Morgunblaðið - 22.03.2003, Side 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ALLS skrifuðu um 24.000 Íslend-
ingar nafn sitt á undirskriftalista
á vegum Vímulausrar æsku til að
mótmæla lögleiðingu vímuefna en
söfnun, sem hrundið var af stað
hinn 11. mars, lauk aðfaranótt
föstudags. Um er að ræða al-
þjóðlega undirskriftasöfnun sem
Sameinuðu þjóðirnar standa fyrir
til stuðnings Vínarsáttmálanum
sem felur í sér andstöðu við lög-
leiðingu ólöglegra eiturlyfja.
Verða undirskriftalistarnir sendir
Sameinuðu þjóðunum í apríl.
Pjétur Árnason hjá Vímulausri
æsku segir að söfnunin hafi fengið
frábærar undirtektir. Undir-
skriftalistar hafi legið frammi í
verslunarkjörnum og bens-
ínstöðvum um allt land auk þess
sem hægt hafi verið að skrifa sig á
undirskriftalista á Netinu. Til að
fylgja átakinu eftir ætli Vímulaus
æska í samstarf við íþróttafélögin
í landinu og var á fimmtudag und-
irritaður samstarfssamningur
milli KR og Vímulausrar æsku.
Munu KR-ingar skora á önnur
íþróttafélög að leggja málefninu
lið. „Við munum þannig halda um-
ræðunni áfram hér á landi þó
formlegri undirskriftasöfnun sé
lokið. Við urðum vör við mikla
umræðu um eiturlyfjamál þegar
við vorum í þessu átaki,“ sagði
Pjétur.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðjón Guðmundsson, formaður Knattspyrnudeildar KR, Jökull Elíasabetarson, yngsti leikmaður í meistaraflokki
KR, og Pjetur Árnason, verkefnisstjóri söfnunarinnar, við undirritun samstarfssamnings Vímulausrar æsku og KR.
24 þúsund mótmæltu
lögleiðingu vímuefna
„SILKIHÚFUVÆÐING“ og flokkspólitísk-
ar ráðningar voru meðal þeirra orða sem
féllu í umræðum á fundi borgarstjórnar á
fimmtudagskvöld þar sem deilt var um hvort
þörf væri á sérstökum framkvæmdastjóra
miðborgar. Sjálfstæðismenn sögðu að verið
væri að bæta „einni silkihúfunni enn“ við í
stjórnkerfi borgarinnar og gagnrýndu að
ráðið hafi verið í stöðuna afturvirkt og að
staðan hafi ekki verið auglýst. Borgarstjóri
sagði að um tilraunaverkefni væri að ræða.
Björn Bjarnason, oddviti sjálfstæðis-
manna, sagði stjórnkerfi miðborgarinnar
flókið. „Því miður verður að segja þá sögu
eins og hún er að umsvifin í þessu borg-
arhverfi, miðborginni, minnka í réttu hlutfalli
við aukna skriffinnsku af hálfu borgarstjóra
og R-listans í kringum hverfið,“ sagði Björn.
Hann sagði að skapa þyrfti svigrúm fyrir
framkvæmdamenn í miðborginni. „Það er
borin von að gera það með því að fjölga
nefndum og silkihúfum,“ sagði Björn.
„Við þurfum ekki fleiri starfsmenn til að
ýta skjölum fram og til baka innan borg-
arkerfisins, það þarf að taka af skarið og
hrinda verkefnum í framkvæmd.“ Björn
gagnrýndi einnig að mælt hefði verið fyrir
ráðningunni í borgarráði 11. mars síðastlið-
inn, en ráðningin hafi verið afturvirk frá 1.
janúar á þessu ári.
Ein silkihúfan enn
Þórólfur Árnason borgarstjóri sagði að
þegar ákveðið hafi verið að leggja miðborg-
arstjórn niður, hafi verið ljóst að áfram yrði
þörf fyrir framkvæmdastjóra miðborgar.
Borgarstjóraskipti hafi tafið málið en hann
hafi óskað eftir því að framkvæmdastjórinn
starfaði áfram, eftir að hafa kynnt sér málið.
Ekki hafi verið talin þörf á að auglýsa starfið
þar sem um tímabundið tilraunaverkefni hafi
verið að ræða, einnig hafi starfsmaðurinn
sem ráðinn var í starfið gegnt því frá því því
var fyrst komið á fót og sýnt það og sannað
að hann væri vel starfinu vaxinn.
„Við teljum að það hafi ekki komið fram
[...] að það sé þörf fyrir þetta starf. Að það sé
nauðsynlegt að fjölga þeim milliliðum sem
eru hér í borgarkerfinu til að sinna mál-
efnum miðborgarinnar og að það sé nauðsyn-
legt að bæta við einni silkihúfunni enn,“
sagði Björn.
