Morgunblaðið - 22.03.2003, Page 21

Morgunblaðið - 22.03.2003, Page 21
STRÍÐ Í ÍRAK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 21 ÍRAKAR eru sakaðir um að hafa kveikt í um sjö olíulindum en alls eru þær um 2.000 í landinu öllu. Barst svartur reykjarmökkurinn frá eld- unum yfir Kúveitborg í gær en sér- fræðingar segja, að miklu erfiðara verði að slökkva eld í írösku olíulind- unum en þeim kúveisku eftir Persa- flóastríðið 1991. Sir Michael Boyce aðmíráll og yf- irmaður breska herráðsins sagði í gær, að Írakar hefðu kveikt í sjö ol- íulindum en haft er eftir einum yf- irmanni frönsku olíustofnunarinnar IFP, að mjög erfitt geti orðið að slökkva í þeim. Þrýstingurinn og olíuflæðið miklu meira „Vandamálið í Írak er það, að í lindunum þar er miklu meiri þrýst- ingur og miklu meira flæði en í olíu- lindunum í Kúveit, sem Írakar kveiktu í 1991,“ sagði Nathalie Alaz- ard. „Þrýstingsmunurinn stafar af því, að írösku olíulindirnar hafa að- eins verið nýttar í tiltölulega skamm- an tíma.“ Alazard sagði, að hugsanlega gæti reykurinn frá brennandi olíulindum haft einhver áhrif á framsókn Breta og Bandaríkjamanna, einkum ef margar lindir loguðu á litlu svæði, en á móti kæmi, að lindirnar væru víða um landið og Írak miklu stærra en Kúveit. Sagði hún, að það væri að- eins á færi sérþjálfaðra manna og fyrirtækja að slökkva þessa olíuelda. Nokkrar aðferðir Það fer eftir aðstæðum hverju sinni hvaða aðferðum er beitt en Alazard sagði að oft væri byrjað á því að dæla miklu vatni að brennandi lindinni til að kæla hana og umhverf- ið. Í Kúveit var hitinn nálægt lind- unum oft 400 gráður á Celsíus. Næsta stig er að slökkva eldinn, til dæmis með stýrðri sprengingu, og er það mjög hættulegt vegna þess, að menn verða að vinna það verk með höndunum ef svo má segja. Eldurinn stundum besti kosturinn Önnur aðferð er að bora niður í lindina skammt frá eldunum til að létta af þrýstingi og auðvelda slökkvistarf en svo er það líka til, að eldhafið sé svo óviðráðanlegt, að láta verði lindina brenna áfram. Það get- ur átt við lindir undir miklum þrýst- ingi. Sagði Alazard, að þótt hægt væri að slökkva eld í þeim, þá væri flæðið svo mikið, að ógjörningur væri að loka þeim. Þess vegna væri betra, að þær brynnu en að mikið ol- íuhaf myndaðist allt umhverfis. Bretar segja að íraskir hermenn hafi kveikt í sjö olíulindum Erfiðari eldar en í Kúveit Írösku olíulindirnar um 2.000 talsins Bagdad, París. AP, AFP.       !  " ! $ !  %   " &,"%  !   !  " +01 23 %*+  "  ) , " 2  ,   !2   !    8 )           9"":  * 9! .         9!  9!"    ,     8"    %    :        %* /         ,  SADDAM Hussein Íraksforseti hef- ur heitið því að greiða hermönnum sínum stórfé takist þeim að granda flugvélum bandamana. Hið sama á við um þá sem ná að fella hermenn innrásarliðsins eða taka þá til fanga. Íraska fréttastofan INA greindi frá þessu í gær. „Hver sá hugrakki hermaður sem grandar flugvél óvinarins mun fá greiddar 100 milljónir dínara,“ sagði í tilkynn- ingu fréttastofunnar. Þessi upphæð er sögð svara til 33.333 Banda- ríkjadala eða um 2,7 milljóna króna. „Hver sá sem nær á sitt vald óvinveittum hermanni mun fá 50 milljónir dínara og hver sá sem fellir erlendan hermann 25 millj- ónir dínara,“ sagði í þessari yfirlýs- ingu írösku ríkisfréttastofunnar. Saddam heitir verð- launum Bagdad. AP. TYRKNESKA stjórnin tilkynnti í gærkvöld, að hún hefði ákveðið að opna lofthelgi sína fyrir bandarísk- um herflugvélum en hún hafði áður sett það sem skilyrði, að Banda- ríkjastjórn samþykkti, að Tyrkir fengju að senda her inn í Kúrdahér- uðin í Norður-Írak. Vecdi Gonul, varnarmálaráðherra Tyrklands, skýrði frá þessu og sagði, að stjórnin teldi það þjóna hagsmunum Tyrkja best að opna lofthelgina og hefði Colin Powell, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, verið skýrt frá því. Gaf hann jafn- framt í skyn, að engir samningar hefðu verið gerðir um kröfu Tyrkja um að fá að senda her til N-Íraks en sagði, að viðræður ættu sér stað um það. Óttast átök milli Tyrkja og Kúrda Tyrkneska þingið samþykkti að- eins nokkrum klukkustundum eftir að hernaðurinn hófst að leyfa yfir- flug bandarískra herflugvéla en rík- isstjórnin vildi ekki gefa til þess formlegt leyfi fyrr en ljóst væri hvort hún fengi að senda her inn í írösku Kúrdahéruðin. Bandaríkja- stjórn hefur verið algerlega andvíg því enda óttast hún, að þá myndi koma til harðra átaka milli þeirra og Kúrda. Cemil Cicek, dómsmálaráðherra Tyrklands, sagði í gær, að þróun mála í Norður-Írak væri svo afdrifa- rík, að Tyrkir gætu ekki látið sem þeim kæmi hún ekki við. „Þetta snertir öryggi Tyrklands og það ætlum við að verja. Við krefj- umst þess, að Bandaríkjastjórn taki undir það með okkur,“ sagði Cicek en Tyrkir óttast, að Kúrdar hafi hug á að stofna sjálfstætt ríki í Norður- Írak. Tyrkir fallast á að opna lofthelgina Krefjast þess enn að fá að senda herlið til N-Íraks Washington. AFP. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. „Hvað þýðir hugsanleg ESB aðild fyrir einstakar atvinnugreinar í landinu“ Pallborðsumræður með þátttöku hagsmunaaðila Eftirtaldir tala: Bændasamtökin: Ari Teitsson formaður LÍÚ: Friðrik Arngrímsson framkvæmdastjóri Samtök iðnaðarins: Sveinn Hannesson framkv.stjóri Samtök verslunar og þjónustu: Sigurður Jónsson framkv.stjóri Pallborðsumræðum stýrir G. Pétur Matthíasson fréttamaður Boðið verður upp á léttar veitingar Á fundinum verður opnuð ný vefsíða Evrópusamtakanna http://www.evropa.is Nánari upplýsingar evropa@evropa.is laugardaginn 29. mars 2003 í Kornhlöðunni, (Lækjarbrekku) kl. 1100 - 1300 Aðalfundur Evrópusamtakanna Evrópusamtökin boða til aðalfundar Evrópusamtökin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.