Morgunblaðið - 19.02.2003, Side 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 47
ÞAÐ voru ekki glæsilegar fréttir
sem bárust úr herbúðum ítalska liðs-
ins Juventus í gær – fyrir Evrópu-
leik liðsins gegn Manchester United
á Old Trafford í kvöld. Fimm leik-
menn liðsins voru sagðir með flensu
– markvörðurinn Gianluigi Buffon
og Alessandro Birindelli, Marco Di
Vaio, Gianluca Zambrotta og Marc-
elo Salas voru með háan hita og fóru
ekki með liðinu til Englands. Þrír
aðrir voru að veikjast og þá voru
þeir Del Piero, Mark Iuliano og Igor
Tudor á sjúkralista.
MARCELLO Lippi, þjálfari Juv-
entus, var allt annað en bjartsýnn og
bar sig mannalega á fundi með
fréttamönnum í gær, þó að veikur
væri. Það mun koma í ljós fyrir há-
degi í dag, hvort forráðamenn Juv-
entus óska eftir frestun á leiknum
gegn Man. Utd., en eins og ástandið
var í herbúðum Juventus seint í
gærkvöldi, þá varð ekki annað séð
en farið yrði fram á frestun.
DAVID Beckham mun stjórna
leik Manchester United á miðjunni,
en Juan Sebastian Veron verður
ekki með, þar sem hann tekur út
leikbann. Hann er auk þess tábrot-
inn. Þá var ekki ljóst í gær hvort
Ryan Giggs og Paul Scholes gætu
leikið vegna meiðsla.
ARIEL Ortega, landsliðsmaður
Argentínu í knattspyrnu, gerði í
gær þriggja mánaða samning við Al-
Ittihad í Sádi-Arabíu og fær fyrir
hann 60 milljónir króna. Ortega,
sem er 28 ára, hætti hjá Fenerbache
í síðustu viku. Meðal samherja hans
hjá Al-Ittihad verður Titi Camara,
fyrrum leikmaður Liverpool og
West Ham.
FRANK Rijkaard er talinn líkleg-
asti eftirmaður Wolfgang Wolf,
þjálfara Wolfsburg í Þýskalandi,
sem hyggst hætta með liðið í sumar.
BERTIE Vogts, landsliðsþjálfari
Skota, hefur misst tvo leikmenn frá
Dundee, þá Lee Wilkie og Gavin
Rae, út úr hópi sínum fyrir vináttu-
leik gegn Tyrklandi í næstu viku.
Vegna frestana var leikur Dundee
gegn Hibernian settur á sama dag.
Vogts ætlaði að móta endanlegt lið
sitt fyrir leikinn gegn Íslandi 29.
mars en Wilkie, sem átti stórleik á
Laugardalsvellinum í haust, er lyk-
ilmaður í vörn hans. Skotar töpuðu
fyrir Írum í vináttuleik í Glasgow í
sl. viku, 2:0. Skotar eru að leika sinn
annan æfingaleik á hálfum mánuði.
DENNIS Bergkamp, sóknarleik-
maður Arsenal, sagði í gær að það
væri ekkert til í þeim sögusögnum
að hann færi á ný til Hollands næsta
sumar og gerðist leikmaður með
sínu gamla liði Ajax. „Ég er ánægð-
ur hjá Arsenal og hef hug á að leika
með liðinu áfram,“ sagði hinn 33 ára
leikmaður við London Evening
Standard.
FÓLK
JÓN Arnar Magnússon,
tugþrautarmaður úr
Breiðabliki, ætlar ekki að
taka þátt í fleiri sjöþraut-
armótum til þess að
tryggja sér keppnisrétt á
HM innanhúss í næsta
mánuði. „Ég ætla að láta
mótið í Tallinn um síð-
ustu helgi nægja, ég held
að árangurinn þar muni
duga til þess að komast á
HM, ef ekki fer maður
bara að búa sig undir
sumarið,“ sagði Jón Arnar í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Jón Arnar fékk 6.028 stig í sjö-
þrautinni í Tallinn um síðustu helgi,
sem þýðir að hann er í þriðja til
fjórða sæti heims-
afrekalistans í sjöþraut á
þessu ári. Sex þeim efstu á
listanum verður boðið til
þátttöku í sjöþrautinni á
HM í Birmingham en alls
taka átta menn þátt í
þrautinni þar, sex efstu af
heimslistanum í sjöþraut
og tveir efstu menn á
afrekalistanum í tugþraut
á sl. sumri, þeir Roman
Sebrle frá Tékklandi og
Bandaríkjamaðurinn Tom
Pappas.
