Morgunblaðið - 22.03.2003, Blaðsíða 43
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 43
SUNNUDAGINN 23. mars verð-
ur hefðbundið helgihald og
fræðsla fyrir hádegi og kvöld-
messa kl. 20.00.
Á fræðslumorgni kl. 10.00 ár-
degis mun Margrét Eggertsdóttir
cand mag. flytja erindi um trúar-
skáldið Matthías Johannessen. Á
hverjum vetri eru tvær fyrirlestr-
araðir á sunnudagsmorgnum.
Fyrirlestrarnir eru um marg-
vísleg efni er snerta sögu, trú og
sið. Í messunni kl. 11.00 mun sr.
Sigurður Pálsson prédika og
þjóna fyrir altari ásamt sr. Jóni
Dalbú Hróbjartssyni. Ferming-
arbörn munu aðstoða í messunni
m.a. með því að lesa ritningarorð
og bænir. Hópur úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngur undir
stjórn Harðar Áskelssonar kant-
ors. Barnastarfinu, sem er á sama
tíma, stýrir Magnea Sverrisdóttir
æskulýðsfulltrúi. Eftir messu er
ávallt boðið upp á molakaffi í safn-
aðarsal kirkjunnar í góðu sam-
félagi.
Um kvöldið kl. 20.00 verður
kvöldmessa í umsjá sr. Jóns D.
Hróbjartssonar. Kvöldmessan
verður helguð bæn um frið. Við
kvöldmessur í Hallgrímskirkju er
leitast við að skapa kvöldstemn-
ingu með kertaljósum og góðri
tónlist. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngja nokkur
verk undir stjórn Harðar Áskels-
sonar, sem jafnframt leikur á org-
el kirkjunnar. Söfnuðinum verður
gefinn kostur á að ganga til alt-
aris, tendra bænaljós, skrifa bæn-
ir sínar og leggja í bænakörfu og
krjúpa við altari kirkjunnar. Frið-
ar-bænir eftir dr.theol Sigurbjörn
Einarsson biskup og Franz frá
Assisi verða lesnar.
Kvöldmessa og friðar-
stund í Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja
Kór Langholtskirkju
50 ára
Í LANGHOLTSKIRKJU verður
mikil hátíð sunnudaginn 23. mars í
tilefni af 50 ára afmæli Kórs Lang-
holtskirkju. Helgi Þorláksson,
skólastjóri, var fyrsti söngstjóri
kórsins en Jón Stefánsson hefur
stjórnað kórnum frá árinu 1964.
Hátíðarmessa verður í kirkjunni kl.
11. Sr. Sigurður Haukur Guð-
jónsson, fyrrv. sóknarprestur, pre-
dikar, og fyrir altari þjóna prestar
sem tengst hafa starfi kórsins.
Kl. 16 verða afmælistónleikar
þar sem að sungin verða kirkjuleg
og veraldleg verk sem kórinn hef-
ur flutt síðustu áratugi. Hátt í 200
manna kór gamalla og nýrra fé-
laga mun syngja við messuna og á
tónleikunum. Aðgangur er ókeypis
og eru allir velkomnir.
Handboltamessa í
Landakirkju
HANDABOLTAFÓLK í kvenna- og
karlaflokkum ÍBV fjölmennir til
messu í Landakirkju næsta sunnu-
dag og koma Íslandsmeistararnir
okkar með bikarinn með sér til
kirkju. Það eru bæði leikmenn og
aðrir sem að handboltanum standa
sem koma til kirkju. Tilgangurinn
er að þakka allt það sem áunnist
hefur og eiga saman góða stund í
sóknarkirkjunni. Prestarnir hvetja
því alla að koma fagnandi til kirkju
og efla andann.
Fyrsta altarisgangan
Í ÞESSARI messu verður ferming-
arbörnunum sérstaklega boðið að
ganga til altaris í fyrsta sinn. Það
er ákveðið sem hluti af undirbún-
ingi þeirra fyrir ferminguna, en
þau eru einmitt að fara yfir efnið í
bókinni Líf með Jesú þessa dagana.
Lögð er áhersla á að þau gangi til
altaris með foreldrum sínum eða
öðrum fullorðnum skyldmennum
sínum.
Prestar Landakirkju.
Basar Kvenfélags
Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði
Á MORGUN, sunnudaginn 23.
mars, verður að venju barna-
samkoma í Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði kl. 11 og guðsþjónusta kl.
13. Að lokinni guðsþjónustu, um
kl.14 hefst svo hinn árlega basar
Kvenfélagsins og verður í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Eins og
alltaf verður hægt að gera þar frá-
bær kaup og styðja um leið málefni
kirkjunnar en allur hagnaður fer
að sjálfssögðu í það að byggja upp
safnaðarstarfið. Þess má geta að
Kvenfélag Fríkirkjunnar í Hafn-
arfirði heldur á þessu ári upp á 80
ára afmæli sitt og er með elstu
kvenfélögum landsins. Safn-
aðarfólk og velunnarar Fríkirkj-
unnar eru hvattir til að mæta til
guðsþjónustu á sunnudaginn og
líta síðan við hjá kvenfélagskonum
að guðsþjónustu lokinni.
