Morgunblaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 14
HAGNAÐUR Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar á árinu 2002 nam 57 milljón-
um króna eftir skatta. Árið áður var
hagnaðurinn 109 milljónir. Hagnaður
fyrir skatta var 86 milljónir í fyrra en
á árinu 2001 var tap fyrir skatta 22
milljónir. Arðsemi eigin fjár var 2,2%
árið 2002 en 4,7% árið áður.
Vaxtatekjur SPH námu alls 3.056
milljónum króna og lækkuðu um
24,3% frá árinu áður. Vaxtagjöld
námu 2.012 milljónum og lækkuðu
þau um 31,8% frá fyrra ári. Vaxta-
munur, þ.e. vaxtatekjur að frádregn-
um vaxtagjöldum, í hlutfalli af með-
alstöðu vaxtaberandi eigna var 3,9%
en var 4,2% árið 2001. Aðrar rekstr-
artekjur voru 605 milljónir og lækk-
uðu um 12,8% frá árinu 2001. Önnur
rekstrargjöld námu 1.255 milljónum
og jukust um 1,0% frá árinu áður.
Kostnaðarhlutfall, þ.e. rekstrargjöld
sem hlutfall af rekstrartekjum, var
76,1% í fyrra en var 69,8% á árinu
2001.
Framlag í afskriftareikning útlána
var 308 milljónir og lækkaði um 45%
frá fyrra ári. Framlagið var 1,4% af
útlánum og veittum ábyrgðum í
árslok 2002 en 2,3% á árinu 2001.
Afskriftareikningur útlána í hlutfalli
við útlán og veittar ábyrgðir var 2,6%
í árslok 2002, sem er óbreytt hlutfall
frá árinu áður.
Í árslok var niðurstaða efnahags-
reiknings 27.534 milljónir sem er
lækkun um 9,4% frá árinu áður. Eig-
ið fé Sparisjóðsins var 2.571 milljón í
árslok 2002 og hefur eigið fé aukist
um 57 milljónir á árinu eða 2,2%.
Eiginfjárhlutfall SPH samkvæmt
CAD-reglum er 12,1 % í árslok 2002
en var 11,7% í árslok 2001.
Rekstur í samræmi við áætlanir
Í tilkynningu frá Sparisjóði Hafn-
arfjarðar segir að rekstur hefðbund-
innar bankaþjónustu á árinu 2002
hafi í öllum meginatriðum verið í
samræmi við áætlanir en ávöxtun
markaðshlutabréfa og eignarhluta í
félögum hafi ekki verið í samræmi
við væntingar. Unnið hafi verið að
margvíslegum verkefnum til að
treysta rekstur Sparisjóðsins til
framtíðar, m.a. með breyttum út-
lánaáherslum og hagræðingu í
rekstri.
Aðalfundur Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar verður haldinn 12. apríl 2003.
Stjórn Sparisjóðsins leggur til að
greiddur verði 10% arður til stofn-
fjáraðila á árinu 2003.
Hagnaður Spari-
sjóðs Hafnarfjarð-
ar 57 milljónir
!
!
"#
" $
%
&%
%'
($
)!
(
$(#
$
! (
"!
!!
)###
!(
&%
% *+,-.
%%
% /
%
! 0!1
0 1
!
!!0)1
(0)1
!
!!
!
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þrjú íslensk fyrirtæki kynna starf-
semi sína í samstarfi við Útflutn-
ingsráð á fjarskiptasýningunni
3GSM World í Cannes í Frakk-
landi, sem hófst formlega í gær.
Fyrirtækin sem um ræðir eru
Zoom, Smart Ads og Trackwell. Þá
verður íslenska Agora-tæknisýn-
ingin kynnt gestum 3GSM World.
Ennfremur munu fyrirtækin Oz-
.com, Landmat og Maskína vekja
athygli á starfsemi sinni. Þannig
að alls eru sjö íslensk fyrirtæki að
kynna sig á sýningunni auk Agora.
Talsmenn sýningarinnar segja
að verulegur áhugi sé fyrir því sem
þar fer fram og benda á að aldrei
fyrr hafi jafnmargir gestir skráð
þátttöku, eða rúmlega 28 þúsund
frá 154 löndum. Sýnendur eru um
þrjú þúsund og um 600 blaðamenn
koma til þess að fylgjast með nýj-
ungum í fjarskiptatækni.
