Morgunblaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 16
ERLENT 16 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ AÐ minnsta kosti 120 manns biðu bana í miklum bruna, sem varð í tveimur neðanjarðarlestarvögnum í Daegu í Suður-Kóreu í gær. Eldur- inn kviknaði þegar maður kveikti í fernu utan af mjólk, en talið er að eldfimur vökvi hafi verið í fernunni. Lögregla handtók mann sem grun- aður er um verknaðinn en hann er sagður hafa átt við geðræn vandamál að stríða. Yfirvöld segjast hafa talið 70 lík í öðrum af tveimur lestarvögnum sem urðu eldinum að bráð. Áður höfðu 50 dauðsföll verið staðfest og því var heildartala látinna komin í 120. Á milli 70 og 100 manns var hins vegar enn saknað og því gæti tala látinna farið yfir 200. Meira en eitt hundrað manns til viðbótar urðu fyr- ir slæmum brunasárum eða reyk- eitrun. Mörg líkanna voru svo brennd að þau voru óþekkjanleg. Sagði Kim Shin-Dong, slökkviliðsstjóri í Daegu, að langan tíma gæti tekið að bera kennsl á sum þeirra. Vitni sögðu að maðurinn sem bar ábyrgð á brunanum hefði virst sturl- aður. Þegar maðurinn reyndi að kveikja í mjólkurfernunni með sígar- ettukveikjara reyndu nokkrir far- þegar að stöðva hann. Virðist hafa komið til nokkurra slagsmála og kastaði maðurinn þá fernunni á gólf vagnsins. „Hann hellti eldfimum vökva um allt gólfið og kveikti síðan í með sígarettukveikjara,“ sagði eitt vitnanna, Jun Yung-Nam. Eldurinn læsti sig fljótt í veggi fyrri lestarvagnsins, sem var ekki á ferð enda staddur við lestarstöð í borginni. Þaðan barst eldur í annan vagn sem sneri í gagnstæða átt, en var sömuleiðis kyrrstæður. Björgunarmenn með gasgrímur börðust lengi við svartan reykinn og eiturgufur í því skyni að reyna að bjarga fólki sem var fast inni á neð- anjarðarstöðinni. Er ljóst að margir létust vegna reykeitrunar. Var reyk- urinn svo mikill í næsta nágrenni lestarstöðvarinnar að það hamlaði björgunarstarfi lengi vel. Meira en þrjár og hálfa klukkustund tók að ráða niðurlögum eldsins. Handtekinn á sjúkrahúsinu Greint var frá því í suður-kóresk- um fjölmiðlum að lögreglan hefði handtekið íkveikjumanninn, Kim Dae-Hwan, á sjúkrahúsi þar sem verið var að hlúa að sárum sem hann varð fyrir í brunanum. Höfðu aðrir, sem þurftu á aðhlynningu að halda, þá borið kennsl á hann. Maðurinn er 56 ára gamall en Cho Hae-Nyong, borgarstjóri í Daegu, sagði að fyrir lægju gögn sem sýndu að maðurinn hefði átt við geðræn vandamál að stríða um langt skeið. „Ég geri ráð fyrir að lögreglan komist að raun um tilefni verknaðarins eftir að hún lýk- ur rannsókn sinni,“ sagði borgar- stjórinn. „Eins og sprenging hafi orðið“ Reuters-fréttastofan hafði eftir embættismanni, Lee Hyong-kyun, að fólk hefði verið dauðadæmt um leið og maðurinn kveikti eldinn. „Ef þú kveikir í eldfimu efni, s.s. olíu, á lokuðu svæði má líkja afleiðingunum við að sprenging hafi orðið,“ sagði hann. „Það gefst lítill sem enginn tími til að flýja við svona aðstæður.