Morgunblaðið - 22.03.2003, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 22.03.2003, Blaðsíða 55
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 55 HINN svokallaði G14 hópur, sem í eru átján af öflugustu fé- lagsliðum Evrópu í knattspyrnu, hittist á fundi um helgina. Meðal helstu mála sem rædd verða á fundinum er sú krafa félaganna að í framtíðinni taki landslið hverrar þjóðar að sér að greiða landsliðsmönnum sínum laun á meðan þeir eru í verkefnum á vegum landsliða, ekki félögin eins og nú. Forráðamenn félag- anna innan G14 segja það ekki sanngjarnt að félög greiði leik- mönnum full laun á meðan þeir eru um lengri eða skemmri tíma í vinnu hjá öðrum en þeim sem greiða þeim laun. Nái þessar kröfur fram að ganga er ljóst að fæst knattspyrnusambönd í Evr- ópu geti staðið undir þeim kostn- aði sem fylgdi því að halda úti landsliðum. Geir Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Knattspyrnu- sambands Íslands, segir þessar hugmyndir G14 hópsins ekki vera nýjar af nálinni, en vissulega ger- ist þessar raddir háværari með hverju árinu og það komi honum ekkert á óvart þótt þetta mál sé enn einu sinni komið upp á borð- ið. Þetta sé hins vegar mál sem FIFA, alþjóða knattspyrnu- sambandið, verði að taka á því útilokað sé að samþykkja hug- myndir í þessa veru. „Ég reikna með að menn berjist með kjafti og klóm gegn þessum hug- myndum, hér eftir sem hingað til og herði frekar róðurinn en hitt,“ segir Geir sem telur þetta mál vera hluta af baráttu stærstu knattspyrnufélaga Evrópu til þess að ná auknum áhrifum innan knattspyrnunnar á kostnað sér- sambanda viðkomandi þjóða. Vill að landsliðin greiði laun leikmanna LANDSLIÐ Íslands í íshokkí heldur til Búlgaríu á morgun, þar sem liðið tekur þátt í einum riðli í 2. deild heimsmeistarakeppninnar í næstu viku. Liðið er þannig skipað: Markmenn: Gunnlaugur Björns- son, SR og Birgir Örn Sveinsson, SA. Varnarmenn: Björn Már Jak- obsson og Birkir Árnason, SA. Ágúst Ásgrímsson, Guðmundur Rúnarsson, Guðmundur Björg- vinsson og Ingvar Þór Jónsson, SR. Sóknarmenn: Jón Gíslason, Sig- urður Sigurðsson, Rúnar Rún- arsson, Stefán Hrafnsson og Jón Ingi Hallgrímsson, SA. Hallur Árnason, Helgi Páll Þórisson og James Devine, SR. Daði Örn Heim- isson og Jónas Breki Magnússon, Birninum. Árni Bergþórsson kem- ur frá Kanada. Keppa í Búlgaríu FÓLK  ARNAR Þór Viðarsson, lands- liðsmaður í knattspyrnu, skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Lokeren og staðfesti þar með munnlegt samkomulag sem hann hafði gert við forráðamenn félags- ins í byrjun þessa mánaðar. Arnar hefur verið í herbúðum Lokeren síðan 1998 og verið fyrirliði liðsins sl. tvö ár.  STEFAN Kretzschmar, horna- maður þýska landsliðsins í hand- knattleik og félagi Ólafs Stefáns- sonar og Sigfúsar Sigurðssonar hjá Magdeburg leikur sinn 200. landsleik fyrir Þýskaland þegar Þjóðverjar mæta Íslendingum í vin- áttulandsleik í Max-Schmeling íþróttahöllinni í Berlín í dag.  JOHN Gregory, knattspyrnu- stjóri Derby, hefur verið settur í tímabundið leyfi af stjórnendum fé- lagsins á meðan mál innan félagsins er rannasakað, en fyrrverandi læknir liðsins hefur sakað Gregory og sjúkraþjálfara liðsins fyrir að gera mistök í meðhöndlun meiðsla Craig Burley.  