Morgunblaðið - 19.02.2003, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 11
Alþjóðleg ferðaráðgjöf
Ferðamálaskóli Íslands er eini skólinn á Íslandi
sem hefur kennt alþjóðlegt IATA/UFTAA námsefni
samfleitt í 12 ár. Á hverju ári útskrifar skólinn
„ferðaráðgjafa“ til starfa á ferðaskrifstofum,
flugfélögum og við aðra ferðaþjónustu,
enda er í dag krafa ferðaþjónustuaðila
að starfsfólk hafi slíka menntun.
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
áætlun fyrir það ár. Skuldaaukningin
sé því ekki sú sama í prósentum í töl-
um Þórólfs og í tölum sjálfstæðis-
manna, sem breyti þó engu um heild-
arniðurstöðuna. „Við töldum
skynsamlegt að miða við síðasta heila
árið sem sjálfstæðismenn voru við
stjórnvölinn. Síðan er 1994 kosninga-
ár og við tókum árið 2003 með, því við
höfum áætlanir um það ár,“ segir
Björn.
Hefðu viljað hlutlausa úttekt
Hann segir að sjálfstæðismenn
harmi að Þórólfur vilji ekki láta hlut-
lausa úttekt fara fram á fjármálum
borgarinnar. „Hann bendir á að hann
taki sæti í sparnaðarnefnd. Við teljum
að þessi sparnaðarnefnd sé staðfest-
ing á því að það sé komið að þeim
tímapunkti að það verði ekki haldið
áfram á sömu braut heldur þurfi að
móta eitthvert aðhald í þessum
rekstri og umsvifum. Það stefnir í
óefni og hefur gert lengi með þessari
skuldasöfnun.“
„ÞAÐ er mjög mikilvægt að fá þessa
viðurkenningu á því hvernig skuldirn-
ar hafa aukist ár frá ári um mörg
hundruð prósent,“ segir Björn
Bjarnason, oddviti sjálfstæðismanna í
borgarstjórn, um svar Þórólfs Árna-
sonar borgarstjóra við fyrirspurn
sjálfstæðismanna um skuldaþróun
borgarinnar frá því R-listinn tók við
völdum í borginni. Hann segir svar
borgarstjóra hnekkja í engu því sem
sjálfstæðismenn hafi sagt um þróun
skuldamála borgarinnar og það sé
grundvallaratriði að fá viðurkenningu
á því sem sjálfstæðismenn hafi sagt
um skuldir borgarinnar.
Björn segir gott að Þórólfur taki
undir sjónarmið sjálfstæðismanna
um að líta beri á samstæðureikning
borgarinnar, þ.e. skuldir borgarsjóðs
og fyrirtækja í eigu borgarinnar. Í
svari Þórólfs sé miðað við árabilið
1994–2002 en sjálfstæðismenn hafi
miðað við lengra tímabil, það er frá
árinu 1993 til 2003. Tölurnar fyrir árið
2003 hafi verið teknar úr fjárhags-
Í tölum sínum segja sjálfstæðis-
menn að heildarskuldir á hvern borg-
arbúa séu 733 þúsund, en í tölum Þór-
ólfs er talan 464 þúsund krónur nefnd
í þessu sambandi. Björn segir skýr-
inguna vera þá að Þórólfur taki lífeyr-
isskuldbindingar ekki með í reikning-
inn. Þá sé einnig miðað við áætlaðar
heildarskuldir borgarinnar sam-
kvæmt fjárhagsáætlun 2003 í tölum
sjálfstæðismanna. Gert sé ráð fyrir að
heildarskuldir borgarinnar með líf-
eyrisskuldbindingum verði orðnar
83,5 milljarðar í lok þessa árs, en 60
milljarðar án lífeyrisskuldbindinga.
Segist Björn ósammála Þórólfi um
að fjármálastjórnun borgarinnar sé
um margt til fyrirmyndar. „Sú fjár-
málastjórn sem lýtur að hinum póli-
tísku ákvörðunum borgarinnar er
ámælisverð. Mér finnst það með ólík-
indum að Reykjavíkurborg hafi á
mestu góðæristímum í sögu þjóðar-
innar farið svona hratt upp skulda-
stigann. Það er ekki til marks um
góða fjármálastjórn,“ segir Björn.
Mikilvæg staðfesting á
því sem við höfum sagt
GUÐMUNDUR G. Þórarinsson,
fyrrverandi forseti Skáksambands
Íslands, var heiðraður við upphaf
Stórmóts Hróksins á Kjarvals-
stöðum í gær. Kynnir við athöfnina,
skákkonan Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir, afhenti Guðmundi blóm-
vönd og forláta skáksett. Með þessu
vildu Hróksmenn þakka Guðmundi
framlag sitt í íslenskri skáksögu en
hann var forseti Skáksambandsins
er „einvígi aldarinnar“ fór fram
milli Fischers og Spasskys í Laug-
ardalshöll árið 1972.