Þórólfur sagði ómálefnalegt af Birni að
tala um að verið sé að bæta við „einni silki-
húfunni enn“ í borgarkerfinu. „Silkihúfur
þekki ég ekki öðruvísi en sem eitthvað mjög
neikvætt,“ sagði Þórólfur. Fyrst Björn tæki
svona til orða hlyti hann að þekkja dæmi
þess að menn sinntu starfi sínu mjög illa inn-
an borgarkerfisins. „Þá vil ég, sem æðsti
embættismaður og yfirmaður starfsmanna
hér hjá borginni, gjarnan fá mjög beittar og
öruggar heimildir og ábendingar um slíkt.
Annað eru dylgjur,“ sagði Þórólfur.
Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðis-
flokki, spurði hvað framkvæmdastjóri mið-
borgar hafi aðhafst á þessu ári, þar sem
starfslýsing sem hann ætti að fara eftir hafi
ekki litið dagsins ljós fyrr en um miðjan
mars. Kjartan Magnússon, einnig borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagði að enginn
væri að vega að þeim einstaklingi sem starf-
inu sinnti, heldur væri verið að gagnrýna
vinnubrögð meirihlutans, þá útþenslu sem
átt hafi sér stað í borgarkerfinu og „silki-
húfuvæðingu“. Sagði hann að þegar litið væri
yfir þau störf sem orðið hafi til í ráðhúsinu
síðustu ár, vakni upp spurningar hvort um
pólitískar stöðuveitingar sé að ræða. „Bland-
ast engum hugur um, þegar litið er til þess í
hvaða flokki þetta fólk stendur, að margar
ráðningar hafa verið á flokkspólitískum for-
sendum,“ sagði Kjartan.
„Skoðanalaus maður er ég ekki“
„Ég er nú smám saman að læra mann-
ganginn í þessu,“ sagði Þórólfur. Hann sagði
að fyrst kæmi Björn Bjarnason í pontu, síðan
eftir að hann væri spurður komi Guðlaugur
Þór og Kjartan í pontu en Björn hafi ekki
svarað því hverjar silkihúfurnar væru. „Hvað
er það að vera með silkihúfu? Er þetta ein-
hvers konar nátthúfa eða hvað er verið að
ræða? Eða er þetta að menn sinni ekki starfi
sínu? Hverjir þá innan borgarkerfisins sinna
ekki starfi sínu? Því svo koma bara búktal-
arar þar á eftir sem útskýra hvað er átt við.
Ég endurtek aftur að fá beint frá þeim sem
fyrstur talar um þessar silkihúfur eina upp af
annarri eða hvað það nú var,“ sagði Þórólfur.
Hann sagði starfsmenn ráðna til borgarinnar
á grundvelli hæfileika sinna eingöngu, stjórn-
málatengdar ráðningar eigi ekki að líðast.
Sérkennileg umræða
Björn sagði umræðuna sérkennilega. Hann
hafi notað orðið „silkihúfa“ þegar hann færði
rök fyrir því að hann teldi ráðninguna
óþarfa. Borgarstjóri gæti flett upp í orðabók
til að sjá hvað orðið þýði. „Ég hef víða á póli-
tískum vettvangi tekið þátt í umræðum en
aldrei sem þessum þar sem menn eru sakaðir
um dylgjur þegar þeir nota alkunn orð og
þegar lýst er hvernig málum er háttað í raun
og veru með því að vitna í þau skjöl sem fyrir
okkur liggja,“ sagði Björn.
Síðar á fundinum las Þórólfur skilgrein-
inguna á orðinu „silkihúfa“ upp úr orðabók-
inni. „Það þýðir hver vitleysan annarri verri.
Hver endemis yfirmaðurinn yfir öðrum,“
sagði Þórólfur. Björn sagði borgarstjóra hafa
farið rangt með. „Þegar ég flutti mína ræðu
og ég hef það skrifað í ræðunni sem ég flutti
þá var ég ekki að segja að það væri verið að
bæta einni silkihúfunni ofan á aðra, heldur
væri verið að stofna nefndir og fjölga silki-
húfum,“ sagði Björn. Þórólfur sagði að hon-
um hlyti þá að hafa skjátlast illilega. „Því ég
skrifaði niður eftir bestu heyrn: „Að bæta við
einni silkihúfunni enn.“ Við verðum líklega
bara að hlusta á upptökuna til að kanna
þetta,“ sagði borgarstjóri.
Sjálfstæðismenn segja ráðningu framkvæmdastjóra miðborgar dæmi um „silkihúfuvæðingu“
Þurfum ekki fleiri
til að ýta skjölum
fram og til baka
Í GÆR voru stofnuð ný samtök
stofnfjáreigenda í Sparisjóði
Reykjavíkur og nágrennis
(SPRON). Markmið félagsins er að
koma einum manni eða fleirum að í
stjórn. „Þó núverandi stjórn hafi
gert marga góða hluti þá teljum við
hana ekki hafa beitt sér nægjanlega
vel fyrir hagsmunum stofnfjáreig-
enda,“ segir Guðný Rósa Þorvarð-
ardóttir, nýkjörinn formaður sam-
takanna.
Hún segir mikilvægt að stofnfjár-
eigendum sé gert kleift að selja
stofnfé sitt í SPRON á markaðs-
verði. Með þeim hætti geti þeir,
sem kjósa að selja stofnfé sitt í
SPRON, fengið hærra verð en upp-
reiknað nafnverð fyrir stofnfé sitt.