Passíusálmar og Mar-
íutónlist í Hjallakirkju
TÓNLISTARSTUND verður
sunnudaginn 23. mars kl. 17 í
Hjallakirkju, þar sem lesið verður
og sungið úr Passíusálmum Hall-
gríms Péturssonar. Þessi dagur er
einnig Boðunardagur Maríu og
verður af því tilefni einnig flutt
tónlist sem helguð er Maríu Guðs-
móður. Flytjendur tónlistar eru
kvintett úr Kór Hjallakirkju, Jón
Ólafur Sigurðsson, organisti og sr.
Íris Kristjánsdóttir, sem sér um tal-
að mál.
Allir eru hjartanlega velkomnir
og aðgangur er að sjálfsögðu
ókeypis.
Ástjarnarkirkja –
yngsti söfnuður
Þjóðkirkjunnar
ÁSTJARNARKIRKJA hefur komið
saman í samkomusal Hauka að Ás-
völlum í Hafnarfirði frá því laust
fyrir jól. Í janúar hófst reglubundið
helgihald kl. 11 alla sunnudaga og
hefur gengið með ágætum. Fastur
hópur barna og fullorðinna hittist
til helgihalds, söng- og leikja-
stunda. Molasopi, djús og kex á eft-
ir. Engin breyting verður á því og
hlökkum við til þess að sjá söfn-
uðinn blómstra hægt og bítandi.
Á sunnudaginn 23. mars kemur
kór Línuhönnunar í heimsókn og
mun flytja fjölbreytta andlega tón-
list í messu, sem spannar allt frá
Händel og Bach til negrasálma og
Jóns Ásgeirssonar! Stjórnandi
kórsins er Guðbjörg Tryggvadóttir
og undirleikari Árni Árnason. Að
vanda verður söng- og leikjastund
fyrir börn að messu lokinni og súpa
fyrir alla sem hana vilja. Einnig
verður ferðaaltari safnaðarins tek-
ið í notkun, fyrstur helgigripa sem
Sigurþór Aðalsteinsson hefur
hannað fyrir söfnuðinn. Hann mun
kynna verk sín eftir messuna.
Tónlistarstjóri Ástjarnarkirkju
er Aðalheiður Þorsteinsdóttir og
sóknarprestur Carlos Ferrer.
Biblíulestur
í Landakoti
SR. HALLDÓR Gröndal heldur
áfram Biblíulestri sínum næsta
mánudagskvöld kl. 20 í safn-
aðarheimili kaþólskra á Hávalla-
götu 16. Efnið á föstunni verður: Í
fylgd með Jesú Kristi á písl-
argöngu hans að krossinum á Gol-
gata. Lesið Matteus 26, 36–27, 66.
Allir sem áhuga hafa á því eru
hjartanlega velkomnir.
Sjálfstyrkingarnám-
skeið fyrir konur
í Seltjarnarneskirkju
DAGANA 26.–27. mars nk. verður
haldið námskeið sem ber yfirskrift-
ina „Konur eru konum bestar“ í
Seltjarnarneskirkju. Kennt verður
tvö kvöld í röð frá kl. 19.30–22.30.
Leiðbeinandi: Sr. Petrína Mjöll Jó-
hannesdóttir.
Nánari upplýsingar og skráning
fást hjá Örnu í síma 561-1550 eða
arna@Seltjarnarneskirkja.is At-
hugið! Ekkert þátttökugjald.
Opið hús Tónlistar-
skóla og Hafnar-
fjarðarkirkju
Á MORGUN, sunnudag, 23. mars,
verður haldið opið hús á vegum
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og
Þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði.
Markmið opna hússins er að kynna
starfsemi og húsakynni Tónlistar-
skólans og kirkjunnar.
Opna húsið hefst með guðsþjón-
ustu kl. 11. Þar munu börn og
kennarar Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar leika á hljóðfæri en kór
kirkjunnar leiðir söng undir stjórn
Antoniu Hevesi, organista. Í guðs-
þjónustunni predikar Stefán Ómar
Jakobsson. Stefán Ómar er kennari
við Tónlistarskólann. Eftir guðs-
þjónustuna verður húsnæði safn-
aðarheimilisins og Tónlistarskól-
ans til sýnis. Boðið verður upp á
kaffi og meðlæti í safnaðarheim-
ilinu, Antonia Hevesi leikur á orgel
kirkjunnar frá 12.15–12.30 og frá
12.30–13 verður tónlist leikin á
torgi Tónlistarskólans. Það er von
allra sem að hinu opna húsi standa
að Hafnfirðingar sem aðrir muni
fjölmenna og nýta sér þetta tæki-
færi til að skoða einstakt húsnæði
og kynnast starfsemi þess.