“ Sagði Lee að eldurinn hefði síðan líklega breiðst hratt út, einkum eftir að hann komst í sæti lestarinnar og gólfflísarnar, sem væru úr efni sem brynni vel. AP Björgunarfólk ber slasaðan mann á brott frá vettvangi eldsvoðans í gær. Íbúar Daegu leita nafna ættingja sinna á lista sem hengdur var upp nærri neðanjarðarlestarstöðinni í gær með nöfnum fórnarlamba eldsvoðans. Maður sem virtist sturlaður kveikti eld í neðanjarðarlest í borginni Daegu Daegu. AFP.                         ! "#$%&'"($)                   '$*) &           ! "#$%  )+)( ($' &'' (   )  *       )           +,   Óttast að 200 hafi farist í elds- voða í S-Kóreu BJÖRGUNARMENN lýstu að- stæðum á vettvangi eldsvoðans í Daegu í Suður-Kóreu í gær sem sannkölluðu helvíti á jörðu. Eitt vitna lýsti eyðileggingunni af völd- um eldsvoðans sem „hrikalegri“. „Það var myrkur alls staðar. Hitinn var enn ofboðslegur heilum átta klukkustundum eftir eldsvoðann,“ sagði vitnið. „Þetta var næstum eins og í hel- víti þarna niðri. Maður sá líkams- leifar, fólk sem hafði brunnið svo illa að ekkert var eftir nema beinin,“ sagði einn slökkviliðsmannanna sem tók þátt í björgunarstarfinu í gær. Hundruð farþega reyndu í ör- væntingu að flýja eldinn, reykinn og hitann og urðu aðstæður afar erf- iðar eftir að rafmagn fór af lest- arstöðinni og algert myrkur tók við. „Ég reyndi að komast út,“ sagði Kim Ho-Jun, sem er 68 ára, en veita þurfti honum aðhlynningu vegna reykeitrunar. „En annar farþega ruddist framhjá mér með þeim af- leiðingum að ég datt í gólfið og það leið yfir mig,“ bætti hann við. „Ég vissi ekki af mér fyrr en björgunar- menn drógu mig í öruggt skjól. Það er guði að þakka að ég skuli hafa lif- að því svo margir aðrir sluppu ekki jafn vel.“ Nokkur fórnarlambanna hringdu í ættingja sína áður en þau urðu eld- inum að bráð. Chung Sook-jae, sem er 54 ára, flýtti sér til að mynda á vettvang hamfaranna eftir að dóttir hennar, hin 26 ára gamla Min Shim- eun, hringdi til að segja föður sínum að hún væri að kafna. Síðan þagnaði síminn og ekki heyrðist meira til hennar. Sagði Chung að hún óttaðist hið versta. „Ef hún er ekki komin út núna þá er hún sennilega dáin. Hvað á ég að gera ef lík hennar er svo illa brunnið að það er óþekkjanlegt?“ Kang Yeon-ju, sem var 21 árs, hringdi sömuleiðis í móður sína til að segja henni að eldur væri kominn upp í lestinni og að lestardyrnar vildu ekki opnast. „Ég sagði henni að brjóta glugga og koma sér þann- ig út,“ sagði móðirin, Kim Bok-sun. Hringdi hún aftur í dóttur sína nokkrum mínutum síðan, „en hún svaraði ekki símanum“. „Hún svaraði ekki símanum“ ’ Nokkur fórnar-lambanna hringdu í ættingja sína áður en þau urðu eldinum að bráð. ‘ STJÓRNVÖLD í Norður-Kóreu hótuðu í gær að rifta vopnahlés- samningi, sem batt enda á Kór- eustríðið árið 1953, og sökuðu Bandaríkjamenn um að undirbúa hafnbann og árásir á landið. Ari Fleischer, talsmaður Bandaríkjaforseta, gerði lítið úr þessari hótun í gær og sagði hana í samræmi við „fremur fyrirsjá- anlegt mynstur stigmögnunar í yfirlýsingum Norður-Kóreu- manna“. „Þetta er vandamál sem þjóðir heims þurfa að leysa og það er enn afstaða okkar.