Morgunblaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ leonardo dicaprio tom hanks UPPISTAND FÖS, 21. FEB AUKASÝNING LD, 22. FEB 2 d aga r Sýnd kl. 6, 8 og 10. KVIKMYNDIR.IS HK DV 2 Tilnefningar til Óskarsverðlauna Aukahlutverk karla: Christopher Walken Besta tónlistin: John Williams Kvikmyndir.com SV MBL Radíó X OHT Rás 2 HJ MBL Hann hafði draumastúlkuna við hlið sér... ...en áttaði sig á því þegar hún var farin Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 10. ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 6. Síðustu sýningar. Sýnd kl. 8 og 10. E. texti. Stranglega bönnuð innan 16. H.K DV Kvikmyndir.is H.L MBLDV Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Náðu þeim í bíó í dag. Í mynd eftir Steven Spielberg Radíó X SV MBL HK DV ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com ÁLFABAKKI AKUREYRI 2Tilnefningar til ÓskarsverðlaunaAukahlutverk karla: Christopher WalkenBesta tónlistin: John Williams Sýnd kl. 8 og 10. / Sýnd kl. 8. ÞAÐ gekk upp markaðs- bragðið að skella róm- antísku gamanmyndinni Tveggja vikna uppsagn- arfrestur í bíó á Valent- ínusardeginum ameríska. Vitanlega voru margir í rómantíska gírnum á föstudag og um helgina, sem fleytti myndinni auð- veldlega í efsta sæti bíó- tekjulistans. Yfir 4 þús- und turtildúfur fylgdust með þeim Hugh Grant og Söndru Bullock stinga saman nefjum en sagan segir að svo vel hafi þau náð saman í raun og veru að ástin hafi kvikn- að í alvöru á tökustað. Róbert Wesley hjá Sambíóunum segir menn þar á bæ mjög sátta við þessi góðu viðbrögð við myndinni og að þau hafi ekki komið á óvart, enda Grant og Bullock ver- ið með ansi traust adráttarafl hér á landi í gegnum árin. „Þar að auki njóta rómantískar gam- anmyndir jafnan talsverðra vin- sælda, ekki hvað síst þegar þær fá góða dóma og spyrjast vel út. Það fleytir svona myndum ansi langt,“ segir Róbert. Beint í annað sætið stekkur síð- an Allt um Schmidt, margrómuð bandarísk satíra með Jack Nich- olson í aðalhlutverki karluglu sem hefur allt á hornum sér, kvíðir því að þurfa að láta af störfum fyrir aldurs sakir og eyða meiri tíma með eiginkon- unni sem hann fyrirlítur og á býsna erfitt með að sætta sig við tilvonandi tengdason sinn, sem hann telur lúða hinn mesta. Þeg- ar kona hans fellur sviplega frá ákveður Schmidt að leggja upp í reisu á húsbílnum sem þau keyptu fyrir eftirlaunasjóðinn og freista þess að ná sáttum við dóttur sína og tengdafólk. Nicholson þykir vinna enn einn leiksigurinn í myndinni og er til- nefndur til Óskarsverðlauna, ásamt Kathy Bates, sem leikur frjálslynda móður tengdasonarins. Gleðiefni er að sjá ís- lensku barna- og fjöl- skyldumyndina Diddu og dauða köttinn sækja í sig veðrið frá síðustu helgi sem gerir það að verkum að myndin hækkar sig úr 5. í 3. sæti. Hasarmyndin Í skotlínu (Ballistic) og sænska teiknimyndin Kalli á þak- inu koma síðan nýjar inn í 9. og 10. sæti. Af þeim myndum sem nú eru í sýningum er langvinsælust sem fyrr Tveggja turna tal. Rétt tæplega 90 þúsund manns hafa séð myndina og er hún nú klárlega komin í hóp allra vinsælustu mynda ís- lenskrar bíósögu og er enn ekki hægt með vissu að sjá fyrir hvar sigurgangan kemur til með að enda. Rúmlega 65.500 hafa séð Harry Potter og leyniklefann og rétt rúmlega 62 þúsund Bond- myndina Deyðu annan dag. Hafið er komin yfir 57.500, rúmlega 27 þúsund hafa séð Stellu í framboði og rúmlega 26 þúsund Disney-teiknimyndina Líló og Stich. Rómantíkin höfð í hávegum um Valentínusarhelgi Blóm og bíóferð Grant á nærhaldinu og Bullock í síðkjól, er hægt að hafa það betra?                                ! "   #     $ %&" '#$( %   )    $ " %#       $ * (  #                !"      $ ! %  &''  '' ()  *'       ''+,   -   ,  $ '. / 0  1  2 ' -* '3                   + , - . / 0   1 2 3 -/ -, -1 -0 -4 -2 ,- # 5 5 , , / , / 1 5 5 1 , 1 . / ,+ 0 + -/ 2                   !  "  # 67 8(9 '9 : $9 ' (#69 ;<767 <679 = 9 67 67 : $9 ' (#69 ;<767 <679 <679 67 : $ 67 8(9 : $9 ' (#69 ;<767 <679 = 9 <67 <679 <679 67 : $ <679 <679 679 )   $>9 (>?  <67 <679 <679 67 67 8(9 '9 : $9 ' (#69 ;<7679 (> 67 ' ;<7679  67 8(9 : $9 ' (#69 @  9 @  =  67 8(9 ;<767 67 8(9 '9 : $ <679 679 ;<7679 :  67 8(9 '9 ;<767 67 8(9 (>? 9 @  9 ;A#6 skarpi@mbl.is HAFNFIRSKA rokksveitin Botn- leðja vakti verðskuldaða athygli í af- staðinni forkeppni fyrir Evróvisjón- keppnina í Riga. Ekki er hægt að segja að framlag Botnleðjunga geti fallið undir við- teknar hugmyndir um snið Evró- visjónlaga en þannig blésu nú vind- arnir í ár, kannski vegna helst til mikils Evróvisjónþurrks, en Ísland tók ekki þátt í fyrra sem kunnugt er. Þannig átti Heiða t.d. öðruvísi og einkar fallegt lag, Eivör Pálsdóttir flutti undurljúfa, lágstemmda stemmu og læknirinn Páll Torfi snaraði inn rómanskri stemmu. Hrátt og kröftugt rokk Botnleðju skilaði þeim hins vegar alla leið upp í annað sætið. Samband var haft við Harald Gíslason, trymbil sveitarinnar, sem keyrði sveitina áfram í lokakeppn- inni af fádæma hörku og gleði. „Tja ... ég veit nú ekki hvort ég var einhver prímus mótor í þessu. Við höfum allir okkar stíl,“ segir Har- aldur rólega, aðspurður um hvort hann hafi verið heilinn á bakvið þetta. – En frá dýpstu hjartarótum, varstu fúll yfir því að vinna ekki? „Að sjálfsögðu. Við fórum með því hugarfari að vinna í keppninni.“ – Maður heyrði talað um baráttu stefnanna í þessari keppni, pönk á móti poppi... „Já (hlær), þetta var kannski dálít- ið þannig.“ – Ætlið þið að taka þátt á næsta ári? „Nei. Þetta gerum við bara einu sinni.“ – Voruð þið litnir hornauga af öðr- um keppendum? „Nei, alls ekki. Við vorum bara í keppni – vorum bara að skemmta okkur. Okkur fannst líka spennandi að sjá viðbrögðin við þessu.“ – En það var greinilegt að þið vor- uð að gera þetta af heilindum. „Algjörlega. Svona keppni á að vera skemmtileg og við vorum á eng- an hátt að gera lítið úr keppninni. Við ætluðum að fara til Lettlands og vinna þar líka. Það var alltaf mark- miðið.“ – Myndirðu segja að þið hafið rutt brautina fyrir svipuðum hlutum í framtíðinni? „Ég efast um það. Ég sé ekki fyrir mér að hljómsveitir á svipuðum stað og við, t.d. Ensími eða Maus, muni taka þátt í Evróvisjón. Það er búið að gera þetta. Engu að síður vona ég að það gerist.“ Skrýtin og skemmtileg Leðjan fer ekki til Lettlands en þá er það bara næsta verkefni, sem er ný plata. Hún á að koma út í mars, er fimmta breiðskífa Botnleðju og mun heita Iceland National Park. Áður hafa komið út plöturnar Drullumall (’95), Fólk er fífl (’96), Magnyl (’98) og Douglas Dakota (’00). – Hvernig er nýja platan í sam- anburði við hinar? „Hún er a.m.k. allt öðruvísi en síð- asta plata. Meira hressandi, án þess þó að vera eitthvað poppuð. Hrá, skrýtin og skemmtileg. Fyrst og fremst skemmtileg.“ – Hvernig var hún unnin? „Við tókum hana upp með Pro- Tools (upptökuforrit) í æfing- arhúsnæðinu okkar. Hún var hljóð- blönduð í Sýrlandi en hljómjöfnuð úti í Sviss. Swell Mellah tók þetta upp en hann tók t.d. upp plötu Fidel.“ – Og hvernig gekk að vinna með honum? „Vel. Hann er á sama stað og við tónlistarlega og er hrifinn af sama hljómi og við.“ – Hvar kemur platan út? „Hún kemur víst út um allan heim. Við eigum bara eftir að gera samning úti í Bandaríkjunum. Norska fyr- irtækið Trust Me Records sér um að koma þessu í almenna dreifingu fyrir okkur. Svo sjáum við bara til með frekari kynningar á plötunni.“ – Lokaorð? „Ég vil bara þakka öllum þeim fjölda sem kaus okkur í Evróvisjón og gerði keppnina skemmtilega.“ Ný plata á leiðinni Morgunblaðið/Kristinn Strákarnir skrýddust þjóðbúningnum á sviðinu í Háskólabíói. arnart@mbl.is Botnleðja hugsar sér til hreyfings
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.