Sr. Þórhallur Heimisson,
Hafnarfjarðarkirkju.
Alfa-námskeið
á vordögum
BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg
býður upp á Alfa-námskeið í apríl
og maí. Hefst námskeiðið með
kynningarkvöldi 25. mars í húsi
KFUM og KFUK, Holtavegi 28, kl.
19 með léttri máltíð. Kynning-
arkvöldið er öllum opið sem vilja
kynna sér námskeiðið án skuld-
bindingar. Þar verður saga, hug-
myndafræði og innihald nám-
skeiðsins kynnt og spurningum
svarað. Síðan verður kennt öll
þriðjudagskvöld í apríl og maí.
Þetta er í 17. sinn sem Bibl-
íuskólinn við Holtaveg býður upp á
Alfa-námskeið. Námskeiðin eru
sérstaklega hugsuð fyrir fólk sem
ekki er kirkjuvant, en vill kynna
sér betur innihald og eðli krist-
innar trúar í hópi fólks sem ræðir
saman og glímir við ýmsar spurn-
ingar trúarinnar í sameiningu.
Flestir sem sækja þessi námskeið
hafa orð á því hve umræður og
samfélag námskeiðsins hafi verið
þeim mikils virði. Um mitt nám-
skeið er farið úr bænum í sólar-
hring og hluti námskeiðsins kennd-
ur þar. Leiðbeinendur
námskeiðsins verða Kjartan Jóns-
son og Ragnar Gunnarsson kristni-
boðar. Samtímis verður Alfa II
kennt, en það er hugsað sem fram-
haldsnámskeið fyrir þau sem óska
þess að halda áfram. Nánari upp-
lýsingar má fá í síma 588 8899 en
námskeiðið og kynningarkvöldið er
öllum opið.
AUGU flestra beindust að skák
þeirra Björns Þorsteinssonar
(2.185) og Björns Þorfinnssonar
(2.315) í fimmtu umferð Meistara-
móts Taflfélagsins Hellis. Björn
Þorsteinsson var efstur á mótinu
fyrir umferðina, en nafni hans
Þorfinnsson er skákmeistari
Hellis og hefur ávallt átt góðu
gengi að fagna á þessu móti. Þess-
ir skákmenn brugðust ekki áhorf-
endum frekar en fyrri daginn og
tefldu hörkuskák, sem þó endaði
kannski á viðeigandi hátt, þ.e.
með bræðrabyltu. Björn Þor-
steinsson hélt því forystunni
áfram á mótinu. Þessi úrslit
þýddu hins vegar, að sigurvegar-
inn í skákinni Jóhann Ingvason
(1.990) – Kjartan Maack (1.965)
náði honum að vinningum. Það
var Jóhann sem hafði betur og
deilir því efsta sætinu með Birni
þegar tvær umferðir eru eftir á
mótinu. Helstu úrslit fimmtu um-
ferðar:
1. Björn Þorsteinss. – Björn
Þorfinnss. ½–½
2. Jóhann Ingvason – Kjartan
Maack 1–0
3. Patrick Svanss. – Davíð
Kjartanss. fr.
4. Dagur Arngrímss. – Kristján
Örn Elíass. 1–0
5. Sigurður Ingason – Jóhann
H. Ragnarss. 0–1
6. Sverrir Ö. Björnss. – Guð-
mundur Kjartanss. 0–1
Staða efstu manna:
1.–2. Björn Þorsteinsson, Jó-
hann Ingvason 4½ v.
3.–5. Björn Þorfinnsson, Dagur
Arngrímsson, Jóhann H. Ragn-
arsson 4 v.
6.–8. Kjartan Maack, Guð-
mundur Kjartansson, Kjartan
Másson 3½ v.
9.–10. Davíð Kjartansson, Pat-
rick Svansson 3 v. + fr.
11.–15. Sigurjón Birgisson,
Kristján Örn Elíasson, Haraldur
Magnússon, Sigurður Ingason,
Hilmar Þorsteinsson 3 v.
16.–17. Andrés Kolbeinsson,
Óskar Maggason 2½ + fr.
18.–21. Sverrir Örn Björnsson,
Aron Ingi Óskarsson, Arnar Sig-
urðsson, Kristján Þór Sverrisson
2½ v. o.s.frv.
Alls eru 40 keppendur á mótinu.
Frestaðar skákir verða tefldar á
sunnudagskvöld. Sjötta umferð
fer fram á mánudag og lokaum-
ferðin verður svo tefld fimmtu-
daginn 27. mars. Taflið hefst alltaf
klukkan 19:30. Teflt er í Hellis-
heimilinu, Álfabakka 14a, og eru
áhorfendur velkomnir.