CHRISTIAN Vieri, framherji Inter Mílanó, hefur verið sýknaður af Knattspyrnusambandi Evrópu, af ásökunum um kynþáttaform- dóma í garð LuaLua, leikmanns Newcastle, í kappleik í Meistara- deild Evrópu á dögunum.  STILIAN Petrov hefur gert nýj- an fjögurra ára samning við skoska meistaraliðið Celtic. Hann hefur verið í herbúðum Celtic í fjögur ár frá því hann kom frá CSKA Sofia í heimalandi sínu, Búlgaríu.  FRANZ Beckenbauer, forseti Bayern München, hótaði í gær að draga lið sitt úr úr þýsku deildar- keppninni í knattspyrnu og láta það keppa í ítölsku deildinni verði því gert skylt að greiða félögum í þýsku 1. deildinni jafnvirði 1,8 milljarða króna sem Bayern er sagt hafa fengið greitt á bak við tjöldin vegna sölu á sjónvarpssrétti frá þýsku deildarkeppninni í knatt- spyrnu. Þetta er orðið mikið hita- mál í þýskri knattspyrnu eftir að dagblað eitt greindi frá þessu á dögunum.  ÍSLENSKA landsliðið í badmin- ton vann Svisslendinga í gær á heimsmeistaramótinu í badminton í Hollandi, 4:1. Þar með tryggði ís- lenska liðið sér 27. sætið á mótinu. Tómas Viborg og Ragna Ingólfs- dóttir sigruðu í einliðaleik og Helgi Jóhannesson og Drífa Harðardótt- ir í tvenndarleik.  KÍNVERJAR og Danir komust í undanúrslit með því að vinna sinn riðilinn hvorir. Ásamt þeim kljást um gullverðlaunin í dag Suður- Kóreumenn og Indónesar. Kínverj- ar eru núverandi heimsmeistarar og mæta Indónesum í undanúrslita- viðureign en í hinni viðureigninni leika Danir við Suður-Kóreumenn. STJÓRNENDUR enska úrvals- deildarliðsins Leeds United og knatt- spyrnustjóri liðsins, Terry Venables, komust í gær að samkomulagi um að Venables léti af störfum nú þegar en níu mánuðir eru liðnir síðann hann var ráðinn í starfið í stað David O’Learys, sem var látinn taka pok- ann sinn. Í gærkvöldi var það til- kynnt að Peter Reid, fyrrverandi knattspyrnustjóri Sunderland, tæki við af Venables og stjórnaði liðinu a.m.k. út leiktíðina. Leeds gekk af- leitlega undir stjórn Venables. Liðið hefur tapað sex af síðustu átta leikj- um í ensku úrvalsdeildinni og hefur sogast niður í botnbaráttuna en Leeds situr í 15. sæti, stjö stigum frá fallsæti. Ósigurinn á móti Sheffield United í bikarkeppninni á dögunum varð mikið áfall fyrir Leedsara og eftir þann ósigur fór af stað sá orð- rómur að vera Venables hjá Leeds yrði ekki mikið lengri. Venables og stjórnarformaður félagsins, Peter Ridsdale, lentu í miklu orðaskaki á fimmtudaginn sem lauk með því að þeir komust að samkomulagi um að Venables léti af störfum. Venables átti mjög erfitt um vik í starfi sem var martröð líkari en vegna bágrar fjárhagsstöðu félagsins varð liðið að sjá á eftir sterkum leik- mönnum á borð við Rio Ferdinand, Jonathan Woodgate, Lee Bowyer, Robbie Fowler og Oliver Dacourt. Reid tekur við af Venables Mótið fór rosalega vel af stað,segja má að þetta hafi verið sannkölluð flugeldasýning hjá Kol- brúnu og Erni,“ sagði Magnús Tryggvason, sundþjálfari á