Vilhjálmur Árnason hjá Útflutn-
ingsráði sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að ástæða þess að Út-
flutningsráð taki þátt í sýningunni
megi rekja til áhuga fyrirtækja
sem hafi óskað eftir samstarfi til
þess að kynna starfsemi sína meðal
gesta í Cannes. Hann segir að Út-
flutningsráð hafi tekið þátt í sýn-
ingunni í fyrsta skipti í fyrra, en þá
voru Trackwell, Landmat, Góðar
lausnir, Grunnur og Fjárfesting-
arstofan saman á bás. Vilhjálmur
segir að Trackwell, sem byggist á
staðsetningarháðri þjónustu, hafi
meðal annars vakið talsverða at-
hygli, en bendir á að almennt séð
hafi gestum litist vel á lausnir ís-
lenskra fyrirtækja í Cannes.
„Það vakti athygli í fyrra hve
langt á veg komin við erum við er-
um komin í upplýsingatækniiðn-
aði. Af því leyti til má segja að
þessi sýning í fyrra hafi komið
okkur á kortið. Einnig hafa fyr-
irtæki eins og Oz unnið frum-
kvöðlastarf og skapað ákveðið orð-
spor. Sýningin í fyrra gekk það vel
að við ákváðum að koma hingað á
ný. Það er mikil vinna sem felst í
því að taka þátt í sýningun sem
þessari. Tækifærin eru hins vegar
til staðar og markmiðið er að
skapa sér rými í vitund þeirra sem
sækja sýninguna því hér eru allir
lykilmenn í þessari grein,“ segir
Vilhjálmur.
Vilhjálmur sagði að Trackwell
Oz og Landmat væru þau sem
hefðu ákveðið að koma aftur, en
ljóst væri að róðurinn væri þungur
hjá fyrirtækjum í upplýsinga-
tækniiðnaði um heim allan. „Vit-
anlega gera menn sér vonir um að
það fari að rofa til, en ég tel að
þeir sem lifi af þessa niðursveifa
muni koma sterk undan því tíma-
bili,“ segir Vilhjálmur.
Sjö íslensk fyrirtæki á 3GSM
3GSM-sýningin hófst formlega í Cannes í Frakklandi í gær en fjögur ís-
lensk fyrirtæki taka þátt.
Cannes. Morgunblaðið.
FISKISTOFA svipti fjögur skip
leyfi til veiða í atvinnuskyni í jan-
úarmánuði vegna brota á lögum um
umgengni við nytjastofna sjávar.
Sigurbjörg BA var svipti veiðileyfi í
tvær vikur vegna rangrar tilgrein-
ingar á afla skipsins við vigtun á
hafnarvog og Bjarmi BA var sviptur
veiðileyfi í tvær vikur vegna veiða án
aflaheimilda. Þá voru Sandafell ÍS
og Sævar Guðjóns ST svipt veiðileyfi
í tvær vikur vegna vanskila á frum-
riti úr afladagbók vegna veiða skip-
anna í nóvembermánuði sl.
Fjögur skip
svipt veiðileyfi
MIKIL viðskipti hafa verið með
bréf Íslandsbanka í Kauphöll
Íslands tvo síðustu viðskipta-
daga eða fyrir 4,1 milljarð
króna.
Í gær voru viðskipti með bréf
í félaginu fyrir 1.680 milljónir
króna og hækkaði gengi bréf-
anna um 2%, úr 5 í 5,10. Á mánu-
dag voru viðskipti með bréf í
bankanum fyrir 2.422 milljónir
króna. Alls fóru 135 viðskipti
fram með Íslandsbankabréf í
kerfi Kauphallarinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Íslandsbanka er um breiðan hóp
fjárfesta að ræða, bæði einstak-
linga og fagfjárfesta.
Í gær gaf Landsbanki Íslands
út nýja greiningarskýrslu um
Íslandsbanka og kemur þar
fram að Landsbankinn geri ráð
fyrir að talsvert svigrúm sé fyrir
hækkun á gengi bréfa félagsins.
