Morgunblaðið - 22.03.2003, Side 19

Morgunblaðið - 22.03.2003, Side 19
STRÍÐ Í ÍRAK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 19 Vor í lofti 5.990kr. Garðbekkir Verð frá 6.900kr. Mexíkóskir ofnar Verð frá Verðlækkun Verðlækkun 699kr./stk. Begoníur 990kr. Sýpris 100 sm Verð áður 2.790 kr. (ath. pottur fylgir ekki) 199kr. Úrvals gróðurmold 10 l ÞAÐ var handagangur í öskjunni er miðlarar verzluðu með framvirka olíusölusamninga í kauphöllinni í New York í gær. Eftir því sem líkur jukust á því að takast myndi að ljúka stríðinu í Írak á skömmum tíma lækkaði heims- markaðsverð á hráolíu. Síðdegis í gær var verð á olíufatinu á mark- aðnum í Lundúnum komið í 24,15 Bandaríkjadali og hafði þá lækkað um 1,35 dali í viðskiptum dagsins. Heimsmarkaðsverð á hráolíu hef- ur lækkað um meira en 10 Banda- ríkjadali fatið frá hámarkinu sem það náði 10. marz sl. Olíuverð lækkar Reuters LEIÐTOGAR Evrópusambandsins (ESB) luku árlegum vorfundi sín- um í Brussel í gær með því að end- urnýja heitstrengingar um að gera sambandið að samkeppnishæfasta efnahagssvæði heimsins, þótt stríðið í Írak hafi nú bætzt við aðra þætti sem hafa spillt fyrir hagþróun þess að undanförnu. Í þrjátíu og sex síðna texta loka- yfirlýsingar fundarins ítrekuðu leiðtogar ESB-ríkjanna fimmtán þau markmið sem þeir settu sér á leiðtogafundi í Lissabon árið 2000 um að gera ESB að mesta hag- vaxtarsvæði heims fyrir árið 2010. En Íraksdeilan lá eins og skuggi yfir fundinum og skapaði andrúms- loft sem embættismenn kölluðu kuldalegt, einkum þar sem þeir Jacques Chirac Frakklandsforseti og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, voru undir sama þaki. Leiðtogarnir áttu tíu mínútna langan viðræðufund í gær, sem lýst var sem „líflegum en kurt- eislegum“, en þetta var í fyrsta sinn sem þeir hittust eftir að her- afli Breta og Bandaríkjamanna hóf stríðsátök í Írak, þvert á vilja Frakka. En gríski forsætisráðherrann Costas Simitis, sem gegnir for- mennsku í ESB þetta misserið, sagði að tekizt hefði að forðast að láta Íraksdeiluna spilla alvarlega fyrir leiðtogafundinum. Í lokayfirlýsingunni var reynt að finna orðalag sem breiddi yfir sundrungina sem ríkir milli aðild- arríkjanna um Íraksmálið. Þar er lögð áherzla á staðfestu ESB um að hjálpa óbreyttum borgurum Íraks sem líða myndu vegna stríðsins, en fátt sagt um það hvernig ESB hyggst beita sér við uppbyggingarstarf í landinu að stríðsátökum loknum. Á blaðamannafundi eftir lok leið- togafundarins sagði Tony Blair að leiðtogarnir væru sammála um að Sameinuðu þjóðirnar hefðu lykil- hlutverki að gegna við að fást við málefni Íraks eftir stríðið, og jafn- framt lagt áherzlu á mikilvægi ESB í þessu samhengi. Vilja hraða smíði evrópskrar varnarmálastefnu Eftir að leiðtogafundinum hafði verið slitið boðuðu Chirac Frakk- landsforseti og þýzki kanzlarinn Gerhard Schröder sérstakan leið- togafund Frakka, Þjóðverja og Belga um evrópsk öryggis- og varnarmál, sem fara ætti fram í apríl. Fundurinn, sem ráðamönn- um annarra ESB-ríkja væri vel- komið að sækja, hefði á dagskránni að hraða smíði sameiginlegrar evr- ópskrar öryggis- og varnarmála- stefnu. AP Jacques Chirac Frakklandsforseti á blaðamannafundi við lok leiðtoga- fundar ESB í Brussel í gær, þar sem Íraksdeilan skyggði á önnur mál. Grunnt á sundrungu innan ESB Leiðtogar sam- bandsins reyna að beina sjónum að hagþróuninni Brussel. AFP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.