Morgunblaðið - 22.03.2003, Page 26
ÚR VESTURHEIMI
26 LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í
slendingar og fólk af ís-
lenskum ættum hafa víða
spjarað sig vel í Norður-
Ameríku. Og á hinum ýmsu
sviðum, jafnt í borgum sem
til sjávar og sveita. En þeir láta
ekki endilega mikið á sér bera og
hrópa ekki um afrek sín á torgum.
„Ég er svo sem ekkert að gera
meira en aðrir,“ segir Bragi Sæ-
mundsson, bóndi á Breiðabliki í
Nýja Íslandi í Manitoba, um kjöt-
framleiðslu sína, en viðurkennir þó
að um mikla framför sé að ræða.
Hollt nautakjöt
Bragi er í hópi fjögurra bænda,
sem hafa framleitt lífrænt ræktað
nautakjöt í Nýja Íslandi undanfarin
þrjú ár, og segir að spurnin eftir
slíku kjöti aukist með hverju ári. „Í
auknum mæli gerir fólk sér grein
fyrir því að það er ekki sama hvað
það lætur ofan í sig. Þetta snýst um
hollustu og gæði og því el ég mín
holdanaut eingöngu á grasi. Fyrir
bragðið er miklu meira af ómega-3-
fitusýrum í þessu kjöti eins og í
feitum fiski, en rannsóknir hafa
sýnt að þær eru góðar fyrir hjartað
og koma í veg fyrir hjartslátt-
artruflanir. Nautakjöt af hold-
anautum sem alin eru á korni er
hins vegar með miklu meira af
ómega-6-fitusýrum, sem eru slæm-
ar fyrir hjartað og geta valdið
hjartasjúkdómum. Þetta er mikið
mál í Kanada og í fyrra var milljón
dollurum varið í rannsóknir á
þessu í Albertafylki. Í ljós kom
þessi munur eftir því hvað grip-
unum var gefið og verður rann-
sóknunum haldið áfram.“
Kjötið hjá Braga er óneitanlega
mjög gott og hann er ánægður með
viðbrögðin. „Þetta hefur gengið
býsna vel. Ég er með um 250 holda-
naut og við seljum mikið í eina
verslun í Winnipeg, sem eingöngu
er með náttúrulegt kjöt á boð-
stólum. Ennfremur notar ein veit-
ingahúsakveðja kjöt frá okkur og
stöðugt fleiri bíta á agnið enda
miklu hollara að borða svona kjöt
heldur en kjöt af skepnum sem eru
fóðraðar á korni.“
Skepnurnar eru úti allan ársins
hring og segir Bragi að veðrið hafi
engin áhrif á þær, en mikil sveifla
er í veðrinu eftir árstíma. Til dæm-
is var kælingin mest nær -50 stig á
celsíus í lok febrúar en síðan getur
hitinn farið upp í 40 gráður á sumr-
in. „Skepnurnar halda sig í skóg-
inum þegar vindurinn blæs því þar
er skjól,“ segir Bragi og lætur sér
fátt um finnast.
Öðruvísi á Íslandi
Breiðablik er um 800 hektara
jörð rétt austan við Árborg. Þar
ræktar Bragi gras fyrir holdanaut
sín og beitir gripunum auk þess á
engi og í haga. Hann hefur búið
þarna alla sína tíð og tók við jörð-
inni þegar faðir hans, Gunnar Sæ-
mundsson, varð að hætta búrekstr-
inum vegna veikinda. „Ég fór í
háskóla til að læra búskap og þeg-
ar faðir minn fór á spítala 1980 tók
ég við og hef verið í þessu síðan.“
Eftir að Bragi hafði lokið há-
skólanáminu við Manitobaháskóla í
Winnipeg fór hann til Íslands til að
kynna sér sambærilegan rekstur,
en síðar fór hann í sömu erinda-
gjörðum til Nýja-Sjálands. „Ég var
hjá Magnúsi Finnbogasyni á Lága-
felli í Landeyjum veturinn 1977 til
1978. Hann hafði mjólkurkýr, 200
ær og 120 hesta, en ekkert bú
hérna í Manitoba er með svona
marga hesta enda lítil hrossarækt
hér. Það er allt öðruvísi að vera
bóndi á Íslandi en í Manitoba en ég
kann betur við mig hérna.“
Söngur og íslenska
Foreldrar Braga fæddust í Nýja
Íslandi og eignuðust þau sjö börn,
en þau eru Erla Margrét, Elva
Dagmar, Baldur Ómar, Birgir Sæv-
ar (d. 1971), Anna Svava, Bragi
Dunstan Erlingur og Jóhann Hall-
dór Kár. Faðir hans var Gunnar
Sæmundsson, Sonur Jóhanns Pét-
urs Sæmundssonar frá Grjóti í
Þverárhlíð í Mýrasýslu og Þóru
Guðmundsdóttur frá Galtastöðum í
Hróarstungu. Móðir hans var Mar-
grét Sæmundsson, dóttir Halldórs
Halldórssonar frá Bólstaðarhlíð í
Austur-Húnavatnssýslu og Stef-
aníu Baldvinsdóttur frá Þverárdal í
Austur-Húnavatnssýslu. Jóhann
Pétur flutti vestur 1899, fyrst til
Cavalier í Norður-Dakóta en þaðan
til Nýja Íslands 1901, þar sem hann
nam land í Geysisbyggðinni
skammt frá Árborg. Þegar hann og
Þóra hættu þar búskap tóku Gunn-
ar og Margrét við búinu og nefndi
Gunnar, sem var öðrum á svæðinu
fremri í íslensku og íslenskum bók-
menntum, bæinn Breiðablik.
