Morgunblaðið - 22.03.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir sjálfsöryggi. Þú
getur reitt þig á að fólk falli í
stafi yfir heillandi framkomu
þinni. Þér munu standa ýms-
ir möguleikar opnir á árinu.
Veldu skynsamlega.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú gætir þurft að fresta ferða-
lagi eða málefni sem tengist út-
löndum. Þú gætir samt sem áð-
ur nýtt þér þetta á einhvern
hátt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú þarftu að huga að ein-
hverjum lausum endum er
tengjast sameiginlegu eign-
arhaldi eða eignum einhvers
nákomins. Þú þarft að ganga
frá lausum endum fyrir sept-
ember.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú virðist eiga í látlausri valda-
baráttu við maka eða nána vini.
Þetta mun halda svona áfram
langt fram á sumar. Þolinmæði
þrautir vinnur allar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú lendir í útistöðum við ein-
hvern og það verður til þess að
kveikja í þér metnaðinn. Þú ert
staðráðin(n) í að leggja hart að
þér til að fá það sem hugur
þinn stendur til.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Sýndu börnum þolinmæði. Það
er erfitt að ná þeim árangri
sem þú sækist eftir. Þú gætir
þurft að gera málamiðlun.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú gætir ráðist í umfangs-
miklar breytingar eða við-
gerðir á húsnæðinu þínu á
næstu fimm mánuðum. Þessar
breytingar verða án efa til
bóta.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert enn á ný farin(n) að ríf-
ast um sama málefnið við ná-
granna eða ættingja. Það þjón-
ar engum tilgangi að reyna að
sýna fram á hver hefur rétt
fyrir sér. Lagaðu þetta.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefur kost á nýrri tekjuleið.
Þú hefur reynt þetta áður en
reyndu aftur!
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert komin(n) á kunnuglegan
stað í sambandi þínu við maka.
Þetta verður svona um hríð en í
lok sumars breytist sam-
bandið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Núna er mikilvægt að gjörðir
þínar miði að því að bæta eigin
kjör og annarra. Hugsaðu vítt.
Vertu viss um að aðrir njóti
góðs af þessari viðleitni þinni.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Valdabarátta við vin gæti feng-
ið þig til að breyta markmiðum
þínum eða framtíðaráformum
lítilsháttar. Stysta vegalengd
milli tveggja punkta er ekki
alltaf bein lína.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér býðst nýtt tækifæri til
frama. Þú hefur fimm mánuði
til að reyna þetta. Sýndu
sveigjanleika.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
Reykjavíkurmótið í tví-
menningi var spilað á
sunnudaginn með þátttöku
30 para. Bræðurnir Anton
og Sigurbjörn Haralds-
synir skutust upp í efsta
sætið í síðustu umferðinni
og vörðu þar með titilinn
frá því í fyrra. Bernódus
Kristinsson og Hróðmar
Sigurbjörnsson urðu í öðru
sæti, en Páll Valdimarsson
og Eiríkur Jónsson þriðju.
„Við bræður hefðum verið
með gjörtapað blað í sveita-
keppni, því andstæðing-
arnir tóku hverja slemm-
una á fætur annarri,“ sagði
Anton og dró fram þetta
spil máli sínu til stuðnings:
Austur gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ Á
♥ G1084
♦ KD76
♣ÁG103
Vestur Austur
♠ KG1062 ♠ D84
♥ Á963 ♥ KD752
♦ 954 ♦ Á102
♣2 ♣86
Suður
♠ 9753
♥ --
♦ G83
♣KD9754
Anton og Sigurbjörn
voru með spil AV, en mót-
herjar þeirra í NS voru
Stefán Jónsson og Gunn-
laugur Karlsson:
Vestur Norður Austur Suður
Anton Gunnl. Sigurbj. Stefán
-- -- 1 hjarta 3 lauf
4 hjörtu 4 grönd Pass 5 tíglar
5 hjörtu 6 lauf Pass Pass
Dobl Allir pass
Gunnlaugur sá fyrir sér
eyðu í hjarta hjá makker
og veðjaði á slemmu frekar
en að dobla fimm hjörtu.
Það var vel heppnað – suð-
ur átti mikilvægan tíg-
ulgosa og slemman stóð á
borðinu.
„Þetta var laglega gert
hjá mótherjum okkar,“
sagði Anton, „og við feng-
um eitt stig af 28 fyrir að
gefa út 1090.“
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
VIÐ HAFIÐ
Við hafið eg sat fram á sævarbergs stall
og sá út í drungann,
þar brimaldan stríða við ströndina svall
og stundi svo þungan.
Og dimmur var ægir og dökk undir él
var dynhamra-borgin,
og þá datt á náttmyrkrið þögult sem hel
og þungt eins og sorgin.
„Þú, haf! sem ber tímans og harmanna farg,
þú hugraun mér vekur,
í hjarta mér innst, þá þú brýzt um við bjarg,
það bergmála tekur“.
„Þinn niður er hryggur, þinn hljómur er sár,
þú hrellir svo muna,
sem brimdropinn hver væri beiskasta tár,
hvert báruhljóð stuna“.
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4
4. Rxe4 Bf5 5. Rg3 Bg6 6. h4
h6 7. Rf3 Rd7 8. h5 Bh7 9.
Bd3 Bxd3 10. Dxd3 Rgf6 11.