4,1 milljarðs
viðskipti
með Íslands-
bankabréf
REKSTUR Sjafnar hf. á Akureyri
skilaði 82 milljóna króna hagnaði
eftir skatta á síðasta ári. Eigið fé fé-
lagsins í árslok 2002 var 278 millj-
ónir og heildarskuldir þess voru 25
milljónir króna, þar af var tekju-
skattsskuldbinding 13 milljónir
króna. Veltufjármunir voru í lok árs
241 milljón, þar af var handbært fé
210 milljónir og viðskiptakröfur og
birgðir námu alls 31 milljón króna.
Eiginfjárhlutfall Sjafnar hf. er 92%
og veltufjárhlutfall samkvæmt árs-
reikningi 21,1. Fastafjármunir og
eignarhlutir í dótturfélögum ásamt
vélum og tækjum nema 62 millj-
ónum króna, segir í tilkynningu.
Ákveðið hefur verið að stofna sér-
stakt félag, Gólflausnir ehf., um
rekstur gólfefnadeildar Sjafnar sem
hefja mun rekstur nú í febrúar.
Sjöfn hf. mun eiga 65% í Gólflausn-
um ehf. en 35% verða í eigu lyk-
ilstarfsmanna sem hafa unnið hjá
gólfefnadeild Sjafnar, að því er fram
kemur í tilkynningu.
Áframhaldandi uppbygging
og markaðssókn
Á árinu 2002 var eignarhlutur
Sjafnar hf. 65% í Mjöll hf. og 45% í
Hörpu Sjöfn hf. til 21. nóvember
2002, þegar Sjöfn hf. seldi Eign-
arhaldsfélaginu Hörpu ehf. hluta-
bréf sín í Hörpu Sjöfn hf. Rekstur
Mjallar hf. gekk vel á árinu 2002 og
verður áhersla lögð á áframhaldandi
uppbyggingu og markaðssókn fyr-
irtækisins. Gert er ráð fyrir að fé-
lagið velti 500 milljónum auk þess
sem áætlað er að P/F Kemilux
Industri í Færeyjum, sem Mjöll hf.
keypti stóran hlut í á síðasta ári,
velti 200 milljónum króna á þessu
ári.
Sjöfn verður fjárfestingarfélag
Ætlunin er að Sjöfn verði fjár-
festingar- og eignarhaldsfélag þar
sem lögð verður áhersla á breyt-
ingastjórnun og verðmætasköpun.
Verður sterk efnahagsleg staða
Sjafnar hf. nýtt á næstu vikum til
fjárfestinga í fyrirtækjum og rekstri
sem styður við stefnumörkun fé-
lagsins.
Hjá Sjöfn hf. og tengdum fé-
lögum starfa á annað hundrað
manns, bróðurparturinn á Akureyri.
Eyfirðingur ehf., félag í eigu Bald-
urs Guðnasonar, framkvæmdastjóra
Sjafnar, á 60% í félaginu og Kald-
bakur fjárfestingarfélag hf. á 40%.
Sjöfn hf. skilar 80
milljóna króna hagnaði
FINNSKI farsímaframleiðandinn
Nokia hefur komist að samningi við
fyrirtækið Oz sem felur í sér að Nokia
mun kaupa leyfi á Instant Messaging
(skyndiskilaboðaþjónustu) og hóp-
þjónustu, tækni sem Oz hefur þróað
undanfarin tvö ár. Skyndiskilaboða-
og hópþjónusta er hluti af heildar-
lausnum sem Nokia er að selja síma-
fyrirtækjum.
Hilmar Gunnarsson, markaðs-
stjóri Oz, segir að samningurinn, sem
kynntur var á 3GSM World-farsíma-
sýningunni í Cannes í Frakklandi í
gær, sé staðfesting á því starfi sem
fyrirtækið hafi sinnt undanfarin tvö
ár. „Samningurinn segir okkur að Oz
er orðið leiðandi fyrirtæki á sínu sviði
í heiminum. Við höfum sýnt að lausn
okkar á Wireless Village fyrir skyndi-
skilaboðaþjónustu er sú besta sem til
er á markaðinum. Af þeim sökum
hefur Nokia ákveðið að hefja sam-
starf við okkur,“ segir Hilmar.