Hefði Jón Arnar ekki náð sér á
strik í Tallinn hafði hann í bak-
höndinni að keppa á austurríska
meistaramótinu um aðra helgi.
Jón Arnar ætlar
ekki í fleiri þrautir
ARSENE Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, reiknar
með því að hvíla nokkra leik-
menn úr byrjunarliði sínu þeg-
ar Arsenal leikur bikarleikinn í
átta liða úrslitum gegn Chelsea
á Highbury, eins og hann gerði
gegn Manchester United. Þá
lét hann Dennis Bergkamp og
Brasilíumanninn Gilberto Silva
ekki leika og Thierry Henry
kom inná sem varamaður í lok
leiksins. Arsenal leikur Evr-
ópuleik gegn Roma aðeins
þremur dögum eftir bikarleik-
inn og leggur Wenger meiri
áherslu á Evrópukeppnina en
ensku bikarkeppnina. „Þó svo
að við hvílum nokkra leik-
menn, reyni ég alltaf að hafa
gott jafnvægi í liði mínu og við
mætum í alla leiki til að fagna
sigri,“ sagði Wenger.
Wenger
hvílir
leikmenn
Þetta var svolítið erfitt að þessusinni,“ sagði Sol Campbell,
varnarmaður Arsenal í leikslok. „Það
eru vonbrigði að vinna ekki heima-
leikina í Meistaradeildinni á sama
tíma og okkur gengur vel á útivelli.
Við eigum ekki að tapa mörgum stig-
um á Highbury. Við sóttum og sótt-
um en vantaði herslumuninn upp á að
fá þau opnu marktækifæri sem við
erum að sækjast eftir.“ sagði Camp-
bell. „Sigurinn átti ekki að liggja fyrir
okkur að þessu sinni.“
Viðureignin á Highbury var bráð-
fjörug, einkum í fyrri hálfleik. Arsen-
al lagði gríðarlega áherslu á sóknar-
leik til þess að ná í sigur á heimavelli.
Silvian Wiltord kom heimamönnum
yfir strax á fimmtu mínútu með lag-
legu marki og þar með vonuðu stuðn-
ingsmenn liðsins að það væri komið á
sigurbraut. Hin unga sveit Ajax var á
öðru máli og neitaði alveg að játa sig
sigraða. Hinn átján ára gamli Nigel
de Jong jafnaði metin á 17. mínútu
með skalla eftir fyrirgjöf frá Jelle van
Damme. Þetta var fyrsta mark de
Jong fyrir Ajax á ferlinum.
Arsenal hélt uppteknum hætti
fram að hálfleik og sótti linnulítið en
hafði ekki erindi sem erfiði. Vörn
Ajax tókst vel upp við að halda þeim
Robert Pires og Thierry Henry niðri.
Í síðari hálfleik hélt Arsenal áfram
að sækja en tókst ekki að reka smiðs-
höggið á sóknirnar. David Seaman
lék í marki Arsenal í fyrri hálfleik en
skipti í leikhléi við Stuart Taylor. Eft-
ir því sem næst verður komist fann
Seaman fyrir eymslum í mjöðm og
því varð hann að draga sig í hlé frá
leiknum.
Leikurinn var merkilegur fyrir
Dennis Bergkamp en hann mætti að
þessu sinni í fyrsta sinn sínu gamla
liði í kappleik en Bergkamp er alinn
upp hjá Ajax og lék með því um sex
ára skeið frá 1986.