Morgunblaðið/Ómar
Guðmundur G. heiðraður
FYRSTA umferð Stórmóts
Hróksins fór fram á Kjarvalsstöð-
um í gær. Fjórar af fimm skákum
enduðu með jafntefli og meðal
þeirra sem skildu jafnir eftir
snarpa skák voru Ivan Sokolov,
Hollendingurinn frá Bosníu sem
teflir fyrir Hrókinn, og pólski
Evrópumeistarinn Bartlomej
Macieja. Sokolov var með hvítt og
Macieja með svart.
Nimzoindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
Dc2 c5 5. dxc5 0–0 6. a3 Bxc5 7.
Rf3 b6 8. Bf4 Rh5 9. Bg3 Bb7 10.
Hd1 h6 11. e4 f5!?
Nýr leikur. Þekkt er 11 … Be7
12. e5 a6 13. Bd3 Dc7 14. De2 b5
15. cxb5 Bxa3 16. Kf1 Be7 17. Rd4
g6 18. De3 Bg5 19. f4 Be7 20. Be2
Rg7 21. h4 h5 22. Re4 axb5 23.
Hc1 Dd8 24. Bf3 Rc6 25. Rxb5 Rf5
26. Df2, með flókinni stöðu, sem
svartur vann í skákinni Brenn-
inkmeijer-Barsov, Breda 1999.
12. b4 Be7 13. exf5 exf5 14.
c5!? –
Hvítur hefði getað skotið inn
14. Bxb8, en hann kýs að fórna
manni.
14. – Bxf3 15. gxf3 Rc6 16. b5
Ra5 17. c6 f4 18. Bh3 fxg3 19.
hxg3 Rf6 20. Bxd7 Rxd7!?
Ekki er alveg ljóst hvernig
hvítur heldur áfram sókninni eftir
20. – Dc7. Nú verður skákin hins
vegar jafntefli.
Sjá stöðumynd
21. Hxh6! gxh6
Svartur getur ekki leikið 21 …
Re5, vegna 22. Dh7+ Kf7 23.
Hxd8 Haxd8 24. c7 Hde8 25. Kf1
Bg5 (25. – Rac4 26. f4) 26. Df5+
27. Rd5 He6 28. Rxf6 Hxf6 29.
Hxf6+ gxf6 30. c8D og hvítur
vinnur.
22. Dg6+ Kh8 23. Dxh6+ Kg8
24. Dg6+ –
Hvítur hefur ekki tíma fyrir
Ke1-e2 í þessum leik, eða næstu,
vegna Dd8-e8, ásamt fráskák með
Be7-h4, eða g5.
24. – Kh8 25. Dh6+ Kg8 26.
Dg6+ Kh8,
jafntefli.
Sokolov og Macieja skildu
jafnir eftir snarpa skák
Bragi Kristjánsson
ÞÓRÓLFUR Árnason borgarstjóri
telur ekkert tilefni til sérstakrar
úttektar á skuldaþróun fyrirtækja
borgarinnar og segir óhætt að full-
yrða að vinnubrögð borgarinnar í
fjármálastjórn, áætlanagerð, lána-
og eignastýringu, reikningshaldi
og fleiru séu um margt mjög til
fyrirmyndar.
Á borgarráðsfundi í gær lagði
Þórólfur fram svar sitt við fyr-
irspurn sjálfstæðismanna um
skuldastöðu borgarinnar. Í svarinu
segir Þórólfur fullar skýringar
liggja fyrir um skuldaþróunin og
að miðað við reynslu fyrri ára sé
ekki tilefni til að ætla annað en
rekstrarútgjöld borgarinnar hald-
ist innan þeirra fjárheimilda sem
málaflokkarnir hafi til ráðstöfunar.
Í tölum sem sjálfstæðismenn
hafa kynnt segir að frá árinu 1993
hafi hreinar skuldir borgarinnar
án lífeyrisskuldbindinga aukist um
1100%, á sama tíma og sambæri-
legar skuldir ríkissjóðs hafi lækk-
að um 13%. Þórólfur segir að þar
sem sjálfstæðismenn hafi verið í
meirihluta fram á mitt ár 1994 og
því undirbúið og samþykkt fjár-
hagsáætlun ársins 1994 og útgjöld
sem þá var stofnað til þyki sér
eðlilegra að miða við skuldir í árs-
lok 1994.
Í fjármálaumræðu verði að
horfa í senn til eigna og skulda.
