Morgunblaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 21
KVÓTI Sandgerðinga gæti aukist
um 300 til 400 tonn ef samstaða næst
meðal hagsmunaaðila um tillögur
bæjaryfirvalda um úthlutun byggða-
kvóta samgönguráðuneytisins.
Samþykktar hafa verið í bæjarráði
Sandgerðisbæjar hugmyndir um út-
hlutun byggðakvóta samgönguráðu-
neytisins. Bæjarráðið hefur látið
gera drög að samstarfssamningi milli
bæjarins, útgerðarmanna og fisk-
verkenda í bænum um nýtingu á
kvótanum. Hugmyndin er sú að kvót-
anum verði skipt á milli allra útgerða
og fiskverkenda sem á því hafa
áhuga. Þeir sem taka þátt í samstarf-
inu skuldbinda sig til að leggja fram
ákveðna fjárhæð á móti þannig að
hægt verði að auka byggðakvótann
um 50%, úr 100 tonnum í 150 tonn.
Síðan skuldbinda þeir sem fá úthlut-
un sig til að leggja jafn mikið á móti
af nýjum kvóta þannig að kvótinn
gæti aukist um 300 tonn í heild.
Því til viðbótar vinnur bæjarráðið
að því að fá lán á sem hagkvæmust-
um vöxtum til kaupa á viðbótarkvóta
og leigja til þeirra sem taka þátt í
samstarfinu. Meðal annars hefur ver-
ið sótt um lán hjá Byggðastofnun.
Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjar-
stjóri segir að ef það takist að afla um
100 milljóna króna lánsfjár sé hægt
að kaupa um 100 tonn af eignarkvóta,
til viðbótar þeim 300 tonnum sem
samstarfið skilar.
Gert er ráð fyrir að kosin verði
þriggja manna stjórn til að fara með
framkvæmd samstarfssamningsins,
bæjarstjórn kjósi formann en útgerð-
armenn og fiskverkendur eigi tvo
fulltrúa.
Brot til baka
Sandgerði hefur misst meginhluta
af kvóta bæjarins á undanförnum ár-
um. Sigurður Valur segir að um 90%
kvótans séu farin, eða um 10 þúsund
tonn. Bæjaryfirvöld beittu sér fyrir
samstöðu meðal útgerðarmanna og
fiskverkenda í bæjarfélaginu að
sækja um byggðakvóta sjávarút-
vegsráðuneytisins og fékk í sínu
nafni 100 tonn.
Að undanförnu hefur verið unnið
að setningu reglna um úthlutun kvót-
ans og liggja þær tillögur nú fyrir,
eins og fram kemur hér að framan,
og hefur meirihlutinn, fulltrúar
K-lista óháðra borgara og Samfylk-
ingar og Sjálfstæðisflokks, samþykkt
þær. Fulltrúi Framsóknarflokksins í
bæjarráði lýsti andstöðu við tillög-
urnar og kvaðst ekki hafa trú á að
hugmyndafræði meirihlutans gengi
upp. Hann lagði til að helmingi kvót-
ans yrði strax úthlutað til smábáta og
hinum helmingnum til fiskverkenda,
gegn því að allir aðilar leigðu á móti
jafn mikinn kvóta til bæjarins.
Fulltrúar meirihlutans töldu þessa
tillögu ekki samrýmast umsókn bæj-
arins og skilyrðum ráðuneytisins fyr-
ir úthlutun byggðakvótans.
Sigurður Valur segir ljóst að þótt
takist að margfalda úthlutaðan
byggðakvóta sé þetta aðeins brot af
þeim kvóta sem bæjarfélagið hafi
misst og aðgerðirnar aðeins fyrsta
skrefið til að efla útgerð á nýjan leik.
Einhvers staðar þurfi að byrja.
Hann segir að ef samstaða náist og
þetta samstarf heppnist auki það lík-
urnar á því að bæjarfélagið fái áfram
byggðakvóta við endurúthlutun hans
á næsta ári.
Úthlutað 28. febrúar
Bæjarráð hefur boðað þá útgerð-
armenn og fiskverkendur sem talið
er að falli undir skilyrði samstarfs-
samningsins til fundar um næstu
helgi. Þar verða drög að samningn-
um kynnt og mönnum síðan gefinn
kostur að skrá sig í samstarfið. Gert
er ráð fyrir að byggðakvótanum
verði úthlutað 28. þessa mánaðar og
50 tonna viðbótinni mánuði síðar.
Morgunblaðið/RAX
Útgerðum og fiskverkendum boðið upp
á samstarf um nýtingu byggðakvótans
Kvótinn
gæti þre- eða
fjórfaldast
Sandgerði
DÓRA Guðrún Guðmundsdóttir,
verkefnisstjóri Geðræktar, og Sig-
ursteinn Másson, formaður Geð-
ræktar, opnuðu forvarnavikuna í
Grindavík ef þannig má að orði
komast. Erindi þeirra, Sjálfsmynd –
geðheilsa – vellíðan, átti greinilega
erindi við krakkana í 8.–10. bekk
grunnskólans.
„Ég hef verið að fara með
fræðslu um sjálfsmynd, geðheilsu
og vellíðan í framhalds- og grunn-
skóla víða um land. Við Sigursteinn
Másson erum tiltölulega nýbyrjuð
með þetta saman. Geðrækt er að
bjóða upp á alls konar fyrirlestra
hvort sem það er í skólum, stofn-
unum eða fyrirtækjum og fer efnið
allt eftir óskum viðkomandi,“ sagði
Dóra Guðrún.
Á sama tíma var Felix Bergsson
leikari að ræða við krakkana í 1.–4.
bekk um það að það sé í lagi að vera
öðru vísi. Felix hitti reyndar alla
árganga og féll erindið vel í kramið
hjá krökkunum. Um kvöldið voru
þau Dóra Guðrún og Sigursteinn
með erindi í skólanum fyrir full-
orðna.
Forvarnavikan byrjar því vel en
margt er gert sér til ánægju þessa
vikuna og allt með því hugarfari að
fyrirbyggja. Öllum bæjarbúum er
boðið í sund laugardaginn 22. febr-
úar og sunnudaginn 23. febrúar.
Fjöldinn allur af fyrirlestrum er
alla vikuna fyrir nemendur skólans
og fullorðna.
Hugað að sjálfs-
myndinni
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir flytur erindi um geðheilsu.
Grindavík
LÖGREGLAN í Keflavík er með til
rannsóknar tvær sprengingar með
rörasprengjum við heimili kennara í
Reykjanesbæ síðastliðnar þrjár vik-
ur. Hún hefur rætt við tvo pilta
vegna málsins.
Lögreglan í Keflavík gefur ekki
aðrar upplýsingar um málið en að
það sé til skoðunar. Á fréttasíðu Vík-
urfrétta í gær kom fram að annar
piltanna, en þeir eru sextán ára,
haldi úti vefsíðu þar sem sagt er frá
fjórum skotmörkum. Þar séu einnig
leiðbeiningar um gerð rörasprengna.
Rannsaka
sprengingar við
heimili kennara
Keflavík