Morgunblaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
UMRÆÐAN í desember um fátækt
virtist pirra ráðherrana verulega og
í kjölfarið er hafin könnun á tekjum
láglaunafólks, með bréfi frá Gallup.
Einnig hafa háfleygir spekingar
komið fram í sjónvarpi og verið að
kenna mönnum hvernig þeir eigi að
spara, en í því verið lítil viska fólgin.
Því ekki er tekið tillit til þess að það
þarf peninga til að geta sparað og
fólk sem ekki á peninga fyrir mat
hefur ekkert til að bruðla með.
Í þessari könnun virðist eiga að
kanna rækilega hvað láglaunafólk
þénar. Spurningarnar hljóða svo:
Hvenær fékkst þú síðast greidd
laun? hvað vannstu margar vinnu-
stundir að meðaltali á viku? hve
margar yfirvinnustundir? ertu í
fullu starfi? færðu greidd laun mán-
aðarlega, hálfsmánaðarlega eða
vikulega? Ath. heildarlaun eru allar
greiðslur – bónus, yfirvinna, fata-
styrkur og önnur hlunnindi. Hvern-
ig skiptast heildarlaunin? hvað voru
dagvinnulaunin eða föstu launin í
kr.? hvað voru yfirvinnulaunin? bón-
usgreiðslur eða aðrar greiðslur?
hvað fékkst þú á tímann í dagvinnu,
yfirvinnu, bónus? Þau sem vinna
vaktavinnu verða að auki spurð eft-
irfarandi tveggja spurninga um
tímakaup: Hvað fékkst þú á tímann
á dagvakt, nætur- eða kvöldvakt?
Það leynir sér ekki að það á að
draga laun lágtekjufólks í gegnum
saumnálarauga og reikna nákvæm-
lega út upp á eyri hvað það kostar
að halda lífi í þessum hópi manna,
miðað við réttindi húsdýra.
Þeir menn sem eiga stærstan þátt
í því að skapa fátækt meðal lág-
launafólks eru einmitt þeir sem hafa
búið til fyrir sig launakerfi sem
skapar þeim hundruð þúsunda eða
milljónir á mánuði í laun. Einnig
hafa þeir búið til fyrir sig starfsloka-
samninga sem færa þeim tugi eða
hundruð milljóna í starfsloka-
greiðslur, hvort heldur þeir segja
upp sjálfir eða eru reknir og er þetta
orðið ein arðbærasta tekjulind for-
stjóra.
Hvaða starfslokaréttindi hafa svo
þessir menn búið verkafólki? Verka-
maður sem segir upp starfi vegna
þess að hann þolir ekki það álag sem
hann verður fyrir á vinnustað, t.d.
vegna eineltis af hálfu verkstjóra
eða annarra starfsmanna, er sviptur
atvinnuleysisbótum í þrjá mánuði og
gerður þar með tekjulaus um langan
tíma. Sama gildir ef starfsmanni er
sagt upp vegna samstarfserfiðleika
við verkstjóra eða annað starfsfólk.
Orð launþegans um ástandið á
vinnustað eru undantekningarlítið
hunsuð og hann talinn viðkvæmur
og taugaveiklaður.
Ég tel að það væri meiri þörf á því
að kanna hvort hálaunamenn þyrftu
raunverulega á þessum peninga-
austri að halda til þess að geta kom-
ist sæmilega af, án þess þó að van-
meta menntun þeirra. Einnig væri
ekki úr vegi að rannsaka hvernig
fyrirtæki fara með það fé sem
starfsfólkið skapar, þar sem fyrir-
tækin geta ekki greitt laun sem eru
ofan við fátæktarmörk, en velta
milljörðum í viðskiptum úti í þjóð-
félaginu, eða erlendis, með kaupum
á öðrum fyrirtækjum.
GUÐVARÐUR JÓNSSON,
Hamrabergi 5, 111 Reykjavík.
Fátæktin
skoðuð
Frá Guðvarði Jónssyni
SKOÐANAKANNANIR spyrja:
Vilt þú stríð? Ég þekki engan sem vill
stríð. Spurningin er bæði ábyrgðar-
laus og heimskuleg. Af hverju var
ekki spurt; Viltu að Saddam fái að
framleiða kjarnorkuvopn og efna-
vopn til að selja al Queda eða til að
nota sjálfur?
Bandaríkjamenn og Bretar hafa
áreiðanlegar upplýsingar um að
Saddam geti bráðlega framleitt efna-
eða kjarnavopn. Þessi staðreynd er
Bandaríkjunum og öllum hinum
frjálsa heimi stórhættuleg. Á þá að
leyfa þeim að framleiða óþverrann?
Bandaríkjamenn sýna mesta
ábyrgð í þessu máli. Auðvitað geta
þeir ekki blaðrað í fjölmiðla eða til
herstöðvarandstæðinga leynilegustu
upplýsingum um öll þau sönnunar-
gögn sem þeir hafa. Ef þeir gerðu
það myndu þeir upplýsa í leiðinni
hvernig þeir öfluðu þeirra sönnunar-
gagna. Saddam gæti þá gert „viðeig-
andi ráðstafanir“.
Það er ömurlegt fylgjast með
framgöngu Frakka og Þjóðverja og
Visntri grænna í þessu máli. Frakkar
eru reyndar oftast tvöfaldir í roðinu í
alþjóðamálum – drepast úr öfund út í
Bandaríkjamenn. Nota þetta mál
blákaldir til að hrossakaupast við
Græningja í Þýskalandi um valda-
stöður innan EB! Kommarnir í
Vinstri grænum hér heima virðast –
langt til vinstri við Rússa! Hvort er
það meira fyndið eða skelfilegt?
Auðvitað vill enginn stríð. En við
verðum að taka þátt í alþjóðasam-
starfi af skyldurækni og ábygð. Hver
vill að hryðjuverkamenn komist yfir
kjarnorkuvopn? Um það snýst málið
og ekkert annað. Afstaðan verður að
miðast við ábyrgð samkvæmt því –
en ekki kjánalegan barnaskap eða
sjálfsblekkingar.
Það er skylda stjórnvalda að gæta
fyllsta öryggis borgaranna. Okkar
skylda er svo að standa með okkar
stjórnmálamönnum um að styðja þá
með þeim sem leggja sig í stórhættu
við að afvopna hættulegustu hryðju-
verkamenn í veraldarsögunni.
Það vill enginn stríð. Til þess að
koma í veg fyrir stríð verður af koma
í veg fyrir að Saddam nái að fram-
leiða gereyðingarvopn til að selja al
Queda – eða til að nota á nágranna.
Þetta er kjarni málsins.
KRISTINN PÉTURSSON
fiskverkandi.
Vilt þú stríð?
Frá Kristni Péturssyni