Það sé í samræmi við það sem
hlutafjáreigendur geti gert með sín
hlutabréf.
Guðný segir talsverðan fjölda
koma að stofnun samtakanna, fólk
sé enn að skrá sig og endanlegur
fjöldi kemur ekki ljós fyrr en eftir
fund sem haldinn verður í Odda í
Háskóla Íslands klukkan 20 á
mánudagskvöld. Það er því ekki
enn ljóst hver styrkur samtakanna
verður á aðalfundi SPRON. Þeir
sem bjóða sig fram í stjórn á fund-
inum eru Pétur Blöndal, Hildur
Njarðvík, Þorvarður Elíasson,
Dögg Pálssdóttir og Sveinn Val-
fells.
Eins og kunnugt er stóð mikill
styr um stofnfé SPRON síðasta
sumar þegar Búnaðarbankinn sótt-
ist eftir að kaupa stofnfé á mark-
aðsverði m.a. með milligöngu Pét-
urs Blöndal og Sveins Valfells.
Guðný telur sölu stofnfjárbréfa á
markaðsvirði vera heimila sam-
kvæmt lögum. „Það er ekki búið að
útkljá þetta mál. Þetta er umræða
sem hefur verið á villigötum en í
lögunum segir ekki að óheimilt sé
að selja þessi bréf á markaðsverði.“
Hlutverk nýrrar stjórnar verði að
vinna að þessu, sem fari saman við
hagsmuni stofnfjárfesta og
SPRON.
Hún segir hópinn að baki þessum
samtökum fjölbreyttan. „Þetta er
bara fólk eins og ég sem á stofnfé í
SPRON. Sumir vilja selja en alls
ekki allir þó fólk vilji ávaxta sitt
pund og finnst óeðlilegt að fá ekki
að gera það á sama hátt og eig-
endur hlutabréfa í öðrum fyrirtækj-
um.“
Vilja fulltrúa í
stjórn SPRON
Ný samtök stofnfjáreigenda SPRON
FJÖGUR tilboð bárust í 39,86% hlut
ríkissjóðs í Íslenskum aðalverktök-
um hf., ÍAV, en frestur til að skila inn
tilboðum til framkvæmdanefndar
um einkavæðingu rann út í gær.
Hluturinn er að nafnverði rétt um
558 milljónir kr. Hlutaféð á að selja í
einu lagi til eins aðila eða hóps fjár-
festa.
Þeir aðilar sem skiluðu inn tilboð-
um eru: Jarðboranir hf., JB Bygg-
ingafélag ehf. og Trésmiðja Snorra
Hjaltasonar ehf., Joco ehf., félag
fjárhagslega tengt Jóni Ólafssyni og
að lokum Eignarhaldsfélagið AV
ehf., en það er í eigu starfsmanna
ÍAV.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins á Jón Ólafsson og aðilar
honum tengdir tæp 15% í ÍAV en
starfsmenn ÍAV eiga, ýmist saman
eða sér, nálægt fimm prósentum í fé-
laginu.
Landsbanki Íslands hefur umsjón
með sölunni en við mat á tilboðum
verður litið til verðs, áhrifa sölu til
viðkomandi tilboðsgjafa á samkeppni
á íslenskum verktakamarkaði, fjár-
hagslegs styrks og fjármögnunar.
Einnig verður litið til framtíðarsýnar
hvað varðar rekstur og starfsmanna-
mál fyrirtækisins sem og stjórnunar-
legrar reynslu og þekkingar á þeim
markaði sem félagið starfar á.
Hlutur ríkisins í ÍAV
Fjögur tilboð bárust
TVEIR menn sem sætt hafa gæslu-
varðhaldi frá því fyrir áramót vegna
rannsóknar lögreglunnar í Reykja-
vík á umfangsmiklu fíkniefnamáli
voru úrskurðaðir í áframhaldandi
gæsluvarðhald í gær til 2. maí að
kröfu lögreglunnar. Rannsóknin
varðar smygl á 900 grömmum af am-
fetamíni og 1 kg af hassi til landsins í
nóvember sl.
Gæsluvarð-
hald framlengt
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær tvítuga konu í tveggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir
að stela snyrtivörum að verðmæti
rúmar 4.600 krónur í verslun í Smára-
lind og fyrir að gefa upp rangt nafn í
yfirheyrslu vegna málsins. Konan var
18 ára þegar hún framdi brotin.
Fram kemur í dómnum að þegar
konan var yfirheyrð vegna málsins
framvísaði hún ökuskírteini annarrar
konu. Sú kona fékk bréf þar sem
henni var tilkynnt að ákveðið hefði
verið að falla frá saksókn á hendur
henni fyrir þjófnað og hafði hún þá
samband við lögreglu og skýrði frá
því að hún kannaðist ekki við að hafa
verið í versluninni í umrætt sinn og
því síður að hafa framið þann verknað
sem henni væri gefinn að sök.
2 mánaða fangelsi fyrir
að gefa upp rangt nafn