Morgunblaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 29 ÞVÍ er oft haldið fram að konur fari að jafnaði betur með fjármagn í rekstri fyr- irtækja, ekki síst ef fyrirtækið er í eigu eða stjórnað af konu. Þetta var m.a. rætt í tengslum við uppskeruhátíð verkefn- isins „Auður í krafti kvenna“ sem haldin var fyrir stuttu. Kvennalistinn og hin hagsýna húsmóðir Þetta eru engin ný sannindi. Heill stjórnmálaflokkur, Kvennalistinn, hélt fram yfirburðum kvenna í fjármálum og að þeim væri betur treystandi fyrir fjár- málum ríkisins en öðrum flokkum, þar sem karlar kæmu að. Eitt af slagorðum Kvennalistans var að hefja hagfræði hinnar hagsýnu húsmóður til vegs og virðingar við stjórnun landsins. Kvenna- listinn hafnaði tækifæri til að sanna mál sitt í ríkisstjórn, en fékk það síðan á valdatíma R-listans í Reykjavík undir stjórn fyrrum Kvennalistakonu Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur. Skuldir borgarinnar aukast En hvernig tókst til? Á síðustu vikum hafa verið lögð fram gögn um núverandi skuldastöðu Reykjavíkurborgar og þró- un skulda borgarinnar sl. níu ár. Sagan dæmir hart. Þegar R-listinn tók við völdum voru skuldir borgarinnar fjórir milljarðar króna að núvirði. Nú níu árum seinna hafa skuldirnar aukist um 1100% og verða 48 milljarðar króna skv. fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir árið 2003. Skuldir á hvern Reykvíking voru 40 þúsund krónur þegar R-listinn tók við, en eru nú komnar í 415 þúsund. Hvað varð um hagfræði hinnar hagsýnu húsmóður sem eyðir ekki um efni fram, á fyrir útgjöldum sínum og leggur fyrir til hörðu áranna ef þess er nokkur kostur? Skuldir ríkisins minnka Á sama tíma hafa skuldir ríkisins minnkað um 13%. Ríkissjóður hefur þannig greitt niður skuldir sínar meðan skuldir Reykjavíkurborgar hafa ell- efufaldast. Hver vill kalla svona fjár- málastjórn yfir sig í landsmálunum? Pólitískir stjórnendur Reykjavík- urborgar hafa gert hugmyndum hinna hagsýnu húsmæðra skömm til. Óráðsía Íslenskir fræðimenn hafa komist að þeirri niðurstöðu með rannsóknum sín- um á íslenskri stjórnmálasögu að vinstri stjórnir haldi verr utan um skattpeninga landsmanna en þegar sjálfstæðismenn eru við stjórn. Verðbólgan er meiri, rík- isútgjöld aukast og skattheimta eykst. Þetta hefur sannast í borgarstjóratíð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í Reykjavík, því auk skuldasöfnunar hafa allir skattar borgarinnar hækkað og nýj- um verið bætt við, t.d. holræsagjaldi, sem var sett á eftir að R-listinn tók við völdum. Hagsýni Í tíð núverandi ríkisstjórnarflokka hafa skattar á einstaklinga og fyrirtæki lækkað, ráðstöfunartekjur heimilanna hafa hækkað um þriðjung. Stjórnun efnahagsmála er með því besta sem ger- ist að mati erlendra matsstofnana með tilliti til verðbólgu, hagvaxtar, atvinnu- leysis og ráðstafana til að skapa hag- stætt umhverfi fyrir atvinnulíf í landinu. Framundan er hagvaxtarskeið í íslensku þjóðarbúi, verðbólga á lágum nótum og enn frekari skattalækkanir á ein- staklinga og fyrirtæki, ef málum verður ekki klúðrað. Hver vill taka áhættuna á að færa stjórnun á þjóðarskútunni í hendur fólks sem hefur sýnt að það ræður ekki við verkefnið? Má ég þá frekar biðja um áframhaldandi hagfræði hinna hagsýnu manna og kvenna, þar sem ekki er eytt um efni fram en skuldir greiddar niður og lagt til hliðar til hörðu áranna. Hvað varð um hina hagsýnu húsmóður? Eftir Ástu Möller „Hver vill taka áhættuna á að færa stjórnun á þjóð- arskútunni í hendur fólks sem hefur sýnt að það ræður ekki við verkefnið?“ Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík. INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir steig í fyrsta sinn fram á sviðið sem talsmaður og forsætisráðherraefni Samfylking- arinnar með því að skjóta nokkrum púð- urskotum á flokksstjórnarfundi í Borg- arnesi fyrr í þessum mánuði. Hún nýtti sér ekki tækifærið til að hefja kosninga- baráttu á grundvelli málefna eða hug- mynda heldur byggðist innlegg hennar einkum á hálfkveðnum vísum, órök- studdum fullyrðingum og röngum stað- hæfingum. Ingibjörg hefur frá því þetta gerðist verið önnum kafin við að útskýra, réttlæta og afsaka þessi ummæli en hins vegar hefur hefur enn ekkert komið fram um hverjar megináherslur hennar á sviði landsmálanna verða. Á sama tíma hefur Davíð Oddsson for- sætisráðherra lagt línurnar fyrir kosn- ingabaráttu Sjálfstæðisflokksins með því að boða víðtækar skattalækkanir á kom- andi kjörtímabili. Forsætisráðherra vék bæði að neyslusköttum og beinum skött- um einstaklinga og að huga þyrfti að samspili þeirra og persónuafsláttar. Þá nefndi hann að taka þyrfti á erfða- fjárskatti og unnt væri að afnema eign- arskatta með öllu. Kom fram í máli hans, að á næstu vikum yrði lögð fram ná- kvæm áætlun um skattalækkanir næstu ára. Viðbrögð stjórnarandstöðunnar hafa verið á þá leið, að hér væri fyrst og fremst um að ræða kosningabrellu og að lítið mark væri á ráðherra takandi þar sem hann hefði haft mörg ár í embætti til að lækka þessa skatta. Þessi málflutn- ingur er fremur veigalítið innlegg í mál- efnaumræðuna, en gefur þó tilefni til nokkurrar umfjöllunar. Gott svigrúm til skattalækkana Yfirlýsingar forsætisráðherra eru trú- verðugar í ljósi þess að svigrúm til skattalækkana hefur trúlega sjaldan ver- ið meira ef miðað er við afkomu rík- issjóðs. Á undanförnum árum hefur lang- varandi hallarekstri verið snúið í afgang og mögulegt hefur verið að greiða veru- lega niður skuldir ríkissjóðs. Náist mark- mið um hagvöxt á næstu árum, meðal annars vegna frekari uppbyggingar stór- iðju, má gera ráð fyrir að afkoma rík- issjóðs haldi áfram að batna og svigrúm- ið í ríkisfjármálunum aukist enn frekar. Skattar lækkaðir 15 sinnum Þessi stefnumótun af hálfu forsætis- ráðherra er líka trúverðug ef horft er til reynslunnar af stjórnarforystu Sjálf- stæðisflokksins á undanförnum árum. Á kjörtímabili núverandi ríkisstjórnar hafa verið mörg mikilvæg skref í þá átt að draga úr skattbyrði í landinu. Stærstu skrefin á síðustu misserum hafa verið að lækka eignarskatta um helming, afnema sérstakan eignarskatt og færa tekju- skattshlutfall fyrirtækja niður í 18%. Tekjuskattur einstaklinga hefur einnig verið lækkaður að undanförnu, en hluti af þeirri hækkun hefur reyndar ekki skil- að sér til launafólks vegna hækkunar sveitarfélaga á útsvari. Frá því Sjálf- stæðisflokkurinn tók við stjórnarforystu árið 1991 hafa skattar verið lækkaðir a.m.k. 15 sinnum og eru þá þrepalækk- anir aðeins taldar einu sinni. Í sumum til- vikum hefur verið um að ræða lækkun á skatthlutfalli en í öðrum tilvikum hafa skattar beinlínis verið afnumdir. Má þar nefna skatta á borð við aðstöðugjald og sérstakan skatt á verslunar- og skrif- stofuhúsnæði. Yfirlýsing forsætisráð- herra nú um frekari skattalækkanir er því í góðu samræmi við þá stefnu, sem fylgt hefur verið á undanförnum árum. Hagsmunir fara saman Þessar skattalækkanir undanfarinna ára koma bæði heimilunum og