Morgunblaðið - 22.03.2003, Blaðsíða 25
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 25
Vor í París
“Sous le ciel de Paris,
S'envole une chanson....’’
EDITH PIAF
„Undir Parísarhimni
tekur söngurinn flugið....“
Tilboð í apríl og maí
Verð frá 44.930 kr.
á mann í tvíbýli í 3 nætur á Hotel Yllen Eiffel kkl
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur með morgun verði,
flugvallarskattar og þjónustugjöld
Fararstjóri Icelandair í París, Laufey Helgadóttir listfræðingur,
er farþegum til aðstoðar í París og skipuleggur kynnisferðir
til 30. maí.
Sjá nánari upplýsingar um París og skoðunarferðirnar
á www.icelandair.is/paris
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við
Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud.
kl. 8-20, laugard. frá kl. 9-17 og á sunnudögum frá kl. 10-16)
Þetta tilboð gefur 3.600 ferðapunkta
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
20
55
2
03
/2
00
3
Icelandair tekur við ferðaávísun MasterCard
og orlofs ávísunum VR í pakkaferðir.
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
MIKLAR byggingaframkvæmdir
eru hafnar eða hefjast á næstunni
á Selfossi og er gert ráð fyrir að
þeim ljúki tiltölulega fljótt, en
áætlað er að heildarkostnaður
nemi um þremur milljörðum
króna.
Ásbjörn Blöndal, yfirmaður
tækni- og framkvæmdasviðs, segir
að þrjú verkefni séu stærst, þ.e.
nýja grunnskólabyggingin, áfram-
haldandi átaksvinna í fráveitumál-
um og nýtt hverfi á vegum sveitar-
félagsins. Vinna við annað hverfi
sé einnig að hefjast á vegum
einkaaðila, en bæði hverfin hafi
verið að byggjast upp undanfarin
þrjú til fjögur ár.
Auk þess séu verkefni sem séu
ekki beint á snærum bæjarins,
eins og íþróttahús fyrir fjölbrauta-
skólann og viðbygging við sjúkra-
húsið. Áform séu um byggingar
fyrir aldraða og fari þær vænt-
anlega af stað í sumar og Raf-
magnsveitur ríkisins hafi í hyggju
að byggja yfir útistöð og koma að-
veitustöð í nýtt húsnæði á sömu
lóð.
Enn fremur hafi BYKO verið að
leita að lóð og stefni að byggingu
húsnæðis fyrir verslun, en ýmis
smærri verkefni eru ótalin.
Heildarkostnaður vegna þessara
framkvæmda nemur um þremur
milljörðum króna. Ásbjörn segir
að sennilega hafi aldrei verið um
eins miklar framkvæmdir að ræða
á sama tíma en þær séu vel viðráð-
anlegar. Hafa beri í huga að jafn
gangur hafi verið í framkvæmdum
undanfarin ár, en aðeins hafi dreg-
ið úr vinnu hjá verktökum samfara
verklokum í virkjunum Lands-
virkjunar í nágrenninu og því sé
um mikla innspýtingu að ræða.
Miklar framkvæmdir
Selfoss
UM síðustu helgi hittust nemendur
úr Tónlistarskóla Árnesinga og
Tónlistarskólanum Allegro í Hvera-
gerði. Þessir nemendur eiga það
sameiginlegt að vera að læra að
spila á hljóðfæri með svokallaðri
Suzuki-aðferð. Þetta voru 56
krakkar sem eru að læra á fiðlu og
18 sem eru í píanónámi.
Allegro-tónlistarskólinn, sem er
fimm ára um þessar mundir, hefur
ekki yfir að ráða nægilega stóru
húsnæði til verkefna eins og þessa
og því var brugðið á það ráð að
koma hingað austur og æfa alla
helgina ásamt krökkum héðan af
svæðinu. Foreldrar voru einnig
með í för því að foreldrarnir læra
og styðja börnin sín í náminu.
Að sögn Helgu Ragnheiðar Ósk-
arsdóttur kennara er Suzuki-
aðferðin að seytla út um landið og
er aðferðin kennd í Reykjavík,
Reykjanesi, Kópavogi, Akureyri,
Borgarnesi, Dalvík og hjá Tónlist-
arskóla Árnesinga. Þetta námskeið
var liður í samvinnunni sem skól-
arnir hafa sín á milli, sem er tölu-
verð. Þessi aðferð, sem kennd er við
höfund sinn Suzuki, gerir það að
verkum að foreldrar og börn vinna
saman og eru kennararnir sammála
um að það sé til bóta í okkar sam-
félagi þar sem börn og foreldrar
eyða oft á tíðum litlum tíma saman.
Auk Helgu Ragnheiðar voru
kennararnir Guðmundur Pálsson,
Berglind Björk Jónsdóttir, Lilja
Hjaltadóttir, Kristinn Örn Krist-
insson og Þórdís Stross með hópn-
um. Námskeiðinu lauk með því að
haldnir voru tónleikar þar sem tón-
listarfólk framtíðarinnar kom og
sýndi hvað í því býr. Þessi helg-
ardvöl var sett inn á skóladagatal
skólanna í haust og því „partur af
prógramminu“ eins og einn kenn-
arinn orðaði það svo skemmtilega.
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Suzuki-nemendur sem voru í æfingabúðum í Hveragerði um síðustu helgi.
Suzuki-nemendur
á helgarnámskeiði
Hveragerði
ÓLAFUR Áki Ragnarsson, bæjar-
stjóri í Þorlákshöfn, hefur tekið
fyrstu skóflustunguna að nýju íbúða-
hverfi sunnan Berga í Þorlákshöfn.
Þann 4. mars var gengið frá samn-
ingum við Ræktunarsamband Flóa
og Skeiða um gatnagerð í nýja íbúða-
hverfinu. Um er að ræða 1. áfanga í
nýjum byggðakjarna sunnan við og
vestanvert í Þorlákshöfn.
Í þessum áfanga verða 52 íbúðir af
blandaðri gerð, raðhús, einbýli, par-
hús og fjórbýlishús, ekkert hærra en
2 hæðir. Gert er ráð fyrir 221 íbúðum
í öllum áfanganum.
Tilboð Ræktunarsambandsins
hljóðaði upp á tæpar 69 milljónir, og
á verkinu að vera lokið fyrir 1. októ-
ber 2003. Úthlutun lóða er að hefjast
og er hægt að nálgast umsókn-
areyðublöð á bæjarskrifstofum. Að
undanförnu hefur verið töluvert um
nýbyggingar eftir nokkuð langa
lægð. Nýlega var fullgert tveggja
hæða fjölbýlishús sem eingöngu
verður til útleigu.
Gatnagerð í
nýju hverfi
sunnan
Berga
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjóri tók fyrstu skóflustunguna.
Þorlákshöfn