þess sem þau tengj- ast sínum eigin skólum og halda þannig tengslum við kennara og skólasystkini. Alþjóðadagur krabbameins- sjúkra barna var nú haldinn í annað sinn. Aðilar að þessum degi eru 54 styrktar- og foreldrafélög krabba- meinssjúkra barna í 46 löndum. SKB er eitt þessara félaga. Á Íslandi greinast að meðaltali 10–12 börn árlega með krabba- mein. Ísland hefur tekið þátt í nor- rænu samstarfi um meðferð og rannsóknir á krabbameinsveikum börnum. Árangur meðferðar á Ís- landi er mjög góður og fyllilega sambærilegur því sem þekkist í ná- grannalöndum okkar, segir í frétta- tilkynningu. Morgunblaðið/RAX Gáfu Barnaspítalanum fjarkennslubúnað MIÐVIKUDAGINN 5. febrúar á milli klukkan 12.45 og 13.00 varð árekstur á Vesturhólum við Erluhóla þar sem hvítri fólksbifreið var ekið aftan á bifreiðina SA-060. Ökumenn bifreiðanna ræddust við en eftir við- ræðurnar ók ökumaður hvítu fólks- bifreiðarinnar á brott. Ökumanni SA-060 láðist að skrá niður upplýs- ingar á vettvangi. Ökumaður hvítu fólksbifreiðarinnar er beðinn að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 569-9020 og einnig vitni ef ein- hver hafa verið. Lýst eftir öku- manni hvítrar bifreiðar LIONSHREYFINGIN á Íslandi og félagið Heyrnarhjálp hafa tekið höndum saman um að safna notuð- um heyrnartækjum. Eins var á frumstigi þessa máls fundað með framkvæmdastjóra Heyrnar- og tal- meinastöðvar og skrifað formlegt bréf til þeirra í kjölfar fundarins. Þau tæki sem um ræðir eru svoköll- uð „skúffutæki“, þ.e. tæki sem liggja ónotuð í heimahúsum út um allt land. Bæði getur það átt við tæki sem lögð eru til hliðar vegna bilunar eða end- urnýjunar tækja og eins við andlát þess sem tækið notaði. Þessi tæki geta nýst öðrum og hafa Lionsmenn víða staðið fyrir slíkum söfnunum og sent til vanþróaðra landa, segir í fréttatilkynningu. Safna not- uðum heyrn- artækjum TÚRBÍNU- ÞJÓNUSTA Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík Sími: 577 4500 • www.velaland velaland@velaland.is d es ig n. is 2 00 3 FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Heiðvangur - Hafnarfirði Nýkomið í sölu gott 155 fm einbýl- ishús á einni hæð auk 56 fm tvö- falds bílskúrs. Eignin skiptist í gesta wc, 3 stofur, stórt eldhús m. góðum borðkrók, 3-4 svefnherb., baðherb. og þvottaherb. með bak- útg. Glæsilegur verðlaunagarður. Vel staðsett eign á skjólríkum stað. Asparás - Garðabæ Nýkomin í sölu glæsileg 105 fm 4ra herb. íbúð á efri hæð í þessu nýlega fjölbýli auk geymslu á jarð- hæð. Íbúðin skiptist í forstofu, eld- hús m. borðaðstöðu, stofu, þrjú svefnherbergi og flísalagt baðher- bergi með þvottaaðstöðu og er innréttuð á afar vandaðan og smekklegan máta. Parket og nátt- úrusteinn á gólfum. Tvennar svalir. Húsið liggur að opnu svæði með stórkostlegu útsýni. Áhv. húsbr. 8,0 millj. Málstofa í læknadeild verður á morgun, fimmtudaginn 20. febrúar kl. 16.15, í sal Krabbameinsfélags Ís- lands, efstu hæð. Sigríður Valgeirs- dóttir flytur erindið: Örflögutækni (DNA arrrays) til genarannsókna. Málstofa fer fram á hverjum fimmtu- degi og eru kaffiveitingar frá kl. 16. Reynsla Svía af aðild að Evrópu- sambandinu Utanríkisráðherra Sví- þjóðar, Anna Lindh, heldur opinn fyr- irlestur í Háskóla Íslands, Odda, stofu 101, á morgun, fimmtudaginn 20. febrúar kl. 12–13.00. Hún mun fara yfir nokkrar lykilspurningar varðandi reynslu Svía af verunni í Evrópusambandinu, um framtíð sam- bandsins og hugsanlegt hlutverk Norðurlandanna innan þess. Horfur á fjármálamörkuðum Landsbankinn stendur fyrir morg- unverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík, á morgun, fimmtudaginn 20. febrúar kl. 8–9, undir yfirskrift- inni „Horfur á fjármálamörkuðum“. Erindi halda: Katrín Ólafsdóttir, hag- fræðingur greiningardeildar Lands- bankans, Jónas G. Friðþjófsson, sér- fræðingur greiningardeildar, og Arnar Jónsson, sérfræðingur í gjald- eyrisviðskiptum. Fundarstjóri verður Brynjólfur Helgason, fram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og al- þjóða- og fjármálasviðs Landsbank- ans. Fundurinn er öllum opinn. Tilkynna þarf þátttöku með tölvu- pósti á rannsoknir@landsbanki.is eða í síma fyrir kl. 16, í dag, miðvikudag- inn 19. febrúar. Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, standa fyrir fræðslufundi í safnaðarheimili Há- teigskirkju, 2. hæð, á morgun, fimmtudaginn 20. febrúar kl. 20–22. Rósa Kristjánsdóttir mun fjalla um sorg og úrvinnslu við systkinamissi. Að fyrirlestrinum loknum gefst kost- ur á samtali um sorgina við systkina- missi. Fræðslan er ætluð fólki á öllum aldri og allir eru velkomnir. Á MORGUN Röng leikkona Í grein um íslensku myndina Salt, sem birtist á síðum „Fólksins“ í gær, var farið rangt með nafn leikkonu í myndinni. Um er að ræða Brynju Þóru Guðnadóttur en ekki Melkorku Huldudóttur. Leikur Brynju er lof- aður mjög og segir: „Sérstaklega er [Brynja] góð og þeir sem hafa séð hana segja að hér sé ný stjarna fædd. En ég hef heyrt hana segja að hún ætli ekki að leika aftur.“ Salt sigraði í svonefndum „For- um“-flokki á kvikmyndahátíðinni í Berlín, flokki sem tekur yfir nýj- unga- og tilraunakenndar myndir. Rangur háskóli Í Morgunblaðinu í gær birtist grein eftir Heiðrúnu Lind Marteins- dóttur, sem er laganemi í Háskóla Reykjavíkur. Heiðrún Lind er for- maður Lögréttu félags laganema við HR, en ekki Háskóla Íslands eins og ranglega var sagt í fréttinni. Beðizt er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.