atvinnulíf- inu til góða. Einstaklingarnir verða að sjálfsögðu mest varir við lækkun á þeim beinu sköttum sem þeir þurfa að standa skil á, en allur almenningur nýtur líka góðs af því til lengri tíma að fyrirtækin búi við hagstætt skattaumhverfi. Lágir fyrirtækjaskattar og hagstætt umhverfi atvinnulífsins að öðru leyti er áhrifarík- asta leiðin sem stjórnvöld hafa á hverjum tíma til að styrkja stoðir efnahagslífsins, stuðla að fjölbreytilegum atvinnutæki- færum og bættum þjóðarhag. Öflugt at- vinnulíf, þar sem fyrirtækin hafa svig- rúm til að vaxa og dafna, er líka undirstaða þess að unnt sé að halda uppi öflugu velferðarkerfi, heilbrigðiskerfi og menntakerfi. Það er þannig grundvall- armisskilningur að afkoma atvinnuveg- anna skipti heimilin og fjölskyldurnar engu máli. Um þá stjórnmálamenn, sem halda slíku fram og reyna að stilla at- vinnulífi og almenningi upp sem and- stæðum fylkingum, má segja að í besta falli misskilja þeir gangverk efnahags- lífsins en í versta falli gera þeir sig seka um ómerkilegt lýðskrum. Hverjum er treystandi til að lækka skatta? Það sem upp úr stendur er að að- stæður í dag veita svigrúm til skatta- lækkana og reynsla undanfarinna ára sýnir að sjálfstæðismönnum er treyst- andi til að lækka skatta. Reynslan af vinstri mönnum er hins vegar sú, að þeir eru manna ólíklegastir til að beita sér fyrir skattalækkunum. Þvert á móti hafa þeir jafnan verið afar fundvísir á leiðir til að auka skattbyrði, hvort sem er með því að finna upp nýja skatta eða hækka þá sem fyrir eru. Saga vinstri stjórna fyrri ára sýnir þetta ljóslega, og sama má segja um reynsluna af valdatíma þeirra í Reykjavík undir forystu Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur. Kosningabarátta á ólíkum forsendum Eftir Birgi Ármannsson „Yfirlýsing forsætisráðherra nú um frekari skattalækkanir er því í góðu samræmi við þá stefnu, sem fylgt hefur verið á undanförnum árum.“ Höfundur er lögfræðingur og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. eins styrkt 20% af styrkhæfum umsókn- um á síðasta ári. Það hefði því verið framsýni, sem stundum gætti hjá forvera núverandi menntamálaráðherra, ef örlit- um hluta af þessu fjármagni hefði verið varið til flýtiframkvæmda á sviði rann- sókna. Það hefði skapað atvinnu fyrir ungt fólk, og ýtt undir hagvöxt einsog fjárfest- ing í menntun gerir ævinlega. Staðreyndin er því miður sú að ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins, og alveg sér- staklega samgönguráðherra, hafa lengi teflt þráskák við meirihluta borg- arstjórnar í Reykjavík, og reynt að koma þar sem flestum málum í uppnám. Ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins sjá bók- staflega rautt í hvert sinn sem fram- kvæmdir í Reykjavík ber á góma. Tómlæti þeirra gagnvart framkvæmdum í Reykja- vík birtist meðal annars í Þjóðminjasafn- inu sem hefur verið lokað í hálfan áratug vegna slóðaskapar núverandi og fyrrver- andi menntamálaráðherra Sjálfstæð- isflokksins. Ráðherrar flokksins minna helst á óþroskaða unglinga í mennta- skólapólitík sem upplifa sig í stöðugu póli- tísku hanaati við Reykjavíkurlistann. Fyr- ir þetta hafa Reykvíkingar illu heilli goldið árum saman. Samstaða Það á að gera vel við landsbyggðina. Hún er ekki ofsæl af því sem hún fékk. Það er hins vegar blaut tuska í andlit höf- uðborgarsvæðisins að ekki skuli meira hafa verið látið renna þangað. Lands- byggðin og höfuborgin eru tvær hliðar á sama pening. Hvorug getur þróast án hinnar. Þessvegna fagnar Samfylkingin flýtiframkvæmdum á landsbyggðinni enda búin að klifa á því ásamt verkalýðs- hreyfingunni að nauðsynlegt væri að grípa til slíkra framkvæmda til að vinda inn slakann í atvinnumálum. Þessvegna segi ég ekki: Of mikið til landsbyggðarinnar, heldur „Of lítið til Reykjavíkur.