Morgunblaðið - 19.02.2003, Síða 23

Morgunblaðið - 19.02.2003, Síða 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 23 FRÁBÆR bókakaup OPNAR á morgun Kópavogi: Smáralind, sími 562 9701. Akureyri: Hafnarstræti 91-93, 2. hæð, sími 663 1224. Opið alla daga 10 til 19. Líka um helgar! 20. febrúar til 2. mars Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda h in n e in i s an ni bók amarkaður E IN S T A K T fo rn b ó ka h o rn Gerðu LOKATÓNLEIKAR Myrkra músík- daga verða haldnir í kvöld undir yf- irskriftinni Íslenskt, rokk og rímur. Það eru tónleikar Lúðrasveitar Reykjavíkur sem verða á nýja sviði Borgarleikhússsins kl. 20. Einleik- ari með lúðrasveitinni er Bára Sig- urjónsdóttir á altsaxófón, en einnig kemur fram með sveitinni Steindór Andersen kvæðamaður. Balletttónlist fyrir kvæðamann Á efnisskrá tónleikanna eru Suite Arktica II frá árinu 2001 og konsert frá árinu 1963 eftir Pál P. Pálsson, Quasi una tarantella eftir Elías Davíðsson frá árinu 2002 og er þar um frumflutning að ræða, konsert fyrir altsaxófón og blás- arasveit eftir Ronald Binge frá árinu 1969, Inchon frá árinu 2001 eftir Robert W. Smith, þar sem ný- stofnaður íslenskur bassatromm- ukór leikur með lúðrasveitinni, og Rokksinfónía eftir Manfred Schneider frá árinu 1994. Lokaverk tónleikanna er flutningur á ball- etttónlist eftir stjórnanda Lúðra- sveitar Reykjavíkur, Lárus H. Grímsson. Verkið nefnist Ann ég dýrust drósa og er samið fyrir kvæðamann og blásarasveit. Verk- ið er frá árinu 2002 og var frum- flutt á Listahátíð í Reykjavík það ár. „Það var samið í tilefni af 50 ára afmæli Listdansskóla Íslands og 80 ára afmæli Lúðrasveitar Reykja- víkur. Við ákváðum að nota viki- vaka og áttum aðeins við þá. Við tókum nokkra texta og klipptum það út sem var þægilegt og kannski ekki síður það sem var skiljanlegt, því það var oft nokkuð tyrfið mál á þeim. Þegar búið var að taka út úr fjórum vikivakatextum þá kafla sem pössuðu myndaði þetta stutta sögu. Hún er af manni sem er ekki sérlega hrifinn af kvenfólki, en lendir þó í því. Við stelum þarna kvæðum, sem eru hvert frá sinni öldinni, sem saman mynda þessa frásögn,“ segja Lárus og Steindór í samtali við Morgunblaðið. Að- spurður hvað hafi orðið til þess að honum datt í hug að blanda saman lúðrasveit, ballettdansara og rímnasöng svarar Lárus að sér hafi þótt spennandi að fást við eitthvað sem hann hafði ekki gert áður. „Auk þess vildi ég gjarnan rifja upp fyrra samstarf okkar Steindórs, en við vorum saman í þjóðlagadúett,“ segir hann. „Við tróðum víða upp á fermingaraldrinum,“ bætir Stein- dór við og þeir hlæja við minn- inguna. „Við komum fram með Ríó tríó og Þremur á palli, og þá vorum við pollarnir. Steindór samdi lögin, og ég fékk að spila með. Það hafa orðið endaskipti á því núna,“ segir Lárus. Þeir segja nýja sviðið í Borg- arleikhúsinu henta tónleikunum í kvöld ákaflega vel. „Ég hef farið á tónleika með sveitinni á þessum sama stað, og það var alveg ný upp- lifun. Ég held að þetta sé hinn allra besti staður fyrir svona tónleika,“ segir Steindór og Lárus tekur und- ir það. „Húsnæðið hentar mjög vel fyrir þann mikla hljóm sem er í lúðrasveit.