Hægt er að nálgast skákir
mótsins á www.hellir.is. Byrjun-
arleikir allra skákanna eru
„skýrðir“, þ.e. vakin er athygli á
því þegar skákmennirnir bregða
út af þekktum leiðum og eins er
bent á endurbætur þegar óná-
kvæmum leikjum er leikið í byrj-
un skáka.
Anand nær forystunni
á Amber-mótinu
Indverski stórmeistarinn Visw-
anathan Anand (2.753) náði for-
ystunni á Amber-mótinu í Móna-
kó í fimmtu umferð með því að
sigra Ljubomir Ljubojevic (2.570)
2–0.
Úrslit blindskáka í fimmtu um-
ferð:
van Wely – Ivanchuk 1–0
Morozevich – Gelfand ½–½
Anand – Ljubojevic 1–0
Topalov – Leko ½–½
Shirov – Almasi 0–1
Kramnik – Bareev 1–0
Staða efstu manna í blindskák-
inni:
1. Kramnik 4½ v.
2.–3. Gelfand og Leko 3½ v.
Úrslit atskáka fimmtu umferð-
ar:
Ivanchuk – van Wely 1–0
Gelfand – Morozevich 0–1
Ljubojevic – Anand 0–1
Leko – Topalov ½–½
Almasi – Shirov 1–0
Bareev – Kramnik ½–½
Staða efstu manna í atskákinni:
1.–2. Anand og Morozevich 4 v.
3. Bareev 3½ v.
Heildarstaðan eftir fimm um-
ferðir:
1. Anand 7 v.
2.–4. Kramnik, Leko og Mo-
rozevich 6½ v.
5. Gelfand 5½ v.
6.–8. Almasi, Ivanchuk og
Topalov 5 v.
9.–10. Bareev og Van Wely 4½
v.
11. Shirov 2½ v.
12. Ljubojevic 1½ v.
Björn Þorsteinsson
og Jóhann Ingva-
son í forystu á
Meistaramóti Hellis
SKÁK
Hellisheimilið, Álfabakka 14a
MEISTARAMÓT HELLIS
10.–27. mars
Daði Örn Jónsson
dadi@vks.is
Síðasta umferð Greifatvímenn-
ingsins var spiluð á þriðjudaginn
var.
Sigurvegarar urðu þeir Stefán
Stefánsson og Björn Þorláksson, eft-
ir mikinn endasprett. Staða efstu
para var þessi:
Stefán Stefánsson–Björn Þorláksson 100
Gissur Jónasson–Hjalti Bergmann 98
Árni Bjarnason–Ævar Ármannsson 82
Örlygur Örlygsson–Reynir Helgason 67
Páll Þórsson–Stefán Sveinbjörnsson 57
Næsta þriðjudagsmót verður
Halldórsmótið - Sveitakeppni með
Board-a-match útreikningi. Skrán-
ing stendur yfir og eru lysthafendur
beðnir um að hafa samband við
Steinarr Guðmundsson keppnis-
stjóra í síma 863 - 4516.
Sunnudagsbrids var spilaður að
venju á sunnudaginn var. Eins og
alltaf var mikið fjör og skemmtileg
spil. Spilamennskan byrjar alltaf
stundvíslega kl. 19.30 og það er allt í
lagi að mæta stakur, pör verða þá
búin til á staðnum. Alltaf er spilaður
eins kvölds tvímenningur, þannig að
menn þurfa ekki að vera hræddir um
að þurfa að binda sig í mörg kvöld.
Staða efstu manna á sunnudaginn
var:
Stefán Sveinbjörnsson–Víðir Jónsson 104
Jón Sverrisson–Una Sveinsdóttir 94
Sveinbjörn Sigurðs–Steinarr Guðmunds. 86
Næst verður spilað í Hamri
sunnudaginn 23. mars og vonumst
við til að sjá sem flesta mæta.
Bridsfélag Borgarfjarðar
Mánudaginn 18. mars var spilað
næstsíðasta kvöldið í Opna Borgar-
fjarðarmótinu í sveitakeppni. Skaga-
menn, sem leitt hafa mótið frá upp-
hafi, hleyptu smá spennu inn í það á
lokakaflanum með því að fá „aðeins“
14 stig á Hárprúðu sveitina. Munur
milli efstu sveita er því aðeins 5 stig
og hefur ekki verið minni frá byrjun.
Bjartasta vonin stóð sig best þetta
kvöld og fékk 43 stig en Skagamenn
39. Staðan er nú þessi:
Skagamenn 333
Bjartasta vonin 328
Sigursveitin 287
Hjálparsveitin 274
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Stefán Stefánsson
og Björn Þorláksson
unnu Greifa-
tvímenning BA