Selfossi, í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. Sundmenn ÍRB unnu fimm gull- verðlaun í dag, Skagamenn þrenn og sundmenn Ægis og Fjölnis hlutu ein gullverðlaun hvor. Kolbrún byrjaði á því að bæta eigið Íslandsmet í 50 m flugsundi þegar hún synti á 27,54 sekúndum, en gamla metið var 27,79. Innan við einni klukkustund síðar bætti hún sex ára gamalt Íslandsmet Elínar, í 50 m skriðsundi, synti á 25,90 sekúndum, fyrra met var 26,17. „Það var vitað að Kolbrún myndi mæta sterk til leiks en ég held að hún sé enn sterkari um þessar mundir en menn héldu,“ segir Magnús og bætir við að það hafi verið sálfræðilega mjög gott hjá Kolbrúnu að ná að synda undir 26 sekúndum, sem hafi verið erfiður múr að brjóta. Kolbrún synti einnig vel í 200 m skriðsundi í 4x200 m boðsundi með sveit sinni og lagði þar með grunninn að sigri sveitarinnar í sundinu. Tími Kolbrúnar í sundinu er sá næstbesti sem náðst hefur hér á landi, aðeins Ís- landsmethafinn, Lára Hrund Bjarg- ardóttir, á betri tíma. Lára Hrund er við nám og æfingar í Bandaríkjunum og gat ekki tekið þátt í mótinu. „Frammistaða Kolbrúnar í 200 metra sundinu gefur góð fyrirheit. Hún hef- ur greinilega gott úthald um þessar mundir og það skilar sér vonandi í 100 metra flugsundinu,“ sagði Magnús. Eva Hannesdóttir, KR, varð í öðru sæti í 50 m skriðsundinu á eftir Kol- brúnu, synti á 26,75 sek., sem er að sögn Magnúsar fjórði besti árangur sem íslenskur sundmaður hefur náð í greininni. Aðeins Kolbrún, Elín og Helga Sigurðardóttir, hafa náð betri tíma. Árangur Evu er afar athyglisverð- ur, ekki síst þegar tekið er tillit til þess að hún er aðeins 16 ára gömul. Þá stórbætti Örn Arnarson eigið met í 200 m fjórsundi, synti á 1.57,91 mínútu, fyrra met hans var 2.01,33, en það setti hann fyrir rúmu ári á heimsbikarmóti í Stokkhólmi. „Þessi tími Arnar er einstaklega góður og myndi nægja til verðlaunasætis á flestum alþjóðlegum mótum. Nú bíð- ur maður bara eftir að sjá hvað hann gerir í 400 metra fjórsundinu. En það er óhætt að segja að mótið fari mjög vel af stað, keppendur eru greinilega í mjög góðri æfingu og eru staðráðnir í að gera sitt allra besta,“ sagði Magnús Tryggvason, sund- þjálfari frá Selfossi, að lokinni keppni í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir með einn af þremur gullverðlauna- peningum sem hún vann á fyrsta keppnisdegi. Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Örn Arnarson náði einum allra besta tíma ársins í heiminum í 200 m fjórsundi í Vestmannaeyjum í gær. Kolbrún Ýr og Örn geysisterk ÞRJÚ Íslandsmet féllu á fyrsta keppnisdegi af þremur á Innan- hússmeistaramótinu í sundi í 25 metra laug sem hófst í sund- laug Vestamannaeyja í dag. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA, bætti Íslandsmetin í 50 m flugsundi og 50 m skriðsundi. Fyrra metið átti hún sjálf en hið síðara var í eigu Elínar Sigurðardóttur, SH, og var orðið sex ára gamalt. Örn Arnarson, Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar (ÍRB), bætti Íslandsmetið í 200 m fjórsundi og náði níunda besta árangri í heiminum á þessu ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.