Bf4 e6 12. 0–0–0 Be7 13.
Kb1 0–0 14. De2 Rd5 15.
Bc1 b5 16. Re4 R7f6 17. Re5
Hc8 18. Rc5 Bxc5 19. dxc5
De7 20. g4 Dxc5 21. g5 hxg5
22. Bxg5 Db4 23. Dd3 Re4
24. Bd2 Rxd2+ 25. Hxd2
Df4 26. De2 Rf6
Staðan kom upp í seinni
hluta Íslandsmóts skák-
félaga sem lauk fyrir
skömmu í húsakynnum
MH. Bartlomiej Ma-
cieja (2629) hafði hvítt
gegn Braga Halldórs-
syni (2239). 27. Rg6!
fxg6 28. Dxe6+ Kh7 29.
hxg6+ Kxg6 30. Hd3!
Dxf2 30… Hce8 gekk
ekki upp vegna 31.
Hg1+ Kh7 32. Hh3+ og
hvítur vinnur. Í fram-
haldinu vinnur hvítur
drottninguna og dugði það
til sigurs eftir hetjulega bar-
áttu svarts. 31. Hdd1 Hc7
32. Hdg1+ Dxg1+ 33.
Hxg1+ Kh7 34. Hh1+ Kg6
35. Dd6 Hfc8 36. a3 Hd7 37.
De6 He8 38. Hg1+ Kh7 39.
Hh1+ Kg6 40. Dxc6 He5 41.
Hh3 a5 42. Dc3 Kf5 43.
Hf3+ Ke6 44. Dxa5 Re4 45.
Hf8 Rf6 46. Hb8 Hdd5 47.
c4 bxc4 48. Da6+ Kf5 49.
Dc8+ Kg6 50. Dxc4 Re4 51.
Dc8 Kg5 52. a4 Rd6 53. Dc7
g6 54. Hd8 Hd1+ 55. Ka2
Hed5 56. De7+ Kg4 57.
De6+ Kg5 58. Hg8 Kf4 59.
Dxg6 Rf5 60. Dg4+ og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
90 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 23. mars
verður Ólöf Hjálmarsdóttir,
Hamrahlíð 25, Reykjavík
níræð. Í tilefni afmælisins
býður hún vinum og ætt-
ingjum í kaffi, í sal eldri
borgara, Bólstaðarhlíð 43,
milli klukkan 15 og 17 á af-
mælisdaginn. Gjafir og blóm
eru vinsamlega afþökkuð,
en ef fólk vill láta af hendi
rakna framlög til líkn-
armála, verður á staðnum
baukur til að taka við fram-
lögum.
80 ÁRA afmæli. 25.mars nk. verður átt-
ræð Magnea Haraldsdóttir,
Reynimel 94. Hún tekur á
móti gestum sunnudaginn
23. mars á heimili dóttur
sinnar í Kríunesi 12, Garða-
bæ, kl. 15.30–18.30.
60ÁRA afmæli. JósefHermann Vern-
harðsson, rafvirkjameistari,
Hlégerði 1, Hnífsdal, verður
60 ára mánudaginn 24. mars
nk. Í tilefni af afmælinu tek-
ur hann ásamt eiginkonu
sinni, Hrafnhildi Sam-
úelsdóttur, á móti gestum í
sal Frímúrara á Ísafirði eftir
kl. 18 laugardaginn 22. mars.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Kjóllinn minn á
10 ára afmæli
í dag!
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð,
105 Reykjavík – Símar 515 1735 og 515 1736
Bréfasími 515 1739 – Farsími 898 1720
Netfang: oskar@xd.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninganna
10. maí er hafin. Kosið er hjá sýslumönnum og hreppstjórum
um land allt. Í Reykjavík er kosið í Skógarhlíð 6, virka daga frá
kl. 9-15.30 og laugardaga og sunnudaga frá kl. 10-14.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar. Einnig er hægt að nálgast upplýs-
ingar á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins www.xd.is og á upplýs-
ingavef dómsmálaráðuneytisins www.kosningar2003.is.
Sjálfstæðisfólk! Látið okkur vita um
stuðningsmenn sem ekki verða heima á kjördag,
t.d. námsfólk erlendis.
Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433.
Dragtir • Blússur • Toppar
Nýkomið frá More í stórum stærðum
Opið frá kl. 10—18
laugardaga frá kl. 11—15
Föt fyrir alla frá tvítugu
TÆKIFÆRI!
VERKTAKAR - IÐNAÐARMENN
Til sölu 2 tvíbýlishús í byggingu við Kristnibraut 7 og 9, uppsteypt
með vinnupöllum. Verðlaunateikningar. Stálbitar í þak komnir.
Glugg-ar og hurðir (nema bílsk.hurðir) fylgja. Steyptar tröppur með
hitalögn. Verðið er hagstætt í meira lagi, 23,5 millj. á hús.
Söluverðmæti u.þ.b. 33 millj. Kjörið tækifæri fyrir duglega verktaka
eða iðnaðarmenn. Áhv. 6,5 millj. á hvoru húsi til 30 ára m. 6,9%
vöxtum. Hægt er að lána traustum aðilum stóran hluta kaupverðs.
Frekari upplýsingar hjá Sigrúnu í s. 896 3672 eða Brynjari í 896 2299
og á skrifstofu okkar á skrifstofutíma.