“ Talsmaður norður-kóreska hersins sagði að ástandið á Kór- euskaga væri orðið mjög hættu- legt vegna meintra áforma Bandaríkjamanna um að efla her- afla sinn í Suður-Kóreu og setja hafnbann í því skyni að undirbúa fyrirbyggjandi árásir á Norður- Kóreu vegna deilunnar um kjarnavopnaáætlun landsins. Hann skírskotaði meðal annars til þess að norður-kóreskt flutn- ingaskip með Scud-eldflaugar var stöðvað á leiðinni til Jemens í desember. Talsmaðurinn sagði að héldu Bandaríkjamenn áfram „að brjóta og misnota vopnahlés- samninginn að vild sinni“ ættu Norður-Kóreumenn einskis ann- ars úrkosti en að rifta samningn- um. „Lítil hætta á stríði“ Embættismenn í Suður-Kóreu og Bandaríkjunum sögðu þó að ekkert benti til þess að Norður- Kóreumenn væru að undirbúa árás yfir landamærin. „Ég tel að það sé lítil eða engin hætta á stríði á Kóreuskaga,“ sagði for- seti Suður-Kóreu, Kim Dae-jung. Árlegar vetraræfingar Norður- Kóreuhers standa nú yfir en þær hafa ekki verið mjög umfangs- miklar á síðustu árum vegna mik- ils eldsneytisskorts í landinu. Margir telja að markmiðið með herskáum yfirlýsingum Norður- Kóreustjórnar að undanförnu sé að auka spennuna og knýja Bandaríkjastjórn til samningavið- ræðna um griðasamning og ýmsa aðstoð sem Norður-Kóreumenn hafa mikla þörf fyrir. Kóreustríðinu á árunum 1950– 53 lauk með vopnahléssamningi en ekki formlegu friðarsamkomu- lagi. Norður-Kóreustjórn hefur oft lýst lýst samningnum sem „gagnslausu pappírssnifsi“. N-Kórea hótar að rifta vopnahléssamningnum Seoul. AP.DAGBLÖÐ í Antwerpen í Belgíu segja demantaránið, sem framið var í borginni um helgina, það stærsta í sögunni. Þjófar hreinsuðu þá úr 123 af 160 öryggishólfum í Demantahöllinni svokölluðu, en þar er öryggisviðbún- aður með allra mesta móti. Komust þeir undan með fjölda demanta, hefur lögreglunni raunar ekki enn tekist að meta tjónið, svo umfangsmikið er það. Upp komst um ránið á mánudags- morgun. Hvergi er vinnsla demanta stunduð í meira mæli en í Antwerpen. Eru demantar fluttir þangað óunnir frá öðrum löndum til vinnslu, og síðan seldir áfram. Ekki er enn vitað hversu mörgum demöntum þjófarnir tókst að koma undan en Júrí Steverlynck, talsmaður Demantaráðs borgarinnar sagði ljóst að tjónið í peningum talið væri meira en í ráni fyrir áratug síðan, en þá tæmdu þjófar fimm öryggishólf. Var tjónið þá metið á 4,25 milljónir evra. „Stærsta rán sögunnar í demanta- hverfinu“ sagði í fyrirsögnum tveggja dagblaða í Antwerpen í gær. Vekur ránið ekki aðeins eftirtekt vegna þess, hversu miklu magni steina var stolið, heldur jafnframt vegna þeirrar ósvífni sem þjófarnir sýndu. Bygging- in sem hýsir Demantahöllina svo- nefndu er nefnilega í hjarta þess borgarhluta sem geymir flest dem- antahúsanna og öryggisviðbúnaður er þar slíkur, að ótrúlegt þykir að ránsmönnum skyldi takast ætlunar- verkið. Eftirlitsmyndavélar eru á hverju horni og ekki er hægt að komast inn í bygginguna án sérstakra skilríkja. Þá fylgjast öryggisverðir grannt með því herbergi, þar sem öryggishólfin var að finna. Engin merki voru um inn- brot og því grunar lögregluna að þjóf- arnir hafi fengið aðstoð innan frá og hafa öryggisverðir verið yfirheyrðir af þeim sökum. Komust undan með mikið magn demanta Brussel. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.