Morgunblaðið - 22.03.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 79. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Stríð í Írak: Kúrdar bíða Bandaríkjamanna Hörð
mótspyrna á suðurvígstöðvunum Fáir á ferli 4/16–21
Embættismenn í bandaríska varnar-
málaráðuneytinu sögðu að yfir 1.500
sprengjum og stýriflaugum yrði beitt
fyrsta sólarhring lofthernaðarins
sem hófst í gær. Richard Myers, for-
maður bandaríska herráðsins, sagði
að bandarískar og breskar herflug-
vélar hefðu farið í yfir þúsund árás-
arferðir.
Íranska ríkissjónvarpið sagði í
gærkvöldi að bandarísk flugvél hefði
varpað sprengju á bensínstöð í Íran,
nálægt landamærunum að Írak, og
tveir menn hefðu særst.
Utanríkisráðherra Tyrklands
sagði í gær að Tyrkir myndu senda
hersveitir inn í Norður-Írak eftir að
hafa veitt Bandaríkjaher heimild til
að nota lofthelgi landsins til árása á
Írak. Bresk stjórnvöld neituðu því að
samið hefði verið við Tyrki um að þeir
gætu gripið til slíkra aðgerða.
Bandarískir embættismenn sögðu
að „algjör ringulreið“ ríkti meðal for-
ystumanna Íraks. Bandaríska sjón-
varpið ABC sagði að Saddam Huss-
ein kynni að hafa særst í fyrstu
loftárásinni á Bagdad aðfaranótt
fimmtudags og hafði eftir leyniþjón-
ustumönnum að vitni hefðu séð hann
borinn út úr rústum húss með súrefn-
isgrímu fyrir andlitinu. Talsmaður
Bandaríkjaforseta sagði þó að engar
„óyggjandi upplýsingar“ hefðu borist
um afdrif Saddams.
Til að sannfæra Íraka um að Sadd-
am Hussein væri á lífi birti íraska rík-
issjónvarpið myndir af honum sem
sagðar voru hafa verið teknar í gær.
CNN-sjónvarpið sagði seint í gær-
kvöldi að Bandaríkjaher hefði hafið
viðræður við fulltrúa Lýðveldisvarð-
arins, úrvalssveita Írakshers, um
hugsanlega uppgjöf. Þetta hefur ekki
verið staðfest.
Bandarískar og breskar hersveitir
náðu í gær á sitt vald hafnarborginni
Umm Qasr við Persaflóa og voru
komnar að útjöðrum Basra, stærstu
borgarinnar í Suður-Írak. Fyrr um
daginn lögðu hersveitirnar undir sig
tvo mikilvæga flugvelli í vestanverðu
landinu. Richard Myers sagði að her-
sveitirnar hefðu sótt um 160 km inn í
Írak.
Reuters
Stærsta forsetahöllin í Bagdad, Lýðveldishöllin, stóð í ljósum logum eftir loftárásirnar í gær. Margar fleiri byggingar brunnu, meðal annars skrifstofur utanríkisráðuneytisins og aðstoðarforsæt-
isráðherrans. Þykkan reykjarmökk lagði frá byggingunum og fréttaritari AFP sagði að ógjörningur hefði verið að telja sprengingarnar og hversu margar byggingar urðu fyrir árásum.
Stórhertar árásir á Bagdad
Heil herdeild gefst upp Mikilvægir flugvellir teknir Tyrkir fara inn í N-Írak
1.500 sprengjum og stýri-
flaugum beitt á skotmörkin
Markmiðið að valda ótta
í stjórninni og Íraksher
„Algjör ringulreið“ sögð
ríkja meðal leiðtoga Íraks
Bagdad, Washington, Doha. AFP.
BANDARÍKJAHER hóf í gær harðar
loftárásir á skotmörk í Bagdad og
bandarískir embættismenn sögðu þær
upphafið að stórfelldum lofthernaði sem
miðaði að því að valda „losti og ótta“
meðal leiðtoga og hermanna Íraks og
knýja þá til uppgjafar. Nokkrum mín-
útum eftir að loftárásirnar hófust í gær
sagði Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, að Saddam
Hussein væri að missa tökin á stjórn
landsins. Stærsta forsetahöllin í Bagd-
ad, helsta táknið um heljartak Saddams
á Írak frá 1979, stóð í ljósum logum og
margar fleiri byggingar brunnu. Engar
fréttir bárust í gærkvöldi um mannfall.
Loftárásir voru einnig gerðar á skot-
mörk í borgunum Mosul og Kirkuk í
Norður-Írak. Bandarískar og breskar
hersveitir héldu áfram landhernaðinum
í sunnanverðu landinu og fregnir hermdu í gærkvöldi að her-
deild í grennd við borgina Basra, um 8.000 manns, hefði gefist
upp.
Sigurður Viggó Kristjánsson, flugstjóri hjá US Airways í
Bandaríkjunum, flaug til Kúveits fyrr í vikunni með þá menn
sem eiga að stjórna landinu til bráðabirgða að stríðinu loknu.
HUNDRUÐ þúsunda
manna mótmæltu stríð-
inu víða um heim í gær,
m.a. þessir Þjóðverjar í
Frankfurt.
Víða mótmælt