Rómverjar bauluðu
„Valencia var heppið, liðið átti ekki
skilið að vinna,“ sagði Brasilíumað-
urinn Marcos Cafu, leikmaður AS
Roma, eftir að Norðmaðurinn John
Carew hafði tryggt Valencia sigur,
1:0, gegn Roma með markið á 78.
mínútu. Við markið mátti heyra
saumnál detta á Ólympíuleikvangin-
um í Róm á meðal 31.000 áhorfenda
sem þar voru. Tapið gerir nær því út
um möguleika Roma á því að komast
í 8-liða úrslit keppninnar. „Við verð-
um að vinna næsta leik til þess að
eiga einhverja von og um leið laga
andrúmsloftið innan félagsins sem er
ekki upp á það besta,“ sagði Cafu
daufur í dálkinn en auk slæms mórals
er fjárhagur félagsins í molum.
Leikurinn var í heild slakur og var
fátt um marktækifæri og bauluðu
Rómverjar á leikmenn sína þegar
þeir gengu af leikvelli.
Robson heldur í vonina
Sir Bobby Robson, knattspyrnu-
stjóri Newcastle, heldur enn í vonina
um að komast áfram í 8-liða úrslit
Meistaradeild Evrópu – eftir góðan
sigur Newcastle á Bayer Leverkusen
í Þýskalandi í gærkvöldi í A-riðli sex-
tán liða úrslitanna, 3:1. Leikmenn
Newcastle gáfu Bobby góða afmæl-
isgjöf, en hann var 70 ára í gær.
Shola Ameobi skoraði tvö mörk
fyrir Newcastle í byrjun leiksins, en
Brasilíumaðurinn Branca minnkaði
muninn fyrir heimamenn á 26 mín.
Það var svo LuaLua sem skoraði
þriðja mark Newcastle á 32. mín., 3:1.
„Ef við hefðum ekki náð að fagnað
sigri hér í kvöld, þá voru möguleikar
okkar úr sögunni. Þetta var þýðing-
armikill sigur fyrir okkur og eins og
við lékum hér, þá hef ég trú á að við
komumst áfram – eins og við kom-
umst upp úr riðlakeppninni á elleftu
stundu,“ sagði Robson.
Robson var mjög ánægður með
ungu sóknarleikmenn sem tóku stöð-
ur fyrirliðans Alan Shearer og welska
landsliðsmannsins Craig Bellamy,
sem voru í leikbanni. „Strákarnir
gerðu út um leikinn snemma – Shola
nýtti tækifærin sín vel og LuaLua
rak smiðshöggið á eina sóknina með
góðu marki. Við lentum í smá erfið-
leikum í seinni hálfleik, en við náðum
að halda jafnvægi,“ sagði Robson.
Newcastle er nú með þrjú stig eftir
þrjá leiki og leikur næst gegn Lever-
kusen heima, en síðan gegn Inter og
Barcelona, sem lagði Inter á heima-
velli, 3:0. Barcelona er með fullt hús
stiga, níu, en Inter er með sex, þannig
að möguleiki Newcastle er að skjót-
ast upp fyrir Inter.
Barcelona með met
Leikmenn Barcelona, sem hafa
ekki náð sér á strik í 1. deildarkeppn-
inni á Spáni, áttu ekki í erfiðleikum
með Inter á Nou Camp – fögnuðu sín-
um ellefta sigri í röð í Meistaradeild-
inni, sem er met. Gamla metið með
Barcelona átti AC Milan, sem vann
tíu leiki í röð fyrir ellefu árum.
Reuters
Brasilíumaðurinn Gilberto Silva hjá Arsenal á hér í höggi við Maxwell hjá Ajax.
Arsenal missti Sea-
man meiddan af velli
ARSENAL, Ajax og Valencia eru jöfn með 5 stig í B-riðli Meistara-
deildar Evrópu eftir leikina í gær þar sem Arsenal og Ajax skildu
jöfn á Highbury, 1:1, og Valencia vann mikilvæg þrjú stig í heimsókn
sinni til AS Roma á Ólympíuleikvanginn í Róm, 1:0. Það verður því
hart barist í riðlinum í næstu leikjum en eftir viku sækir Arsenal
Ajax heim í Amsterdam en á síðan eftir að mæta Valencia og Roma
á heimavelli. Staðan ensku meistaranna er því nokkuð vænleg í
riðlinum en á móti kemur að þeim hefur ekki gengið sem skyldi á
Highbury í Meistaradeildinni á leiktíðinni og jafnteflið gegn Ajax í
gær var enn ein sönnun þess.
Jón Arnar
Magnússon