Bragi segist vera vanafastur og
þótt hann hafi komið víða við vilji
hann hvergi annars staðar vera en
á Breiðabliki. „Það er mjög gott
fjölskyldulíf í byggðinni og góðir
nágrannar,“ segir hann en hann og
Heather, eiginkona hans, sem er af
skoskum og enskum ættum, eiga
fjögur börn á aldrinum níu til
fimmtán ára. Þau eru Heiða, Avery
Hlíð, Óðinn, og Jóhann. Krakk-
arnir eru allir í Barnakórnum í
Nýja Íslandi, syngja íslensk lög en
tala ekki íslensku. „Krakkarnir
hafa verið í íslenskutímum hjá
Svövu systur og kunna nokkur orð
en ekki nóg til að tala málið. Avery,
sem er 13 ára, hefur samt mikinn
áhuga á íslenskunni og hefur hug á
að fara til Íslands í náinni framtíð,“
segir Bragi en sjálfur talar hann
góða íslensku. Hann syngur mikið
og hefur lengi verið í kvartettinum
Sóley söngmenn, sem skemmti m.a.
á þorrablótinu í Árborg um liðna
helgi. „Við erum reyndar sex núna,
fimm úr Geysisbyggðinni og einn
frá Riverton, og syngjum bæði á ís-
lensku og ensku en mest þó á ís-
lensku. Þrír í hópnum tala íslensku
en hinir skilja svolítið. Við æfum
einu sinni í viku á veturna en
stjórnandinn, kona sem er gift
bónda í byggðinni, er oft í burtu og
þá æfum við ekkert á meðan.“
Bragi segir að það verði stöðugt
erfiðara að viðhalda íslenskunni í
Nýja Íslandi. „Fáir á mínum aldri
tala íslensku og nær enginn í næstu
kynslóð á eftir, en reyndar eru
nokkrir ungir strákar með mikinn
áhuga á Íslandsmálum og nágranni
minn, Joel Friðfinnsson, er orðinn
rammíslenskur. Það er ekki langt
síðan þessi áhugi kviknaði hjá hon-
um sem sýnir að það þarf ekki svo
mikið til að tendra bálið.“
Frumkvöðull í lífrænni
ræktun nautakjöts
Í Kanada er aukin spurn eftir náttúruvænum og lífrænt rækt-
uðum vörum. Bragi Sæmundsson, bóndi í Nýja Íslandi í Mani-
toba, hefur brugðist við þessu með því að gefa holdanautum
sínum aðeins gras en ekki korn og framleiðir þannig hollara
kjöt en þeir sem ala gripina á korni. Steinþór Guðbjartsson
sótti hann heim á Breiðabliki og forvitnaðist um málið.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Sóley söngmenn sungu á þorrablótinu í Árborg um liðna helgi og vöktu
mikla lukku sem fyrr. Frá vinstri: David Gislason, Thor Eyjolfson, Bragi
Sæmundsson, Melvyn Eyjolfson, Reg Johnson og Mareno Sigvaldason.