“ alldórs Ásgrímssonar um eru lítil meira en boga- aði og eiga eftir að fara í Menningarhúsin sex sem íðustu kosningar, og eru í tvö, eru hvorki skilgreind a sem af þeim segir er að ofuð fyrir síðustu kosn- rðan svikin af Sjálfstæð- ús, Náttúrugripasafn annsóknasjóður ús eiga vafalaust til- innist þó að um þau ríkti lít- rnarsinna á sínum tíma. a. Ég spyr hins vegar: amhliða alveg eins heiðra sar skálds Hallgrímssonar gja grunn að Nátt- u sem hefur nánast verið á á hans dögum, eða ráðast í orgaryfirvöld í Tónlistar- k? Var eitthvað sem sagði ægt að ráðast í þessi verk- menningarhúsum fyrir um? Allt eru þetta brýn landsmanna allra. ð sem við glímum við um er sérstakt að því leyti, að hlutfall af ungu mennta- laust nú en áður. Það hefði r hugmynd að styrkja ð Íslands. Mjög hátt hlutfall hans er ungt, hámenntað komið úr námi. Um 70% af ns fer í laun. Fjárráð sjóðs- iri en svo, að hann gat að- Höfundur er efstur á lista Samfylkingar- innar í Reykjavík norður og er formaður flokksins. r – segi ég byggðina. hún fékk. a í andlit ki skuli þangað.“ einungis friðun á landsvæði, heldur er um að ræða veru- legt atvinnutækifæri ef rétt er að staðið, þar sem þjóð- garðar draga að sér mikinn fjölda ferðamanna. Stofnun þjóðgarða er augljóslega mikilvægt byggðarmál og þar af leiðandi er það skylda stjórnvalda að standa undir þeim væntingum sem heima- menn og aðrir landsmenn hafa gagnvart þjóðgarðinum. Er nóg að ýta úr vör? Þjóðgarðurinn Snæfellsjök- ull hefur upp á að bjóða stór- fenglega náttúru, sögu og menningu. Það er því brýnt að stjórnvöld fari að greiða þjóðgarðinum heimanmund- inn svo að landsmenn jafnt sem erlendir ferðamenn geti notið hans eins og best verð- ur á kosið. Það verður að vera skýr stefna stjórnvalda að fylgja eftir málum sem þau ýta úr vör, annars er betra heima setið en af stað farið. ÉG VAR að velta því fyrir mér hvort stjórnvöld hafi gleymt Vesturlandi við sam- þykkt fjárlaga 2003? Hafa þau enn einu sinni gleymt því að það kostar að reka þjóð- garða, menningarhús og skóla? Er nóg að geta barnið, sjá það fæðast – brosa móð- urlega til þess og eiga síðan litla peninga til að fæða það og klæða? Hvar er heiman- mundurinn? Á fjárlögum 2003 er gert ráð fyrir 10 milljónum til reksturs á Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Inni í því er allur rekstrarkostnaður, þar með talið laun þjóðgarðs- varðar og landvarða, rekstur bifreiða og leiga mannvirkja. Þetta er upphæð sem er verulega skorin við nögl þeg- ar litið er til þess að við stofnun þjóðgarðsins, í júní 2001, var gert ráð fyrir stofn- kostnaði upp á 100 milljónir. Stofnkostnaður á meðal ann- ars að kosta uppbyggingu upplýsingamiðstöðvar, merk- ingar og göngustígagerð, kortlagningu og gerð kynn- ingarefnis svo eitthvað sé nefnt. Heimanmundur brúð- arinnar Snæfellsjökuls hefur hins vegar ekki enn borist þó svo að hún skarti sínu fann- hvíta brúðarslöri. Stofnun þjóðgarðs er ekki Þjóðgarður án heiman- mundar Eftir Eydísi Líndal Finnbogadóttur Höfundur er jarðfræðingur og í 4. sæti á lista Framsóknarflokks- ins í Norðvesturkjördæmi. „Er nóg að geta barn- ið …?“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.