Um er að ræða skyndiskilaboða-
þjónustu sem gerir notendum mögu-
legt að miðla upplýsingum sín á milli
á sambærilegan hátt og hægt er að
notfæra sér slíka þjónustu um tölvu.
Með búnaði Oz er gert ráð fyrir að
notendur geti átt samskipti hvort
sem þeir eru staddir við tölvu eða
með farsíma við höndina, bæði ein-
staklingar eða hópar. Tæknin styður
SMS og GPRS, en Hilmar segir að
flest GPRS-net farsímafyrirtækja
séu lítið notuð. „Við teljum hins vegar
að skyndiskilaboða- og leikjaþjónusta
verði notendum hvatning til þess að
nota GPRS-kerfið. Gert er ráð fyrir
tæknin taki við hlutverki SMS og
verði að endingu að samhæfðu við-
móti fyrir hvers kyns samskipti um
farsíma. Nokia er eitt af stofnendum
Wireless Village-staðlaráðsins og
mun á komandi mánuðum senda frá
sér farsíma sem styðja þennan staðal.
Ég geri því ráð fyrir að þessi tækni
muni ná verulegri fótfestu á mark-
aðnum,“ segir Hilmar.
Búist er við því að fyrstu tilrauna-
kerfin sem nota heildarlausn Nokia
verði tekin í notkun í sumar. Spurður
um umfang samningsins sagði Hilm-
ar að það færi eftir því hversu vel
Nokia gengi að selja vöruna til helstu
farsímafyrirtækja heims. „Við gerum
okkur hins vegar vonir um að þeim
muni farnast vel enda í lykilaðstöðu á
farsímamarkaðinum með tæplega
40% markaðshlutdeild,“ segir Hilm-
ar.
Nokia gerir
samning við Oz
Þjónusta hönnuð af Oz hluti af heild-
arlausnum símafyrirtækisins Nokia
Cannes. Morgunblaðið.
HAGNAÐUR Sparisjóðabanka Ís-
lands hf. nam 125,3 milljónum króna
á síðasta ári eftir skatta en hagn-
aðurinn var rúmar 15 milljónir árið
2001. Fyrir skatta var 155,8 milljóna
króna hagnaður á síðasta ári en árið
2001 var 49,3 milljóna króna tap sem
þýðir viðsnúning upp á 205 milljónir
króna. Viðsnúninginn má fyrst og
fremst rekja til breytinga í gengis-
mun af viðskiptum með veltuskulda-
bréf og veltuhlutabréf, að því er
fram kemur í tilkynningu bankans.
Þar segir jafnframt að efnahags-
reikningur bankans hafi minnkað úr
54,3 ma.kr. í árslok 2001 í 44,2
ma.kr. í árslok 2002 og ástæður séu
einkum tvær; í fyrsta lagi hækkun á
gengi krónunnar um 11,9% á árinu
2002, en hátt í 40% af efnahags-
reikningi bankans eru bundin gengi
erlendra gjaldmiðla, og í öðru lagi
góð lausafjárstaða sparisjóða vegna
mikillar aukningar innlána en hóf-
legs vaxtar útlána.
CAD-eiginfjárhlutfall bankans
hækkaði úr 11,5% í árslok 2001 í
15,7% í árslok 2002. „Þessa hækkun
má að drýgstum hluta rekja til sölu
á hlutabréfum bankans í SP-Fjár-
mögnun og um helmingi af hlutum í
beinni eigu bankans í Kaupþingi
banka. Fyrir utan hagstæð áhrif á
eiginfjárhlutfall bankans sköpuðu
þessi viðskipti og sala á hlutabréfum
í Alþjóða líftryggingarfélaginu
bankanum rúmlega 140 m.kr. í sölu-
hagnað,“ segir í tilkynningunni. Þá
segir að tiltölulega hátt eiginfjár-
hlutfall bankans miðað við aðra við-
skiptabanka og það markmið sem
eigendur hans hafa sett honum gefi
færi á að auka umsvifin nokkuð á
árinu 2003.
Mun betri
afkoma Spari-
sjóðabankans