Morgunblaðið/Steinþór
Bragi Sæmundsson, bóndi á Breiðabliki í Nýja Íslandi í Manitoba, er með
um 250 holdanaut og hefur kjötsalan aukist jafnt og þétt í Winnipeg.
steg@mbl.is
RUTH Christie, sagnakona frum-
byggja í Manitoba í Kanada, er vænt-
anleg til Íslands á þriðjudag og grein-
ir næstu vikur frá lífi frumbyggja og
tengslum þeirra við íslenska innflytj-
endur í Manitoba.
Sagnakonan kemur til landsins á
vegum verkefnanefndarinnar Int-
ernational Visits Program, sem starf-
ar á vegum Þjóðræknisfélaganna á
Íslandi og í Vesturheimi, og er verk-
efnið styrkt bæði á Íslandi og Kan-
ada. Hún vinnur í sögusafni skammt
norðan við Winnipeg, Lower Fort
Garry, og tengist Íslendingum, en
Joseph Monkmann, langalangafi
hennar, var leiðsögumaður hópsins,
sem nam land á Willow-tanga við
Winnipegvatn 1875, og John Ramsey,
langafi hennar, var íslensku landnem-
unum í Riverton og nágrenni sérstak-
lega hjálplegur.
Ruth Christie kemur fram í ýmsum
skólum og stofnunum í Reykjavík, á
Keflavíkurflugvelli, Sauðárkróki,
Hofsósi og Akureyri. Hún segir frá
lífi, siðum og venjum frumbyggjanna,
samskiptum þeirra við Íslendinga og
sýnir handverk þeirra. Gert er ráð
fyrir að hún verði í Landsbókasafni
Íslands kl. 16:30 til 17:30 föstudaginn
28. mars og kl. 14 til 15 laugardaginn
29. mars, en fimmtudaginn 3. apríl er
áætlað að hún verði í Vesturfarasetr-
inu á Hofsósi.
Sagnakona
frumbyggja
heimsækir Ísland
Ruth Christie, sagnakona frum-
byggja í Manitoba í Kanada.
DENNIS Furlong, menntamálaráð-
herra New Brunswick, vill auka
samskipti fylkisins við Ísland á sviði
menntamála og Gary Doer, forsætis-
ráðherra Manitoba, hefur áhuga á
auknu samstarfi við Ísland.
Íslensku sendiherrahjónin í Kan-
ada, Hjálmar W. Hannesson og
Anna Birgis, voru í opinberri heim-
sókn í New Brunswick á dögunum og
áttu meðal annars fundi með Maril-
yn Trenholme Counsell fylkisstjóra
og Bev Harrison, forseta fylkis-
þingsins, en sendiherra færði þeim
þjóðargjöfina svonefndu, sett Ís-
lendingasagna, til varðveislu í við-
komandi bókasöfnum.
Norðurlöndin, Holland og New
Brunswick hafa komið á fót sam-
starfi í upplýsinga-, mennta- og
tæknimálum og kom fram hjá Denn-
is Furlong, menntamálaráðherra
fylkisins, á fundi með Hjálmari að
hann vildi efla samstarfið, m.a. með
nemenda- og kennaraskiptum, en
verkefni í kennslufræði er í gangi
milli fylkisins og Danmerkur og
stendur til að hin Norðurlöndin og
Holland komi að því síðar auk þess
sem ráðherrann vill auka samvinnu á
sviði fjarnáms á Netinu.
Gary Doer, forsætisráðherra
Manitoba, hefur einnig sýnt mikinn
áhuga á auknu samstarfi Manitoba
og Íslands og átti fund með Korn-
elíusi Sigmundssyni, aðalræðis-
manni Íslands í Winnipeg, í vikunni.
Þar áréttaði hann áhuga sinn á sam-
vinnu í vetnismálum og sagði að
fulltrúar fylkisins yrðu í Reykjavík í
apríl vegna opnunar fyrstu vetnis-
stöðvar í heimi fyrir almenning.
Hann greindi einnig frá vilja sínum
til að auka kynningu á Manitoba í
Vesturfarasetrinu á Hofsósi.
Menntamálaráðherra New Brunswick í Kanada
Vill auka samstarfið
Kornelíus Sigmundsson, aðalræðismaður í Winnipeg, og
Gary Doer, forsætisráðherra Manitoba, hittust í fyrsta
sinn í vikunni og ræddu aukið samstarf.
Þjóðargjöfin afhent. Marilyn Trenholme Counsell, fylk-
isstjóri New Brunswick, Hjálmar W. Hannesson, sendi-
herra Íslands í Kanada, og Anna Birgis, eiginkona hans.