“ Nútímatónlist ekki framandi Með tónleikum Lúðrasveitar Reykjavíkur lýkur Myrkum mús- íkdögum í ár. Aðsókn hefur verið með eindæmum góð að sögn Kjart- ans Ólafssonar, formanns Tón- skáldafélags Íslands, er stendur fyrir nútímatónlistarhátíðinni. „Undanfarin ár hefur aðsókn að Myrkum músíkdögum farið vax- andi. Við höfum orðið vör við að fleiri af yngri kynslóðinni eru farn- ir að mæta. Nútímatónlist er orðin nútímatónlist, en ekki framandi tónlist! Sem dæmi má nefna að á flaututónleikum síðastliðinn sunnu- dag á nýja sviði Borgarleikhússins var næstum uppselt og það er nokk- uð sem er alveg nýtt fyrir okkur. Einnig var mjög margt á tónleikum Blásarasveitar Reykjavíkur, og þannig mætti áfram telja,“ segir hann. Vel á annan tug íslenskra verka var frumflutt á Myrkum mús- íkdögum í ár, sem ráðgert er að halda aftur að ári. „Þetta er orðið að árlegum viðburði og greinilegt að áhugi fer vaxandi, bæði hjá áheyrendum, flytjendum og tón- skáldum. Það er engin ástæða til að hætta ef vel gengur.“ Morgunblaðið/Jim SmartSteindór Andersen og Lárus H. Grímsson á æfingu fyrir tónleikana í kvöld. Íslenskir lúðrar, rokk- lúðrar og rímnalúðrar VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, setur ráð- stefnuna „Hönnun – máttur og möguleikar – gildi hönnunar fyrir framþróun, og samkeppnishæfni at- vinnulífs“ í Norræna húsinu kl. 13 á morgun. Fjallað verður um margvís- lega þætti hönnunar, sem og tengsl hönnunar við samkeppnishæfni at- vinnulífs, stefnur og strauma á sviði hönnunar á erlendum sem innlend- um vettvangi. Fyrirlesarar eru bæði innlendir og erlendir. Fyrir nokkru skipaði iðnaðar- og viðskiptaráðherra nefnd til að meta ávinning af rekstri hönnunarmið- stöðvar fyrir íslenskt atvinnu- og efnahagslíf og koma með tillögur í því sambandi, en gert er ráð fyrir að nefndin skili tillögum innan skamms, en ráðstefna er hluti af starfi nefnd- arinnar. Að ráðstefnunni standa iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Norræna húsið og Form Ísland. Hún er öllum opin og er aðgangur ókeypis. Ráðstefna um hönnun og atvinnulífið ÍSLENSKI rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson heimsækir Stokkhólm í byrjun mars- mánaðar þar sem hann mun m.a. taka þátt í málstofu í Dramaten-leik- húsinu 2. mars. Þar verða skáldverk Ein- ars Más sér- staklega tekin fyrir í málstofu sem nefnist Det poetiska motstånd, sem útleggja má sem Hið ljóðræna eða skáld- lega viðnám. Auk Einars Más munu leikkon- an Anna Pettersson, lútuleikarinn Sven Åberg, Lars Sjöstrand yfir- læknir og prófessor Bo Göranzon taka þátt í málstofunni, sem leidd er af Karl Dunér, en kynnt af Svavari Gestssyni, sendiherra Ís- lendinga í Svíþjóð. Einar Már mun auk þess koma víðar fram í Stokkhólmi dagana á eftir og fjalla um skáldverk sín í víðara samhengi, en alls hafa átta verk hans verið þýdd yfir á sænsku. Einar Már til Stokkhólms Einar Már Guðmundsson FYRSTU Háskólatónleikar á þessu vormisseri verða í Norræna húsinu kl. 12.30 í dag. Þá leikur Rúnar Óskarsson á bassaklarín- ettu verk eftir Eric Dolphy, Claud- io Ambrosini og Wayne Siegel. Rúnar hefur leikið með ýmsum hljómsveitum og kammerhópum undanfarin ár, m.a. Caput, Kamm- ersveit Reykjavíkur og Sinfóníu- hljómsveit Íslands auk þess að hafa frumflutt fjölda verka sem samin hafa verið fyrir hann. Þá hefur hann leikið í útvarpi og sjón- varpi bæði heima og að heiman auk þess að hafa leikið inn á fjölda geisla- diska bæði einn og með ýmsum hópum. Hvílst með bassa- klarínettu í hádeginu Rúnar Óskarsson ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.