„Skuldaaukning, sem rekja má til
þess að tekjur nægja ekki fyrir
rekstrarútgjöldum eins og raunin
var þegar Reykjavíkurlistinn tók
við stjórn borgarinnar og skatt-
tekjur hrukku ekki einu sinni fyrir
rekstri og fjármagnskostnaði, er
mikið áhyggjuefni. Sú staða hefur
hins vegar ekki verið uppi eftir að
Reykjavíkurlistinn tók við rekstri
borgarinnar. Alltaf hefur verið
verulegur afgangur frá rekstri til
að leggja í fjárfestingu, afborganir
og vexti,“ segir Þórólfur. Á ár-
unum 1994–2002 hafi borgarsjóður
og fyrirtæki hans fjárfest fyrir
samtals 75 milljarða króna, á árs-
lokaverðlagi 2002.
Hagstæður samanburður
við ríkissjóð
Þórólfur segir að á tímabilinu
1994–2002 hafi heildarskuldir
borgarsjóðs vaxið um 88 milljónir
króna, eða 0,5%. Á sama tímabili
hafi skuldir A-hluta ríkissjóðs (eig-
inlegur rekstur ríkissjóðs, sem sé
sambærilegur við borgarsjóð)
lækkað um 38,9 milljarða króna
eða 20,6%. „Í þeim samanburði má
ekki gleymast að andvirði sölu
eigna ríkissjóðs á þessu árabili
nemur 47,5 milljörðum króna mið-
að við árslokaverðlag 2002. Án
tekna af sölu eigna hefðu skuldir
ríkissjóðs hækkað um 7,8 milljarða
króna eða 4,1%,“ segir borgar-
stjóri. Segir Þórólfur að sama
skapi nauðsynlegt að telja til þætti
sem hafi áhrif á stöðu borgarsjóðs.
Stofnun Félagsbústaða hf. og
Orkuveitu Reykjavíkur hafi haft 8
milljarða króna lækkun á hreinni
skuld borgarsjóðs í för með sér, á
árslokaverðlagi 2002.
Varðandi skuldir fyrirtækja
borgarinnar segir Þórólfur sömu-
leiðis ástæðu til að hnykkja á því
að í ársreikningi Reykjavíkurborg-
ar séu færðar allar skuldir þeirra
fyrirtækja sem borgin á 50% í eða
meira. Þar megi nefna fyrirtæki
sem borgin eigi með öðrum sveit-
arfélögum, eins og byggðasamlög-
in Sorpu, Strætó, Slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins og Orkuveitu
Reykjavíkur. Skuldir þessara fyr-
irtækja endurspeglist að fullu í
ársreikningi Reykjavíkurborgar,
en komi ekki fram í ársreikningi
hinna sveitarfélaganna, sem eigi
minna ne 50%.
Mikilvægt að hugtaka-
notkun sé skýr
Þórólfur segir að til þess að um-
ræðan um fjármál borgarinnar
verði markviss og árangursrík sé
mikilvægt að hugtakanotkun sé
skýr, en á það hafi stundum skort.
Þannig verði að gera greinarmun á
hreinum skuldum borgarinnar og
heildarskuldum. Heildarskuldir
borgarsjóðs hafi á valdatíma
R-listans hækkað um 0,5%, eða úr
16,3 milljörðum króna í 16,4 millj-
arða á árslokaverðlagi 2002. Heild-
arskuldir samstæðunnar, þ.e.
borgarsjóðs og fyrirtækja sem
Reykjavíkurborg á meirihluta í,
hafi á tímabilinu hækkað um 191%,
eða samtals um 34,3 milljarða.
Hreinar skuldir borgarsjóðs
(það er heildarskuldir af frádregn-
um peningalegum eignum) hafi
lækkað um 17,3%, frá 1994–2002.
Úr 11,5 milljörðum í 9,5 milljarða.
Á sama tímabili hafi hreinar skuld-
ir samstæðunnar hækkað um
389%, úr 8,1 milljarði í 39,8 millj-
arða.
Sparnaðarnefnd
til starfa
Segir borgarstjóri að þótt hann
telji ekki tilefni til sérstakrar út-
tektar á skuldaþróun megi alltaf
leita nýrri leiða til að ná sem best-
um árangri í rekstri. Þess vegna
muni sérstök sparnaðarnefnd fara
yfir öll útgjöld borgarinnar og
leita leiða til að auka á hagkvæmni
og skilvirkni í rekstri. Jafnframt
verði hugað að fjárfestingum og
hagkvæmustu nýtingu fjármuna í
því efni.
„Yfirferð undirritaðs á fjármála-
stjórnun borgarinnar í undirbún-
ingi svars við fyrirspurn borgar-
ráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks
hefur verið ákaflega lærdómsrík.
Óhætt er að fullyrða að vinnu-
brögð í fjármálastjórn, áætlunar-
gerð, lána- og eignastýringu,
reikningshaldi o.fl. eru um margt
mjög til fyrirmyndar,“ segir borg-
arstjóri.
Þórólfur Árnason, borgarstjóri í Reykjavík, segir fjármálastjórn í borginni til fyrirmyndar
Telur ekki tilefni til út-
tektar á skuldaþróun